Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.1999, Qupperneq 14
Nýöldin blómstar og dafnar. Það er enginn maður með mönnum á miðbæjar- svæðinu 101 nema hann trúi á álfa, anda og alheimsviskuna. John Lennon kláraði þetta ferli fyrir rúmum 30 árum, kvaddi indverska gúrúinn og sönglaði þreyttur „I don’'t believe in Tarot. I just believe in Yoko and me.“ Það eru allir búnir að gleyma svoleiðis hallærisgaur og smartheitin liggja í andlegri vinnu og alheimsviskufagnaði. Enda er alheims- gleðin eilíf og algjörlega óstöðvandi. Sjálfshjálp og sjálfsrækt er mottóið í dag. Fólk fer í hrönnum til spákvenna, miðla, dáleiðara, heilara, í sértrúarsöfnuði, sjálf- styrkingarnámskeið, svæðanudd og orkustöðvaeflingu. Sjálfshjálp er „inn“. Það fer ekki á milli mála. Þeir sem stunda enga sjálfsrækt eru fordómafullir og hreinlega ekki vaknaðir að mati hinna. Blönkustu manneskjur taka yfirdrátt og kaupa hjálp að handan. Sumar eru þegar með magasár vegna skulda. Ráðið við magasárinu er námskeið i hómópatíu og svæðanudd. Fólk leitar allra leiða til að ná sátt við sjálft sig og í von um framlengingu á þessu lífi. Fráskildir fara á sjálf- styrkingamámskeið til að sætta sig við glerharða skilnaði og til spá- kvenna í von um vænlegri ástar- sambönd í framtíðinni. Einhverjir tala við álfa og aðrir fá sér stjörnu- kort til að skilja eigin persónu- leika. íslendingar virðast ekki fún- kera sem hamingjusamar mann- eskjur án hjálparmeðala. Sumir segja að nútímtíminn sé svo geig- vænlega firrtur að hjálparmeðulin séu lífsnauðsynleg. Þau séu aðeins mótvægið við firringunni. Aðrir tala um tískubylgju og pen- ingaplokk sem fyrir sjálfhverfa egóista í stöðugri naflaskoðun. Lof- ar sjálfsræktin mannvænlegra og innihaldsríkara lífi eða er hún gróðabrall? Auglýsing í Morgunblaðinu hljómaði svona: Með dáleiðslu get- ur þú áttað þig á neikvæðu munstri í hugsun og atferli og hvemig það hefur áhrif á líf þitt. Fókus hringdi í síma 694-5494 og spurðist fyrir um námskeiðið. „Dá- leiðsla er hugarástand sem skerpir athygli og næmi. Hugmyndir og hugmyndakerfi skýrast. Tökum sem dæmi fallega hugmynd. Með því að einbeita sér nógu vel þá er hægt að umbreyta henni inn í líf- ið,“ segir Viðar Aðalsteinsson dá- leiðslufræðingur sem er lærður í þessum efnum. „Ég kláraði skóla í Bandaríkjunum og hef unnið sem dáleiðslufræðingur í tvo mánuði. Annars hef ég starfað leynt og ljóst við þetta í 14 ár.“ Hvers vegnafórstu út í þetta? „Ég starfaði við nudd og heilun og þetta er næsti bær við það sem ég hafði verið að gera. Ég hef geig- vænlegan áhuga á manninum í heild, líkama og sál. Manneskjan er þvílíkt kraftaverk. Mín trú er sú að maður þurfi óbilandi trú og traust á sjálfan sig. Fólk verður að hafa markmið og vera ábyrgt fyrir sínu lífi. Það eru nefnilega engin tak- mörk fyrir því sem við getum gert,“ segir Viöar og er bjartsýnn á getu og vilja manneskjunnar. Draumarnir rætast En getum við gert allt sem við viljum? Eflaust hjálpar guð þeim sem geta hjálpað sér sjálfir. Hins vegar er ekki nóg að vilja. Það er fullt af fólki sem er í illa launaðri vinnu. Þeir sem fara á sjálfsrækt- unarnámskeið þurfa pening til þess. Allavega nógan pening fyrir reglulegum afborgunum. Blönkum og viljugum er bent á hentugt nám- skeið til að efla velgengni i starfi og rækta sjálfið í leiðinni. Ólafur Þór Ólafsson stendur fyrir slíku nám- skeiði. Auglýsingin hans hljómaði á þennan hátt: Þú getur látið drauma þína rætast. Viltu vita hvemig? Fókus vildi það gjaman og hringdi í Ólaf sem kvaðst vera með námskeið sem samanstæði af nýaldarfræðum og rökhyggju. Heldur þú aó þaó sé vakning i andlegum málum? „Ég held að það sé ótvírætt vakn- ing í þessum málum. Þaö er sífellt háværari umræða. Kannski vegna þess að ýmis framfara- og samskipta- vandamál stafa af lágu sjálfs- mati og vanmáttarkennd. Ég tel að vakningin beinist að huglægum takmörkunum sem standa í vegi fyrir sjálfs- þroska og framfömm á öll- um sviðum,“ svarar Ólafur og viröist nokkuð viss í sinni sök. Nú er mikiö framboó af sjálfsrœktarnámskeiðum, helduröu aö eitt sé betra en annaö? „Já, eflaust. En það er ekki mitt að dæma um hvað sé best. Það sem vekur einn til umhugsunar um eigin getu er best að hans mati. Ef hluturinn kveikir áhuga á sjálfsþroskaleit er það já- kvætt. Ég er búinn að hugsa og vinna á þessum nótum í 20 ár. Hef skoðað flesta þá af- Ólafur Þór Ólafsson áiítur að sumir nemend- urnir upplifi vissa hugljómun. Guðrún Arnalds dansar í kringum nuddbekkinn. kima þar sem maður getur ímynd- að sér að finnist eitthvað um sálar- lífið. Mest hef ég þó heillast af ár- angurssálarfræði og hugi-ækt. Mitt námskeið hefur greinflega sýnt þátttakendum möguleika sína. Það er engu likara en sumir þeirra upp- lifi vissa hugljómun.“ Hvaó kostar aö fara á svona nám- skeió? „Námskeið eins og mitt er í ódýr- ari kantinum. 17 tímar með náms- gögnum kosta 23.000,“ svarar Ólaf- ur og bætir við að það sé afsláttur fyrir hópa. Doktor Usui endur- uppgötvaði reikiheifun Reikiheilun er mjög vinsæl á Fróni. í stórum dráttum er reiki nálgun manneskjunnar við æðra sjálfið og sú orka sem streymir frá móður jörð í gegnum 7 orkustöðvar í okkur sjálfum og upp í al- heimsorkuna. Orðið reiki þýðir reyndar alheimslífsorka. Fókus hringdi í reikimeistara og spurði um reikiheilun. „Þaö er margt sem flokkast undir heilun, sama hvort það er svæðanudd, handayfirlagn- ing eða faðmlag," segir Sigiu-öur Guðleifsson, svæðanuddari og reikimestari. „Þú tekur utan um einhvern sem líður illa og það er heilun. Orðið þýðir að hlúa að því sem er ekki heilt. Reikiheilun er sérstök aðferð sem var endurupp- götvuð. Það var Doktor Usui, kenn- ari í kristnum drengjaskóla, sem enduruppgötvaði aðferðina. Reiki- heilun er orðin mjög almenn og út- breidd aðferð á íslandi og víðar. Vegna þess að árangurinn er svo raunverulegur. Ég fór út I þetta vegna þess aö ég þurfti sjálfur svo mikið á hjálp að halda og lærði líka margt annað. Ég hef til dæmis hjálpað börnum sem pissa undir,“ útskýrir reikimeistarinn og bætir við að hann sé lærður aromather- apist. „Það var kennari frá Bret- landi, Dr. Anna Ediström, sem kenndi það á íslandi. Við vorum 40-50 manns sem lærðum hjá henni. Ég kenni samkvæmt Evrópu- samtökunum og við erum líka með alheimssamtök. Nemendur mínir fá þvi viðurkenningu eftir því.“ Er dýrt aö fara á svona námskeiö? „Okkar mat á kostnaði er svo misjafnt. En hvert fyrsta og annars stigs nám- skeið stendur kannski í tvo daga. Mér finnst ekki æskilegt að hafa stóra hópa og þetta er mikil einkakennsla. Hver nem- andi þarf svo mikla at- hygli,“ segir Sigurður og bætir við að áhugasömum sé velkomið að hringja í pöntunarsíma: 587 1164. Það þarf ekki að leita lengra en i efra Breiðholt til að fá nasaþef af al- heimslífsorkunni á þessum síðustu og verstu tímum. í Breið- holtinu nálgast maður æðra sjálfið hjá alvöru reikimeistara og fagnar móður jörð. Leið 12 gengur frá Hlemmi og upp í Mjódd svo málið er bara að skella sér I úlpu og hoppa upp í strætó. Þá bíður al- heimsorkulifsgleðin við næsta horn. Hið dulda í manninum Það eru vægast sagt litríkustu hlutir á boðstólum í Reykjavík-city. Guðrún Arnalds starfar sem Hawai eða lomi lomi nuddari, leið- beinandi í líföndtm og hómópati. Fókus sperrir eyrun við orðið Hawai-nudd og sér kokkteilglas og freyðandi öldur í hillingum. Stuttu síðar bjallar forvitin manneskja í pöntunarsímann 896-2396 og grennslast fyrir um auglýsinguna. Guðrún svarar og lýsir nuddinu sem nokkurs konar húladansi þar sem nuddarinn dansar umhverfis bekkinn og beitir lófum, fram- og jafnvel upphandleggjum við nudd- Sigurður Guðleifsson segir að reikiheilun sé út- breidd á íslandi. 14 f Ó k U S 3. desember 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.