Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Page 9
Palli lætur fara vel um sig í stóln-
um á hárgreiðslustofunni Krista, sem
er á 3. hæð í Kringlunni. Þar tekur á
móti honum hárgreiðslumeistarinn
Sibbi sem er maðurinn á bak við
lúkkið hans. „Ahh, frábært að koma
hingað og láta nostra aðeins við sig.
Það er búið að vera algjör Kleppur að
vera til upp á síðkastið, allt of mikið
að gera. Þannig að það er ekkert lítið
friðandi að sitja hérna í stól og láta
nudda á sér hárrótina," segir Palli
með brosandi letisvip.
Páll Óskar er tiltölulega
nýkominn heim frá
London þar sem hann
var ásamt friðu fóru-
neyti að klára að
taka upp nýju plöt-
una. Hann er allt í
öllu á plötunni,
fjármagnar hana
og gefur út, sér
u.þ.b. um allt sem
hægt er að sjá um. \
'i
Eg fíla að vera
með svipuna á
samstarfs-fólki mínu!
Ég get orðið svo
mikið fokking bitch
í stúdíóinu.
. fjóli
Aftur út úr
skápnum
„Ég er mjög hress með út-1
komuna á plötunni og vona að það
heyrist hvað það er búið að liggja
mikið yfir henni. Við byrjuðum fyrst
að leggja línur í apríl og erum búnir
að vera að síðan. Lokafrágangurinn
fór fram úti en prógrammeringar, yf-
irseta og rifrildi fóru öll fram hérna
heima.“ Með Palla á plötunni eru
nokkrir af eðaltónlistarmönnum
Frónar, m.a. Jóhann Jóhanns
(Lhooqari), Barði Jóhanns (Bang
Gangari) og Herb Legowitz (Gus
Gussi).
„Þar sem ég spila ekki á|pein hljóð-
færi, nema röddina mína, og kann
ekki einu sinni að lesa nótur var ekki
vitlaust að fá smá hjálp. En ég söng
mér til óbóta í stúdíóinu, ég fékk ekk-
ert frí. Það er enginn búinn aö vera
heilagur á plötunni: „Ég er lagahöf-
undur, ég er pródúsant, ég er blabla.“
Menn bara komu með hugmyndir og
köstuðu síðan boltanum á milli sin.
Þetta var mjög góð blanda, Jóhann
hefur prógrammeringartæknina,
hann er gangandi borgarbókasafn af
hljóðurp, Herb Legowitz er plötusnúð-
urinn og taktaráögjafinn og Barði er
húmoristinn, alveg sjúklega góður
lagahöfundur. Líklega besti lagahöf-
undur sem hefur komið upp á yfir-
borðið hérna í langan tíma.
Annars er ég í rauninni að koma
aftur út úr skápnum, í þetta skiptið
sem pródúsant. Ég er farinn að hafa
puttana í fleiru og núna fer ekki neitt
inn án þess að það fari í gegnum mitt
nálarauga, ekki eitt hijóð. Ég fila að
vera með svipuna á samstarfsfólki
minu! Undir þeim kringumstæðum er
ég mjög hissa yfir því að þessir gæjar
hafið virkilega meikað að vinna með
mér. Ég get orðiö svo mikið fokking
bitch i stúdióinu. En það sem skiptir
mestu máli er að gagnrýna vinnuna
strax frekar en að gefa plötuna út
sisona og heyra svo alla þjóðina segja:
“Nýja platan hans Palia tottar!”
Klúbbatúr eftir Eurovision
Eins og flestir muna eftir fór Páll
Óskar út fyrir hönd íslands í
Eurovision-keppnina árið 1997. Hann
vann hana kannski ekki en kláraði
dæmið. Og svo dundu gyliiboðin yfir
hann í kjölfarið.
„Já, já. Ég fékk tilboð frá Þýska-
landi, Énglandi og Skandinavíu en
sagði nei við þessu öllu. Ég átti ekki
að fá algert “listrænt frelsi” í
hljóðverintf. Ég ákvaö frekar að klára
þetta dæmi í umhverfi sem ég þekki
með fólki sem ég þekki.“
En hvað gerðirðu eftir Eurovision?
„Eftir Eurovision fór ég í tónleika-
túr um Evrópu. Þar spilaöi ég aöal-
lega á gay klúbbunum. Ég var svona
að tékka á víbrunum, sjá hvort það
vildi mig einhver. Ég var líka að sjá
hvort það sé einhver annar söngvari í
poppinu þama úti sem er að gera.
sömu hluti og á sömu forsendum og
ég. Ég fann engan og ekki bransagaur-
arnir heldur. En það er fyrst núna
sem ég þori aö gera eitthvað í þessu
úti. Ég hef ekki heldur verið með
nógu mikið af frumsömdum iögum
fyrr en núna. Þannig aö núna er ég
kominn í stuð fyrir þetta popprugl! Ég
er bæði kominn í stuö til að leika
þennan bransaleik við stóru peninga-
kallana og til að semja fleiri lög. Mál-
ið er að i fyrsta sinn er ég að senda frá
mér efni sem mér finnst að ég hefði
ekki getað gert meira við. Ég drullað-
ist loksins til að ramma inn mitt
attitúd."
Sveitti vörubílstjórinn með vindil-
inn
Sibbi hárgreiðslumeistari tekur sér
smá pásu meðan hann leyfir litnum
að malla á hausnum á Palla. Liturinn
sem Sibbi er að setja í hann
er fjólublár. „Þetta er
kannski ekki beint
fjólublátt, heldur
kemur svona
Cadbury’s fjólu-
blár blær á
hárið á ljós-
myndum og í
ljósi. Það
f verður þannig
þema á plötu-
f umslaginu. Svo
verð ég klæddur
^ paliíettum og í her-
^ mannaskóm." Pallí-
ettudressið og hermanna-
skómir eru engin tilviljun, allt
er þetta úthugsað hjá honum Palla:
„30% af öllu klámi sem búið er til í
heiminum er gay klám. Þetta klám
samanstendur alltaf af sömu erkitýp-
unum, þú hefur nett sveitta vörubíl-
stjórann með vindilinn og þriggja
daga skeggið. Svo er það alltaf sami
hornaboltagaurinn, í svolítið skítug-
um búningi. Og þeir halda alltaf utan
um klofið á sér. Þetta eru alltaf ein-
hverjir ofurkarlmannlegir gaurar,
sem er mjög hailærislegt þegar það er
auðséð að það eru algjörar
drottningar sem sitja fyrir á þessum
myndum. Það er eins með konur í
klámbransanum, þær þykjast vera til
í tuskið hverja mínútu dagsins. Það er
bara svo ömurlegt þegar fólk er að
ljúga að sjálfu sér, svona er ekki raun-
veruleikinn. Þama er bara gay fólk að
ijúga að öðra gay fólki og ég er ekki
að fila það! En allavega er pælingin í
sambandi við lúkkið sú að ég er í gróf-
um hermannaskóm og hot pants, en
þær eru úr pallíettum! Svo er ég með
massíft silfurgel sem glampar á
þannig að við erum svolitið að leika
okkur með þetta. Þetta er sem sagt
skot á klámbransann og fólk sem
lætur ljúga að sér í gegnum hann.“
Leikhúsmeðöl popparans
Sibbi er maðurinn sem sér um hár-
ið og málninguna á Páli Óskari. Hann
sá einmitt lika um útlitið á Seif, sem
og í Eurovision en þá fór hann með
honum út. Eins og áður er málningin
sem Páll Óskar er með utan á plöt-
unni mjög glyskennd. En hann segist
einmitt nota málninguna ásamt öðru
sem tæki.
„Ég er mjög hress með að vera með
smá hakgrann úr leikhúsi, ég var í
öllum leiklistarhópum sem ég komst i
þegar ég var yngri."
„Þú lékst náttúrulega Gúmmí Tarz-
an sjálfan hjá Leikfélagi Kópavogs,"
skýtur Sibbi inn í.
„Já, min fyrstu spor í sviðsljósinu.
En í gegnum leiklistina lærði ég
margt, eins og að ná sambandi við
áhorfendur og að nýta mér tól leik-
hússins, eins og hár og málningu. Ég
fila poppstjörnur sem nýta sér leik-
húsmeðöl, þær eru einfaldlega ekki
margar sem gera það. Ég get nefnt t.d.
Freddie Mercury, David Bowie,
Madonnu og Eurythmics. Þessi
eru/voru öll rosaleg á sviði. Það eru
ekki margir popparar samtímans sem
gera þetta.“
Þarna grípui’ Sibbi fram í fyrir
Palla og segir honum að fjólublái lit-
urinn hafi ekki náð að koma alveg
nógu vel i gegn. Þetta er náttúrulega
ekki alveg nógu gott þar sem Spotiight
sjóvið er daginn eftir og myndatöku-
tömin á næstu dögum. Þeir ákveða að
hittast daginn eftir og reyna aftur og
ná að klára þetta mál. Palii vill líka
klippa sig smá en Sibbi segir það
verða að bíða framyfír myndatökur.
Sjálfur lauma ég mér út af hár-
greiðslustofunni áður en einhver
brjálaöur klippari ákveður að gera
heiminum greiða með þvi að losa
hann við hreiðriö mitt.
-hvs
Pöddulh
Leikjatnlvan vinsæla
Steinaldar mennirnir
VHS
Myndband ú
Tvær sígildar £.!í5i»U
myndirmeö ' ■ .i/liSMv("‘■■Vj.
Steinaldar-
monnunum |CJjWMCT
vinsælu!
Ein vinsælasta
mynd Disney.
Með íslensku
talii
Þessi
frábæra
leikjavél
fæst
alltaf á
besta
verðinu í
Kaffivél
Geisladiskar
Nefhárasnyrtir
Spice
Girls
Karaoke.
Þessi er
Kaffið verður ekkert
betra þó kannan
verði dýrari
Eitthvað
sem marga vantar en þeir þora ekki að kaupa
Örbylgjuofnar
Hljómflutningstæki
VTCD 800 THOMSON
•2x10RMSwött
• Útvarp segulband -JWjTrVjlL,
FM/MW/LW C%\ lJtj Wl/lff Ttj
Geislaspilari
• Fjarstýring (Aj
Sjónvörp á betra
20 lítra
800 wött
Snúningsdiskur
14" Black FST Myndlampi
Isl. Textavarp
Scart-tengi (
Tengi fýrir leikjavél
Fjarstýring
^ BT opnar í N
Reykjanesbæ
n.k. laugardag
v kl. 10:00 átá
BT Reykjanesbæ
Hafnargötu 31 • Sími 421 4040
Vefur: www.bt.is • BT Skeifunni ■ S: 550-4444
BT Hafnarfirði - S: 550-4020 • BT Kringlunni - S: 550-4499
www.visir.is
15. október 1999 f Ókus
9