Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2000, Síða 26
26
MIÐVTKUDAGUR 5. JANÚAR 2000
Afmæli
Kolbrún Stefánsdóttir
Kolbrún Stefánsdóttir, útibússtjóri
hjá Landsbanka íslands, Höfðabakka-
útibúi, Jöklafold 43, Reykjavík, varð
fimmtug á mánudaginn var.
Starfsferill
Kolbrún fæddist í Reykjavík en ólst
upp á Raufarhöfn. Hún stundaði nám
í Lundi í Öxarfirði i kvöldskóla, við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti, stund-
aði starfsnám við VÍ, tók einkaflug-
' mannsprófi 1986 og útskrifaðist sl. vor
í rekstrar- og viðskiptafræði frá End-
urmenntunardeild HÍ.
Kolbrún hefur gegnt ýmsum störf-
um á Raufarhöfn t.d. kennslu við
Grunnskóla Raufarhafnar, var gjald-
keri hjá útgerðarfélaginu Jökli, starf-
aði við gæslu á leikskólanum, var við
verslunarstörf , síldarsöltun og fisk-
vinnslu en lengst af hefur hún verið
bankastarfsmaður eða í tuttugu ár.
Kolbrún tók við afgreiðslu Lands-
bankans á Raufarhöfn 1984, varð úti-
bússtjóri við útibú Landsbankans á
Hellissandi 1989, tók við útibúi
Landsbankans í Ólafsvík 1992 og rak
þessi tvö útibú til 1996 er hún flutti til
Reykjavíkur og tók við útibúi bank-
ans á Suðurlandsbraut 18. Hún stýrði
því þar til það var sameinað Múlaúti-
búinu 1999 og tók þá við Höfðabakka-
útibúinu.
Kolbrún hefur sinnt
ýmsum félagsmálum á
Raufarhöfn. Hún var m.a.
kórfélagi í Kór Raufarhafn-
arkirkju og í slysavama-
deild SVFÍ i yfir tvo ára-
tugi, sat í úthlutunarnefnd
atvinnuleysisbóta og í
sveitarstjórn Raufarhafnar
frá 1982 og þar til hún flutti
burt 1989. Kolbrún var
stofnfélagi í Soroptimista-
klúbbi Snæfellsness 1991
og er núna í Soroptimista-
klúbbi Grafarvogs.
Fjölskylda
Dætur Kolbrúnar em Birgitta, f.
11.7. 1969, bankastarfsmaður hjá
Landsbanka íslands í Breiðholti, gift
Ingimar Sigurðssyn, f. 7.6 1964, bíla-
sala og eiga þau tvo syni, Sigurð Jóel,
f. 23.1. 1993, og Viktor Erni, f. 22.9.
1997; Brimrún, f. 4.7.1980, starfsmaður
hjá heildverslun Ágústs Ármanns hf.
Systkini Kolbrúnar eru Særún, f.
26.6. 1952, húsmóðir á Raufarhöfn, en
sambýlismaður hennar er Róbert Þor-
láksson, f. 25.3. 1943, og sonur hennar
er Stefán Jan, f. 14.2. 1973, nemi í
Tækniskólanum; Guðrún, f. 8.10.1957,
innkaupa- og sölustjóri hjá Ágústi Ár-
mann heildverslun, gift
Benedikt Valssyni, fram-
kvæmdastjóra Papco hf.,
og era börn þeirra Daniel,
f. 17.11. 1981, nemi og Eva,
f. 29.10. 1984; Magnús, f.
17.6. 1959, málari og
trommari, en dætur hans
eru Milla Ósk, f. 18.10.
1990, og Vala Rún, f. 6.10.
1994.
Foreldrar Kolbrúnar era
Stefáns Magnússonar, f.
17.11.1924, fyrrv. útgerðar-
maður, og Kristjana Ó.
Kristinsdóttur, f. 3.6. 1921, húsmóður
og fiskverkakona.
Ætt
Stefán er sonur Magnúsar frá
Skinnalóni, bróður Guðmundar, b. á
Harðbak á Melrakkasléttu, sem er afi
Guðmundar prófessors og yfirlæknis
á Landspítalanum, Gests Þorgeirsson-
ar, hjartalæknis á Borgarspítalanum,
Guðmundar Þóroddssonar, forstjóra
Orkuveitu Reykjavíkur, og Arnþrúð-
ar, ömmu Vigdísar Grímsdóttur rit-
höfundar, og Hildar, langömmu
Jónasar Friðriks skálds, Kristínar
Norðfjörð lögfræðings og Árna Péturs
og Kjartans leikara Guðjónssona.
Magnús var sonur Stefáns Jónssonar,
Sigurðssonar, bónda í Skinnalóni, og
Þorbjargar Stefánsdóttur, ættmóður
Skinnalónsættarinnar. Móðir Stefáns
var Hólmfríður, dóttir Guðmundar
Stefánssonar b. og Sigríðar Jónsdóttur.
Kristjana er dóttir Kristins Jóels,
málarameistara í Hafnarfirði, sem var
bróðir Guðna, fóður Eiríks seðla-
bankastjóra og Birgis, málarameistara
í Hafnarfirði. Kristinn Jóel var sonur
Magnúsar, b. í Garðbæ i Njarðvíkum,
Pálssonar á Minni-Borg undir Eyja-
fjöllum, Jónssonar í Nesi í Selvogi,
Magnússonar á Efra-Hvoli, Jónssonar.
Móðir Stefáns var Steinunn, dóttir
Ólafs í Rófu í Leiru, Jónssonar í
Kampholti í Flóa, Jónssonar. Móðir
Steinunnar var Guðný Vilhjálmsdótt-
ir, b. í Kirkjuvogi, Brandssonar, Guð-
mundssonar, hreppstjóra, skipasmiðs,
og skálds í Kirkjuvogi, Brandssonar á
Víkingalæk, Bjarnasonar, ættfóður
Víkingslækjarættar, Halldórssonar,
forfóður Daviðs forsætisráðherra, Jó-
hönnu Sigurðardóttur alþm., Árna
Sigfússonar, forstjóra Tæknivals, og
Guðlaugs Tryggva.
Móðir Krisfjönu var María, dóttir
Alberts sem var bróðir Oddnýjar,
ömmu Kjartans Helgasonar ættfræð-
ings og langömmu Hjördísar Gissur-
ardóttur á Vallá, Sigurðssonar, Jóns-
sonar á Ormsvelli.
Kolbrún
Stefánsdóttir.
Magnús Ágúst Magnússon
Magnús Ágúst Magnússon við-
skiptafræðingur, Nesbala 104 b, Sel-
tjarnamesi, varð fimmtugur á gaml-
’ ársdag. Með afmælisgrein sem birtist
um hann í áramótablaði DV birtist
röng mynd. Greinin er því birt hér
aftur með réttri mynd og Magnús beð-
inn velvirðingar á mistökunum.
Starfsferill
Magnús fæddist i Reykjavík og ólst
þar upp, fyrst í vesturbænum en síðar
í Sogamýrinni þar sem hann gekk í
barnaskóla og gagnfræðaskóla. Hann
lauk landsprófi frá Réttarholtsskóla
1965, stúdentsprófi frá MR 1969 og við-
skiptafræðiprófi frá HÍ 1974.
Á námsárunum starfaði Magnús
hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur
1970-71 og í Tónabæ 1970-74. Þá stund-
aði hann kennslu við Iðnskólann
j 1971-72 og við Gagnfræðaskólann við
Lindargötu 1971-73. Magnús var sér-
fræðingur hjá Þjóðhagsstofnun
1974-76, hóf hann þá störf hjá Félagi
íslenskra iðnrekenda og var þar m.a.
skrifstofustjóri 1976-77, var deildar-
stjóri hjá Olíufélaginu Skeljungi hf.
1977-79, framkvæmdastjóri Gráfeldar
hf. 1979-80, fjármálastjóri og síðar
markaðsstjóri hjá Hafskipi hf.
1980-84, síðan framkvæmdastjóri á
skrifstofu félagsins í Ipswich í Bret-
landi 1984-85, starfaði á söludeild
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna
1986-90, á aðalskrifstofu félagsins í
Reykjavík en auk þess sumarlangt hjá
skrifstofu samtakanna í París, starf-
aði hjá Marbakka hf. 1990-98 viö sölu
fiskafurða á erlenda markaði og var
síðan sölustjóri hjá Plastos-umbúðum.
Nú, starfar Magnús við bókhald og
endurskoðun hjá Þórarni Þ. Jónssyni,
löggiltum endurskoðanda.
Magnús lék í unglingahljómsveit-
um á unglingsárunum, m.a. skóla-
hljómsveit MR sem reyndar er enn að
koma fram. Þá hafði Magnús umsjón
með þáttum um popptónlist í ríkisút-
varpinu á árunum 1975-77.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 28.2. 1970 Hrafn-
hildi Ingólfsdóttur, f. 12.3.1949, banka-
starfsmanni. Hún er dóttir Ingólfs
Finnbogasonar, f. 12.7. 1911, húsa-
smíðameistara í Reykja-
vik, og k.h., Soffiu Ólaf's-
dóttur, f. 11.10. 1911, hús-
móður.
Börn Magnúsar og
Hrafnhildar eru Ingólfur
Amar, f. 25.5. 1972, raf-
virki hjá íslenskum aðal-
verktökum hf. á Keflavík-
urflugvelli, í sambúð með
Guðrúnu K. Gunnarsdótt-
ur, f. 16.2.1972, hjúkrunar-
fræðingi, og er dóttir
þeirra Hrafnhildur, f. 16.1.
1999; Kristín, f. 17.10. 1976,
bankastarfsmaður, 1 sambúð með
Andra J. Heide, f. 26.4. 1970, háskóla-
nema.
Systkini Magnúsar eru Amdís
Ragnheiður, f. 11.9.1944, kaupmaður í
Keflavík, en eiginmaður hennar er
Gunnar Kristjánsson; Sverrir Salberg,
f. 25.1.1958, verkstjóri hjá Svansprenti
hf., en eiginkona hans er Svala Jóns-
dóttir; Sævar, f. 26.12.1959, sölumaður
hjá Gunnari Kvaran ehf., en eigin-
kona hans er Halla Stephensen; Halla
Björk, f. 5.6. 1965, starfsmaður við
Tyssedal Hotel 1 Noregi, en
eiginmaður hennar er
Thorsten Ólason.
Foreldrar Magnúsar:
Magnús Hjörtur Stefáns-
son, f. 28.1. 1916, d. 16.4.
1984, jámsmiður í Reykja-
vík, og Kristín Hólmfríður
Magnúsdóttir, f. 1.5. 1924,
húsmóðir í Hafnarfirði.
Ætt
Foreldrar Magnúsar Hjart-
ar voru Stefán Bjömsson,
sýsluskrifari og hrepp-
stjóri í Borgamesi, síðast í Reykjavík,
og Ragnheiður Jónasdóttir, húsfreyja
í Flatey á Breiðafirði og í Borgamesi.
Stjúpfaðir Magnúsar Hjartar var
Magnús Ágúst Sigurðsson, verkamað-
ur og sjómaður í Flatey og Borgar-
nesi.
Foreldrar Kristínar Hólmfríðar
vom Magnús Magnússon, verkamað-
ur á Siglufirði, og k.h., Salbjörg Jóns-
dóttir húsmóðir.
Magnús Ágúst
Magnússon.
Guðmundur Þ. Benediktsson
Guðmundur Þór Benediktsson aö-
albókari, Aðalgötu 27, Ólafsfirði,
varð sjötugur á sunnudaginn var.
, Starfsferill
Guðmundur fæddist á Siglufirði
en ólst upp á Ólafsfirði. Hann hefur
verið sýsluskrifari, aðalbókari og
fulltrúi bæjarfógeta- og sýslumanns-
embættisins í Ólafsfirði frá 1949 eða
í rúm fimmtíu ár.
Guðmundur hefur setið í yfirkjör-
stjórn Norðurlandskjördæmis
eystra fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem
aðal- og varamaður frá 1959, var
varabæjarfulltrúi fyrir flokkinn í
bæjarstjórn Ólafsfjarðar tvö kjör-
tímabil, fundarritari bæjarstjómar
Ólafsfjarðar í sextán ár, hefur verið
r stjómarmaður ýmissa félaga um
árabil, t.d. einn af stofnendum Leik-
félags Ólafsfjarðar og hefur verið
endurskoðandi reikninga fyrir ýmis
félög um langt árabil, s.s. Sparisjóð
Ólafsfjarðar.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 2.6. 1968
, Clöru Jenny Arnbjörnsdóttur, f.
12.3. 1941, verslunarmanni. Hún er
dóttir Arnbjöms Marteins Stefáns-
sonar, verkamanns á Dalvík, og
Laufeyjar Emeliu Jónsdóttur hús-
móður en þau eru bæði látin.
Fóstursonur Guðmundar og son-
ur Clöru er Ambjörn Arason, f. 1.12.
1958, bakari á Dalvík, en kona hans
er Soffia G. Húnfjörð, f. 23.9.1958, og
eiga þau saman þrjú böm auk þess
sem Árnbjörn á tvö börn frá því áð-
ur.
Börn Guðmundar og Clöru eru
Dagur Óskar, f. 3.6.1963, sjómaður á
Ólafsfirði, en kona hans er María
Guðmundsdóttir, f. 31.5. 1965, og
eiga þau þrjú börn; Fylkir Þór, f.
8.10. 1968, skrifstofustjóri á Akur-
eyri, en kona hans er Matthea Sig-
urðardóttir, f. 17.1. 1970 og eiga þau
tvö böm.
Hálfsystkini Guömundar, sam-
feðra, eru Sigurður Líndal, f. 1930,
verkfræðingur i Reykjavík; Guð-
björg Malling, f. 1931, húsmóðir í
Danmörku; Guðmundur Líndal, f.
1932, verkstjóri á Álfsnesi; Einar
Líndal, f. 1934, bifvélavirki í Hafnar-
firði, kvæntur Lovísu Lúthersdótt-
ur;Ragnar Líndal, f. 1939, yfirsím-
virkjaverkstjóri í Reykjavik, kvænt-
ur Guðrúnu Ámadóttur.
Hálfsystir Guðmundar, sam-
mæðra, er Árndís Ólöf Pálsdóttir, f.
1932, húsmóðir á Ólafsfirði, en mað-
ur hennar er Guðjón Sigurðsson
verkamaður.
Foreldrar Guðmundar voru Bene-
dikt Einarsson, f. 1906, d. 1980, vél-
stjóri og verksmiðjustjóri, og Mar-
grét Halldóra Guðmundsdóttir, f.
1905, d. 1987, húsmóði og verkakona.
Ætt
Benedikt var sonur Einars, b. í
Tungu í Stíflu í Fljótum, Halldórs-
sonar, b. þar, Jónssonar, pr. á
Hvanneyri á Siglufirði og á Barði í
Fljótum, Jónssonar, b. á Bjarnastöð-
um, Jónssonar, b. á Tungufelli í
Ytrihreppi í Ámessýslu.
Móðir Jóns prests var Dýrleif Eyj-
ólfsdóttir, ættuð undan Eyjafjöllum.
Móðir Halldórs var Guðrún Péturs-
dóttir, yfirprentara á Hólum í
Hjaltadal, Jónssonar og Sigríðar
Halldórsdóttur, pr. á Völlum í Svarf-
aðardal, Þorbergssonar.
Móðir Benedikts var Svanborg
Rannveig Benediktsdóttir, b. á
Stóra-Holti í Fljótum, Jónssonar, b.
á Núpskötlu á Sléttu, Illugasonar, b.
á Ásmundarstöðum, Arasonar. Móð-
ir Jóns var Ingveldur Mikaelsdóttir,
b. í Grjótnesi á Sléttu, Grímssonar.
Móðir Ingveldar var Helga Péturs-
dóttir, b. á Krossi í Óslandshlíð,
Jónssonar. Móðir Benedikts í Stóra-
Holti var Sigríður Benediktsdóttir,
b. í Laxárdal í Þistilfirði, Benedikts-
sonar, b. á Hermundarfelli, Þor-
steinssonar, b. á Ljósalandi i Vopna-
firði, Kolbeinssonar. Móðir Svan-
borgar var Margrét Bjamadóttir, b.
á Staðarhóli á Siglufirði, Arasonar,
b. í Leyningi, Sveinssonar, pr. á
Knappsstöðum í Stíflu. Móðir Mar-
grétar var Guðrún Ámadóttir, b. í
Neðri-Stíflu og Siglufirði, Ámason-
ar, b. á BúrfeUi.
Margrét Halldóra var dóttir Guð-
mundar, verkamanns á Ólafsfirði,
Steinssonar, b. á Hrúthóli í Ólafs-
firði, Þórðarsonar. Móðir Guðmund-
ar var Guðrún Oddsdóttir, pr. á
Kvíabekk, Jónssonar, Oddssonar,
Sæmundssonar.
Móðir Margrétar Halldóru var
Aðalbjörg Þórey Ólafsdóttir, b. á
Reykjum, Guðmundssonar. Móðir
Aðalbjargar var Ólöf Eiríksdóttir, b.
í Neskoti í Vestur-Fljótum, Ás-
mundssonar, b. þar, Jónssonar, b. á
Bjarnarstöðum í Unadal, Ásmunds-
sonar.
DV
Tll hamingju með afmælið 5. janúar
85 ára
Jón Eyþór Guðmundsson, Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavik.
80 ára
Guðrún Sveinbjamardóttir, Hafnargötu 125, Bolungarvík. Hulda G. Bjömsdóttir, Kjartansstaðakoti, Sauðárkróki.
75 ára
Guðmunda M. Friðriksdóttir, Kirkjuvegi ld, Keflavík. Guðmundur Már Brynjólfsson, Háagerði 77, Reykjavík. Kristín Bjaraadóttir, Hólavegi 11, Sauðárkróki.
70 ára
Guðrún Daníelsdóttir, Skarðsbraut 17, Akranesi. Hólmfríður Jónsdóttir, Hraunkoti 2, Húsavik. Sigurlína Kristjánsdóttir, Lindasíðu 2, Akureyri.
60 ára
Ásta Sigurbjömsdóttir, Foldahrauni 41e, Vestmannaeyjum. Iðunn Steinsdóttir, Sundlaugavegi 20, Reykjavík. Kristján Jón Ágústsson, Hraunbæ 18, Reykjavík.
50 ára
Ásgeir Óskarsson, Hagamel 53, Reykjavík. Bjöm Sveinsson, Fífuseli 36, Reykjavík. Edvald Geirsson, Suðurengi 22, Selfossi. Jóninna M. Hólmsteinsdóttir, Dvergholti 11, Mosfellsbæ. Selma Guðmundsdóttir, Háholti 32, Akranesi. Sigríður Hjálmarsdóttir, Grettisgötu 18, Reykjavík. Sigrún Högnadóttir, Byggðarholti 19, Mosfellsbæ. Stefanía Ingólfsdóttir, Stóragarði 6, Húsavík. Steinunn Harðardóttir, Háaleitisbraut 111, Reykjavík.
40 ára
Ásta Sigurðardóttir, Borgarlandi, Stykkishólmi. Díana Oddsdóttir, Bæjartúni 12, Kópavogi. Elfa Gunnarsdóttir, Strandaseli 5, Reykjavik. Guðjón Hróar Óskarsson, Melabraut 19, Seltjarnarnesi. Gunnar Thorberg Sveinsson, Stararima 37, Reykjavík. Heiðrún Hákonardóttir, Daltúni 29, Kópavogi. Magnea Rannveig Hansdóttir, Viðarrima 22, Reykjavík. María Þorgrímsdóttir, Ásgarði 5, Keflavík. Ólafur Kjartan Tryggvason, Vættaborgum 25, Reykjavík. Thomas Jean Correa, Laugavegi 62, Reykjavík.