Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2000
13
Fréttir
Mikil aukning varö á sölu flugelda fyrir áramótin:
Hleypur á hundruðum milljóna
„Þaö varð mikil aukning í sölu
á flugeldum hjá okkur og myndi
ég giska á að hún hafi numið frá
15-20 og allt upp í 50%,“ segir
Kristbjörn Óli Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Slysavarnafé-
lagsins Landsbjargar. „Það er
hins vegar ómögulegt að giska á
Flugeldasalar eru sammála um að flugeldasala hafi verið mun meiri en áður
fyrir nýliðin áramót..
Örn Árnason leikari:
Kem út í plús um
hver áramót
- miðað við vini mína sem reykja
„Eigum við ekki bara að segja að
ég hafi eytt innan við 100.000 krón-
um um þessi áramót í ílugelda," seg-
ir Örn Árnason leikari sem er mik-
ill áhugamaður um flugelda. „Ég
veit ekki hvað það er sem er svona
gaman við þetta en þetta hefur alltaf
höfðað til mín. Við fjölskyldan höf-
um gert það undanfarin ár að fara
upp í sveit með fullan bíl af flugeld-
um til þess að skjóta upp í kyrrð-
inni. Það er miklu skemmtilegra að
gera þetta uppi í sveit því þá heyrir
maður allt betur og fmnur lyktina.
Verða menn aldrei of gamlir fyrir
flugeldana?
„Ég óska alla vega engum þess að
verða gamall fyrir aldur fram og
hætta að hafa gaman af því að
skjóta upp flugeldum."
En er þetta ekki of dýrt sport?
„Ég hef oft sagt að ég komi út í
plús um hver áramót miðað við
marga vini mína sem reykja. Alla
vega einn vinur minn sem verður
að teljast stórreykingamaður fer
með yfir 100.000 krónur á ári og tel
„Þetta hefur alltaf höfðaö til mín,“
segir Örn Árnason leikari.
ég betra að eyða þessu bara á einu
bretti um áramótin," segir Örn
Ámason. -hdm
hvað fslendingar hafa eytt miklu í
flugelda um þessi áramót, ég hef
séð slíka útreikninga og aðferða-
fræðin viö þá er ekki merkileg."
Fjölmargir aðilar standa að sölu á
flugeldum og samkvæmt heimild-
um DV er allur gangur á því
hversu mikið er gefið upp til
skatts. En er eitthvað til í þeirri
gagnrýni sem komið hefur fram
varðandi öryggisreglur um flug-
elda? „Það er alveg ljóst að þörf er
á hertum reglum varðandi flug-
eldasölu og reyndar er reglugerð
um málið í smíðum. Við viljum
meina að við séum stærstir á
sviði flugeldasölu hérlendis og
höfum við fylgt ströngum öryggis-
reglum um söluna. Málið er bara
það að mjög margir standa að
flugeldasölu hérlendis og höfum
við meira að segja rekið okkur á
það að flugeldar hafa verið keypt-
ir hjá okkur undir því yflrskini
að nota ætti þá til sýninga en þeir
svo verið seldir," segir Kristbjörn
Óli.
„Mér virðist sem aukningin
hafl að meðaltali verið um 20-30%
í sölunni í ár,“ segir Lúðvík Ge-
orgsson, framkvæmdastjóri KR-
flugelda. „Ég treysti mér nú ekki
til að slá á hversu miklu þjóðin
hefur eytt í flugelda í ár en eigum
við ekki að segja það hlaupi á
hundruðum milljóna. Það hefur
verið söluaukning í gegnum árin
sem hélt áfram núna en árið 2000
hefur spilað töluvert inn í þetta
árið,“ segir Lúðvík. Spurður um
hverju einstaklingar hefði verið
að eyða mest í flugelda um þessi
áramót sagði Lúðvik það hlaupa á
hundruðum þúsunda.
-hdm
formi a ný
Aríð 2000
Ný tafla í afgreiðslu
• Tækjawlur
• Body Max
• Tæbo
• Skvass
• Eróblkk
• Spinmng
Körfuboiti
Ljósabekkur
Cufuboð
VSCGSPOftT Storhöfda 17, v. Gullinbrú 577 5555 577 5566
»]
irrt|á. —3K j
EVRÓPA
JÁKN UM TRAU5T'
www.evropa.is
rTT <Mm b© m\-m:
flw# PM rwtn
Faxafen 8
Sími 581 1560
Fax 581 1566
Nú lækkum við verðið svo um munar
- glæsileg tilboð á bílum í eigu umboða og einstaklinga.
Öll almenn bílalán - bílasamningar - 100% lán.
Fislétt fjármögnun á nýjustu bílunum.