Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Síða 8
Onnur stór t plata Quarashi var að koma út. „Xeneizi heitir hú Gunna að þa ðu viljað efur Jgið einróma lof. Sölvi og Höskuld- sögðu Dr. eina sem þeir eð henni hefði verið að koma með betri J plötu en síðast. Þeir sögðust ekki græða mikið á góðærinu ** j því þeir væru ekki „inn“ hjá r snobbliðinu, þeir væru að þessu fyrir „krakkana" og gætu ekki beðið eftir að það kæmi kreppa. úr að Hössi. „Persónulega flnnst mér lög skreppa saman þegar ég les textann í þeim. Mér flnnst það oftast verra þegar ég veit hvað fólk er að segja.“ En hvaö eruö þiö eiginlega að segja? „Það er enginn boðskapur sem gengur í gegnum alla plötuna," seg- ir Hössi. „Textasmíðin fer oftast eftir því hvemig lagið er. Ef lagið er þungt er reiður texti, ef lagið er kraftmikið finnur maður linur sem eru kúl. Þetta er líka oft hugar- flæði. En textarnir skipta heil- miklu máli, sérstaklega upp á fram- tiðina að gera. Þegar ég horfi til baka vil ég ekki uppgötva að ég var bara að steypa út í loftið.“ Strákarnir byrja hverja æflngu á borðtennis og enda á fótbolta. Draumurinn er að spila fótbolta með Maradona. Strákamir eru fínir vin- ir og hanga oft saman, fara í bíó og svoleiðis. En þeir eru ekki alveg á sama máli í Fljótdalsvirkjunarmál- inu. Hössi er búinn að skrifa undir umhverfismatslistann, ekki Sölvi. „Ég er á báðum áttum,“ segir hann. „Það þarf eitthvað meira en yfirlýsingu Bandalags íslenskra listamanna til að sannfæra mig um að þetta sé slæmt. En ég geng samt út frá þvi að það sé örugglega nei- kvætt að dæla út einu og hálfu tonni af mengun á dag.“ Um síðustu helgi vorum við farnir að sofa kiukkan hálffjögur. Við erum að mýkjast. Góðærið er spillandi Strákarnir eru rúmlega tvítugir. Sölvi elstur, 24 ára, dj Bjössi yngst- ur, tvítugur. Þeir sjá ekki fram á að enda sem íslenskir popparar. „Nei, ætli það,“ segir Sölvi með þunga. „ekki það að íslenskir popp- arar eldist eitthvað illa. Við erum bara með annað í sigtinu. Það vita t.d. fáir að Höskuldur er einn af betri leikurum landsins og ég þori að hengja mig upp á að hann verð- ur kominn í leiMistarskólann fyrir þrítugt." „Þetta er bara hobbí,“ segir leik- araefnið rnn poppið. „Við höldum eins lengi áfram og við getum, eins lengi og fólk nennir að hlusta á okkur, en við drögum línuna við það að fara að spila fyrir pítsur." Finnst ykkur stemningin fyrir tónleikum hérna hafa batnaö síöan þiö voruö meö síöustu plötu? „Nei, versnað," finnst Höskuldi. „Það er eitthvað mikið að,“ finnst Sölva. „Það er allt ranga fólkið að mæta á tónleika,“ segir Hössi. „Ég fór á Emilíönu-tónleikana í Óperunni og sá lið eins og Baltasar Kormák og Þorfinn Ómarsson. Þetta fólk á að vera á Eddunni og hvergi ann- ars staðar." Sölvi: „Ég fer á kafflhús og fæ Sölvi og Höskuldur í Quarashi sitja í koníaksstofunni á Hótel Holti. Ekkert nema það besta fyrir besta rappband Islands. „Ég kom einu sinni hingað - blindfullur - og ætlaði að fá herbergi," segir Hösk- uldur. „Mér var hent út.“ Það ættu flestir að vita hvað Qu- arashi er. En hvemig lýsa þeir fé- lagar bandinu sjálfir? „Þetta eru hryðjuverkasamtök," segir Sölvi. „Skotmörk okkur eru eyrun á fólki. Við viljum vera það sem foreldramir hata mest og geta alls ekki fílað með krökkunum. En kannski er þetta að breytast. Við vorum á Isafirði um síðustu helgi og vorum farnir að sofa klukkan hálfljögur. Fórum ekki í partí eða neitt. Við erum að mýkjast." „Við erum fyrsta íslenska rapp- hljómsveitin," segir Hössi ákveð- inn, „sú fyrsta og sú síðasta." Góðærið er spillandi. Við viljum fá kreppu aftur. Þá kemur betri list. Allt beastie farið Tónlist Quarashi hefur oft verið líkt viö rokkrapp Beastie Boys. Er það þessi skræka rödd í þér, Hössi, sem kallar á samlíkinguna? „Já, kannski, eða það að það eru þrir hvítingjar í báðum böndunum og bæði em að spila rokkrapp. En það er ekki leiðum að líkjast.“ „Það væri miklu erfiðara að líkja okkur við tveggja metra háan svertingja í Public Enemy," segir Sölvi. „Þegar ívar Bongó var að mastera nýju plötuna sagði hann: Jæja, nú er aJlt beastie farið úr þessu hjá ykkur“ - það var gaman að heyra það.“ Hössi: „Við ætluðum aö gera plötu sem væri viðfeðmari en síð- asta plata.“ Sölvi: „Plötu fyrir öll hugsanleg tækifæri, plötu sem höfðaði til mis- munandi ástands fólks - út á djam- mið, heima að njóta ásta. Þegar þú setur snöruna um hálsinn geturðu meira að segja verið að hlusta á Quarashi." Hössi: „En útgangspunkturinn var alltaf hipp-hopp. Það er það sem bandið byrjaði á.“ Sölvi: „Við vOjum að aðdáendur okkar geti þróast með okkur. Hjá öllum góðum grúppum hafa aðdá- endumir elst með grúppunum. En það sem við vildum einfaldlega gera var að gera betri plötu en síð- ast.“ Við erum geðbilaðir Fyrsta plata Quarashi kom fyrir jólin 1997 og seldist ótrúlega vel. Eftir töm samhliða henni tók band- ið 8 mánuða frí. Samhliða plötu- kynningunni nú eru strákamir all- ir í skóla; Sölvi í stjórnmálafræði, Hössi í íslensku^ Steini i iðnhönn- un í Iðnskólanum og dj Bjössi (ali- as dj Dice) að klára Versló. Strák- amir gera sér fullkomlega grein fyrir smæð markaðarins hér. „Ég meina, núna eigum við ekki nema tveggja mánuða framtíð," segir Hössi. „Eftir tvo mánuði verða allir búnir að heyra lögin og við búnir aö spila fyrir alla. Þá þurfum að skapa aðra framtíð og það gerum við bara með nýrri plötu.“ „Þetta er bara sama gamla popp- aravælið," segir Sölvi. „I vor þegar við vomm að byija aftur sögðu all- ir; „þið voruð ekki með plötu í fyrra, þið emð búnir að vera“. Það mætti halda að fólk héma væri með gullfiskaminni, að það muni bara hálft ár aftur í tímann." En veröiö þiö ekki hundfúlir ef platan selst ekki eins vel og sú síö- asta? „Við værum fúlari ef platan væri léleg en við erum vissir um að hún er betri og því á hún að seljast bet- ur.“ Sölvi tekur við af Hössa: „Við erum geðbilaðir og setjum okkur geðbiluð takmörk. Salan á síðustu plötu var kraftaverk. Við sungum á ensku - hvað hafði Jet Black Joe selt? 3000 eintök? - og við vorum með jað- armúsík og ekki að spila á sveitaböllum en samt seldust 7000 eintök. Ef þessir 7000 kaupendur fíluðu virkilega síðustu plötu ættu þeir að fíla þessa plötu helmingi betur því þetta er helmingi betri plata. En það er geðbilað að búast við að kraftaverk gerist tvisvar í röð. En samt: Ég skal glaður víkja til hliðar ef það kemur betra rapp-rokkband en við. Þangað til verður einhver að gera þetta.“ Ekkl steypa út í loftið Skipta textarnir ein- hverju máli í þessu hjá ykkur? Ég skil ekki neitt sem þið eruö aö rappa og ekki eru text- arnir í umslaginu eöa á Netinu. „Ja, það hefur bara ekki gefist tima til að setja þá á Netið," segir um tónlei f Ó k U S 3. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.