Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Side 34
é
Maðurinn §em gerði
kókaín vinsæit
Johnny Depp náði sér vel á
strik i maflumyndinni Donnie
Brasco. Þessi metnaðarfulli
leikari, sem ekki lætur bjóða
sér hvað sem er, hefur greini-
lega kunnað vel við andrúms-
loftið því hann
hefur nú sam-
þykkt að leika að-
alhlutverkið í
Blow en sú mynd
er byggð á sönn-
um atburðum
sem leiddu til
þess að kókaín
varð ailt í einu
vinsælasta dópið
snemma á áttunda áratugnum.
Leikur Depp George Jung sem
vóir í nánu samstarfi við kóka-
inbaróninn Carlos Escobar.
Spánska leikkonan Penelope
Cruz leikur eiginkonu hans,
James Gandolfini leikur föður
hans og John Leguizamo leikur
félaga hans í smyglinu. Leik-
stjóri verður Ted Demme (Life)
sem segir myndina vera and-
hverfu ameriska draumsins.
Tökur heflast á fyrstu mánuð-
um næsta árs.
Madonna með
enskan hreim?
Madonna er alltaf að lýsa því
yfir að hún ætli sér að leika
meira í kvikmyndum en lætur
svo ekki verða af því þótt ekki
skorti hana tilboðin. Hefur hún
ekki sést á hvíta tjaldinu síðan
hún lék Evu Peron í samnefndri
kvikmynd.
' Nú hefur
verið til-
kynnt að
hún ætli að
leika í
e n s k r i
kvikmynd
Quadrille
s e m
byggð er
á leikriti
eftir Noel
Cowerd
snemma
á næsta ári og munu tökur
fara fram í London. Sjátfsagt fer
um marga Cowerd-aðdáendur
sem þessa dagana eru að halda
upp á aldarafmæli þessa vin-
sæla leikskálds. Leikstjórinn
Gavin Millarer er þó alls
óhræddur og segir að hlutverk-
ið sé vel skrifað, með góðum
húmor og gefi Madonnu tæki-
færi til að sýna hvað í henni
býr. Áður en kemur að Qu-
adrille munum við sjá Madonnu
leika í The Next Best Thing
þar sem mótleikari hennar er
besti vinur hennar, Rupert Ev-
erett.
>
Meg Ryan í
20 miJljón
dollara flokklnn
Sagt er það sé alira peninga
virði að fá Meg Ryan í róman-
tíska gamanmynd og það er
greinilega sannfæring aðstand-
enda Proof of Life sem gerð
verður á næsta ári og Taylor
Hackford mun
leikstýra. Hafa
þeir að sögn boðið
Ryan 20 milljón
dollara fyrir að
leika í myndinni
og jafnar hún
þar með met
Juliu Roberts.
Myndin er í
anda The
Bodyguard og fjallar um lög-
reglumann sem verður ástfang-
inn af konu manns sem hann
er að frelsa. Ekki hefur enn
verið' ákveðið hver fer með
karlhlutverkið en nafn ástr-
alska leikarans Russels Crowes
hefur verið í umræðunni. Áður
en Ryan kemur til með að leika
í Proof of Life mun hún leika í
This Man, This Woman, en
tökur á henni hefjast eftir
áramót.
kvikmyndaferli hans. Hann lék síð-
an aftur undir stjórn Blake Ed-
wards í grínvestranum Sunset.
Þrátt fyrir að fyrstu tvær mynd-
ir Bruce Willis gengju ágætlega var
hann enn þá fyrst og fremst þekkt-
ur sem sjónvarpsstjarna. Þetta
breyttist með Die Hard, þar sem
hann lék löggu sem tekst á við hóp
hryðjuverkamanna sem hefur tek-
ið fjölda fólks í gíslingu í stórhýsi í
Los Angeles. Myndin ruddi braut-
ina fyrir hasarmyndir tíunda ára-
tugarins og þetta var í fyrsta skipti
sem áhorfendur fengu að sjá þetta
mikinn hraða, hávaða, sprengingar
og læti. Myndin sló hressilega í
gegn og Bruce Willis var orðinn að
eftirsóttum stjömuleikara.
Bruce Willis hefur á ferli sínum
reynt ýmislegt í kvikmyndum og
sóst eftir metnaðarfullum hlutverk-
um með fram hasarmyndunum.
Hann hefur tekið áhættu í hlut-
Bruce Willis í hlutverki Malcolm Crowe í The Sixth Sense.
Bruce Willis fæddist 19. mars
árið 1955 í bandarískri herstöð í
Vestur-Þýskalandi en flutti til New
Jersey með foreldrum sínum
tveggja ára að aldri og ólst þar upp.
Lék hann síðar í skólaleikritum og
þróaði með sér leiklistarbakterí-
una. Árið 1977 fékk hann hlutverk
í Off-Broadway leiksýningunni
Heaven on Earth og hætti þá námi.
Ekki skaust þó ferillinn af stað með
miklum hvelli og Bruce Willis fékk
litið að gera í leiklistinni næstu
árin, lítil hlutverk í leikritum og
auglýsingum af og til. Hann gat
ekki framfleytt sér með leiklistinni
og vann m.a. sem öryggisvörður og
barþjónn. Loks fékk hann aðalhlut-
verk í stórri leiksýningu árið 1984 í
leikritinu Fool for Love, og var síð-
an valinn úr hópi 3000 leikara í
hlutverk einkaspæjarans David
Addison í rómantísku gamanþátt-
unum Moonlighting, og lék þar á
móti Cybill Shepherd. Þrátt fyrir
stöðugar erjur aðalleikaranna og
höfundar þáttanna voru þeir mjög
vinsælir þau fjögur ár sem þeir
voru á dagskrá.
Árið 1987 giftist Bruce Willis
leikkonunni Demi Moore, en þau
áttu bæði eftir að verða stórstjörn-
ur á tíunda áratugnum. Þau voru
eitt af langlífustu stjömupörunum
í Hollywood en draumurinn var úti
fyrir um ári þegar þau tilkynntu
skilnað eftir 11 ára hjónaband. Þau
eiga þrjár dætur.
Moonlighting opnaði Bruce Willis
leið inn I kvikmyndimar og hann
lék sitt fyrsta aðalhlutverk í kvik-
mynd sama ár og hann giftist Demi
Moore. Hann hafði reyndar fengið
smáhlutverk í tveimur myndum
nokkrum ámm áður, en farsi Blake
Edwards, Blind Date, þar sem hann
lék aðalhlutverkið á móti Kim
Basinger, telst þó vera upphafið á
First Deadly Sin, 1980
Blind Date, 1987
Sunset, 1988
Die Hard, 1989
Look Who’s Talking (rödd), 1989
In Country, 1989
Die Hard 2,1990
Look Who’s Talking too (rödd), 1990
The Bonfire of the Vanities, 1990
Mortal Thoughts, 1991
Hudson Hawk, 1991
Billy Bathgate, 1991
The Last Boy Scour, 1991
The Player, 1992
Death Becomes Her, 1992
Striking Distance, 1993
North, 1994
Color of Night, 1994
Pulp Fiction, 1994
Nobody’s Fool, 1994
Die Hard with a Vengeance, 1995
Four Flooms, 1995
Last Man Standing, 1996
The Fifth Element, 1997
Armageddon, 1997
The Siege. 1998
The Sixth Sense, 1999
verkavali og stundum farið flatt á
því og leikið í misheppnuðum
myndum. Síðustu árin hefur hann
þó einbeitt sér að hasarmyndum og
leikið í nokkrum af vinsælustu
kvikmyndum áratugarins. Hann er
þó ákveðinn i að setja hasarmynd-
irnar á hilluna í bili og ætti að geta
það áhyggjulaust þar sem The
Sixth Sense er næstvinsælasta
kvikmynd ársins í Bandaríkjunum,
aðeins nýja Star Wars-myndin er
vinsælli.
bíódómur
Laugarásbíó / Sambíóin —
The Sixth Sense er þessi sjald-
gæfa tegund Hollywood kvikmynd-
ar; greindarleg, blæbrigðarík og
full af göldrum, en fellur um leið
inní hefðir hins yfirnáttúrlega
þrillers. Þetta er saga þar sem sam-
líðan og leit að endurlausn er teflt
gegn ótta og eftirsjá svo úr verður
tregablandin ástar- og þroskasaga.
Allt er þetta sett fram í búningi
ógnþrunginnar spennu og úr verð-
ur firnasterk blanda sem heldur
manni á sætisbríkinni allt til enda.
Malcolm Crowe (Willis) er
barnasálfræðingur sem verður fyr-
ir skotárás á heimili sínu af fyrr-
verandi sjúkling sínum sem taldi
sig ekki fá þá meðferð sem hann
þurfti. Við sjáum hann næst fást
við nýtt mál, ungan dreng sem
virðist eiga ýmislegt sameiginlegt
með sjúklingnum sem skaut á
hann.
Drengurinn Cole (Osment) hefur
skyggnigáfu, sér látið fólk allt í
kringum sig og það sem honum
finnst verra; það vill honum eitt-
hvað. Cole er stöðugt í greipum ótt-
ans og finnst sem hann geti engum
trúað fyrir þessu leyndarmáli sínu.
Crowe tekst þó að fá það uppúr
honum og reynir að koma drengn-
um til hjálpar, fá hann til að
horfast í augu við gáfu sína og nota
þá krafta sem hann býr yfir. Á
sama tíma þarf Crowe að fást við
vandamál í hjónabandi sínu, starf
hans hefur tekið allan hans tíma og
konan hans virðist hætt að tala við
hann en stefnir í samband við ann-
an mann.
Bruce Willis, það ólíkindatól, á
hér afar góðan dag. Helsti styrkur
hans sem leikara felst í afar jarð-
bundinni nálgun, hann hefur til að
bera ákveðna þyngd og innri ró
sem gerir það að verkum að hann
virkar vel í lausbeisluðum ýkjusög-
um og verður nokkurskonar akkeri
þeirra. í þessari mynd sem fer yfir
mörk hins yfirskilvitlega, svífur
yfir honum dapurleg reisn, við
finnum að hann skynjar örlög sín
og hins skyggna pilts en máttur
hans til að lækna nær aðeins svo
langt.
En það er hinn ungi Haley Joel
Osment sem kemur verulega á
The Sixth Sense ★ ★ ★
óvart. Hlutverk hans er stórt og
afar krefjandi, það krefst ekki að-
eins góðrar tímaskynjunar og
réttra viðbragða þegar við á heldur
einnig hæfileikans til að hlusta. Og
Osment er ekki bara góður, hann
er einfaldlega frábær. Hann býr
ekki aðeins yfir fágætum styrk og
einbeitingu heldur tekst einnig að
opna sýn inní afar hrellda sál sem
að lokum tekst að finna hugrekki
til að takast á við það sem lífið hef-
ur lagt honum á herðar. Samleikur
þeirra Willis er sömuleiðis af-
bragðs góður, Willis talar aldrei
niður til hans heldur nálgast hann
sem jafningja og Osment endurg-
eldur það traust með vöxtum.
Lokakafli myndarinnar opnar
áhorfandanum nýja sýn á alla sög-
una og er sérlega vel undirbyggður
að því leyti að hann kemur okkur í
algerlega opna skjöldu en blasir
engu að síður við mest allan tím-
ann. Þetta er feykilega vel heppnuð
mynd, örugglega ein af þeim bestu
á árinu.
Leikstjórn og handrit: N. Night
Shyamalan. Aðalhlutverk: Bruce
Willis,
Haley Joel Osment, Toni Collette,
Olivia Williams.
Ásgrímur Sverrisson.
f ó k u s
15. október 1999
*
34