Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 4
Nei
takk!
Ert þú einn af þeim sem lítur
vinagengið í Friends-þáttunum öf-
undarauga? Við getum hinsvegar
fullvissað þig um að það er ekki
yfír neinu að öfundast, því það að
eiga of marga vini getur hreinlega
verið skaðlegt þinni andlegu
heilsu. Þetta hafa vísindamenn í
Bandaríkjunum fundið út. Við há-
skólannn í Michigan var gerð
rannsókn á fullt af fólki með mis-
munandi stóra vinahópa. í þessari
rannsókn kom í ljós að þeim mun
fleiri vini sem fólk átti þeim mun
óánægðara með lífið var það.
Að meðaltali eiga konur fleiri
nána vini en menn og það eru þær
konur sem ganga um með fílófax-
ið fullt af heimilisföngum sem eru
hvað óánægðastar. Það að eiga
margar vinkonur getur nefnilega
verið mjög slítandi sérstaklega
þar sem konur finna yfirleitt til
mikillar samkenndar með vinkon-
um sínum og og fá slæma sam-
visku ef þær styðja ekki við bakið
á þeim þegar á móti blæs. Öll
þessi „vinkonusálarhjálp" kemur
hinsvegar oft niður á þeirra eigin
lífi. Karlmennimir sem tóku þátt í
rannsókninni staðfestu ekki að
þeir væra sjálfselskari en konurn-
ar heldur finnst þeim það ekki
vera á þeirra könnu að leysa úr
vandamálum vina sinna. Sem sagt
ekki slefa yfir Friends-þáttunum,
því þó að það virðist vera rosalega
gaman að eiga marga vini þá er
það samt mikil vinna að halda í
þá, og stór hætta á því að maður
verði óhamingjusamur af því að
leika sálfræðing fyrir allan vina-
hópinn.
6RSN
Sverrisson fram-
kvæmdastjóri er
að koma með
þriðja smásagna-
safnið sitt í næsta
mánuði. En hann
er ekki bara merki-
íegur rlthöfundur
heidur vinnur hann
frekar óvenjulega
vinnu. Fyrirtækið
sem hann rekur
sérhæfir sig
nefnilega í rekstri
símakláms og
stefnumótaiína.
Fókus tók púisinn
á kauða.
„Einhvem vegin var það þannig
að þegar mig var að dreyma um að
verða rithöfundur hér á síðasta
áratug var ég mikið að leyta mér
að vinnu sem hentaði með skrift-
unum,“ segir Ágúst Borgþór
Sverrisson, rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Veitunnar-Nýmiðl-
un. „Svo í kringum 1990 þá byrjaði
ég að vinna hjá Símatorgi. En þá
fjallaði sá bransi ekkert um klám
heldur bara leiki og markaðsátök.
Þessi markaður hrundi síðan eftir
nokkur ár og þá fór ég að vinna við
textagerð hjá Stöð 2 en hætti því
þegar mér bauðst að taka við fyrir-
tæki sem sérhæfði sig í þessari
nýju símatækni."
Nýja símtæknin er auðvitað
símaklám og stefnumótalínur sem
njóta gífurlegra vinsælda hjá stór-
um hópi þjóðarinnar þrátt fyrir að
þingmenn og aðrir broddborgarar
séu ekki hrifnir af fyrirbærinu.
Hvaó meö þig, Borgþór,
skammastu þín fyrir vinnuna þína?
„Nei, en það verður að viður-
kennast að það er stundum óþægi-
legt þegar fólk spyr mig hvað ég
geri því ég er ótrúlega reglusamur
maður og er bara framkvæmda-
stjóri þjónustufyrirtækis," svarar
Ágúst og bætir því við að starf
hans hjá Veitunni sé mjög óper-
sónulegt og í raun bara eins og
hver önnur skrifstofuvinna.
Blindfullur í KR-treyju
„Það sem hefur vafist fyrir mér
er að ég hef alltaf verið að berjast
við að skrifa skáldsögu þegar smá-
sagnaformið hefur alltaf hentað
mér best. Og um tíma fannst mér
sem mér hefði mistekist að verða
rithöfundur vegna þessa en núna
er ég að verða sáttari," segir Ágúst
Borgþór og hann má líka vera það
þvi hann er nú að koma með þriðja
smásagnasafnið í næsta mánuði.
Ágúst kom fyrst fram með smá-
söguna Sakna í Tímariti Máls og
menningar árið 1987 en sú saga
birtist síðan í smásagnasafni hans,
Síðasti bíllinn, en það safn gaf
hann út sjálfur. Svo gaf Skjaldborg
út smásagnasafnið, í síðasta sinn,
og nú er væntanlegt safnið, Hring-
stiginn, sem Ormstunga gefur út en
titilsaga þeirrar bókar birtist í
Tímariti Máls og menningar fyrr á
þessu ári.
En um hvaö ertu aö skrifa?
„Þema fyrstu bókarinnar var ut-
angarðskenndin. Á þeim tíma sem
ég skrifaði hana var ég að vinna á
Kleppi og því fjallaði hún mikið
um geðsjúklinga, vanrækt börn og
fleira í þeim dúr. Næsta bók var
með fíknina sem þema og þessi
sem er að koma út í næsta mánuði
imprar á spumingunni um hvað
það er sem móti líf fólks. Er það
einstaklingurinn sjálfur, uppeldið,
foreldrarnir eða erfðirnar? Tit-
ilsagan fjallar einmitt um mann
sem er að rifja upp samskipti sín
við föður sinn sem hefur átt níu
konur og er á geðdeild. Sonurinn
hræðist það mest að líkjast föður
sínum,“ útskýrir Ágúst og segist
vera tómhyggjumaður sem kýs
frelsi í stað skandinavískrar fóstru
sem vaki yfir samfélaginu. „Ég var
til dæmis blindfullur í KR-treyju
þegar listamenn voru eitthvað að
bardúsa á Eyjabökkum."
Nú, ertu ekki náttúruverndar-
sinni?
„Nei. Mér leiðist náttúra og liður
illa úti á landi. Ég hef heldur ekki
gaman af landslagi, nema þá helst
borgarlandslagi."
Ekki með kynlíf á heilanum
Ágúst Borgþór er samt sannur
íslendingur. Hann hefur átt sömu
konuna i 16 ár og á eitt bam með
henni og svo er annað á leiðinni.
Hann býr í vesturbæmnn og hefur
alla tíð verið KR-ingur. Hvað
óvenjulega vinnu varðar segir
Ágúst að þetta starf sitt hafi bjarg-
að rithöfundinum i honum.
„Vinnutíminn er mjög hentugur
til skrifta og maður kynnist öllum
hliðum mannlifsins héma. En ég
hugsa ekki meira um kynlíf þó ég
vinni hérna og er alls ekki með
kynlíf á heilanum. En mér sýnist
viss hluti þjóðarinnar hafa mjög
mikinn áhuga á kynlífi og hugsa
mikið um það. Og þessi hópur virð-
ist lifa mjög fiölskrúðugu kynlífi,"
segir Ágúst og það vottar ekki fyr-
ir glotti, heldur undrun á því hve
fiölbreytt mannlíf þrífst á Fróni.
En var ekkert erfitt aö starta
svona nýrri starfsemi?
„Jú. Ég vissi heldur ekkert um
fyrirtækjarekstur eða ársreikninga
þegar ég byrjaði en var samt tek-
inn við rekstri nýs fyrirtækis og
sat inni á stórri skrifstofu, fyrir
framan tölvu og áður en ég vissi af
var ég farinn að skrifa ljósbláar
sögur og læra allt um rekstur fyrir-
tækis. En þetta lærðist fljótt og nú
er starfsemin á ákveðnum tíma-
punkti. Fyrir ári síðan þá lifði
þetta nær einungis á klámsögum
en nú era stefnumótin orðin miklu
mikilvægari partur af starfseminni
og það er mjög jákvætt."
Og hvernig eru þessar klámsögur
unnar, eru margar konur í vinnu
hjá þér?
„Að meðaltali vinna tvær konur
við að lesa efni. Svo er manni boð-
ið efni frá fólki sem hefur eitthvað
kynferðislegt að segja. Dæmi um
slíkt efni er að einu sinni hringdi í
mig stúlka sem hafði sofið hjá
kennaranum og lesið söguna inn á
segulband sér til skemmtunar."
Þetta er sem sagt svoldiö
krassandi vinna?
„Nei. Þetta er bara skrifstofu-
starf og ég hef til dæmis aldrei rek-
ist á nakta konu í vinnunni," segir
Ágúst að lokum og sest aft-
ur við tölvuna til að
skrifa smásögur og
reka símaþjónustu-
fyrirtæki. -MT
EN SVO ÞEGAR MAOUR KEMUR. 'fCIR...
HVAOA GJALDMIÐIUU ER FYRlR. HAnDAN ?
4
f Ó k U S 15. október 1999