Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Side 9
I
fokking GK-blaðið á borðið hjá mér
þar sem besti morgunmaturinn er
sagður vera á Saga klass í Flug-
leiðavél. Hvað er í gangi? Þetta er
góðærið. Góðærið er spillandi. Við
viljum fá kreppu aftur. Þá kemur
betri list. Kreppan skapar betri
stemningu í þjóðfélaginu. Það er
allt fullt af ömurlegu nýríku fólki
héma núna.“
Við drögum iínuna
við það að fara að
spiia fyrir pítsur.
Hössi: „Það að grasrótin er ekki
grasrót lengur hefur breytt tónlistar-
líflnu á íslandi ótrúlega mikið. Fólk
fer ekki á tónleika lengur til að
hlusta á tónlist heldur til að láta sjá
sig. Þetta gengur allt út á snobb.
Góðærið hefur alið af sér ótrúlega yf-
irborðskennd á öllum listasviðum."
Sölvi: „Snobbliðið mætir ekki
fyrr en band hefur verið orðað við
möguleika erlendis. Kommon! Okk-
ur finnst alltaf skemmtilegast að
spila fyrir krakka, 13 upp i 20, sem
eru inni í því sem við erum að
gera. Lið sem mætir ekki bara af
því Quarashi á kannski einhverja
möguleika erlendis. Við viljum fá
fólk á tónleika sem fer úr að ofan.“
Smávaxnir snillingar
Þannig aö þið eruð ekki að veltast
í góóœrinu og höföið ekki til
snobbliðsins?
Sölvi: „Nei. Ég fékk t.d. ekki
miða á frumsýninguna á Bond.
Það er sterk vísbending um að ég
sé ekki „inn“.“
Hössi: „Við myndum seint halda
útgáfutónleika í Óperunni."
Sölvi: „Seint. Enda erum við
ekki ópera. Og ég hata líka óperur.
Þar spilar inn í að stundum hittust
faðir minn og aðrir góðir menn af
Blöndals-ættinni og tóku Niflunga-
hringinn í maraþoni á meðan það
var borinn í þá matur. Þetta eru
verstu martraðir æsku minnar.
Wagner... hvílíkur viðbjóður.
Næst versta martröðin er þegar ég
vann í fatahenginu í Sinfóníunni
og einhver fékk mig til að færa
stjómandanum blóm. Stjórnandinn
kyssti mig á báðar kinnamar fyrir
framan alla og ég hef ekki náð mér
síðan."
Hverjar eru þínar œskumartrað-
ir, Hössi?
„Ég er búinn að bæla þær allar
niður. Það er bara hægt að ná þeim
fram með dáleiðslu.“
Hefur það háð ykkur að vera smá-
vaxnir?
„Nei, af því við getum verið jafn-
litlir saman og erum mjög ham-
ingjusamir með það,“ segir Sölvi.
„Jú, það háði okkur þegar við spil-
uöum hjá Eskimo-models. Þar voru
módelin 14 ára og 30 kiló og miklu
hærri en við. Helstu snillingar sög-
unnar hafa verið smávaxnir: Napo-
leon, Einstein, Maradona, Quaras-
hi. Þarf að segja meira?“
Nei. Ekki nema að strákamir
vilja koma þvi á framfæri að Skjár
1 sýnir heimildarþátt um þá á laug-
ardaginn eftir viku. „Þar kemur
fram hvað það er lítið eftirsóknar-
vert að vera poppari," segir Sölvi.
„Þar sést hvað það getur verið leið-
inlegt og mikil niðurlæging. Þegar
dyraverðir eru með kjaft við mann
og svona. Allur sá pakki.“
í Quarashi eru borðtennistöffarar.
Þeir fengu fötin hjá Stiga-umboðinu
og í Nike-búðinni, Laugavegi. Þess
má geta að þetta er óbein auglýsing.
spaan
by PULSAR
Upplýsingar um söluaðila
í síma: 580 8000
www.virfualspoon.com
3. desember 1999 f Ókus
9