Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2000
9
Utlönd
Vladímír Pútín sýndi á sér mannlegu hliöina í sjónvarpsviðtali:
Jeltsín sagði af sér til
að tryggja eftirmanninn
Vladímír Pútín, starfandi forseti
Rússlands, sagði í gær að Bórís
Jeltsín heföi sagt af sér til að auka
líkurnar á því að Pútín næði kjöri í
komandi forsetakosningum.
Pútin gerði þessa játningu' í
tilfinningaþrungnu viðtali sem sýnt
var á ORT-sjónvarpsstöðinni. Efri
deild rússneska þingsins kemur
saman í dag til að ákveða hvenær
forsetakosningarnar verða haldnar.
Líklegt er talið að það verði 26.
mars næstkomandi.
„Hann vildi að baráttan fyrir
forsetakosningamar færi eins og
hann vildi,“ sagði Pútín í viðtalinu.
„Þetta var erfitt fyrir hann og fyrir
okkur öll. Siðustu orð hans voru
einfaldlega: Gættu Rússlands vel.“
Pútín, sem var skipaður
forsætisráðherra í ágúst á síðasta
ári, sagði að afsögn Jeltsíns, sex
mánuðum fyrir lok kjörtimabilsins,
hefði komið öllum á óvart. Hann
sagði að Jeltsín hefði fyrst ýjað að
ætlan sinni að hætta um það til tíu
dögum áður en hann tilkynnti það
opinberlega. Þá höfðu
stuðningsflokkar hans staðið sig
óvenjuvel í kosningum til þingsins.
Rússneskir hermenn áttu áfram í
hörðum bardögum við
uppreisnarmenn múslíma í
Tsjetsjeníu í gær, bæði í
höfuðborginni Grozní og í
fjöllunum i suðri. Uppreisnarmenn
héldu því fram að þeir hefðu Grozní
enn á valdi sínu, nema hverfi í
norðurhluta borgarinnar.
Flóttamenn á leiðinni heim til Tsjetsjeníu deila við rússneska hermenn við Adler-varöstöðina í nágrannaríkinu
Ingúsjetíu. Uppreisnarmenn sögðu í gær að þeir hefðu tsjetsjensku höfuðborgina Grozní enn á valdi sínu þrátt fyr-
ir haröar árásir rússneska hersins. Rússar sögðust hafa náð brautarstöö í borginni á sitt vald.
Hillary tekur
upp úr kössun-
um I New York
Tveir flutningabílar héldu í
gær frá Washington til New York
með muni Hillary Clinton, for-
setafrúar Bandaríkjanna. Sjálf
heidur Hillary til New York í dag
til að taka upp úr kössunum á
nýju heimili sínu í hverfinu
Chappaqua. Þar hafa Clintonhjón-
in keypt sér hús fyrir 1,7 milljón-
ir dollara.
Gert er ráð fyrir að forsetafrúin
geti flutt alveg inn í lok næstu
viku og þá er Bill Clinton væntan-
legur i heimsókn til konu sinnar.
Allt lítur út fyrir að Hillary
mun verja talsverðum tíma í New
York á þessu ári á meðan á bar-
áttu hennar fyrir öldungadeildar-
þingsæti stendur. Sjálfur hefur
forsetinn lýst því yfir að hann
muni dvelja bæði í Chappaqua og
á heimili sínu í Arkansas eftir að
hann lætur af forsetaembættinu á
næsta ári.