Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1999, Qupperneq 12
26
vsk-bílar og vetrarakstur
MIÐVIKUDAGUR 10. NÓVEMBER 1999 IjV
- segir Nanna Guðmundsdóttir sem notar Yaris í vinnunni
Nanna Guömundsdóttir er sölu-
maður hjá Tal hf. og bíllinn sem
hún hefur til umráða er af gerðinni
Toyota Yaris. „Það er ekki langt síð-
an við fengum þessa bíla - ég held
það hafi bara verið 1. ágúst,“ segir
Nanna. „Áður vorum við með
Toyota Corolla og Nissan Almera en
ég verð að segja að við þau verkefni
sem við erum að leysa finnst manni
þeir gömlu bara hafa verið algjörir
sleðar borið saman við Yaris. Per-
sónulega finnst mér ekki spuming
að fyrir sölumenn, sem oftast eru
einir í bilnum og jafnvel með lítinn
vaming, sé það eina rétta að vera á
svona litlum bílum, snöggum og
liprum sem hægt er að smeygja alls
staðar.
En svo höfum við líka reynslu af
þvi að þegar þarf að hlaða þá kemst
ótrúlega mikið fyrir í þeim. Ein
fyrsta ferðin var til Vestmannaeyja
um verslunarmannahelgina og þá
þurftum við að vera með mikið dót
með okkur. Það komst allt auðveld-
lega fyrir í þessum bílum þó þeir líti
út fyrir að vera litlir - og hefði mátt
vera meira.
Sölusvæöi mitt er höfuðborgar-
svæðiö og raunar allt suðvestur-
homið, út á Suðumes og austur fyr-
ir flall. Það er að vísu allt á malbiki
en það er sama sagan á lengri leið-
um eins og hérna innanbæjar:
Yarisinn er billinn sem passar alveg
nákvæmlega í verkefnið og er sá
skemmtilegasti af þessum litlu
buddum sem ég hef kynnst."
-SHH
Snöggir og liprir og hægt aö smeygja þeim alls staðar, segir Nanna Guð-
mundsdóttir.
„Lípur og snar í snúningum"
- segir Vilhjálmur Aðalsteinsson um Daewoo Matiz vsk-bílinn sinn
Vilhjálmur Aðalsteinsson er
verkefnastjóri hjá byggingafyrir-
tækinu Fagvangi ehf. og fer milli
vinnustaða að líta eftir verkefnum.
„Ég er nýkominn á Daewoo Matiz,“
segir Vilhjálmur, „búinn að vera á
honum í mánuð eða svo. Þetta var
fyrsti Matiz-bíllinn sem búinn var
út og afgreiddur sem vsk-bíll.
Mitt verkefni er að transporta
verkfærum og líta eftir þeim verk-
um sem við erum að leysa af hendi
og þessi bill hentar mjög vel í það.
Hann er raunar afar skemmtilegur
og bæði gott og gaman að aka hon-
Hávaxinn maður Vilhjálmur, en rúmast vel í Matiz
og fær ekki í bakið af honum. Mynd DV-bílar
um, hann er svo lipur og
snar í snúningum. Ég er nú
frekar stór maður en ég fæ
ekki í bakið af að aka þess-
um bíl og hef alls ekki á til-
fínningunni að hann sé lít-
ill.
Fyrir utan að geta flutt
verkfæri milli staða nota ég
bílinn aðallega til að koma
sjálfum mér á milli verka
hér á höfuðborgarsvæðinu
og fer vítt um, vikukeyrslan
hjá mér er 8-900 kílómetrar.
Þetta er oft enginn sparakst-
ur, ég hef gaman af að koma dálítið
við pinnann svona á ljósum og svo-
leiðis og þetta rótvinnur, en samt
kemur hann afar vel út, ég held hann
sé ekki yfir 6 lítrum á hundraðið.
Ég var áður á Nissan Sunny en
hann var nú orðinn gamall og þreytt-
ur, greyið. Ég_ held að ég noti helm-
ingi minna bensín á þennan og það er
þar að auki svo þægilegt að setjast
inn í hann að ég fær aldrei í bakið
eins og var nánast orðin regla með
þann gamla. Svo situr maður hátt og
vel og hefur góða yfirsýn."
-SHH
Eina rétta að vera á
svona litlum bílum
„Ég fer aldrei af Nissan"
- segir Sæberg Guðlaugsson sendibílstjóri
Sæberg Guðlaugsson sendibíl-
stjóri notar Nissan Trade kassabíl í
vinnunni: „Ég er mjög ánægður
með hann,“ sagði Sæberg. „Hann er
góður fyrir sína þyngd en myndi
henta mér enn betur ef hann væri
stærri og ég er núna að athuga með
að fá mér stærri bíl, 8 tonna. Já,
auðvitað Nissan. Ég fer aldrei af
Nissan - ég hef haldið mig við hann
núna í tugi ára og ekki keyrt annað.
Það er þannig að þegar maður hefur
fundið eitthvað gott heldur maður
sig við það og er ekkert að prófa
eitthvað annað upp á von og óvon.
Ég hef verið sendibílstjóri í þrjú
ár, var áður með Nissan Urvan en
fékk mér svo Trade fyrir tveimur
árum. Vélin í þessum bílum er al-
veg sérstök, mjög kraftmikil og
sparneytin. Ég er búinn að aka þess-
um bíl 76 þúsund kílómetra og það
er óhætt að segja að viðhaldið hafi
verið í lágmarki.
Það er afskaplega gott að aka
þessum bílum, þeir eru svo langir
milli hjóla og liggja svo vel. Öku-
mannshúsið er kannski í þrengra
lagi en sleppur alveg. Samt verð ég
að segja að nýja útgáfan af þessum
bíl er miklu fallegri og með rýmra
hús. Ég sá hana úti á Spáni um dag-
inn, þeir eru mikið með svona bíla
þar.
Ég er með hurðir á báðum hliðum
á kassanum sem er mjög hentugt.
Gólfið er lágt og gott að vinna við
það þó það skipti minna máli síðan
þessir bílar fóru að vera með lyftu.“
Er sæmilegt upp úr þessu að
hafa?
„Það getur verið sæmilegt, fer dá-
lítið eftir því hvað menn stunda
þetta vel. Það er með þetta eins og
ýmislegt annað, það fær enginn
neitt nema bera sig eftir því. Þetta
er ekki vinna sem sækir mann
heim.“ -SHH
„Þegar maður hefur fundið eitthvað
gott er maður ekki að prófa eitthvað
annað upp á von og óvon,“ segir
Sæberg Guðlaugsson.
Mynd DV-bílar
CC NCEPT
Bón- og
bílahreinsivörur
ibrað
ISLAKK HF.
sérverslun með bónvörur I
VERTU VIÐBUINN VETRINUM
JiVflcfð úrval af vetrardekkjun
Umfelgun - Smurþjónusta
BJBJMitnEHK
Langatanga 1 a - Mosfellsbæ - Sfmi 566 8188
Bón og þvottastöðin
Hjá Jobba Skeifan 17
Fljót og góð þjónusta með úrvals efnum.
Við kappkostum að vanda vinnuna og skila þér
bílnum spegilgljáandi.
Opið 9-18 mánudaga-föstudaga
Pantið tíma í síma 568 0230
Bílarnir eiga að vera
góður vinnustaður
- segir Hjörtur Hjartarson hjá Selecta
I Boxernum er hægt að ganga uppréttur um farm-
rýmið, segir Hjörtur Hjartarson. Mynd DV-bílar
Hjörtur Hjartarson er fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjaþjónust-
unnar Selecta ehf. sem notar Peu-
geot-bila til sinnar starfsemi. „Við
erum með fjóra Peugeot, tvo stóra
Boxerbíla og tvo minni Partner.
Svo erum við að fá þriðja Boxer-
inn,“ sagði Hörtur í viðtali við
DV.
„Elstu bílarnir eru nú orönir
tveggja ára og hafa komið mjög
vel út og líkað prýðisvel. Verkefni
okkar eru einkum fólgin í því að
flytja vaming út í fyrirtækin og
fylla á sjálfsala og fylgjast með
þeim. Við getum nefnt að við sjá-
um um sjálfsalana sem selja kók
en fyrir utan gosdrykki er mikið
flutt af samlokum, kaffi og sæl-
gæti. Boxerbilamir eru notaðir
fyrir stærri verkefnin en Partner1
bílarnir fyrir þau minni og henta
báðir vel fyrir það sem þeir eru að
gera.
Selecta tók til starfa árið 1995 og
framan af leystum við okkar bíla-
mál með öðrum hætti en þegar
kom að þvl að leysa þau til fram-
búðar leituðum við álits hjá Sel-
ecta i Evrópu sem eru þar mjög
stórir rekstraraðilar. í ljós kom að
Peugeot voru mikið notaðir þar og
líkuðu vel. Þegar farið var að vega
saman kosti og verð varð niður-
staðan hjá okkur
að fara eins að og
við sjáum ekki eft-
ir því.
Það er mikið at-
riði þegar verið er
að velja bíla sem i
raun eru vinnu-
staður bílstjór-
anna allan vinnu-
daginn að þeir séu
góður vinnustað-
ur. Það er mjög
gott að umgangast
þessa bíla. Boxer-
bílarnir, þeir
stóru, eru mjög
rúmgóðir og hægt
að ganga upprétt-
ur um farmrýmið i
þeim. Þeir litlu eru
mjög þægilegir líka
og rúmgóðir fyrir sína stærð. í
þeim er m.a. hægt að leggja niður
bakið á farþegasætinu og þá er
þar komin skrifborðsaðstaða - það
hefur komið sér mjög vel.'
-SHH