Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1999, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 25. OKTÓBER 1999
Préttir
Skoðanakönnun DV um leiðtogaefni Samfylkingarinnar:
Yfirburðir Margrétar
- Jóhanna hrapar en Ingibjörg Sólrún hækkar. Jólasveinninn og Mikki mús nefndir
Margrét Frímannsdóttir er öruggur
sigurvegari skoðanakönnunar DV,
sem tekin var í síðustu viku, um leið-
toga Samfylkingarinnar en 28,1%
kjósenda vill sjá hana sem leiðtoga.
Margrét hefur nokkra yfirburði yfir
önnur leiðtogaefni eins og Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur og Jón Baldvin
Hannibalsson þrátt fyrir að hafa lýst
því yfir að hún taki ekki að sér leið-
togahlutverkið. Rúmlega 35% þeirra
sem kjósa Samfylkinguna vilja Mar-
gréti sem leiðtoga. Þetta eru helstu
niðurstöður skoðanakönnunar DV.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafht skipt á milli höfuðborg-
arsvæðis og landsbyggðar, sem og
kynja. Spurt var „Hver frnnst þér
æskilegasti leiðtogi Samfylkingarinn-
ar?“
Alls fengu fimmtán einstaklingar
atkvæði í könnuninni. Af úrtakinu
öllu fékk Margrét Frímannsdóttir
19,8%, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
12,5%, Jón Baldvin Hannibafsson
9,5%, Jóhanna Sigurðardóttir 7,5%,
Stefán Jón Hafstein 7,2% og Össur
Skarphéðinsson 6,8%. Þá fær Rann-
veig Guðmundsdóttir 3,2%, Guðmund-
ur Arni Stefánsson 2,5% og þau Bryn-
dís Hlöðversdóttir og Sighvatur Björg-
vinsson 0,3%. Fimm aðilar fá svo 0,2%
atkvæða, Jóhann Ársælsson, Ólafur
Ragnar Grímsson, Ámi Þór Sigurðs-
son, Steingrimur Hermannsson og
Steingrímur J. Sigfússon. Óákveðnir
voru 20% og 9,5% neituðu að svara.
Ef einungis er tekið mið af þeim
sem afstöðu tóku fær Margrét Frí-
mannsdóttir 28,1%, Ingibjörg Sólrún
28,1
25
20
15
10
5
%
rkgM
Leiðtogaefni Samfylkingar
ISS9
- samkvæmt skoðanakönnun DV 20. okt sl.
17,7
LU
S
Samfylkingin
Margrét Ingibjörg Jón Jóhanna Stefán Össur Rannveig Guömundur Bryndís Sighvatur Jóhann Ólafur Árni Þór Steingrímur Steingrimur J.
_____________________Baldvin_________________Jón______________________________Árni______________________________________Ragnar
Gísladóttir 17,7%, Jón Baldvin Hanni-
baldsson 13,5%, Jóhanna Sigurðardótt-
ir 10,6%, Stefán Jón Hafstein 10,2%,
Össur Skarphéðinsson 9,7%, Rannveig
Guðmundsdóttir 4,5% og Guðmundur
Ámi Stefánsson 3,5%. Bryndís
Hlöðversdóttir og Sighvatur Björgvins-
son fá 0,5% en aðrir 0,2%.
Hlutverkaskipti
Hlutimir hafa heldur betur snúst
við frá því í könnun DV í febrúar. Þá
bar Jóhanna Sigurðardóttir höfuð og
herðar yfir aðra en 58,7% vOdu sjá
hana sem leiðtoga. Margrét Frímanns-
dóttir fékk þá 28,1%, Össur Skarphéð-
insson 5,5%, Rannveig Guðmundsdótt-
ir 3,9%, Sighvatur Björgvinsson 2,3 og
þau Ágúst Einarsson, Guðmundur
Ámi Stefánsson og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir 0,5% fylgi hvert. I könnun
DV í október í fyrra var Margrét Frí-
mannsdóttir hins vegar sér á báti og
fékk 54,6% atkvæða.
STOR OG GOÐ
VINNUAÐSTAÐA
ÞARF SKKI AÐ
KOSTA ÞIG MIKIÐ
Rekstrarleigusamningur
£ngin útborgun
36.545 kr. á mánuði
Fjármögnunarleiga
Utborgun 338.353 kr.
20.311 kr. á mánu8i
Rckstrari.ifa er mi5u8 er við 24 mánu&l og 20.000 km á ári. Fjánnögnunarieiga er miSuð viS 5 ár og 25%
útborgun, greiSslur sru án vsk. Vsk. leggst ofan á leigugreiSslur en viSkomandi fser hann endurgreiddan sé hann
með skattskyldan rekstur. Öll verS eru án vsk.
Grjótháls 1
Sfmi 57S 1200
Söludeild 575 1225/575 1226
ATVINNUBÍLAR
FyRIRTffKJAÞJÓNUSTA
Margrét Frímannsdóttir; miklir yfirburðir þrátt fyrir að hafa lýst því yfir að
hún taki ekki að sér leiðtogahlutverkið. Hér er hún ásamt Jóhönnu
Sigurðardóttur, leiðtoga Samfylkingar í Reykjavík, sem dalað hefur mikið frá
sfðustu könnun DV. DV-mynd Pjetur
HYunoni
í síðustu könnun vora þær Jóhanna
Sigurðardóttir og Margrét Frímanns-
dóttir sér á parti og var nokkuð í Öss-
ur Skarphéðinsson. Nú hefur Jðhanna
aftur á móti hrapað niður í ijórða sæti
en Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tekið
sæti hennar. Jón Baldvin Hannibals-
son var ekki inni í myndinni í síðustu
könnun en kemur nú inn í þriðja sæt-
ið.
Össur Skarphéðmsson var í þriðja
sæti síðast en hrapar niður í það
sjötta. Sighvatur Björgvinsson var
fimmti síðast en fer niður í 9-10 núna.
í síðustu könnun DV vora einungis sjö
aðilar nefnair sem Ieiðtogar og viríust
línur vera famar að skýrast frá því í
október í fyrra þegar 24 einstaklingar
vom nefiidir. Nú heyrast aftur á móti
nöfn 15 einstaklinga þannig að ýmis-
legt gæti enn gerst í leiðtogaslagnum.
Yfirburðir á heimavelli
Þegar einungis er litið til stuðnings-
manna Samfylkingarinnar í þessari
könnun DV koma yfirburðir Margrét-
ar enn frekar í ljós. 35,5% Samfýlking-
arfólks sem afstöðu tóku vilja Margréti
sem leiðtoga á meöan 19,4% vilja Ingi-
björgu Sólrúnu. í síðustu könnun DV
hafði Jóhanna Sigurðardóttir mikla yf-
irburði i þessum ílokki en hún fellur
nú niður í þriðja sæti með 14,5%. Ingi-
björg Sólrún fékk aftur á móti einung-
is stuðning 0,8% samfylkingarfólks í
síðustu könnun. Jón Baldvin Hanni-
balsson er fjórði I röðinni með 12,9%,
Stefán Jón Hafstein fær 8,1%, Össur
Skarphéðinsson 4,8%, Guðmundur
Ámi Stefánsson 3,2% og Jóhann Ár-
sælsson 1,6%.
Kosið eftir kynjum
Bæði Margrét og Ingibjörg Sólrún.
sækja meira af fýlgi sínu tO kvenþjóð-
arinnar og kemur 61,3% af fylgi Mar-
grétar frá konum. Þá fær Rannveig
Guðmundsdóttir um 3/4 af fylgi sínu
frá kvenþjóðinni. Jón Baldvin, Stefán
Jón og Össur fá einnig stærstan hluta
fylgis síns frá kynbræðrum sínum, um
2/3.
Margrét Frímannsdóttir sækir 60%
af fylgi sínu til landsbyggðarinnar á
meðan fýlgi Ingibjargar Sólrúnar
skiptist jafnt milli höfuðborgarsvæðis
og landsbyggðar. Jón Baldvin fær aftur
á móti 75% af fylgi sínu af höfuðborg-
arsvæðinu, Jóhanna um 60% og Rann-
veig 63,6%. Kjá uuFúiri skiptist fylgið
nokkuð jafnt milli landsbyggðar og
höfúðborgarsvæðis. -hdm
Ummæli:
Jólasveinninn
og Mikki mús
Ekki voru allir á því að nefiia
hefðbundin nöfn þegar þeir vom
inntir eftir leiðtogaefnum. Karlmað-
ur á Norðurlandi var t.d. ekki í
nokkrum vafa um hver væri hæfast-
ur til að gegna stöðu leiðtoga Sam-
fylkingarinnar. „Það er auðvitað
j61asveinninn,“ sagði maðurinn.
Þegar spyrill óskaði skýringa spurði
maöurinn á móti „...nú, kemur ein-
hver annar til greina?" Annar
nefndi Mikka mús og ítrekaði að
enginn væri í sjónmáli. Þessi dæmi
em sláandi vegna þeirrar óvissu
sem ríkir meðal stuöningsmanna
Samfylkingar um leiðtogaefni.