Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.1999, Side 35
«
Baltasar Kormákur leikur Friörik sem fylgir Sól til Tyrklands.
Þaö er alveg víst að mörgum
leikur forvitni á að sjá tyrknesku
myndina Baráttan um börnin
(Split) sem gerð er í samvinnu við
íslensku kvikmyndasamsteypuna.
Ástæðan er sú að fyrirmyndin er
Sophia Hansen og raunir hennar
við að reyna að fá dætur sína heim
til íslands. Eins er víst að mörgum
kemur sjálfsagt á óvart frásögu-
mátinn en Tyrkir líta málið öðrum
augum en við.
í byrjun myndarinnar kynnumst
við Sól Jensen og Halil Atesh sem
stofna heimili á íslandi og eignast
tvær dætur, Rúnu og Önnu Maríu.
Tíu árum síðar eru komnir brestir
í hjónabandið og Halil grunar rétti-
lega að Sól standi í ástarsambandi
við Friðrik. Sól sækir um skilnað
og fær forræði yfir bömunum. Á
eintali við guð sinn heitir Halil á
Allah og lofar að til-
einka honum líf sitt
og dætra sinna fái
hann þær til sín.
Röð atvika verður til
þess að Sól stingur
upp á því að Halil fái
stúlkurnar til Tyrk-
lands í sumarfrí.
þetta er það síðasta
sem Sól sér til dætra
sinna. Örvæntingar-
full tilraun Sólar og
Friðriks til að ræna
dætrunum fer út um þúfur og þeim
er vísað úr landi. Þrátt fyrir að
stúlkurnar sakni móður sinnar
gengur þeim vel að aðlagast nýju
umhverfi og Halil nýtur virðingar
og fyrirtæki hans blómstrar. Þrem-
ur árum síðar fær Sól leyfi til að
fara aftur til Tyrklands.
Tveir íslenskir leikarar leika i
myndinni, Baltasar Kormákur og
Halldóra Bjömsdóttir. Aðrir leikar-
ar eru tyrkneskir og þekktust eru
Mahir Gunsiray og Bennu Gerade
sem leika Halil og Sól.
-HK
W
•x
bíódómur
Frítt s
Svo illa gerð og kjánaleg er þessi
mynd að maður spyr sjálfan sig í
forundran hvers vegna í ósköpun-
um henni hafi tekist að verða til yf-
irleitt? Svarið hlýtur að liggja hjá
Farrelly-bræðrum sem notið hafa
mikillar velgengni með ófor-
skömmuðum forsum sínum, Dumb
and Dumber og There’s Something
About Mary. Miramax virðist hafa
gefið þeim frítt spil að þessu sinni
með eitthvert gamalt handrit sem
ömgglega á sér einhverjar rætur í
Regnboginn - Outside Providence ★
Þriðji engillin fundinn
Eftir miklar vangaveltur þar
sem mörg nöfn hafa verið nefnd
er loks búið að ákveða hver
verður þriðji engillinn í
Charlie’s Angels: The Movie.
Sú sem hafði sigur í samkeppn-
inni um hlutverkið er breska
leikkonan Thandie
Newton sem siðast
lék titilhlutverkið
í Beloved. Langt
er síðan ákveöið
var að Drew
Barrymore og
Cameron Diaz
yrðu hinir
englarnir tveir.
Þá er einnig næstum víst að
Bill Murray muni leika yfir-
mann stúlkanna. Handrit að
myndinni skrifa Ryan Rowe og
Ed Solomon en þeir skrifuðu
handritið að Men in Black á sín-
um tíma.
Fleiri X-files
kvikmyndir
Nú logar allt í málaferlum á
milli Davids Ducknovys og Gilli-
an Aanderson og framleiðenda
hinna geysivinsælu X-Files þátta
og segja Ducknovy
og Anderson fram-
leiðendur hafa
haft af þeim pen-
inga. Hvernig
sem þessum
málaferlum lýk-
ur þá hefur
Chris Carter,
upphafsmaður
X-files, tilkynnt að
þótt hætt verði við að gera sjón-
varpsþættina þá verði gerðar
kvikmyndir með Ducknovy og
Anderson í hlutverkum Mulder
og Scully og segir hann að kröf-
urnar sem gerðar eru á hendur
honum og hans manna komi
ekki kvikmyndagerðinni við og
þrátt fyrir allt séu þau öll góðir
vinir og hann hafi skrifað hand-
ritið að næstu kvikmynd í sam-
starfi við David Ducknovy.
Nýjasta serían í X-files röðinni
sú sjöunda hefst í Bandaríkjun-
um um helgina.
bemsku þeirra bræðra. Þeim tekst
hins vegar engan veginn að vinna
úr þessum efnivið þannig að úr
verður tilgangslaus haugur af klisj-
um og yfirþyrmandi amatörbragur
á öllu saman. Ekki bætir úr skák
að myndin er auglýst sem „hin
nýja óforskammaða gamanmynd
frá Farrelly-bræðrunum". Þessi
innihaldslýsing jaðrar við vömsvik
því það er ekkert óforskammað við
þessa mynd nema sú hugmynd að
bjóða hana fram til sýninga.
Vandræðaunglingurinn Tim
(Hatosy) er sendur í finan einka-
skóla til að klára síðasta árið í
menntó. Hann yfirgefur kmmma-
skuðið Pawtucket og minnipoka-
mennina vini sína með söknuði en
kynnist svo umsvifalaust sambæri-
legum lánleysingjum í hinum fína
og stranga einkaskóla. Ekki verður
honum heldur skotaskuld úr að
komast yfir flottustu píuna í skólan-
um þrátt fyrir að vera heldur ógæfu-
legur allur. Faðir hans (Baldwin) er
grófur pípari, móðir hans skaut sig
þegar hann var ungur og bróðir
hans er í hjólastól. Ekkert er unnið
úr þessu frekar utan hvað þeir feðg-
ar deila einu sinni um móðurina og
hvað það var sem gerðist. Ekki svo
að öllum standi ekki hjartanlega á
sama. Heimavistarstjórinn er
týpískur leiðindapúki og situr um
Tim til að gera honum lífið leitt og
að lokum tekst honum að koma
strák í slæma klemmu - en hei! -
það blessast að lokum og allir lifa
hamingjusamir eftir.
Þrátt fyrir hina algeru flatneskju
tekst leikurunum á einhvern óskilj-
anlegan hátt að gæða persónur sín-
ar nokkurri hlýju, þannig að sam-
vistirnar við þetta fólk verða á end-
anum ekki svo slæmar. Hins vegar
hefur þetta allt verið gert svo allt of
oft áður og stundum miklu betur,
svo alvarlegt dómgreindarleysi
hlýtur að hafa hrjáð hina skondnu
bræður sem ættu frekar að halda
áfram því ágæta verki sinu að
byggja lánleysingjum þessa heims
ódauðlega minnisvarða.
Leikstjóri: Michael Corrente.
Handrit: Corrente, Peter Farrelly,
Bobby Farrelly. Aðalhlutverk:
Shawn Hatosy, Alec Baldwin,
Amy Smart.
Ásgrímur Sverrisson
Kringlunni
15. október 1999 f Ókus
35