Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Blaðsíða 27
t ó n 1 i s t haf Duran Duran tónleikar Ferðaskrifstofa Reykjavíkur er búin að hanna stuðpakka árs- ins. Hún flaggar miðum á tón- leika með Duran Duran. Pakk- inn inniheldur ekki aðeins mið- ana heldur líka flug til London, flugvallarskatt og gistingu á Stakis London Metropole Hot- el. Það er alvöru flottræflahótel með sundlaug, bar, sánu, æfinga- sal og restaurant. Þessi herleg- heit kosta 29.800 krónur og það eru 40 miðar á lausu. Tónleikarn- ir verða í Earls Court Arena þann 8. desember og gleðflegheit- in kallast Overnight Sensation á enskri tungu. Eflaust kunna fjörutíu Duran Duran aðdáendur að meta pakkainnihaldið. Alla- vega er löngu uppselt á tónleik- ana á erlendri grundu. Það var sjálfur Simon Le Bon „Tour Manager" sem reddaði Ferða- skrifstofu Reykjavíkur, kauðinn sá hafði upp á 40 miðum. Áhuga- samir þurfa að borga ferðina fyr- ir 3. desember og greiða 7000 króna staðfestingagjald. Það verð- ur haldið út þann 8. desember, eins og fyrr segir, og haldið heim 9. desember. Aflögustundir er til- valið að nýta í jólainnkaupin. Nánari upplýsingar eru hjá ferða- skrifstofunni í síma 552 3200 og það er um að gera að standa sína plikt sem ekta Duran Duran að- dáandi, fyrrverandi, núverandi og um alla framtíð. Nú er tryllt tækifæri til að berja kempurnar rykið af gömlu plötunum og týna augum, klippa hárið stutta að sér i nostalgíu nostalgíanna. framan og sítt að aftan og láta æskudrauminn rætast. Dusta Lúdó sextett og Stefán leika fyrir dansi I Ás- byrgi. Víkingasveitin er meö dansleik í Fjörugaröin- um í Hafnarfirði. Á undan spilar Jón Möller fyr- ir matargesti. Það er nú voða oft líf og fjör við Vesturgötuna, nánar tiltekið í Naustkomplexinu. Hún Liz Gammon hamrar á píanóið og gólar með i Reykjavíkurstofunni á meðan hljómsveitin Vír- us ærist niðri á Naustkránni. Vírusinn er að verða vitlaus, hann getur ekki beðið eftir ára- mótunum. D jass Björn Thoroddsen gítarleikari mun spila djass á Sóloni Islandus undir yfirskriftinni „wesen", en hann mun flytja lög eftir Wes Montgomery. Honum til abstoðar verða Gunnar Hrafnsson á bassa og Pétur Grétarsson á trommur. Tón- leikarnir hefjast kl. 21. • K1assí k Gítarleikarinn Arnaldur Arnarson verður með tónleika í Óperunni kl.16. 200 nemendur Tónskóla Sigursveins koma fram á tvennum tónleikum í dag. Kl. 11 verða tónleikar Suzukideildar Tónskólans í Grensás- kirkju. Þar munu 70 nemendur fiytja verk sín. Kl.14 verða tónleikar 130 forskólanemenda og strengjasveitar í Langholtskirkju. •S veitin Fiðringurinn lagði i sína síðustu Eyjaferð þetta árið í gær og skemmti á Lundanum eins og hann mun gera einmitt í kvöld. Rðringinn skipa sem fyrr þeir Björgvin Gíslason gitarleik- ari, Jón Kjartan Ingólfsson bassaleikari og Jón Björgvinsson trommuleikari. Garöar Haröarson leikur og syngur við hvurn sinn fingur á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvik frá kl 23.00. Hinn eini og sanni Geir- mundur Valtýsson spilar á Odd-Vitanum á Akur- eyri. Búast má við að Geiri spili eitthvað af nýju plötunni sem hann var að gefa út. Geðveik sveifla. Engum þarf að leiöast í Keflavík því hljómsveitin Hafrót rótar upp í heima- mönnum í og leikur af allri sinni snilld á Ránni. Hrafn Jökulsson og Guörún Mínerva eru á túr um landið og lesa upp úr verkum sínum. Þau veröa á Kaffi Karólinu í kvöld þar sem fleiri ■ skáld en þau munu einnig stíga á stokk. Hljómsveitin Land og synir heldur áfram að kynna nýja breiðskífu sína, Herbergi 313. Þeir leika í kvöld í vinsælasta danshúsi Suður- lands, Ingólfskaffi í Ölfushöllinni, milli Hvera- gerðis og Selfoss. Hljómsveitin Papar stendur fyrir dúndurstuði í Sjallanum og Akureyringar leika á als oddi. Bleiustrákarnir f hljómsveitinni Sólon taka út úr sér snuðin og spila á Duggunni í Þorláks- höfn. Vonandi taka einhverjar heimasætur að sér það starf að skipta á dreng'unum í hléi. Hið margfræga jólahlaðborð verður í Vitanum, Sandgerði. Mjöll og Skúli leika fyrir dansi til kl. 3 eftir miönætti. Garöar Haröar leikur og syngur (við hvurn sinn fingur) á Hótel Bláfelli, Breiðdalsvík, frá kl. 23 í kvöld. •Leikhús %/ Þá er Krítarhringurinn í Kákasus eftir sjálf- an Bertolt Brecht rúllaður af staö á stóra sviði Þjóðleikhússins. Fólk keppist við að hæla þessarri frábæru uppsetningu og er sagt að þetta sé þaö besta sem hefur rambað á stóra sviðið f langan tfma. Fjöldinn allur af leikurum fer á kostum í stykkinu og er sviðs- myndin einkar glæsileg. Dríföu þig að panta miöa því örfá eru sætin. Sfminn er 5511200. Baneitrað samband á Njálsgötunni er nýtt leikrit eftir Auöi Haralds. Það er sýnt við mjög góðar undirtektir í islensku Óperunni og hefst kl.20. Góðir leikarar eru I sýningunni, m.a. Gunnar Hansson. sem þykir standa sig vel sem óþolandi gelgja. Sfminn í miöasölunni er 551 1475 en þar má einmitt fá Ávaxtakörfu- myndbandiö. Sýningum fer fækkandi á Feguröardrottning- unni frá Línakri eftir Martin McDonagh. Feg- urðardrottningin lætur samt fara vel um sig á litla sviöinu í Borgarleikhúsinu kl.19 og biöur leikhúsgesti vinsamlegast að slökkva á friö- þjófunum áður en haldið er af stab. Jónas týnir jólunum er nýtt leikrit eftir Pétur Eggerz sem Möguleikhúsið við Hlemm frum- sýnir um þessar mundir. Það fjallar um Jónas sem er tölvufrfk og gleymir jólunum algjörlega yfir skjánum. Útsendarar jólanna ætla nú ekki að láta hann komast upp með það. Sýningarn- ar f dag kl.12.30 og 14.30 eru örugglega upp- seldar en það má alltaf gá f síma 562 5060. Leikfélag Kópavogs hefur tekið til sýninga Kirsuberjagarðinn eftir sjálfan Anton Tsjek- hov. Sýningin hefst kl.20 og er miðaverð ein- ungis 1000 kr. Miðapantanir í sfma 554 1985. Bíóleikhúsiö f Bíóborginni tekur sig bara ágætlega út. Það fer vel um Bjarna Hauk og öll hin þarna uppi á sviðinu að þar sem þau fara með línurnar hans Hallgríms Helga. Sýn- ingin hefst kl.20 en sfminn I miðasölunni er 5511384. Leikfélag Reykjavfkur heldur áfram að sýna Litlu hryllingsbúöina eftir þá Howard Ashman og Alan Menken. Hún fluggengur, fimmtug- asta sýning um daginn og Stefán Karl, Valur Freyr og Þórunn Lárusdóttir þykja standa sig vel f aðalhlutverkum. Bubbi er Ifka ágætis planta. Sýningin hefst kl.19. Ó þessi þjóö er ný revia eftir Karl Ágúst Úlfs- son og Hjálmar H. Ragnarsson f leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. Hún er sýnd í Kaffi- leikhúsinu í Hlaðvarpanum og hefst gæða- kvöldverður kl.19.30 en sýningin sjálf kl.21. •Kabarett Bee Gees sýningin heldur áfram á Broadway. Hér syngja fimm strákar og tvær söngkonur lög Gibb bræöra. Einn af þessum strákum, hann Kristinn Jónsson, vann karaokekeppni fyrirtækja á Bylgjunni um daginn og er ótvfrætt hinn mesti sönghani. Hljómsveit Rúnars Júl leikur fyrir dansi að sýningu lokinni. Jólahlaðborðiö er byrjað á Hótel Sögu. Um skemmtiatriðin sjá: Örn Árnason, Egill Ólafs- son, Signý Sæmundsdóttir og Bergþór Páls- son. Dansleikur verður á eftir með hljómsveit- inni Saga Class. Miðaverð 1000. •Opnanir Ki. 15.00 opnar Aöalheiöur S. Eysteinsdóttir sýninguna „Glugga" á Bókasafni Háskólans á Akureyri. I sýningarskrá segir Aðalheiður: „Hver kannast ekki við að sitja við glugga og hugsa um lifið fyrir utan? Hjá okkur sem búum við kulda og óveður meirihluta árs hefur glugg- inn veriö tenging viö umheiminn. Við víkkum sjóndeildarhringinn, opnum fýrir birtu sólar og ferskum vindum eða lokum á kulda og áreitni. ... Það eru nokkur ár síðan ég fór að safna gömlum gluggum sem höfðu þjónað tilgangi sfnum f húsum fólks...“Sýningin verður opin fram til 8. janúar árið 2000. Allir eru velkomn- ir á opnunina. Nýtt Gallerf verður opnað í dag, Gallerí Guten- berg, 1 kjallara gamlaGutenbergshússins að Þingholtsstræti 6. Að galleríinu standa þau IngaSólveig Friðjónsdóttir Ijósmyndari, Guðrún Jónasdóttir (gjonas)leirlistakona, Örn Lárus- son umhverfislistamaöur og Margrét Guðjóns- dóttir. ídesember mun gallerfið standa fyrir Qölbreyttum listamarkaöi semsamanstendur af málverkum, Ijósmyndum grafik, leirlist, gler- iist.vatnslitamyndum eftir listamennina Ausu, Ágúst Bjarnason, Brynju Árnadóttur.Guðrúnu Guðjónsdóttur, Gunnar Hjaltason, I .Rán, Ing- unni Jensdóttur, JónasBraga, Ólaf Sverrisson, Sunnu Emanúelsdóttur, Sigrfði Gísladóttur og þaulngu Sólveigu, gjonas og Örn Lár. Ýmsar uppákomur verða einnig á boðstólnum.lifandi músík, sögu- og Ijóöalestur úr nýútkomnum bókum og væntanlegur erportetmálari frá Danmörku sem mun mála á staðnum. Galleri- ið verður opnað kl. 13.00 á laugardag og verð- ur opiðalla daga frá kl. 13.00 ogjafnlengi og aðrar verslanir í miðbænum fram að jólum. •Síöustu forvöö Sýningu Brynju Árnadóttur á pennateikning- um í Kaffihúsinu Við árbakkann á Blönduósi lýkur í dag. Þetta er 12. einkasýning Brynju. •Fundir Árleg bókmenntakynning Menningar- og friðar- samtaka kvenna verður haldin í MÍR salnum, Vatnsstfg 10 kl. 14. Kaffiveitingar og notaleg aöventustemming. Lesið úr 11 bókum og spil- ab á fiðlur. B í ó Niflungahringurinn verður sýndur á myndbandi f Norræna húsinu. Nánar tiltekiö Valkyrjan og sýningin hefst kl.l2:30.Richard Wagner félag- ið stendur fyrir þessari sýningu á uppfærslu Metropolitan óperunnar ÍNew York á Niflunga- hringnum.af myndbandi f Norræna húsinu. Enskur skjátexti og ókeypis inn. •Sport Heilir fjórir leikir verða í 1. deild kvenna í handbolta: ÍR-Haukar kl. 16 i Austurbergi, Fram-Grótta/KR kl. 16.30 I Safamýri, KA- UMFA kl. 16.30 á Akureyri og Víkingur-FH kl. 16.30 í Víkinni. Það eru tveir leikir f Nissan-deildinni f hand- bolta f kvöld. FH-UMFA í Kaplakrika kl. 16.30 og HK-Valur kl.17 f Digranesi. Opna Heineken-mótiö f pilukasti verður hald- ið á Grandrokk. Spilað verður f riðlum og síð- an verður útsláttur. Spilað verður um glæsileg- an farandbikar ásamt veglegum verðlaunum. Keppnin hefst ki. 13. Sunnudaguþ 5. desember' • Krár Dónakallinn Bjarni Tryggva verður f essinu sinu á Gauki á Stöng. Píanósnillingurinn breski, Joseph O’Brian, lætur fingur sfna renna yfir pf- anóið á Café Romance. Tilvalið aö kíkja þangað f rauðvfn og huggulegheit. Ómar Diöriksson og Hall- dór Halldórsson sjá um sunnudagsstuðið á Kringlukránni. Rmm í fötu kosta 1000 kr. á Wunderbar. Ómar Diöriksson og Halldór Halldórsson eru ósmeykir þegar kemur að þvf að stfga inn f hús Mammons. Þeir hendast upp á sviðið á Kringlukránni í kvöld og skemmta öllu fólkinu með innkaupaþynnku. Böll Caprí-tríóiö mætir enn eitt sunnudagskvöldiö f Ásgarö í Glæsibæ þar sem þið getið horft á ömmur ykkar stíga Ijúfan dans. D j ass Sfðasta djasskvöld í Djassviku Múlans er í kvöld. Þá mun Raggi Bjarna stfga á stokk í Sölvasal á Sóloni fslandus og syngja vel þekkta slagara eins og honum einum er lagið. Tónleikarnir hefjast kl. 21. •Klassík Aðventutónleikar Borgarkórsins verða haldnir Fríkirkjunni í Reykjavík kl. 17:00. Á efnis- skránni eru lög af nýútkominni geislaplötu kórsins auk hefðbundinna jóla- og aðventu- söngva. Einsöngvarar á tónleikunum verða Anna Margrét Kaldalóns og Helga Magnús- dóttir og pfanóleikari, Ólafur Vignir Albertsson. Stjórnandi Borgarkórsins er Sigvaldi Snær Kaldalóns. Aðgangseyrir að tónleikunum er 500 krónur. Söngsveitin Fílharmónía heldur sína árlegu aöventutónleika ÍLangholtskirkju kl. 20.30. Tónleikarnir verða endurteknir þriðjudaginn 7. og miðvikudaginn 8. desember en vegna mik- illar aðsóknar undanfarin ár verða tónleikarnir þrennir að þessu sinni. Flutt verða jóla- og há- tföarverk frá ýmsum tímum. Rest þeirra eru á geisladiski Söngsveitarinnar „Heill þér himneska orð" sem nýkominn er út. Miðasala er f Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18, hjá kórfélögum ogviö innganginn. Þriðju tónleikar Kammermúsíkklúbbsins á þessu starfsári verða kl. 20.30 f Bústaða- kirkju. Rutt verða verk eftir Juan Crisóstomo de Arriaga, Jón Leifs og Antonin Dvorak. Flytj- endur eru: Sigrún Eðvaldsdóttir, Sif Tulinius, Helga Þórarinsdðttir og Richard Talkowsky. Kór Átthagafélags Strandamanna heldur sfna árlegu aðventutónleika í Bústaðakirkju kl. 16. Þar mun kórinn ástamt barnakór flytja jólalög undir stjórn Úlriks Ólasonar. Einsöngvari verð- ur Þórunn Guðmundsdóttir og pfanóleik ann- ast Hrefna Unnur Eggertsdóttir. Þá mun sr. Sigríöur Óladóttir, sóknarprestur á Hólmavík, flytja jólahugvekju. Aö venju lýkur hátföinni með kaffihlaðborði f safnaðarheimilinu. Reykjalundarkórinn og karlakórinn Stefnir er með aðventutónleika f Árbæjarkirkju kl. 15. Hér verða flutt jóialög sem önnur verk og boð- ið upp á kaffi og piparkökur í hléi. Skólahljómsveit Vesturbæjar heldur tónleika f Ráöhúsi Reykjavíkurkl.14. Dagskráin er fjöl- breytt og vönduð. Andrea Gylfadóttir ætiar að syngja með. Aðgangur er ókeypis. •Leikhús Jónas týnir jólunum er nýtt leikrit eftir Pétur Eggerz sem Möguleikhúsið við Hlemm frum- sýnir um þessar mundir. Það fjallar um Jónas sem ertölvufrík og gleymir jólunum algjörlega yfir skjánum. Útsendarar jólanna ætla nú ekki að láta hann komast upp með það. Sýningin í dag kl.14 er örugglega uppseld en það má alltaf gá f sfma 562 5060. Skyldi Þjóöminjasafniö eiga eftir aö opna Evrópudeild? Evrópa á saf n Það er víst ekki nóg að sameina lönd Evrópu með því að búa tfl eitt stykki evru og sameiginlegan viðskipta- markað. Nú þegar þetta tvennt er I höfn, eða um það bil, eru uppi hugmyndir í fleiri en einni og fleiri en tveimur borgum Evrópu um að búa til safn. Safn sem á að hýsa evrópska menningu. Hugmyndasmiðir að þessu safni, sem gætu orðið þrjú, eru á því að þrátt fyrir strið og erjur sundraðra landa álf- unnar í þúsund ár, eigi lönd Evrópu fleira sameiginlegt, svo sem samfélagsgerðir og trú. Þeir vilja því meina að þrátt fyrir að lönd Evrópu séu gerólík eigi þau sameigin- lega hugsunarhætti og tákn, sem geri álfuna að einu menningarsvæði. Eða þannig. Borgirnar þrjár sem langar til að setja á stofn Evrópusöfn eru Berlín, Brussel og París. í Berlín eru uppi hugmyndir um að leggja áherslu á mann- fræðiþáttinn. Belgar vilja heldur einblína á mannkyns- söguna, en París hugsar stórt eins og alltaf og myndi helst vilja stofna „þverfaglegt" safh - og væntanlega grauta öllu saman. Allt er þetta þó á hug- myndaborðinu enn sem kom- ið er og óvíst hvort slík söfn eigi eftir að líta dagsins Ijós. Enda finnst kannski einhverj- um nóg komið af safnaáráttu. Leikfélag Kópavogs hefur tekið til sýninga Kirsuberjagaröinn eftir sjálfan Anton Tsjek- hov. Sýningin hefst kl.20 og er miðaverð ein- ungis 1000 kr. Miðapantanir í sfma 554 1985. Edda Björgvins fer létt með einleikinn Leitin aö vísbendingu um vitsmunalíf í al- heiminum eftir Jane Wagner. Þar bregður hún sér f ótal mismun- andi hlutverk en finnur vfst engar vfsbendingar. Litla sviöiö í Borgar- leikhúsinu kl.19. Síminn er 568 8000. •Kabarett Jólahátíö Gleðigjafanna fyrir fatlaða verður haldin á Hótel Sögu kl. 15.30-18.00. Hér Góða skemmtun Stendur þú fyrir einhverju? Sendu uppiýsjngar i 3. desember 1999 f Ókus 27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.