Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1999, Síða 9
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1999
9
Utlönd
fj aUaK
/11., 12. og 13. nóv.
eer
$^JíV^JP/ÍlaJSim
[LttimSTEP.M
Sharif sakaður um
Ekki dónalegt að taka strætó þegar hann er svona skrautlegur. Þessi giæsilegi vagn ekur um götur Port-au-Prince,
höfuðborgar Haítí. Kappinn sem prýðir bakhliðina er enginn annar en brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldo.
flugrán og mannrán
Nawaz Sharif, fyrrverandi forsæt-
isráðherra Pakistans, sem setið hef-
ur í stofufangelsi síðan valdarán var
framið í síðasta mánuði, hefur verið
sakaður um flugrán og mannrán.
Lögreglurannsókn á meintum land-
ráðum Sharifs er nú hafin, að því er
herstjórnin í Pakistan tilkynnir.
Er Sharif sagður hafa ætlað að
myrða Pervez Musharaf hershöfð-
ingja. Þegar Musharaf sneri heim
eftir að borgaraleg stjórn Sharifs
hafði vikið honum úr embætti 12.
október síðastliðinn reyndu and-
stæðingar Musharafs að koma í veg
fyrir að flugvél hans gæti lent í
Pakistan.
Þar sem lítið eldsneyti var eftir í
flugvélinni var hætta á að hún
hrapaði, segir í ákærunni gegn
Sharif og nokkrum samstarfsmönn-
um hans.
Musharaf tókst að lenda og í ljós
Sharif og Musharaf á landamærum Kasmír í febrúar síðastliðnum.
Símamynd Reuter
kom að hann hafði fulla stjóm á
her landsins. Nokkrum klukku-
stundum seinna hafði herinn náð
völdum í Pakistan. Sharif forsætis-
ráðherra var settur í stofufangelsi
en valdaræningjamir hafa þar til
nú þagað um hvað biði hans.
Meðal þeirra sem era ákærðir
auk Sharifs era fyrrverandi lög-
reglustjóri í Sindhhéraðinu í suður-
hluta Pakistans, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri flugumferðarstjórnar
og fyrrverandi stjórnarformaður í
flugfélaginu PIA.
Musharaf hefur sakað Sharif um
að stofna lífl um 200 farþega í hættu
með því að neita flugvélinni að
lenda. Vegna skjótra viðbragða
hersins hefði verið komið í veg fyr-
ir illvirki. Flugvélin átti aðeins eft-
ir eldsneytisbirgðir til að halda sér
á lofti i 7 mínútur þegar hún lenti
loks á flugvellinum í Karachi.
Flugritinn skýrir
ekki ástæður
flugslyssins
Flugriti egypsku farþegaþot-
unnar, sem fórst undan austur-
strönd Bandaríkjanna í fyrra
mánuði, virðist við fyrstu sýn
ekki geyma skýringar á því hvers
vegna vélin hrapaði. Rannsóknar-
menn segja að flugritinn sýni tið-
indalaust flug allt þar til vélinni
virðist hafa verið stýrt niður.
Jim Hall, forstöðumaður sam-
gönguöryggisstofnunar Banda-
ríkjanna, sagði í gær að fyrsta
rannsókn flugritans sem var
bjargað af hafsbotni á þriðjudag
sýndi að sjálfstýring þotunnar
hefði verið tekin úr sambandi
átta sekúndum áður en hún tók
stefnuna niður á við.
Hall sagði að svarti kassinn
sem geymir upptökur úr flug-
stjórnarklefanum ætti að geta
varpað ljósi á upplýsingar í flug-
ritanum. Veður hamlaði leit að
raddritanum i gær.
Nú þykir ljóst að knývendar
þotunnar hefðu farið í gang og
valdið flugslysinu, eins og gerðist
þegar sams konar þota fórst i
Taílandi árið 1991.
Níu ára raðmorð-
ingi handtekinn
Lögreglan í Afríkuríkinu Rú-
anda hefur handtekið niu ára
gamlan dreng og ákært hann fyr-
ir raðmorð, að því er útvarp
landsins greindi frá í gær.
Að sögn hefur drengurinn við-
urkennt að hafa drepið þriggja
ára stúlkubam með grjóti og
kylfu. Þá mun pilturinn hafa sagt
lögreglu að hann hafl drepið
fleiri böm.
Svarar engu um
framboðsmálin
Hillary Clinton, forsetafrú Banda-
ríkjanna, sem er i heimsókn í ísra-
el, sneiddi í gær hjá spumingunni
hvort hún væri þangað komin til að
afla sér stuðnings gyðinga vegna
mögulegs framboðs til öldungadeild-
ar Bandaríkjaþings. Neitaði forseta-
frúin að svara öllum spumingum
um framboðsmál á næsta ári.
Hillary sagði í ræðu í gær að hún
hefði komið fimm sinnum til ísra-
els. Hún og eiginmaður hennar Bill
hefðu komið þangað sem almennir
borgarar og ferðamenn og sem píla-
grímar. Fyrir utan háskólann í Tel
Aviv þar sem Hillary hélt ræðuna
stóðu fjórir bandarískir mótmæl-
endur. Sagðist einn ætla að sýna að
tilraun Hillary til að biðla til gyð-
inga myndi ekki takast. Mótmæl-
endumir héldu á spjöldum til stuðn-
ings Rudolph Guiliani, borgarstjóra
New York og keppinaut Hillary.
Hillary í ísrael í gær.
Símamynd Reuter
Olíuvinnsla get-
ur valdiö félags-
legri kreppu
Svo kann að fara að færeyskt
samfélag lendi í mikilli félagslegri
kreppu þegar farið verður að bora
eftir olíu á færeyska landgrunn-
inu, svo ótrúlegt sem það kann nú
að hljóma. Kreppan geti orðið enn
alvarlegri en kreppan mikla á ár-
unum 1989 til 1994, þótt í hina átt-
ina sé. Þetta kemur fram í svo-
nefndri Caragata-skýrslu sem unn-
in var fyrir færeysk stjórnvöld.
Færeyska blaðið Dimmalætting
segir að i skýrslunni sé rætt um
eins konar velferðarkreppu. Fram-
leiðslan muni aukast og velferðin
þar með líka. Það hefur svo aftur í
för með sér að almenningur hefur
meira fé milli handanna sem leið-
ir til aukinnar neyslu. Með vax-
andi neyslu eykst síðan eftirspurn-
in eftir vinnuafli og vinnuafls-
skortur leiðir til hærri launa. Þá
mun verðbólgudraugurinn fara á
fulla ferð. Skýrsluhöfundar mæla
með spamaði.
Fjallahoppið er a&eins i 3 daga og þó
seljum við NYJAR útivistarvörur meö
fjallgóöum afslættl.
ftoJloKopp
633 4450
Þrir heppnir kaupendur
veröa dregnir út og fá
gjafabréf me& því aö taka
þátt í léttum leik.
SEGLAGERÐIN
ÆGIR
PERSÓNULEG SÉRVERSLUN í ÚTIVIST