Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 18
18
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999
^Sviðsljós
Vildu heldur
geit en
hertogaynju
Hertogaynjan afJórvík, eöa
Fergie eins og hún er kölluð,
segir í opinskáu viötali í tilefni
fertugsafmælis síns aö fjöl-
miðlar hafi næstum gert henni
lífið óbærilegt. Hún hafi til
dæmis grátiö af skömm þegar
hún sá í The Sun aö 82 prósent
lesenda vildu heldur eiga mök
við geit en hertogaynjuna.
Fergie kveöst hafa átt í
vandræðum með þyngdina frá
þvi aö hún var 12 ár. „Ég horða
þegar ég er leið. Ég borða í
staðinn fyrir að gráta,“ segir
Fergie. Hún heldur því þó fram
að nú sé hún í stakk búin til að
þola lætin í fjölmiðlum. Henni
finnst hún sterkari, glæsilegri
og glaðari en nokkru sinni.
Calista
í fríi með
óþekktum vini
Calista Flockhart er nú í fríi
á Hawaii með óþekktum vini
sem hún vill enn ekki greina
frá hver er. Calista, sem var
orðin hvíldar þurfi, segist alltaf
hafa gætt þess að tala lítið um
einkalíf sitt. Hún hafi í byrjun
ferils síns átt erfitt með að vera
i sviðsljósinu. Enn sé hún varla
búin aö venjast því.
Calista kveðst hafa verið
orðin þreytt og slitin. Hún hafi
verið næstum sjúklega
upptekin af því að þurfa hafa
stjóm á öllu og öllum.
Hewitt saknar
enn Díönu
Fyrrverandi ástmaður Díönu
prinsessu, James Hewitt, er nú á
bókamessunni í Frankfurt til að
kynna bók sína, Love and War eða
Ást og stríð, um ástarsamband hans
og prinsessunnar. I viðtali við fjöl-
miðla kvaðst Hewitt enn sakna
Díönu.
„Ég skrifaði bókina til að ljúka
þessum umfangsmikla kafla í lífi
mínu og til að geta haldið áfram,"
greindi ástmaðurinn fyrrverandi
frá.
Hewitt kvaðst hafa viljað segja
sannleikann. Alis kyns þvaður og
misskilningur hefði verið á kreiki
vegna umfjöllunar slúðurblaðanna.
Hewitt lagði áherslu á að hann hefði
aldrei litið á sig sem föðurímynd
fyrir prinsana Vilhjálm og Harry.
„Karl er mjög góður faðir og ástrík-
Breskir fjölmiðlar kalla Hewitt rottu
og svikara. Símamynd Reuter
ur,“ tók hann fram. Bók Hewitts
kemur út I Bretlandi á mánudaginn
og á bókamessunni í Frankfurt
kvaðst útgefandinn hafa fengið
haug af tilboðum.
Breskir fjölmiðlar, sem kalla
Hewitt rottu og svikara, saka hann
um að ætla að græða á sambandinu
við Díönu. Aðspurður hvort hann
ætlaði að gefa eitthvað af sölu-
hagnaðinum til líknarmála sagði
Hewitt að það væri einkamál milli
sín og útgefandans.
Hann gaf í skyn á sínum tíma að
hann myndi aldrei birta ástarbréfin
sem Díana skrifaði honum. Hewitt
viðurkennir hins vegar nú að hafa
notað bréfin í bók sinni. Kveðst
hann hafa notað þau á akademískan
hátt til að gera frásögn sína
trúverðuga.
Leikararnir Edward Norton og Brad Pitt léku á alls oddi við frumsýningu myndarinnar Fight Club í Los Angeles
nýverið. Þeir leika báðir í myndinni sem fjallar um unga uppa. Símamynd Reuter
Shctm
f
KLAUSTRÍÐ
M < M X í 1 /
Veitinga- og skemtistaðurinn Klaustrið
Klapparstíg 26 • Sími 552 6022
Estelle og Ruud á
leið í hjónaband
Fótboltakappinn Ruud Gullit hef-
ur ákveðið að leiða kærustuna sína
Estelle Cruyff upp að altarinu, að-
eins nokkrum vikum eftir að Ruud
flutti út úr íbúð þeirra.
í síðasta mánuði var heitt í kolun-
um vegna meints framhjáhalds
Ruuds með þjónustustúlku á pítsu-
stað. Stúlkan fúllyrti í blaðaviðtali
að hún hefði verið með Ruud í átta
mánuði.
Ruud og Estelle, sem eiga tveggja
ára dóttur, skelltu sér í ferðalag til
Frakklands og ákváðu aö sættast.
Glansinn farinn
af Charlotte
Sænska söngkonan Charlotte
Nilsson varð alþjóðleg stjarna
þegar hún sigraði í Evrópu-
söngvakeppninni síðastliðið vor.
Nú er glansinn farinn af söngkon-
unni. Fyrsta sólóskífan hennar
var komin í 44. sæti viku eftir að
hún kom á markaðinn í Svíþjóð
í septemberlok. Nú er platan dott-
in út af vinsældalistanum. Ekki
er langt síðan Charlotte hélt því
fram í viðtali að platan hennar
seldist vel. Útgefandinn hefur
ekki gefið upp alla von og ætlar
að setja plötuna á alþjóðlegan
markað.
Travolta elskar
einkennis-
búninga
John Travolta er í einkennis-
búningi hönnuöum af Armani
þegar hann er flugstjóri í eigin
flugvélum. „Ég elska einkennis-
búninga," viðurkennir kvik-
myndaleikarinn. En það er ekki
mikið annað sem tengist hernum
sem leikaranum líkar. Travolta
elskar einnig mat og konuna
sína, sem gengur með annað bam
þeirra hjóna. Hann segir Kelly
hrifna af stutta hárinu hans.
Hann lét stytta hárið til að hylja
skallann sem er að byrja að sjást.
Bruce á leið að
skipta um
skoðun
Bruce Willis hafði lýst þvi yfir
að hann væri búinn að fá nóg af
Die Hard-kvikmyndunum. Nú
virðist sem kappinn sé að skipta
um skoðun.
„Það er til handrit. En það
væri betra ef ég væri svolítið
eldri," segir Bruce sem er
vinsælli en nokkru sinni vegna
velgengni myndarinnar The
Sixth sense. Myndin er nú þegar
komin á lista yfir þær 20 myndir
sem náð hafa mestum vinsældum
gegnum tíðina.