Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 28
FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1999 I>V nn Ummæli fyrir dirty menn Við myndum ekki hafa gert það nema okkur fyndist þetta í lagi. Þetta er nú mjög mild brjóstaauglýsing ef þú skoðar hana. j \ Það er varla hægt J ™ \ að tala um \ brjóstaauglýs- ingu nema fyrir menn sem hugsa i dálítið „dirty“. Þetta er mjög falleg mynd af barmi konu en ekki brjóstum," Þröstur Ólafsson, frkvstj. Sin- fóníuhljómsveitarinnar, í Degi um auglýsingu sveitarinnar á óperettutónleikum. íslendingar eru hænsni „Ég reikna að sjálfsögðu ekki með því að almenningur í landinu láti sér bregða við margendurtekna, vel skipu- lagða stórþjófnaði úr sam- eignarsjóöum landsmanna. Ég held að öll framangreind dæmi séu enn ein sönnun þess að íslendingar séu hænsni eins og Steinn Stein- arr mun hafa skilgreint hug- . takið.“ Sigurður R. Þórðarson í Mogg- anum um „ærslakennda fars- ann", söluna á FBA. Biskupinn andskot- ast á klámhundum „t ræðunni stakk hann á mörgum kýlum og andskotað- ist á gróðapung- um, klámhundum, heimilisofbeldis- mönnum, lifs- gæðakapphlaup- urum, sölumönn- um dauðans og hvers kyns níð- ingum. Hann valtaði yfir efnishyggjuna og eftirsókn eftir vindi á öllum sviðum." Jóhannes Sigurjónsson í Degi um þrumuræðu bisk- ups á kirkjuþingi. \ } 1 í Heiftin heilaspuni söguskýrenda „Heift í garð Sigríðar er heilaspuni hugmyndaríkra „söguskýrenda" á borð við Kol- \ brúnu Bergþórsdóttur. Framlag Sigríðar til kvennabaráttunnar | hefur verið mikið og er það enn. Hún naut ævinlega álits og trausts í Kvennalistanum þótt um framgöngu hennar væru skiptar skoðanir eins og um verk okkar allra." Kristín Halldórsdóttir í Degi um meinta heift Kvenna- listakvenna í garð Sigríðar Dúnu Kristmundsdóttur. / Gunnlaugur Magnússon, formaður FH sem er 70 ára: Flaggskip FH er handboltinn Gunnlaugur Magnússon, íjár málastjóri hjá __________________ Icedan hf. sem selur útgerðar- vörur, er for- maður eins stærsta íþróttafélags landsins, Fimleikafélags Hafnar- fjarðar sem í daglegu tali heitir FH. Félagið er 70 ára um þessar mundir og heldur upp á áfangann eins og vera ber. Einn helsti frumkvöðull að stofnun félagsins var ungur íþróttakennari, Hallsteinn Hinriks- son sem oft var kallaður faðir hand- knattleiksins auk þess að fá titilinn „faðir FH“. Það æxlaðist svo að handboltinn varð stærsta fiöðrin í hatti þeirra FH-inga og hefur svo verið um áratugaskeið. „Það breytist ýmislegt í tímans rás,“ sagði Gunnlaugur í rabbi við DV þegar hann var spurður út í nafn félagsins sem vísar til fim- leika. Sú íþróttagrein lagð- ist af í félaginu, en í dag er boðið upp á fimm greinar íþrótta: hand- knattleik, knatt- spymu, frjálsar íþrótt- ir, lyftingar og skylm- ingar. „Flaggskip FH er handboltinn og við höfum aldeilis lát- ið að okkur kveða gegnum tíðina í þeirri íþrótt. Við Gunnlaugur Magn- ússon - stýrir sjö- tugum stórklúbbi styrkum höndum. Áfram FH! Maður dagsins erum afar stolt af okkar framlagi til _______________ handboltans og framlagi Hallsteins heitins Hinriksson- ar. Við höfum líka verið og erum liðtækir í knatt- spyrnu og stundum verið í efstu deild. Árangur frjálsíþróttafólksins okkar hefur líka verið einstakur og við erum langbestir í þeirri grein. Til skamms tíma hef- ur FH ekki átt stórar stjörn- ur í frjálsum en breiddin er mikil, og mikill fiöldi þátttakenda í öllum flokk- um,“ sagði Gunnlaugur. í Kaplakrika eru höfuðstöðvar FH. Þar hefur verið byggt upp af myndarskap. „Við erum með stórt og glæsilegt íþróttahús, lyftingahús, grasvelli og auk þess það sem ekki allir vita - nýjan sandgrasvöll. Við byggðum líka á síðasta ári glæsileg- an frjálsíþróttavöll. Það hefur verið mikill kraftur í FH og sóknarhugur í félaginu," sagði Gunnlaugur. í FH eru 2.500 félagar og þar af hátt í tvö þúsund virkir í starfi, æf- ingum, keppni og stjórnun félags- ins. Gunnlaugur er gamalgróinn í félaginu enda starfað þar í 30 ár, fyrst sem gjaldkeri og formaður knattspymudeildar. Á 15 ára valda- ferli Bergþórs Jónssonar handbolta- kappa sem formaður FH var Gunn- laugur varaformaður hans. „Við höfum nú þegar haldið upp á afmælið á ýmsan hátt. Við buðum öllum leikskóla- börnum í bænum í Kaplakrika að leika sér í ágúst. Það vakti mikla lukku hjá börnunum. Íþróttahátíð var haldin hjá okk- ur 10. og 11. september. Þar var keppt og sýnt um allt svæðið, all- ar okkar greinar og allir aldursfiokkar. Við höfum notið mikils og góðs stuðnings bæjaryf- irvalda sem við erum afar þakklát fyrir. Það er þeim að þakka að að- staða FH er svo glæsileg sem raun ber vitni,“ sagði Gunnlaugur Magn- ússon. -JBP Blönduós um helgina: Landsmót skólalúðrasveita Landsmót íslenskra skóla- lúðrasveita verður haldið á Blönduósi dagana 15.-17. október. Aðaltónleikar sveit- anná verða kl. 14 á morgun, laugardag, þegar allt að þriggja klukkustunda langir Tónleikar tónleikar verða haldnir. í lokin mun allur hópurinn leika þrjú kántrílög eftir Hallbjöm Hjartarson sem vora sérstaklega útsett fyrir mótið. Á mótinu koma saman 25 lúðrasveitir frá 18 stöðum á landinu. Alls verða þama um 630 spilarar og 70-90 far- arstjórar og stjómendur þannig að þátttakendur verða yfir 700 talsins. Gist verður á þremur stöðum, Húnavöllum, Skagaströnd og Blönduósi. Landsmót Sam- bands íslenskra skólalúðra- sveita hefur verið haldið annað hvert ár frá 1985 en voru áður haldin árlega. Hér er um afmælismót að ræða, þar sem nú em liðin þrjátíu ár frá því að tvær sveitir hittust fyrst á Seltjamarnesi, árið 1969. Myndgátan Lausn á gátu nr. 2528: © ZBZ8 -EYboR- Breytingaskeið Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Óskalög landans í Kaffileik- húsinu Kaffileikhúsið stendur fyrir tónleikaröð í vetur sem ber nafn- ið „Óskalög landans“. Þar verður leitast við að flytja vinsæl lög eft- ir íslenska höfunda. Fyrsta kvöld- ið er í kvöld og verða flutt lög við Leikhús söngtexta Jónasar Árnasonar. Söngtextarnir eru m.a. úr hinum þekktu leikritum Þið munið hann Jörand, Delerium Bubonis, Allra meina bót og Jámhausnum. Mörg laganna voru geysivinsæl í flutn- ingi sönghópsins Þrjú á palli en í kvöld er það hópur sem kallar sig Bjargræðistríóið sem flytur lögin. Hópinn skipa Aðalheiður Þor- steinsdóttir á píanó, Anna Sigríð- ur Helgadóttir söngkona og Örn Amarson á gítar. Að auki mun heyrast í ýmsum öðrum hljóðfær- um og söngröddum. Kvöldstundin hefst með kvöldverði kl. 20.00 og söngskemmtun hefst kl. 21.30. Miðapantanir em allan sólar- hringinn í Kaffileikhúsinu í síma 551-90 80. Bridge Þvi er haldið fram með góðum rökum að lítil ffamþróun hafi orðið í úrspili eða vöm í bridge síðustu hálfu öldina. Framfarir hafi einung- is orðið i sagnkerfunum. Sagnkerfi voru frumstæð á fyrri hluta aldar- innar en slæmir lokasamningar geri miklar kröfur til sagnhafa og vamarinncir. Skoðum hér eitt dæmi um skemmtilega vöm vesturs sem óvist er að finnist við borðið nema ákveðin snilligáfa sé fyrir hendi. Spilið kom fyrir í tvímennings- keppni í New York á árum fyrri heimsstyrjaldar en Bandaríkjamað- urinn Charles B. Cadley sat í sæti vesturs. Það var í hlutverki vesturs að reyna að koma í veg fyrir að suð- ur fengi 10 slagi í fióram spöðum: 4 D5 «4 D94 4- KG76432 * 8 4 G103 «4 7 4 Á8 4 G1097542 4 ÁK98742 «4 1065 4 - 4 ÁKD Vestur spilaði út einspili sínu í hjarta og austur tók þrjá fyrstu slag- ina á hjartalitinn. Örlög vamarinn- ar fólust í afköst- um vesturs. Cadley var með vörnina á hreinu. Hann henti tíguláttu og ás í annað og þriðja hjartað. Austur var með á nótunum og spilaði tígli í fiórða slag. Sagnhafi gat ekki komið í veg fyrir að vestur fengi einn slag á tromp. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.