Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Page 28
m
Aðstandendur sakamálamyndarinnar Ang-
el Eyes höfðu fengið loforð Jennifer Lopez
um að leika aðalhlutverkið en þegar þeir
neituðu að þorga henni átta milljónir doll-
ara sem hún heimtaði
báðu þeir Ashley Judd
um að leika aðalhlut-
verkið. Áður en farið
var að semja um laun
og kjör Judd dró Lopez
úr launakröfum sínum
og sættist á 7,5 millj-
ón dollara. Luis
Mandoki mun leika-
stýra kvikmyndinni eftir
handriti Geralds DiPegos, en þeir gerðu
saman ástardramað Message In Bottle..
Þar sem áætlaður kostnaður við myndina
er 30 milljónir er Ijóst að fjórðungur kostn-
aðarins fer i vasa Lopez sem nýlega tók
hliðarspor og gaf út plötu sem nýtur tals-
verðra vinsælda um þessar mundir.
leikur Leni
Eins og allir ættu að vita hefur Jodie Fost-
er hafnað því að leika í Hannibal, fram-
haldinu af The Silence of the Lambs. I
staðinn hefur hún ákveðiö að leika i og
framleiða kvikmynd um
þýska leikstjórann Leni
Riefenstahl sem var í far-
arbroddi þýskra leikstjóra
en þótti höll undir Hitler
og leikstýrði áróðurs-
myndum fyrir hann. I dag
er Riefenstahl talin með-
al merkari kvikmynda-
gerðarmanna aldarinnar: „Hún er kannski
einn af mestu kvikmyndagerðarmönnum
sem uppi hafa verið en samt mun nafn
hennar ávallt tengiast nasismanum," seg-
ir Foster. Riefenstahl er enn lifandi, orðin
97 ára gömul.
Nýjasta kvikmynd Arnolds
Schwarzeneggers, End of Days, hefur
fengið frekar slæma útreið hjá gagn-
rýnendum og almenningur hefur frekar
kosið að sjá Toy Story 2 og James Bond
þótt varla sé hægt að kvarta mikið yfir að-
sókninni. Þrátt fyrir hrak-
farirnar er
Schwarzenegger ekkert
að hugsa um langt fri eins
og síðast en End of Days
er fyrsta kvikmynd hans
frá því hann lék i Jingle
all the Way. Nú hefur ver-
ið tilkynnt að
Schwarzenegger muni leika í Collateral
Damage sem Andrew Davis (The Fugitive)
leikstýrir. Leikur hann mann sem leitar að
hryðjuverkamanni sem er ábyrgur fyrir
dauða eiginkonu hans og barns. Áður en
hann hefur leik í henni leikur hann The
Sixth Day, en tökur á henni hófust 8. des-
ember. Roger Spottiswoode leikstýrir
þeirri mynd.
Peter og Bobby Farrelly (There's Is Somet-
hing About Mary) vilja ólmir fá Heather
Graham til að leika annað aðalhlutverkið í
þeirra næstu kvikmynd Say It Isn't So,
rómantískri gamanmynd sem þeir eru að
undirbúa. Þegar eru þeir búnir að ráð í hitt
aðalhlutverkið, Chris Klein (American Pie,
W ’■ Election). Ef Graham tekur hlutverkið þá
mun hún leika fallega stúlku sem nánast
dettur af himnum ofan í fangið á forhert-
um piarsveini sem loks telur sig hafa fund-
iö þá einu réttu, það er þar til hann telur
sig hafa vissú fýrir því að hún sé löngu
týnd systir hans.
Hjónin Jake (Temura Morrison) og Beth (Rena Owen) skilin í framhaldinu..
Framhald hinnar margverðlaunuðu
nýsjálensku kvikmyndar, Once Were
Warriors, What Becomes of the
Broken Hearted? er frumsýnd í
Stjörnubíói í dag og er um
Evrópufrumsýningu að ræða
Temura Morrison leikur
hinn innfædda Jake Heke.
Eitt sinn stríðsmenn (Once Were
Warrior) er þekktasta nýsjálenska
kvikmyndin ásamt The Piano. Nú
fimm árum síðar kemur framhald-
ið What Becomes of the Broken He-
arted? sem hlotið hefur nafnið Eitt
sinn stríðsmenn 2. Það eru sömu
aðilar sem standa á bak við fram-
haldið, sami handritshöfundur,
Alan Duff, sömu leikarar og aðrir
aðstandendur. Það eina sem breyst
hefur er að nýr leikstjóri, Ian
Mune, er við stjómvölinn. Fram-
haldið er sjáifstætt og fylgjumst við
með Jake (Temuera Morrison) og
hvemig líf hans breytist eftir að
eiginkona hans Beth (Rena Owen)
hefur yfirgefur hann.
What Becomes of the Broken He-
arted? sló aðsóknarmet á Nýja-Sjá-
landi og í Ástralíu
og nú er að sjá hvað
gerist í hinum vest-
ræna heimi en um
Evrópufrumsýn-
ingu er að ræða hér
á landi.
í byrjun myndar-
innar hefur Beth yf-
irgefið Jake og leit-
ar skjóls undan
óvissunni, ofbeldinu
og hatrinu. Henni
tekst það þar sem hún
býr í rólegu og öruggu
millistéttahverfi, víðs
fjarri veröld Jakes. Jake
er aftur á móti enn við
sama heygarðshornið.
Hann hefur að vísu fundið
ur. Sonny er ákveðinn að leita
hefnda og fær aðstoð vinar sins,
Mookie. Hann reynir líka að sætt-
ast við foður sinn og fá hann í lið
með sér gegn morðingjum Nigs.
Eftir Once Were Warrior lá leið
Temura Morrison til Hollywood
þar sem hann hefur leikið i Speed
2, Barb Wire, Six Days, Seven
Nights, The Island of Dr Moreau og
nú nýlega lauk hann við að leika í
From Dusk Till Dawn 2: The Hang-
man’s Daughter.
Leikstjóri myndarinnar, Ian
Mune, hefur leikstýrt nokkrum
nýsjálenskum kvikmyndum, auk
þess sem hann lék í Once Were
Warriors og The Piano. -HK
nýja konu, Ritu, en það er tíma-
spursmál hvenær hún mun yfir-
gefa hann. Hann sækir
McClutchy’s krána og slæst við
alla sem honum mislíkar við. Á
meðan hann lendir í enn einum
áflogum er elsti sonur hans,
Nig, drepinn í einu glæpaklíku-
stríði.
í kjölfarið hrynur heimur
Jakes, Rita fer frá honum, hon-
um er bannað að sækja uppá-
haldskrá sína og vinir hans
verða fráhverfir honum. í milli-
tíðinni hittir yngri sonur hans,
Sonny, fyrrum kærustu Nigs,
hina fallegu Taniu. Hún segir
honiun að Nig hafi verið myrt-
bíódómur
Regnboginn - An Ideal Husband ★ ★★
Hér fá leikarar að njóta sín, með
safaríkan og hnyttin texta sem dyl-
ur meira en hann segir og afhjúpar
þannig sniildarlega klækjabrögð og
útsmognar leikfléttur í samfélagi
þar sem allt fer fram eftir ströng-
um reglttm á yfirborðinu en undir
niðri ríkir ringulreiðin. Þegar svo
enn betur er skoðað kemur i ljós að
allt fýrverkið er aukaatriði líkt og
oftast hjá Wilde. Það sem máli
skiptir er að hér fær skemmtilegt
fólk tækifæri til að sjarmera okkur
í tæpa tvo tima eða svo með
skemmtilegu spjalli, hnitmiðuðum
yfirlýsingum og meinfyndnum mis-
skilningi. Og skemmtilegastur
allra er Rubert Everett, sá sæti
sjarmör, sem tekst algerlega
áreynslulaust að sýna okkur væru-
kæran hefðarmann sem lítur á
samborgara sína með samblandi af
meðaumkun (þeir eru ekki eins
gáfaðir og skemmtilegir og hann
sjálfur) og umhyggju (þessum flón-
um verður stundum að hjálpa) án
þess að virka eitt augnablik sem
leiðindahrokagikkur.
Sagan hverfist um kusk á annars
óflekkuðum hvitflibba. Goring lá-
varður (Everett) er eindregið hvatt-
ur af föður sínum að koma sér í
hnapphelduna hið fyrsta enda orð-
in 36, en Goring er iðjuleysingi í
hjarta sínu og vill fá að vera það i
friði, segir enda við þjón sinn: „Að
elska sjálfan sig er upphafið að
ævilöngu ástarævintýri". í ljós
kemur að besti vinur hans, Sir Ro-
bert Chiltern (Northam), rísandi
stjarna í heimi stjómmálanna, er í
vondum málum þar sem hin slæga
ekkja frú Cheveley (Moore) hótar
að opinbera bréfkom sem Chiltem
sendi til manns hennar mörgum
árum áður og inniheldur upplýs-
ingar sem stöðvað gætu frekari
framavonir hins annars flekklausa
og strangheiðarlega pólitíkusar.
Sir Robert vill að Goring hjálpi sér
að undirbúa hina trygglyndu og
siðprúðu konu sína, Gertrude
(Blanchett), undir hin slæmu tíð-
indi og þar sem piparsveinninn
kærulausi er þrátt fyrir allt með
hjartað á réttum stað fer hann að
beiðni vinar síns. Málin flækjast
enn frekar þegar hann fellir ástar-
hug til systur Sir Roberts, Mabel
(Driver), því lausn vandræðanna
gæti nefnilega falist í því að hann
giftist ekkjunni slóttugu sam-
kvæmt hennar ósk.
Þessi hárfína hefðarkómedía er
hér færð upp í glæsilegan búning
svo úr verður afbragðs skemmtun,
ef maður er ekki skellihlæjandi þá
er maður gleiðbrosandi. Leikstjór-
anum Parker tekst jafnframt að
gæta jafnvægis milli gamans og al-
vöru, þrátt fyrir allt sprellið er hér
um háalvarleg mál að ræða, æra og
trú, hjartans krókaleiöir og rétt
hnýttar slaufur. Fyrirtaks skamm-
degisuppbót.
LeiKstjorn og nanarit: unver
Parker eftir samnefndu leikriti
Oscar Wilde. Aðalhlutverk: Rupert
Everett, Cate Blanchett, Jeremy
Northam, Julianne Moore, Minnie
Driver.
Ásgrímur Sverrisson
f ó k u s
10. desember 1999