Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 6
sést i myndinni. Það tók sænskar sminkur tvo
tima að láta slátriö líta sem girnilegast út.
2. Þegar Hilmir haföi rifiö fötin af Söru Dögg
var kallað í mat. Leikkonan hékk því nakin
uppi á meðan kvikmyndagerðarfólkið matað-
ist af bestu lyst.
3. Þegar Hilmir Snær hafði náð listrænum
hápunkti og sýnt tilfinningalegan stórleik voru
allir hæstánægðir nema Hrafn. Hann spuröi:
„Hva, ert þú i einhverjum bílaleik hérna?"
4. Eistað sem hundurinn rífur i sig var í raun
kjötbolla.
5. Við Öxará sést glitta í bil og Ijóskastara.
6. Kjötlærið sem Gunnar Jónsson rífur í sig
var makað út í barnaolíu til að það liti sem
myndrænast út.
7. Dauði hundurinn var spreyjaður svartur til
að hann liti út eins og hundur Söru Daggar.
Svarti hundurinn fékk hins vegar að lifa enda
með leikræna hæfileika.
8. Hestur var felldur í þágu íslenskrar kvik-
myndagerðar.
9. Tekin voru upp helmingi fleiri hestaferða-
atriði en voru í myndinni.
Marta Nordal túlkar kynhvót fimm kvenpetsóna í Blaa herbefgínu
10. Sænska leikkonan Alexandra Rapaport
sem lék konu s-mæita sýslumannsins var
óhress með að þeysast mikið á hestbaki. Is-
lensk stúlka var fengin sem staðgengill og átti
að riða yfir beljandi stórfljót I stað Alexöndru.
Hún datt af baki og barðist öskrandi um í köld-
um straumnum meðan kvikmyndatökuliðið nag-
aði neglurnar og hélt að hún myndi drukkna.
Kempan Hrafn stóð þó galvaskur á brúnni og
það kurraði ánægjulega f honum, hí hf.
r i 'Jsj
r~
tví farar
Marta Nordal geislar af krafti
og kynngi þar sem hún situr í
gömlum sófa á kaffistofu starfs-
manna Borgarleikhússins. Hún er
ekki vitund kviðin né óörugg að-
eins nokkrum dögum fyrir frum-
sýningu. Um fáar uppfærslur hef-
ur verið meira rætt í heimspress-
unni síðustu misserin en einmitt
á Bláa herberginu í London og
New York. Þó vita eflaust fæstir
um hvað það fjallar. Umtalið hef-
ur aðallega beinst að berstrípaðri
Nicole Kidman sem menn biðu í
röðum eftir að sjá. „Þegar Kidman
fer úr fötunum titrar heimurinn
og karlmönnunum úti í sal stend-
ur,“ segir Marta og virðist ekki
renna í grun að hún geti haft
sömu áhrif.
Leikritiö snýst um kynlíf og þiö
þurfiö aö vera kynœsandi allan
tímann. Hvernig feröu aö því?
„Verkið ólgar af greddu enda
fjallar það um kynhvötina og kyn-
lífið. Við þurfum því auðvitað að
vera gröð og hana þarf að sækja
hingað niður,“ segir hún og legg-
ur hendurnar á grindarholið.
Nú er gert ráö fyrir því aö leik-
Iris Krlstinsdóttir.
Elma Lísa Gunnarsdóttir.
Æ, hvað þær eru sætar! Stöllurnar Elma Lísa Gunnarsdóttir og íris Kristins-
dóttir eru sko alvöruijóskur, ekkert feik. Þær eiga margt sameiginlegt - hafa báö-
ar verið viðriðnar tónlist í gegnum tíðina, Elma Lisa var kynnir tónlistarþáttar í
sjónvarpinu og fris er söngkona hijómsveitarinnar írafárs. Hvar sem þær eru og
hvert sem þær fara eru smartheitin í fyrirrúmi: hárið liggur fullkomlega niður á
vanga, maskarinn rétt mundaðiu- og aldrei sést krumpa í buxum. Báðar guða þær
á glugga meiksins. Elma er í Leiklistarskólanum og þarf væntanlega að þenja
raddböndin þar á meðan íris syngur með bandinu sínu og órafmagnaðri Sálinni.
Hver veit nema þær stofni einhvern timann R&B-dúett, hann gæti þá heitið
Blondz R Us. Já, framtíð þeirra er björt, rétt eins og háraliturinn.
ararnir striplist í verkinu. Þú hef-
ur ekki haft neinar áhyggjur af
nektarsenunum þegar þú tókst
hlutverkin aö þér?
„Mér fannst nektin ekkert mál.
Ég veit samt að hún getur verið
vandræðaleg á sviði og erfltt að
gera hana þannig að hún virðist
ekki óþörf. í þessu leikriti finnst
mér dæmið snúast við, nektin
þjónar mjög skýrum tilgangi. Hún
er blátt áfram og eðlileg. Ekkert
til að gera mál út af.“
Labbað úr einu
hlutverki í annað
David Hare skrifaði Bláa her-
bergið upp úr gömlu leikriti eftir
austurríska skáldið og rithöfund-
inn Arthur Schnitzler, sem var
ófeiminn við að fjalla um tvöfalt
siðgæði Vínarbúa í upphaíl aldar-
innar. Leikrit Schnitzlers varð að
vísu ekkert frægt fyrr en Max
Ophuls gerði kvikmynd eftir því
árið 1950 sem hann kallaði La
Ronde. Hringekjan fjallar um
samskipti kynjanna fyrir og eftir
samfarir, aðdraganda þeirra og
undanbárur beggja á leiðinni upp
í rúm.
í hverju atriði hittast kona og
maður en í því næsta kemur ný
persóna til sögunnar. Það sem
tengir atriðin saman, eins og í
Bláa herberginu, er að maðurinn í
fyrsta atriði birtist áhorfendum
aftur í því næsta með annarri
konu sem síðan hittir annan
mann og þannig koll af kolli.
Marta Nordal og Baldur Trausti
Hreinsson fara með hlutverkin
fimm í Bláa herberginu, í tíu sen-
um, sem snúast eins og hringekj-
ur á hringsviði stóra sviðins.
„Það er vissulega óvenjulegt að
setja upp tveggja manna leikrit á
stóra sviðinu en leikmyndin í
þessu verki er það umfangsmikil
og skiptingar það hraðar.að það
hefði verið erfltt að ráða við þær
á litlu sviði,“ segir Marta.
Hvernig er aö leika svona mörg
veigamikil hlutverk í sömu sýning-
unni?
„Þetta er gífurleg áskorun fyrir
mig sem leikara. Ég hafði miklu
meiri áhyggjur af sköpun allra
þessara persóna en nektinni! Við
bókstaflega löbbum úr einu hlut-
verkinu í annað. Við skiptum
bara um búninga, en ekki gervi og
Bláa herbergið eftir
breska leikskáldið
David Hare verður
frumsýnt á stóra
sviði Borgarleik-
hússins í kvöld.
Uppsetning þess
í London varð fræg
að endemum fyrir
það að Nicole
Kidman berháttaði
sig á fjölunum.
Marta Nordal fetar
með stæl í
fótspor hennar í
Borgarleikhúsinu.
þess vegna þarf innkoma nýrrar
persónu að koma skýrt fram í
sjálfum leiknum. Líkamsburður
og raddbeiting hjálpa til og þetta
verður auðveldara eftir því sem
líður á æflngatímann. Þá fer hver
persóna að öðlast sjálfstætt líf í
huga manns og þegar það gerist
koma þær svolítið af sjálfu sér.“
Gekk ekki upp
Þiö Baldur Trausti þurfiö ekki
aöeins aö leika margar persónur
heldur breytingarnar sem veröa á
þeim á milli atriöa.
„Ögrunin felst einnig í því að
koma þeirri breytingu til skila.
Það þarf að draga upp gerólíka
mynd af sömu persónunni í
hvorri senu fyrir sig. Það var ekk-
ert augljóst að koma þessu heim
og sáman í huganum. í byrjun
fannst mér þetta flókið en við nán-
ari umhugsun sér maður að ná-
kvæmlega svona er þetta í lífinu.
Við erum svona í návist einnar
manneskju en einhvern veginn
öðruvísi með annarri manneskju.
Það skiptir miklu máli fyrir inni-
hald verksins að þetta kómist til
skila.“
Annaö sem skiptir máli er breyt-
ingin á samskiptum persónanna
ogframkomu þeirra eftir samfarir.
Ertu sammála höfundinum um aö
kynlíf hafi áhrif á samskipti fólks?
„Kynlíflð breytir vissulega ein-
hverju, allavega í byrjun. í verk-
inu eru sumar persónurnar hrifn-
ar og ætla sér að sofa hjá en eru
það ekki lengur á eftir. Þá er hinn
aðilinn kannski orðinn hriflnn.
Hjá öðrum hefur kynlíílð ekkert
að segja. Þetta fer allt eftir því
hvert samband persónanna var
áður. Sum paranna þekkjast ekki
neitt, önnur þekkjast ágætlega og
svo eru þarna ein hjón og það seg-
ir sig sjálft að þeirra samlíf eru á
öðrum nóturn."
Hvert atriöi byggist á aödrag-
anda samfaranna. Viö vitum fljót-
lega hvert stefnir og persónurnar
sjálfar vita þaö jafnvel en samt eru
þœr meö undanbrögö og látalœti.
„Ég held að flestir kannist við
það! Þetta er auðvitað oft ekkert
annað en valdatafl. Hvor er sterk-
ari. Aðdragandinn snýst yfirleitt
um það að annar aðilinn láti und-
an, jafnvel þótt báðir stefni að
sama marki.
Au pair stúlkan er til dæmis
heilsteypt í því að vera ekki auð-
veld bráð. Hún vill að það sé eitt-
hvað meira á bak við. Hún gæti
verið á höttunum eftir föstu sam-
bandi.“
í mörgum atriðanna kemur ást-
in viö sögu eöa er til umrœöu. Er
erfitt aö tala um kynlíf án þess aö
tala um ást?
„Ég held það sé ansi oft þannig.
Sumir tengja kynlíf við ást, aðrir
ekki, eins og aðalsmaðurinn.“
Þaö skiptir aöalsmanninn miklu
máli fyrir framhald sambandsins
aö sofa ekki hjá konunni strax.
Hann telur aö þaö sé betri byrjun.
Er höfundurinn aö segja aö kynlíf-
iö geti spillt fyrir ástinni?
„Aðalsmaðurinn virðist trúa
því að það sé betra að byggja upp
rómantík áður en hoppað er upp í
rúm. En höfundur svarar því ekki
hvað er ást. Hann veltir fyrst og
fremst upp spumingum varðandi
kynlífið, vægi þess í lífi manneskj-
unnar og hvernig hún lítur á
það.“
-MEÓ
6
f Ó k U S 3. desember 1999