Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Page 15
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000 15 Hættuleg kynni Upplýstir fréttamenn Nærtækt dæmi er áníðsla stjórnvalda á öryrkjum. Eftir dúk og disk næst í heilbrigðisráðherra sem lýsir því yfir að málið sé allt einn misskilningur, ástandið sé í miklum sóma og fyililega í takt við það sem best gerist með við- miðunarþjóðum. Fréttamaðurinn virðist ekki vita betur og lætur fullyrðinguna standa andmæla- laust. Daginn eftir næst síðan í tals- „Eða hvers vegna mætast aðilar mála svo sjaldan í rökræðum á íslandi?" - Sjónvarpsumræður með stjórnmála- mönnum undirbúnar. I Sögu tímans seg- ir á einum stað: „Vera má að til séu heilir heimar og menn gerðir úr and- efni. Sá sem rnæt-ir andmenni sínu skyldi varast að heilsa með handa- bandi - báðir hyrfu í gífurlegum ljós- blossa!" (Stephen Hawking, Saga tím- ans, bls. 132). Tillitssemi, tepruskapur? Nútíma eðlisfræði er komin svo langt út fyrir reynslusvið mannanna að venju- legur lesandi tyllir hvergi tá í neinni raunveru. Og samt er verið að fjalla um raun- veruna. Þess vegna er hann þakk- látur þegar hann getur heimfært það sem hann les upp á einhvern veruleika. Getur hugsast að það sem eðlisfræðin segir um andeind- ir sé í raun lýsing á stjórnmálaum- ræðunni á íslandi? Sérhver raf- eind á sér andeind og ef þær hitt- ast eyða þær hvor annarri. Eða hvers vegna mætast aðilar mála svo sjaldan í rökræðum á ís- landi? Annaðhvort eru íslenskir fréttamenn ekki nægilega upplýst- ir um málin sem þeir fjalla um eða þeir hlifa viðmælendum sínum við andmælum af tillitssemi og/eða tepruskap. Þetta setur síðan mark á alla þjóðfélagsumræðuna, okkur er boðið upp á endalausar yfirlýs- ingar í stað raka og rökfærslu. Kjallarinn Pétur Gunnarsson rithöfundur mann öryrkja sem hrekur málílutning ráðherrans sem siðan ... 'o.s.frv. Það myndi spara okkur tíma ef fréttamenn væru bet- ur upplýstir um málin og hefðu bein í nef- inu til að mæta ráðamönnum með rökum. Að ekki sé talað um ef málsað- ilar þyrðu að mæt- ast í hlutveruleik- anum. Afstööuleysi fréttamanna Hrópandi dæmi um afstöðuleysi .. fréttamanna var á dögunum í skrípa- leiknum sorglega kringum Seðla- bankann. Sjaldan hefur tíma- skekkja íslensks samfélags staðið jafn glöggt eða kenning Þorgeirs Þorgeirsonar um framhjágöngu frönsku stjómarbyltingarinnar á íslandi fengið jafn ljósa vottun. Hvar á byggðu lýðræðisbóli hefði forsætisráðherra landsins getað sagt upp í opið geðið á þjóð sinni: „Ég er að visu ekki búinn að „Stjórnmálamenn án aöhalds fjölmiöla eru eins og knatt- spyrnumenn án dómara og línu- varða. Engin rangstaöa, engingul spjöld, hvað þá rauð. Og áður en við er Utið hefur leikurinn breyst í hrækingar og slagsmál.“ kynna mér hinar umsóknimar, en staðráðinn samt í að ráða við- skiptaráðherrann i stöðuna af því ég met hann hæfastan." Þjóðin var kjaftstopp og klumsa - gott og vel - en öllu verra að fréttamenn voru það óvart lika. Verða aö taka áhættu Ef ísland ætlar ekki að enda sem Árbæjarsafn heimsins í af- lögðum stjórnarháttum verða rík- ---------, isíjölmiðlarnir að taka sér tak. Stjórn- málamenn án að- halds fjölmiðla eru eins og knattspymu- menn án dómara og línuvarða. Engin rangstaða, engin gul spjöld, hvað þá rauð. Og áður en við er lit- ið hefur leikurinn breyst í hrækingar ogslagsmál. Málsaðilar verða að taka áhættuna af því að mætast í opinberri umræðu. Jafnvel þótt þeir eigi á hættu að hverfa í ljós- blossa. Pétur Gunnarsson Afburðamenn í Garðabæ Afburðamenn hafa löngum átt erfitt uppdráttar á íslandi. Reynsl- an sýnir að til að fá gott starf kem- ur sér betur að eiga góðan vin í pólitík en að hafa yfirburði í þekk- ingu og reynslu. Síðast opinberaði sjálfur forsætisráðherra þá skoð- un sína að það ætti ekki að aug- lýsa stöður á borð við stöðu seðla- bankastjóra heldur ættu þeir sem sitja við kjötkatlana að ráða slíku, jafnvel þótt langur listi sannan- lega hæfari og reyndari umsækj- enda væri til staðar. Fórnarlambiö Með slíka afstöðu aö leiðarljósi er ekki að undra þó bæjaryfirvöld í Garðabæ hafi samviskulaust beitt sömu aðferð þegar átti að ráða í stöðu skólastjóra Tónlistar- skólans í Garðabæ, sem er ekki feit dúsa, miðað við starf seðla- bankastjóra. Fórnarlambið í þetta sinn var Smári Ólason sem sótti um stöðu skólastjóra við Tónlist- arskóla Garðabæjar en bæjaryfir- völd völdu annan umsækjanda í trássi við vilja skólanefndar, kenn- ara og hundruð nemenda og for- eldra. Við Smári höfum þekkst siðan við vorum bekkjarbræður í Menntaskólanum í Reykjavík. Áhugamál okkar beggja var tónlist og við stofnuðum skólahljómsveit og tróðum upp hér og þar. Við spiluðum popp og djass en fljótlega fór Smári að sýna áhuga á klass- ískri tónlist og einsetti sér það að helga lifið tónlistinni. Á eigin spýtur í menntaskóla var Smári skáti, bílaáhugamaður, rafeindagrúskari og altmúligmann en mér vitandi hefur hann lítið annað starfað en við tónlist frá því menntaskóla lauk. I námi réðst hann til at- lögu þar sem garðurinn var hæstur. Eftir menntaskólann fór hann til Austurríkis þar sem hann lagði stund á strangt tónlist- arnám í áraraðir. Eftir það stund- aði hann ötullega kennslu, kór- stjóm, orgelleik og annað sem við- víkur tónlist. Á eigin spýtur tók Smári upp á því, með verulegum fórnum, bæði á fjárhag og fjöl- skyldulífi, að stunda fræðistörf um Passíu- sálmana. Hann hefur safnað saman meiri upplýsingum um þetta ljúfa listaverk en nokkur annar maður. Hann tók sér leyfi frá störfum til að fylgja þessu verk- efni eftir með dvöl í Svíþjóð og víðar til að ráðfæra sig við fræðimenn á þessu sviði. Allir kennarar og nemendur sem kynnst hafa Smára gefa honum góð meðmæli. Það hlýtur að sanna að maðurinn er gæddur miklum samstarfs- og for- ystuhæflleikum. En það sem einkennir Smára er andúð hans á illa unnu verki, hvort sem það er hans eigin eða t.d. nemanda sem ekki hefur náð sínum besta árangri vegna trassa- skapar. Mér skilst að það hafi hlaupið í kekki þegar Smári yfir- kennari og Gísli Magnússon, pí- anóleikari og fyrrverandi skóla- stjóri Tónlistarskólans, sýndu bæj- aryfirvöldum plön að nýju húsi fyrir skólann. Fáfræði bæjaryf- irvalda Ef einhverjum er treystandi fyrir góðu og hagkvæmu skipu- lagi þá er það Smári. Hann hefur örugglega legið yfir þessum áætlunum og ekki far- ið fram á einn einasta fermetra umfram brýnustu nauðsyn. En bæjarstjórnin bauð þeim minna hús, útikamar í stað kammertónlistarhúss! Smári er ekki þægi- legur“ já, já-maður“ þegar skilningsleysi er annars vegar og skiptir þá litlu hvar menn eru í pólitík. Ilia unnin verk eru bara ekki á dagskrá. Með því að sniðganga Smára nú í stööu skólastjóra eru bæjaryfirvöld að sýna á hrokafull- an hátt fáfræði sína, hver ræður og hver hefur síðasta orðið. Ef til vill eru til hæfari menn en Smári í þetta starf en ég hef aldrei hitt slíkan mann. Ef prófessors- embætti væri til í tónlist þá væri það heppilegur vettvangur fyrir Smára, því bæði er hann fræði- maður og lærimeistari og leggur mikinn metnað í að gera gott enn betra. Ég skora á Garðbæinga að láta bæjaryfirvöld heyra sitt álit á þessu máli til að missa ekki einn „Mér skilst að það hafi hlaupið í kekki þegar Smári yfirkennari og Gísli Magnússon, píanóleikari og fyrrverandi skólastjóri Tónlistar- skólans, sýndu bæjaryfírvöldum plön að nýju húsi fyrir skólann.u Kjallarinn Kristján Ingvarsson verkfræöingur Með og á móti Var rétt hjá Akraneskaup- staö að segja sig úr SSV? Málefni Samtaka sveitarfélaga á Vest- urlandi hafa mikiö verið i umræöunni i kjölfar þess aö Gunnar Sigurösson, bæjarfulltrúi Sjálfstæöisflokksins, var kjörinn formaöur SSV. í kjölfar þess sögðu Akurnesingar sig úr samtökunum og eru margir ekki á eitt sáttir um þá ákvöröun. Margir telja þó aö þaö sé mjög eðlilegt i Ijósi þess aö kjör Gunnars var pólitiskt og ekki var haft samráö viö meirihlutann í stærstu sveitarfélögunum. Gelta í takt viö flokkinn „Fram til þessa hefur ríkt gott samkomulag um stjórnarkjör og setu í nefndum á vegum SSV. Hefur það byggst á skipt- ingu svæða en ekki á pólitísk- um lit manna. Þessi hefð var brotin af hálfu sjálfstæðis- manna við for- mannskjörið að þessu sinni. Þar ræddu ákveðnir menn saman til að koma sínum flokksmanni að, án samráðs við meirihluta í tveim- ur stærstu bæjarfélögunum og viðhöfðu vinnubrögð sem ég hélt að væru að ganga sér til húðar í pólitík. Ég tel það heyra fortíð- inni til að gelta alltaf í takt við flokkinn án þess að skoða hug sinn í ljósi þeirra aöstæöna sem síðan þarf að starfa í. Þetta eru óviðunandi vinnubrögö sem valdið hafa trúnaðarbresti milli manna og þess vegna er ég fylgj- andi úrsögn Akraneskaupstaðar úr SSV.“ Inga Siguröardótt- ir, þroskaþjálfi og bæjarfulltrúi Akra- neslistans. Eiga lengi eftir að ganga haltir og skakkir „Sú ákvörðun að segja sig úr Samtökum sveitarfélaga á Vest- urlandi er eins barnaleg og hugsast getur hjá meirihluta bæjarstjórnar Akraneskaup- staðar. Komið var að Dala- mönnum að taka að sér for- mennskuna en bæjarfuiitrúi sjáif- fulltrúi Dala- st®öisfiokksins. manna gaf ekki kost á sér til starfans. Á fyrsta fundi stjórnar komu upp tillögur um Gunnar Sigurðsson og Sig- ríði Gróu Kristjánsdóttir til for- mennsku og því þurfti stjórnin að ganga til kosninga. Gunnar fékk fjögur atkvæði en Sigríður Gróa þrjú og þvi var Gunnar lýö- ræðislega kosinn formaður. Finnast mér það í hæsta máta undarleg vinnubrögð hjá Sigríði Gróu, að bjóða sig fram til for- mennsku í samtökunum, tapa kosningu og berjast tveimur vik- um síðar fyrir því að Akranes- kaupstaður segi sig úr samtök- unum. En svo mikið er víst að meirihlutinn á Akranesi á eftir að ganga lengi haltur og skakkur eftir að hafa misstigið sig svo hrapallega." -DVÓ Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaöið nema þær ber- ist í stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni á stafrænu formi og í gagnabönk- um. Netfang ritstjórnar er: dvritst@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.