Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Blaðsíða 20
Stallone í Detox
Sylvester Stallone er enn í
hæsta launaflokki kvikmynda-
stjama þótt hann hafi ekki ver-
ið áberandi að undanförnu.
Næsta kvikmynd
sem við sjáum
Stallone í er
Detoux, spennu-
mynd sem frum-
sýnd verður í febr-
úar á næsta ári. í
myndinni leikur
Stallone lögreglu-
mann sem verður
óvirkur í kjölfar hroðalegs
atburðar. Hann innritar sig inn
á hæli sem sérhæfir sig í að eiga
við lögreglumenn sem hafa orð-
ið fyrir áfalli. Á hælinu fer hann
að gruna að sjúklingar séu myrt-
ir á skipulegan máta. Fjöldi
þekktra leikara leikur með
Stallone, má þar nefna Tom Ber-
enger, Kris Kristofferson, Steph-
en Lang, Polly Walker, Charles
Dutton, Robert Patrick, Rohert
Prosky og Charles B. Vance.
Leikstjóri er Jim Gillespie sem
leikstýrði síðast I Know What
You Did Last Summer.
Frambjóðandinn
Joan Allen hefur nánast ekki
gert rangan hlut eftir að fór að
bera á henni í kvikmyndaheimin-
um. Hún fékk til að mynda óskar-
stilnefningar fyrir leik sinn í
Nixon og The Cruci-
ble. Aðrar kvik-
myndir sem hún
hefur verið eftir-
minnileg i eru Ples-
antville, Face/Off
og fce Storm. Á
næsta ári verður
frumsýnd The
Contender og
byggjast viðtökur mik-
ið á leik hennar. Leikur hún konu
sem er í framboöi til varaforseta-
embættis. Lendir hún í þeirri að-
stöðu að upp á yfirborðið koma
gamlar syndir í kynferðismálum.
Mótleikarar hennar eru Jeff
Bridges, Gary Oldman, Sam Elliot,
Mariel Hemingway og William L.
Petersen. Leikstjóri er Rod Lurie.
Frankenheimer enn að
Ein þekktasta kempan í banda-
rískri leikstjórastétt, John
Frankenheimer, verður sjötugur
í febrúar á næsta ári. Um það
leyti verður frumsýnd nýjasta
kvikmynd hans,
Deception sem hefur
kunnuglegan sögu-
þráð um fyrrum
fanga sem er neydd-
ur til að taka þátt I
stóru ráni á spila-
víti. Franken-
heimer er á heima-
slóðum í gerð
hraðra sakamála-
mynda og er skemmst að minn-
ast nýjustu kvikmyndar hans
Ronin. Hans bestu verk eru samt
kvikmyndir sem hann gerði á
sjöunda áratugnum og voru yfir-
leitt sterkar og dramatískar
ádeilumyndir. í aðalhlutverkum
í Deception eru Ben Affleck,
Gary Sinese og Charlize Theron.
Líf eftir The Beach
Breski leikstjórinn Danny Boyle
(Trainspotting) er sjálfsagt búinn að
fá sig fullsaddan af Bandaríkjunum
eftir að hafa verið í miklum vand-
ræðum með að klára The Beach.
Þurfti hann að þola
vandræðagemlinginn
Leonardo DiCaprio
sem leikur aðalhlut-
verkið og nú er komin
kæra á Boyle og hans
lið fyrir sóðaskap.
Það er þvi ekki að
undra að Boyle er nú
kominn á heimaslóð-
ir og tekinn til við gerð Alien Love
Triangle sem fjallar um þrjár geim-
verur sem koma til jarðarinar til að
nema þá náðargjöf mannsins að geta
elskað. I hlutverkum þremenning-
anna eru Kenneth Brannagh, Coutn-
ey Cox og Heather Graham.
Regnbogínn frumsýnir í dag An Ideal
Husband sem gerð er eftir skáldsögu
Oscars Wilde og fjallar um myndarlegan
og kærulausan yfirstéttarmann sem
þarf að taka til höndunum til að bjarga
vini sínum:
allir vilja eiga. Þessu tilvonandi
fullkomna hjónabandi er nú ógnað
af ævintýrakonunni Frú Cheveley
(Julianne Moore) sem er tilbúin að
segja frá dökku hliðinni á Sir Ro-
bert, leyndarmáli sem hann vill
helst gleyma. Þegar Gorin fer í
björgunarleiðangurinn fellur hann
fljótt í vef svika og lyga. Ekki bæt-
ir úr skák fyrir hann að hann verð-
ur hrifinn af systur Roberts
(Minnie Driver) auk þess sem hann
lendir í deilum við föður sinn
(John Wood).
Rupert Evertett var búinn að
leika I flmmtán ár í breskum kvik-
myndum og á sviði við góðan
orðstír þegar hann sló í gegn í My
Best Friend’s Wedding. Meðal kvik-
mynda sem hann hafði leikið í
An Ideal Husband, sem Oliver
Parker leikstýrir (Othello), fjallar
um ungan yfirstéttarmann, Arthur
Goring (Rupert Everett) sem er
þekktur i skemmtanalifinu í
London sem mikill kvennamaður,
skemmtansjúkur i meira lagi og
kærulaus þegar kemur að mann-
legum samskiptum. Þegar hans
besti vinur, Sir Robert (Jeremy
Northam), kemur til hans bónar-
veginn þar sem hann er um það bil
að lenda í miklum vandræðum tel-
ur Goring það skyldu sína að
bjarga honum úr ógöngunum. Sir
Robert er maður sem hefur allt til
alls, snjall stjórnmálamaður, séntil-
maður fram í fingurgóma og er
hinn fullkomni eiginmaður fyrir
Lady Chiltem (Cate Blanchett) sem
Rupert Everett leikur hinn skemmtanasjúka Arthur Going. Með honum á mynd-
inni er Julianne Moore sem leikur ævintýrakonuna Frú Cheveley.
áður má nefna Pret-A-Porter, The
Madness of King George, Dance
With A Stranger og The Comfort of
Strangers. Hann vakti fyrst athygli
fyrir leik sinn i Another Country
þar sem hann lék hlutverk sem
hann hafði leikið á sviði. Everett
hefur allan sinn feril leikið jöfnum
höndum á leiksviði i London og
meðal annars leikið í tveimur verk-
um Oscars Wildes, The Importance
of Being Earbest og The Picture of
Dorian Gray. Rupert Everett hefur
sent frá sér tvær skáldsögur, Heflo
Darling, Are You Working og The
Hairdressers of St. Tropez og er að
vinna að sinni þriðju skáldsögu
sem gerist í framtíðinni. -HK
Minnie Driver leikur unga stúlku sem Arthur Goning feilur fyrir.
Kringlubíó frumsýnir í dag Enemyof My
Enemy, spennumynd þar sem tekist er
á við skæruliða í Rúmeníu
Enemy of My Enemy er spennu-
mynd í anda kalda stríðsins og ger-
ist að mestu leyti í Rúmeníu.
Tölvuséníið Steve Parker (Peter
Weller), sem vinnur fyrir Banda-
rikjastjórn, er sendur til Rúmeníu
en þar hefur uppgötvast að innan
dyra sendiráðsins er virk kjarn-
orkusprengja sem búin er að vera
þar síðan á dögum kalda stríðsins.
Ferðin reynist hin afdrifaríkasta
því áður en hann kemur tfl lands-
ins höfðu gerst atburðir sem ógna
öryggi landsins. Þegar til Rúmeníu
kemur kemur honum til aðstoðar
Erica Long (Daryl Hannah), starfs-
maður sendiráðsins sem er ekki öll
þar sem hún er séð, og á hún að
Daryl Hannah leikur diplómat sem veit melra en gott þykir.
Peter Weller og Tom Berenger í hlutverkum tölvusérfræðings og hershöfðingja.
hjálpa honum að finna lausnina
svo hægt sé að aftengja kjamorku-
sprengjuna. Meðan á þessu verki
stendur eru þau einangruð frá
sendiráðinu í gömlu herbergi og
þaðan verða þau vitni að því þegar
serbneskir skæruliðar gera árás á
sendiráðið og taka þrjátíu og sjö
gísla. Krafan er að leiðtogi þeirra
verði látinn laus en honum er hald-
ið föngnum, ákærður fyrir glæp
gegn mannkyninu. Ef ekki verður
gengið að kröfum þeirra mun einn
gísl verða skotinn á hverjum
klukkutíma...
Leikstjóri myndarinnar, Gustavo
Graef Marion, kemur frá Chfle en
hefur unnið að kvikmyndagerð um
allan heim. Hann lærði kvik-
myndagerð í Þýskalandi og starfaði
þar um hríð en flutti til Chile fyrir
nokkrum árum og leikstýrði þar
kvikmyndum og sjónvarpsþáttum.
Marion flutti síðan tfl Bandaríkj-
anna 1997.
-HK
20
f Ó k U S 3. desember 1999