Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Page 12
Selma Björnsdóttir
átti hugi og hjörtu
íslensku þjóðarinn-
ar þegar hún tók
þátt í Eurovision í
vor. Platan hennar
I am fór beint í
fyrsta sæti íslenska
sölulistans, en eftir
áramótin kemur í
Ijós hvort sigurinn
í Euro skilar vel-
gengni í útlandinu.
Þegar við komum inn á Hótel
Borg eru aðeins tveir gestir í saln-
um. Selma Björnsdóttir, sem við
eigum stefnumót við, heldur í
hendurnar á sambýlismanni sín-
um, Rúnari Frey Gíslasyni leikara,
yfir eitt borðanna. Þau virðast nið-
ursokkin í samræður sem við neyð-
umst til að trufla. Selma kemur
með okkur yfir að öðru borði og
fær þangað tekönnuna sem hún
var búin að panta, en ekkert te.
Þjónninn biðst afsökunnar og kem-
ur til baka með stóran trékassa
fullan af alls kyns tetegundum. „Ég
held ég fái mér bara Earl Gray,“
segir Selma. „Ég er svo vanaföst."
Hún er ákveðin í fasi og ekki vit-
und feimin.
Þá er platan komin út segjum við
þar sem hún er tilefni viðtalsins.
„Já. Við fengum þennan plötu-
samning hjá útibúi Universal í Sví-
þjóð í kjölfar Eurovision-keppninn-
ar. Við unnum að gerð plötunnar í
allt sumar og skiluðum henni af
okkur i september. Við vildum gefa
hana út á íslandi fyrir jólin þó hún
eigi ekki að fara á markað erlendis
fyrr en eftir jól.“
Er einhver sérstök ástœða fyrir
því?
„Það er erfitt fyrir óþekkta tón-
listarmenn að koma inn á jóla-
markaðinn erlendis ef þeir vilja fá
einhverja athygli. Það var því
ákveðið að bíða með það þar til
jólabrjálæðið væri liðið hjá.“
landi um áramótin. Annars sjáum
við það best á Netinu hversu víða
söngvakeppnin fer. Við höfum
fengið fyrirspurnir frá Brasilíu,
Ástralíu og nú síðast Japan.“
Hefur þessi keppni virkilega áhrif
út fyrir Evrópu?
„Þessi keppni teygir anga sína út
um allan heim. Það er meira að
segja til sérstakur aðdáendaklúbb-
ur keppninnar í New York.“
Geturðu skilgreint stíl tónlistar-
innar á nýju plötunni?
„All out of luck er mesta
gleðipoppið á plötunni, en við erum
líka með annað létt lag í meiri
diskósveiflu. Hin lögin eru alvar-
legri. Þetta eru ballöður og lög með
rokkívafl og R and B. Það eru því
ekki öll lögin í sama stíl.“
Þetta hljómar eins og þú sért með
breióan tónlistarsmekk.
„Ég er alæta á tónlist þó lögin
séu öll í eina átt. Þau bera sterkan
keim af mér og Þorvaldi. Ég held
að flestir popptónlistarmenn prófi
sig áfram með ýmislegt, eins og til
dæmis salsa og R and B til að fylgja
straumnum hverju sinni - þó
þeirra stíll svífi alltaf yfir vötnun-
um.“
Það eru tvö Todmobile-lög á plöt-
unni. Þú hefur ekkert verið á móti
því að taka þau?
„Samningur minn við Universal
er jafnmikið samningur við Þor-
vald Bjarna og þess vegna þótti
Tónleikar í London
Hvernig œtlið þiö að fara að því
að ná athygli í útlöndum?
„Við byrjum á því að halda tón-
leika i London í janúar til að kynna
plötuna á breskum markaði. Síðan
munum við ferðast um alla Evrópu
og kynna hana þar á tónleikum, há-
tíðum og í sjónvarpsþáttum, ekki
ósvipað því sem við gerðum með
Eurovisionlagið í sumar.“
Eruð þið ekki að velja erfiöustu
borgina með því að byrja í London?
Bretar eru svo óvœgnir í gagnrýni
sinni á popptónlist.
„Tónleikarnir í London eru
kynningartónleikar á nýjum lista-
mönnum Universal. Við komum
þvi ekki fram ein heldur með öðr-
um,“ segir Selma virðist ekki hafa
neinar áhyggjur cif þessu.
Með hverjum?
„Ég hef ekki hugmynd um það!“
Hvernig er samvinnu ykkar Þor-
valds Bjarna Þorvaldssonar laga-
smiðs háttað?
„Hann kemur með ómótað efni
Selma í
Selma Björns verður í beinu
spjalli á Fókus-vefnum (á visir.is)
í dag (fostudag) klukkan 16. í
gegnum lyklaborðið sitt geta les-
endur verið i sambandi við Selmu
og spurt hana um hvaðeina sem
til mín og ég kem með mínar hug-
myndir um melódíur og útsetning-
ar. Síðan fæðist textinn með lag-
inu. Við semjum textana í náinni
samvinnu við Sveinbjöm Baldvins-
son sem færir þá í endanlegt form.“
í læri hjá Þorvaldi
Hefur þú eitthvaó fengist við að
semja lög áður?
„Já, þegar ég var í hljómsveit-
inni Fantasía. Þá tók ég þátt í að
semja melódíurnar. Ég hef mjög
gaman af melódíum. Ég er hálfgerð
melódíukerling.“
Er þetta óvenjulegt að söngkona
starfi á þennan hátt meó lagasmiði?
„Ég hreinlega veit það ekki!“
Finnst þér betra að hafa þetta
svona en fá lögin fullbúin frá Þor-
valdi?
„Ég hef alltaf haft skoðanir á því
hvernig lögin eiga að vera sem ég
syng og ég myndi gjaman vilja
gera meira sjálf þegar ég hef öðlast
beinni
þá fýsir að vita. Einnig verður
diskurinn hennar Selmu fáanleg-
ur á spottprís (1499 kr.) og gestir
á Fókus-vefnum geta hlustað á
brot af lögunum hennar Selmu.
meira sjálfstraust. Það má eigin-
lega segja að ég sé í læri hjá þeim
sem ég vinn með, því ég hef enga
tónlistarmenntun sjálf.“
Langar þig að semja upp á eigin
spýtur?
„Það væri gaman, ef ég fæ
sniðugar hugdettur, að geta gert
eitthvað við þær. En það er ekkert
„must“. Enda fer það ekkert endi-
lega saman að geta sungið og
samið.“
Þú segist ekki vera tónlistar-
menntuó. Háir það þér ekki neitt?
„Ég lærði að vísu svolítið á
blokkflautu og selló þegar ég var
bam. Svo hef ég alltaf verið í kór.
Ég get því bjargað mér í nótna-
lestri, þó ég geti ekki lesið lög án
hjálpar.
Þessi vanþekking mín hefur orð-
ið til þess að ég hef orðið að
glöggva tóneyrað i staðinn. Ég held
það gerist ósjálfrátt þegar maður
hefur ekki hitt. Ég er eldsnögg að
ná laglínum. Það þarf ekki að spila
þær nema tvisvar."
Til Indlands um áramótin
Nú gekk ykkur ótrúlega vel í
Eurovision. Voruð nœstum búin að
vinna. Hefur það skilað einhverju
fleira en plötusamningi?
„Við erum búin að ferðast um
Evrópu í allt sumar og höfum feng-
ið tilboð um að syngja á ótrúleg-
ustu stöðum, meðal annars i Ind-
okkur tilvalið að leita í hans
smiðju þar sem hann hefur samið
ógrynnin öll af tónlist. Ég ber
miMa virðingu fyrir þessum lögum
og játa að það er svolítið skrýtið að
syngja þau á eftir Andreu. En við
færðum lögin í nýjan búning fyrir
mína rödd og sömdum við þau nýja
texta á ensku.“
Fer ekki í neinn saman-
burð
Bindurðu miklar vonir við út-
lönd?
„Ég veit að 98% tónlistarmanna
í heiminum meika það aldrei og ná
aldrei vinsældum.
Mér finnst mest gaman að geta
lifað af tónlistinni og að fá tækifæri
til þess að kynna íslenska tónlist
fyrir öðrum þjóðum hvort sem það
skilar frægð og frama eða ekki.“
Inn á hvaða markað stefnir þú?
Við hvaóa tónlistarmenn ertu að
keppa?
„Við erum að búa til popp eins
og svo ótalmargir aðrir. Ég vil ekki
setja samasemmerki á milli mín og
annarra."
Heldurðu aó tónlistin á nýju plöt-
unni höfði til ákveðins aldurshóps?
„Ég verð mest var við unga
krakka sem koma til mín til að
biðja um eiginhandaráritun, enda
gerir fullorðið fólk ekki mikið af
slíku. Ég veit líka að yngsti aðdá-
andinn minn er 3ja ára og sá elsti
87 ára. Ætli þeir séu ekki allt þar á
milli,“
Nú hefur þú tekið þátt í mörgum
leiksýningum. Þýðir framinn í tón-
listinni að þú sért hœtt að leika?
„Ég er ennþá í Hryllingsbúðinni,
en eftir áramót verð ég að taka mér
pásu frá leikhúsinu."
Þú segist aldrei hafa œtlað að
verða listamaður. Ekki lentirðu í
skemmtanabransanum fyrir tilvilj-
un?
„ Jú, eiginlega. Ég var á leið í lög-
fræði þegar ég fór í prufu fyrir
West Side Story árið 1995 og fékk
hlutverk. Ég er búin að taka þátt í
tíu söngleikjum síðan.“
Þú hefur ekki síður fengið hlut-
verk út á danshœfileikana en söng-
inn. Ætlarðu aó dansa á tónleikum?
„Það væri of mikið mál! „
Þú œtlar sem sagt ekki að feta í
fótspor Prince og Michael Jacksons?
„Það hefur mér aldrei dottið i
hug!“
Hann kemur bara með
Hefurðu einhvern tímafyrir Rún-
ar Frey?
„Við vinnum bæði mest á kvöld-
in og eigum frí á daginn. Það kem-
ur sér vel.“
Ég býst ekki við að þú sért með
hugann við aó stofna fjölskyldu?
„Það gæti orðið erfitt, allavega
næstu mánuðina. Ég kem til með
að vera mikið á faraldsfæti eftir
áramót," segir hún og lætur ekkert
meira uppi.
Ertu ekkert hrœdd við aðskilnað-
inn?
„Við fórum nú ekki í neitt lang-
ar tónleikaferðir til að byrja með.
Ef það breytist verður hann bara
að koma með mér.“
Nú varstu valin No Name andlit
ársins. Hefurðu einhvern áhuga á
fyrirsœtustörfum?
Selma verður í fyrsta skipti
vandræðaleg og ekki laust við að
hún fari örlítið hjá sér. „Ég hef nú
hvorki hæðina né útlitið í það,“
segir hún og bætir því við að hún
hafi engan sérstakan áhuga á slíkri
vinnu. „Mér fannst hins vegar allt
í lagi að gera þetta af þvi Kristín
Stefánsdóttir hefur fengið fyrirsæt-
ur á öllum aldri og úr öllum starfs-
stéttum til að vera andlit No
Name.“
Freistaði það þín virkilega ekki
neitt að eyða áramótunum á Ind-
landi?
„Ég vil vera heima í faðmi fjöl-
skyldunnar." -MEÓ
12
f Ó k U S 3. desember 1999