Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Qupperneq 7
MIÐVTKUDAGUR 5. JANÚAR 2000
7
Fréttir
Bæjarráð Garðabæjar vegna tónlistarskóladeilunnar:
Kröfum um endur-
upptöku hafnað
Bæjarráð Garðabæjar sam-
þykkti samhljóða á fundi sínum i
gær að leggja til við bæjarstjórn að
kröfum um endurupptöku ráðning-
ar nýs skólastjóra við Tónlistar-
skóla Garðabæjar verði hafnað.
Ingimundur Sigurpálsson bæjar-
stjóri sagði við DV, að bæjarráð
hefði með höndum fullnaðaraf-
greiðslu mála sem ekki vörðuðu
fjárhag sveitarsjóðs. Yfirleitt væri
litið á samþykktir af þessu tagi
sem fullnaðarákvarðanir.
Þessi samþykkt varð til þess að
- yfirkennari og formaöur skólanefndar hætta
Guðmundur Hallgrímsson, for-
maður skólanefndar, hefur ákveð-
ið að segja af sér, að því er kom
fram i viðtali DV við hann í gær.
Hann kvaðst skila afsögn sinni inn
í dag. Búast má við að fleiri skóla-
nefndarmenn segi af sér. Þá er
Smári Ólason yflrkennari kominn
I veikindaleyfi og hyggst ekki
snúa aftur til starfa við skólann að
þvf loknu.
Yfirkennarinn, sem sótti um
skólastjórastöðuna, svo og hópur
foreldra bama í skólanum, hafa
krafist endurupptöku ráðningar-
málsins. Forsendumar eru að bæj-
arstjóri hafi gert sig vanhæfan
með því að taka sæti i nefnd sem
fór yfir umsóknimar og taka jafn-
framt þátt í ráðningu skólastjór-
ans. Það sé brot á stjórnsýslulög-
um. Krafa yfirkennarans byggist á
því að gögn sem hann lagði fram
með umsókninni hafi ekki verið
látin fylgja henni í umfjölluninni.
Þá hefur formaður skólanefndar
farið fram á svar bæjaryfirvalda
við áliti nefndarinnar um hæfasta
umsækjandann. Bæjaryfirvöld
hafa ekki orðið við þeirri beiðni,
að hans sögn.
Foreldrar barna í skólanum bíða
nú eftir því hverjar niðurstöður
verða úr athugun sem verið er að
gera á lagalegri hlið meðferðar
ráðningarmálsins.
Þegar DV spurði Ingimund
hvort hann væri uggandi um fram-
tíð tónlistarskólans eftir orrahríð-
ina sem um hann hefði staðið kvað
bæjarstjóri svo ekki vera. „Þetta er
skóli sem byggir á gömlum rótum.
Þama hefur farið fram mjög öflugt
og gott starf. Ég hef þá trú á starfs-
liði skólans að það vilji halda uppi
merki hans. Ef menn eru ósáttir
við aðgerðir bæjarstjórnar þá fer
það i sinn farveg. Við teljum okkur
hafa staðið að þessu máli á alla
vegu samkvæmt sveitarstjómar-
lögum. Ef menn eru ósammála þá
er annar farvegur fyrir slik mál og
það er í gegnum dómstóla. Hvað
varðar foreldrana þá hef ég ekki þá
trú að þeir telji það i sína þágu að
veikja starfsemi skólans." -JSS
Nú er jólunum lokið og flestir glaðir með þær gjafir er þeir fengu er þeir opn-
uðu jólapakkann. En ekki selst samt allt úr hillum verslananna og þarf í byrj-
un árs að telja það sem eftir situr. Stöllurnar á myndinni starfa í Nike-búð-
inni á Laugavegi og brostu yfir jólasölunni er þær skráðu hjá sér hvað enn
þá væri til. DV-mynd Hilmar Þór
Tillögur VR fyrir komandi kjarasamninga:
Launamenn semji sjálfir við
atvinnurekendur sína
Styttri vinnuvika, sveigjanlegri
vinnutími, viðunandi lágmarkslaun
og stofnun endurmenntunarsjóðs er
meðal þess sem kemur fram i tillög-
um Verslunarmannafélags Reykja-
vikur fyrir komandi kjarasamn-
inga.
Eitt af markmiðum félagsins er
að draga markvisst úr óhóflegu
vinnuálagi án þess að heildarlaun
lækki. Hyggst félagið beita sér fyrir
styttri vinnuviku með m.a. sveigj-
anlegum vinnutima. VR vill að tek-
in verði upp á samningstímanum í
áfongum markaðslaun sem endur-
spegli vinnuframlag og ábyrgð fé-
lagsmanna í starfi. Leggur VR m.a.
til að launin verði ákvörðuð af
starfsmanni og vinnuveitenda á
jafnréttisgrunni.
Félagið viU að famar verði nýjar
leiðir til að ná fram viðunandi lág-
markslaunum og að settur verði á
stofn endurmenntunarsjóður til að
auka möguleika félagsmanna VR á
endur- og símenntun. Þá leggur VR
til að félagsmönnum þess verði
tryggð aukin lífsgæði samfara fram-
leiðniaukningu sem gegnsærra
launakerfi og styttri vinnuvika
munu stuöla að, eins og það er orð-
að í tillögum félagsins. Kjaraþing
VR fer fram 15. janúar og verða þar
teknar endanlegar ákvarðanir um
kröfur félagsins fyrir kjarasamn-
inga. -hdm
Súperbrennsla
átaksnámskeið fyrir konur
Gott aðhald - góður árangur
Námskeióió byrjar 10. janúar 2000. Boóió er uppá morgun- og
kvöldtíma. Skráning er hafin í síma 553 5000. Skemmtileg og
áhrifarík leið til aó koma sér í gott form á nýrri öld. Kennari
er Hrafn Frióbjörnsson.
MrttBass
/zxiAm
Fellsmúla 24 • sími 553 5000 • www.worldclass.is