Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Blaðsíða 28
______lAhöfn
JB^Knngluiiníir
Rósa Margrét Sigursteinsdóttir afgreiðslustjóri:
í nóvember
Hœ, Rósa, er ekki gaman aó vinna í
Kringlunni?
„Hæ. Jú, Kringlan er nafli alheims-
ins og að vinna á sambærilegum
vinnustað annars staðar er örugglega
frekar liflaust. Hér er alltaf eitthvað
að gerast, allt iðandi af lifi og svo
byna jólin hjá okkur af fullum krafti
um miðjan nóvember," svarar Rósa
Margrét, afgreiðslustjóri í íslands-
banka, brosandi.
Þú ert afgreiöslustjóri, í hverju felst
þaó starf?
„Ég sé til þess að afgreiðslan renni
ljúft í gegn um daginn og
að allt sé til staðar þannig
að viðskiptavinurinn fái
þá þjónustu sem ætlast er
til í lítilli bankaaf-
greiðslu.“
Eru ekki íslenskir kúnn-
ar, svona almennt, alveg
hundleióinlegir?
„Nei, það finnst mér alls
ekki. Þeir eru yfirleitt
mjög þægilegir og mjög
kurteisir," svarar Rósa og
greinilegt er að þjónustu-
lundin er henni í blóð bor-
in.
Góóæri er á allra vörum,
sem starfsmaður í banka
hlýtur þú aó finna fyrir
því, eóa hvaó?
„Ég veit nú ekki hvað á
að segja um það. Ég per-
sónulega finn fyrir litlum
mun og svo er alltaf spurning hvað i
góðærinu felst.“
Tannlœknar hugsa oftast betur um
tennurnar sínar en aðrir. Hugsar þú
betur um peningana þína en gengur
og gerist?
„Ég veit ekki hvort ég hugsa neitt
betur um peningana mína en gengur
og gerist en ef maður passar að eyða
ekki meira en aflað er þá er maður í
góðum málurn."
Eiga íslendingar og peningar vel
saman?
„Það þarf ekki annað en að líta í
kringum sig í þjóðfélaginu. Eg held
að íslendingar, sem og aðrar þjóðir,
og peningar eigi vel saman. Ég veit
ekki hver ætti ekki samleið með pen-
ingum.“
Heldur þú aó þjóöfélagiö eigi eftir
að breytast mikiö á nœstu 100 árum?
„Já, það held ég og það þarf ekki
annað en að bera saman nútímann
við árið 1950 til að sjá breytingar og
ég held að það eigi eftir að verða
miklar breytingar á næstu öld en
samt veit ég ekki hvort breytingarn-
ar eigi eftir að gerast eins hratt og
þær hafa verið að ger-
ast.“
Hvernig breytingar
ertu aö tala um?
„Bæði jákvæðar og
neikvæðar. Það eru tvær
hliðar á öllu. Ég held til
dæmis að tæknimál
muni þróast mjög mikið
og í þjónustu munu
mannleg samskipti
minnka."
Áttu þér draum, Rósa?
„Ég átti mér draum
um að verða dýralæknir
en svona fer ævin oft
öðruvísi en hún átti að
fara. En dreymir ekki
alla um að verða ham-
ingjusamir? Ég er ham-
ingjusöm og því má ég
vel við una,“ svarar
Rósa.
Sigurður Karlsson öryggisvörður:
r ekki í lögguleik
í hverju felst starf þitt, Siguróur?
„Það felst í því að gæta öryggi
búðarinnar og sjá til þess að fólk sé
ekki að stela og einnig í því að
brosa og bjóða góðan daginn,“ svar-
ar Sigurður Karlsson, öryggis-
vörður í Hagkaupum og fyrrver-
andi landsliðsmaður í frjálsum.
Þegar þú sérð einhvern grunsam-
legan, hversu viss þarftu að vera að
hann sé að stela til aó þú megir
stökkva á hann?
„Alveg 100%, ég þarf að vera það
viss að ég hreinlega hafi séð hann
stinga inn á sig. Ég má ekkert gera
fyrr en viðkomandi er kominn út úr
búðinni því ef ég gerði það inni í búð-
inni gæti viðkomandi bara sagt að
hann hafl bara verið að geyma hlut-
inn og ætli að borga hann.“
Hefur þú lent í einhverju
krassandi?
„Ég hef nú bara unnið í tvær vik-
ur hérna en samt komið upp tvö
þjófnaðarmál. í öðru málinu var ég
i kaffi og stelpan sem leysti mig af
þurfti að skokka á eftir honum. í
hinu málinu leystist allt á friðsam-
legan hátt.“
Þaö hlýtur nú aö koma aö því að
þú þurfir aö elta einhvern, er það
ekki?
„Jú, eflaust, og ef þjófnaðarmál
koma upp þá gerir maður það sem
þarf að gera. Ef þjófurinn var að
stela 100 króna hárnælu þá er nátt-
úrlega spurning hversu langt mað-
ur á að ganga en ef hann var að
stela dýrum hlut þá kalla ég á að-
stoð.“
og glœsilegri
agkaup í Kringlunni hefur opnað
ný eftir umtalsveröar breytingar.
• Meira vöruúrval.
• Ný vörumerki.
• Ný deild með myndbandsspólur, tölvuleiki og geisladiska.
• Ný, sérstök deild fyrir herra á aldrinum 16-25 ára.
• Stærri leikfangadeild.
• Stærri snyrtivörudeild
• Meira rými undir rúmfatnað,
handklæði og búsáhöld.
Veri& velkoniin
þ°r sem gomon er oð verslo
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
f Ó k U S 15. október 1999