Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Síða 21
1
triS
I
l
vegna ofbeldis í kvikmyndum?
„Sko, ekkert frekar út af bíó-
myndum en fréttatímum sjón-
varpsstöðvanna. Það er nú þannig
samkvæmt lögum að ef myndin er
bönnuð innan 16 þá mega krakkar
ekki sjá myndina þó svo að þau
komi með foreldrum sínum. Við
fylgjum þessum reglum og erum
að ég held mun strangari en til
dæmis vídeóleigurnar. Ég held að
við sjáum margt ljótara í sjón-
varpi og tölvuleikjum en nokkurn
tímann bíómyndum."
Þannig að þú ert aldrei meö
slœma samvisku?
„Nei, alls ekki, það er frekar að
leikstjórarnir ættu að hafa slæma
samvisku ef einhver ætti að hafa
hana. Þannig að það þýðir ekkert
að gera mig að einhverjum ofbeld-
issegg."
Þegar fólk labbar af bíósýningu
þá lítur salurinn yfirleitt út eins og
svínastía, eru íslendingar óþrifnir?
„Já, þeir eru það. íslendingar
ganga mjög illa um. Við reynum
að þrífa eins og við getum á milli
sýninga en það er svo skrítið að
við erum með ruslatunnur á víð
og dreif um salinn en það er eins
og enginn nenni að láta rusl í þær.
Þetta er ósiður sem við höfum
vanið okkur á.“
í bandarískum bíómyndum er
oft veriö aö kela á aftasta bekk.
Kela íslendingar á aftasta bekk?
„Ég hef aldrei séð neitt svoleið-
is en hins vegar var Kringlubíó
ekki búið að vera til í marga daga
þegar brjóstahaldari fannst úti i
sal. Það var einhver sem sá
ástæðu til að skilja hann eftir og
sennilega hefur eitthvað verið í
gangi.“
Heldur þú aö þaó hafi barn kom-
ið undir í Kringlubíói?
„Það er aldrei að vita,“ svarar
Einar brosandi.
Jóhanna Kristjánsdóttir verslunarstjóri
#
<r\
L L
Hugsa Islendingar vel um heils-
una?
„Þeir eru farnir að gera það og
það er mikil breyting frá því þeg-
ar ég byrjaði að vinna hérna fyrir
10 árum því þá voru það bara sér-
vitringar sem komu hingað inn.
Núna er fólk sér mun meira með-
vitandi um heilsuna," segir Jó-
hanna Kristjánsdóttir, verslunar-
gj stjóri Heilsuhússins í Kringlunni.
Er snobb í kringum heilsu?
w „Já, það er pínulítið snobb og
það hefur aukist og alveg sérstak-
lega í kringum matarmenningu. “
$ Eru íslendingar sérvitringar?
„Margir spila sig þannig en ég
held nú samt að það sé ekki mikið
um original sérvitringa."
Eru íslendingar of feitir?
„Nei, í sjálfu sér ekki en hins
vegar eru margir krakkar of feitir
og þar er kannski að verða breyt-
ing á. íslendingar eru svolítið
öfgakenndir, annað hvort eru þeir
á fullu í sullfæðinu eða borða bara
eintóma hollustu. Fólk er svolítið
mikið að gangast undir þessar
stöðluðu ímyndir og til dæmis
koma oft til okkar huggulegar
stúlkur og eru að spá í hvort þær
fitna eða hvort matarlystin aukist
ef þær borði hitt og þetta. Maður
horfir á þær og spyr: hvað ertu að
spá?“
9 Nýtur feitt fólk sömu virðingar
og annaö fólk?
„Nei, það held ég því miður ekki
vegna þeirra ímyndar sem það
hefur. Oft er talað um að feitt fólk
sé glatt fólk en ég er því miður
ekki sammála því, ég held að það
sé bara einstaka manneskja sem
er þannig."
Þarft þú oft aö fegra sannleik-
ann í þínu starfi?
„Nei, það geri ég ekki. Það er
best að segja bara sannleikann,
það er besta sölutrykkið.“
Hvaö meö í lífinu sjálfu?
„Fólk gerir það mikið en ég
reyni að tala út frá eigin sannfær-
Áhöfn
Krinqlunnar
hvern annan. Maður verður að
taka ábyrgð á eigin gjörðum."
Trúir þú á heimsendi áriö 2000?
„Nei, ég held að það sé frekar
byrjun á einhverju nýju og enn þá
betra. Ég held að heimsendir sé
sem betur fer ekki í nánd,“ svarar
Jóhanna og við skulum vona að
hún hafi rétt fyrir sér.
ingu, rétt eins og ég geri í búð-
inni.“
Trúir þú þá ekki á guö?
„Jú, ég held það bara. Það er
voðalega þægilegt að vita til þess
að það er einhver annar sem
stjórnar þessu. Ég held nú samt
ekki að það sé öllu stjórnað fyrir
okkur, ég held að við höfum val og
það er mikils virði því þá er ekki
hægt að skella skuldinni á ein-
óformlegum fatnaði. Komdu og skoðaðu 14 metra háa klifurvegginn okkar og ísbjörninn
og láttu fara vel um þig við stærsta arin á islandi. Komdu í Nanoq og fáðu þér rétta
útbúnaðinn til að geta notið íslenskrar náttúru til fulls. Vertu til!
BAKPOKAR
Hugið að þeirri terð sem fara á, árstíma o.fl.
þegar bakpoki er valinn. Hann þarf að rúma allan
nauðsynlegan búnað án þess að vera of stór.
Gætið þess að þyngdarpunktur bakpokans sé
sem næst þyngdarpunkti líkamans.
^4
NÁNOQ>
Kringlunni 4-12 ■ www.nanoq.is
15. október 1999 f Ókus
21