Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Side 8
Fjöllistahópurinn GusGus æddi fram á vígvöllinn
og Jón Jónsson hélt að heimsfrægð íslendinga
væru engin takmörk sett. Fréttir dundu í eyrum
landsmanna um heimstúr hópsins og Flafdís Huld
var rosasæt. Nú er hún skilin við Gussarana og
orðrómurinn segir að fleiri séu á förum frá
fjöllistahópnum. Daníel Ágúst Flaraldsson var
spurður út í þessar breytingar og margt annað.
og neistaflug
„Það getur verið erfitt að vera popp-
ari og fjölskyldumaður í senn,“ viður-
kennir Daníel Ágúst Haraldsson tón-
listarmaður. „Fylgikvistur þessarar
atvinnu, að vera poppari, er að fara í
ferðalög og kynna sköpunarverkið.
Ferðalög þýða náttúrlega þara að vera
fjarri heimahögum. Að vera íjarri
þeim sem manni þykir vænst um. Ein-
staka sinnum kernm- fiölskyldan með
í einhvem smátíma en stundum er
maður nokkra mánuði í burtu og slíkt
gengur ekki. Hvorki fyrir Gabríelu né
Danielu dóttur okkar. Enda eru ferð-
irnar ekki til að kynnast landi og þjóð
heldur er tónlist í farangrinum sem
maður vill leyfa sem flestum að
heyra.“
Við Gabríela
erum góð saman
Daníel hefur verið í sviðsljósinu í
meira en tíu ár. Hann birtist í Júró-
visjón, sló í gegn með Ný dönsk, lagð-
ist í eina sæng með myndlistarkon-
unni Gabríelu Friðriksdóttur, túraði
heiminn með GusGus og er nú að
leggja Eyjabökkum lið. Daníel Ágúst
var spurður um lífshlaupið frá núll-
punkti til nútíðar. „Eh ... Það má eig-
inlega segja að ég hafi verið meðvit-
undarlítill framan af. Alveg þangað til
ég var nítján ára eða svo. Ég man ekki
staðreyndir varðandi ævina mína en
ég man stöku upplifanir. Ég er frekar
mikill sveifhugi. Kannski vegna þess
að mamma mín hefur farið með mig á
of mörg listasöfn. Ég hef fengið svona
Stendalsindrúm eða Stendalheilkenn-
in. Þau lýsa sér í þvi að það verður of-
hleðsla í heilabúinu," segir Daniel
áður en hann sýpur á kaffinu. Að sop-
anum loknum beinast spjótin að
menntaskólanum og Ný dönsk. „Ég
byrjaði í Ný dönsk ‘87. Þá var ég
einnig nýbyrjaður í MR. Það var frá-
bært að vera í þeirri hljómsveit. Það
var skóli og skemmtilegt hark í tilver-
unni. Ég fékk útrás fyrir það sem mig
langaði að gera í tónlist - þá - á þessu
tímabili. Og það var mjög gróskumik-
ið tímabil í minu lífi. Ég var í Ný
dönsk þar til ég vildi ekki vera lengur
í henni. Þá var ég kominn með nýjar
hugmyndir um tónlistarsköpun og
færði mig út í tölvuumhverfið."
MR var greinilega mikill örlaga-
valdur í lífi Daníels því fjölskyldan
spratt líka upp úr menntaskólanum.
„Ég kynntist Gabríelu þegar hún var
á fyrsta ári í MR og ég á síðasta. Þau
kynni voru ennþá meiri innspýting í
lífið,“ segir fjölskyldupopparinn og
heldur kíminn áfram: „Við mættumst
í stiganum á leiðinni niður í nem-
endaathvarfið og það varð bara búmm
krass. Ári síðar fæddist Daníela. Ég
held að við Gabríela séum góð saman.
Það verður bára betra og betra."
Nú er Gabríela myndlistarkona,
vinniö þiö einhverja hugmyndavinnu
saman?
„Nei, við höfum bæði svo sterkar
skoðanir á eigin hugmyndum og sköp-
un. Ætli við höfum ekki forðast það
vitandi að allt færi í bál og brand,“
stynur Daníel og segir að þau reyni
kannski slíkt á elliheimilinu Grimd.
Polydistortion
fór ekki á stökk
„Ég komst á sporið með tölvutónlist
þegar ég stjórnaði upptökum fyrir
Bubbleflies. Þeir voru einmitt að
blanda saman tölvuheiminum og hin-
um hefðbundna basíska rokkheimi.
Mér fannst það bráðsniðugt. Áður
hafði ég mikla fordóma gagnvart
tölvumúsík. Mér fannst svo mikil
endurtekning I tölvunni, svona
teknótónlist. En fordómamir hurfu
alveg. Ég hef aldrei sleppt kassagít-
arnum eða hætt að spila á orgelið
hans afa eða neitt þannig. Tölvuver-
öldin hefur bara verið svo ótrúlega
heillandi. Umhverfið er margbreyti-
legt og möguleikamir óendanlegir,“
fullyröir Daníel áður en hann kemur
að fæðingu GusGus. „Siguröur Kjart-
ansson og Stefán Árni skrifuðu hand-
rit að stuttmyndinni Nautn og ég sló
til að leika í þessari vitleysu. En þeg-
ar æfingamar byrjuðu komu ýmsar
framkvæmdalegar hindranir í ljós.
Þær ollu því að við þurftum að fresta
tökunum. Af því að ég var ekki að
leika í myndinni langaði mig að búa
til músík. Auk þess langaði okkur
Sigga Kjartans að semja tónlist sam-
an en það vantaði vélstjóra í
teknómaskínuna. Svo við fengum
strákana í T-World til liðs við okkur,
Magga legó og Bigga veim. Við hent-
um lögunum okkar i púkk og unnum
myrkranna á milli að klambra þessu
saman og klára plötuna."
Þiö fenguð gott start eftir
Polydistortion en gekk „This Is
Normal" eins vel og þiö vonuöust til?
„Ja, sko, „This Is NormaT' gekk
mjög vel en það voru stærri vænting-
ar innan hópsins. Við héldum að við
væmm með eitthvað í höndunum
sem gæti farið með okkur aðeins
lengra. En, en, en, skapahárarakstur
hefur greinilega farið fýrir brjóstið á
fólki. Eða eitthvað annað svo hún fór
ekkert lengra með okkur en
Polydistortion. Hún fór svona jafn
langt. Við erum alveg sáttir. Hún náði
góðum gönguhraða en fór ekkert á
stökk,“ segir Daníel og það er ekki
laust við áð hann brosi út i annað.
Fjórir eftir í GusGus
Orörómur segir aö Jjöllistahópur-
inn taki hamförum og framtíöarmeö-
limir GusGus veröi aðeins fjórir. Daní-
el er vitanlega spuröur út í þennan
oróróm. „Ehm. Jú, það er rétt. Þegar
við vomm búnir að kynna „This Is
NormaT á miklum ferðalögum fannst
okkur nauösynlegt að hafa þetta
þannig aö allir yrðu hamingjusamir
og sáttir við breytingamar sem vom
óhjákvæmilegar til að GusGus gæti
haldið áfram. Hamingjusömu fjórir
einstaklingamir em Stefan Stefansen
ljósmyndari, kvikmyndatöku- og tón-
listarmaður. Biggi veira tónlistarmað-
ur og forritari. Sigurður Kjartansson
kvikmyndagerðar- og tónlistarmaður
og svo ég.“
Ætlió þiö aö leggja á djúpiö undir
flaggi GusGus?
„Við heitum GusGus áfram. Við
erum að búa til brjálaða elektrótón-
list. Starfsgleðin er svo mikil að neist-
amir fljúga og Siggi breik þarf að fara
að æfa orminn aftrn- og setja upp
svitaböndin sín. Hins vegar á ekki að
verða vandamál að framkvæma. Hitt
var svolítið þungt í vöfum. Þótt það
hafi verið alveg ótrúlega skemmtilegt.
En auðvitaö vom mörg „eigin“ sjónar-
mið í gangi sem var erfitt að eiga við.“
Mengunarspúandi
stórverksmiðja
Daníel tilheyrir poppurunum sem
tala meö verndun Eyjabakka. Auk
þess œtla þau Björk að syngja lag á
Netinu til heiöurs málefninu. Hvaö
segir hann um þetta snúna mál?
„Eyjabakkamálið er viðkvæmt og
uppásnúið mál. Afstaða min til þess
er sú að mér finnst stjómvöld ekki
vera að lækna fólksflóttann af lands-
byggðinni með virkjun fyrir rafmagn
tU Norsk Hydro," útskýrir Daníel og
tekur fram að hann vilji finna nátt-
úru- og mannvænni leiðir. „Mengun-
arspúandi stórverksmiðja laðar fólk
ekki að landsbyggðinni. Það þarf að
nýta auðlindimar á skynsamlegan
hátt með möguleikana opna og með
tilliti til umhverfisins."
Hvernig kemur poppiö inn í mynd-
ina?
„Okkur popparana þyrsti í að
leggja eitthvað til málanna. Koma
með hugmynd í stað þess að gagnrýna
eingöngu framkvæmdimar. Því syng-
um við Björk lag sem verður sett á
heimasíðu og ágóðinn af því rennur í
sjóð. Sjóðurinn á að styrkja góðar at-
vinnuskapandi hugmyndir, hug-
myndir hvar sem er utan höfuðborg-
arsvæðisins; koma þeim á fram-
kvæmanlegt stig og nýta ímyndunar-
auðgi fólks til að efla atvinnulífið úti
á landi. Svona eins konar nýsköpun-
arsjóður landsbyggðarinnar. Björk
samdi lagið og bað mig um að syngja
meö sér. Þetta er mjög skemmtilegt
lag. Það verður fljótlega á heimasiðu
og eigendur heimasíðunnar greiða í
sjóðinn eftir notendafjöldanum. Sjóð-
urinn er hugsaður sjálfstæður og
skipaður framkvæmdastjórn sem
finnur fleiri fiárfesta í þróun arð-
bærra hugmynda,“ segir Daníel að
lokum og er bersýnilega hlynntur
því að fólk noti ímyndunarauðgina
til hins ýtrasta. Að minnsta kosti
viröist hann óspar á hugmyndaflæð-
ið í eigin lífi. -AJ
f Ó k U S 10. desember 1999
8