Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2000, Síða 30
42
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 2000
Afmæli
Unnur Ingeborg Arngrímsdóttir
Unnur Ingeborg Amgrímsdóttir
danskennari, Álftalandi 7, Reykja-
vík, er 70 ára í dag.
Starfsferill
Unnur fæddist í Reykjavík 10.
janúar 1930. Hún lauk barnaskóla-
prófi frá Skildinganesskóla í
Reykjavik 1944 og gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar
1947. Unnur lauk danskennaraprófi
frá Danseinstitut Carlsen í Kaup-
mannahöfn 1960. Hún stundaði nám
við módelskóla í Boston 1963.
' Unnur stofnaöi ásamt manni sin-
um Dansskóla Hermanns Ragnars
og starfaði við skólann frá 1958. Þá
stofnaði hún Snyrti- og tískuskól-
ann árið 1963 og Módelsamtökin
1967 og rekur þau enn.
Unnur sat í stjóm Skátasam-
bands Reykjavíkur og var formaður
þess 1974. Hún hefur gegnt mörgum
trúnaðarstörfum í Oddfellowregl-
unni síðan 1964. Hún hefur kennt
dans og haldið námskeið
víða um land og leiðbeint
með snyrtingu, hár-
greiðslu, fataval,
borðsiði, framkomu og
fleira. Þá hefur hún út-
skrifað fjöldann allan af
sýningarfólki sem starf-
að hefur við sýningar-
störf heima og erlendis.
Unnur hefur ennfremur
stjómað fjölmörgum
tiskusýningum og unnið
að kynningu á íslenskum
ullarfatnaði frá 1963.
Unnur Ingeborg
Arngrímsdóttir
Unnur hefur farið nokkrar ferðir
sem skemmtanastjóri á vegum Sam-
vinnuferða-Landsýnar til Spánar og
írlands. Hún starfar nú sem deildar-
stjóri í Félagsmiðstöðinni Árskóg-
um.
Hún ritaði kafla í bókina „Faðir
minn skólastjórinn" og ennfremur
kafla í bókina „Eftir 60 árin“ og þar
að auki ýmsar blaðagreinar.
Fjölskylda
Unnur giftist Hermanni
Ragnari Stefánssyni
þann 25. nóvember 1950.
Hann lést 10. júní 1997.
Hann var sonur Stefáns
Sveinssonar verkstjóra,
sem fæddur var 23. janú-
ar 1883 en lést 9. ágúst
1930, og Rannveigar
Ólafsdóttur sem fædd
var 11. febrúar 1882 en
lést 12. nóvember 1956.
Böm Unnar Amgríms-
dóttm- og Hermanns Ragnars eru
þrjú:
Henny Hermannsdóttir, fædd 13.
janúar 1952. Hún er danskennari í
Kópavogi. Maður hennar var Guð-
mundur S. Kristinsson en hann
lést 23. janúar 1992. Seinni maður
Hennyar var Gunnar Hinrik Áma-
son en hann lést 23. maí 1997.
Henny og Gunnar Hinrik áttu einn
son.
Amgrímur Hermannsson, fædd-
ur 1. desember 1953. Hann er
ferðaskrifstofustjóri í Reykjavík,
kvæntur Önnu Hallgrímsdóttur.
Þau eiga þrjá syni.
Bjöm Heraiannsson, fæddur 26.
ágúst 1958, rekstrarfræðingur í
Garðabæ. Eiginkona hans er
Helga Bestla Njálsdóttir og eiga
þau þrjú böm.
Systir afmælisbamsins er Ás-
laug Helga Amgrímsdóttir, fædd
27. ágúst 1934, og býr hún í Hvera-
gerði.
Foreldrar Unnar voru hjónin
Arngrímur Kristjánsson, skóla-
stjóri Skildinganesskóla og fyrsti
skólastjóri Melaskóla, og Henny O.
Helgesen Kristjánsson. Amgrímur
var fæddur á Sigriðarstöðum,
Ljósavatnsskarði, 28. september
1900. Amgrimur lést 5. febrúar
1959. Henny var fædd í Bergen 2.
nóvember 1899 en lést 16. septem-
ber 1967.
Unnur verður stödd að Hraun-
braut 30 í Kópavogi á afmælisdag-
inn.
Guðríður O. Egilsdóttir
Guðríður Oktavía Egilsdóttir
kennari, Austurströnd 12, Seltjam-
amesi, er 80 ára i dag.
Starfsferill
Guðríður fæddist í Reykjavík 10.
janúar 1920 og ólst upp í vaxandi
bæ. Hún lauk Ijósmæðraprófi 30.
september 1941. Kennaraprófi lauk
hún árið 1963 og kenndi síðan við
Hagaskóla í Reykjavík.
Fjölskylda
Guðríður giftist Adolf Guðmunds-
syni yfirkennara í Reykjavík 22.
apríl 1943. Hann var fæddur 7. júlí
1917 og lést 25. ágúst 1965. Adolf var
sonur Soffiu Baldvinsdóttur frá
Stakkahlíð i Loðmundar-
firði og Adolfs loftskeyta-
manns og dómtúlks í
Reykjavík Guðmundsson-
ar. Adolf Guðmundsson
kennri var fóstursonur
séra Friðriks Friðriksson-
ar æskulýðsleiðtoga og
stofnanda KFUM.
Böm þeirra Guðríðar
Egilsdóttur og Adolfs Guð-
mundssonar eru:
Friðrik Adolfsson, verk-
fræðingur í Reykjavík,
fæddur 6. júní 1944. Hann
var kvæntur Miriam Öddu
Rúbner frá ísrael en þau skildu. Þau
eiga þrjú böm.
Þórður Adolfsson, atvinnurek-
andi og flugumferðarstjóri í Reykja-
vík, fæddur 29. nóvember 1952.
Hann var kvæntur Elínu Guð-
Guöríöur O.
Egilsdóttir
mundsdóttur kennara
frá Bolungarvík. Þau
eru skilin og eiga 3 böm.
Systkini Guðríðrar: Agla
Þórunn Egilsdóttir, f. 29.
júní 1921, látin 21. júní
1958; Þórunn Egilsdóttir,
fædd 15. ágúst 1912; Guð-
björg Egilsdóttir fædd
20. júní 1911, dáin 4. maí
1997; og Þórður Egilsson,
fæddur 20 febrúar 1909,
dáinn 7. júlí 1921.
Foreldrar Guðríðar vom
hjónin Egill Þórðarson
skipstjóri, frá Ráðagerði
á Seltjarnarnesi, og Jóhanna H. Lár-
usdóttir. Hann fæddist 2. nóvember
1886 en lést 6. janúar 1921. Hún
fæddist 9. desember 1886 og dó 22.
desember 1962.
Ætt
Egill skipstjóri í Ráðagerði var
sonur Þórðar, bónda og hafnsögu-
manns í Ráðagerði á Seltjamamesi,
Jónssonar, og Þórunnar Jónsdóttur
frá Mýrarhúsum. Afi og amma af-
mælisbarnsins í móðurætt vom
bændur að Gerðubergi í Eyjahreppi
í Hnappadalssýslu. Jóhanna móðir
Guðríðar var dóttir Lárusar bónda
á Gerðubergi Gíslasonar og Guð-
bjargar Kristjánsdóttur frá Rauða-
mel.
Guðríður tekur á móti gestum í
safnaðarheimili Fríkirkjunnar
mánudainn 10. janúar frá kl. 17.
Fréttir
Kvótalausir bíöa ekki eftir hæstaréttardómi:
Viö ætlum að róa
- munum stinga hótunum Fiskistofu undir stól, segir Örn Sn. Sveinsson
„Ég held að það sé alveg á tæm að til með að róa í kjölfar niðurstöðu hér-
kvótalausir eða kvótalitlir bátar komi aðsdóms i Vatneyrarmálinu," segir
Esso Barnamyndatökur
Esso safnkortsávísanir á hlutfallslega
hæsta innlausnarverði
í barnamyndatökum.
Gildir í janúar og febrúar.
Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020
Þrítugasta þorrablót brottfluttra Patreksfírðinga og
Rauðasandshreppsbúa verður haldið í Versölum á
Hallveigarstíg föstudaginn 21. janúar, kl. 20.
Miðar seldir á sama stað laugardaginn 15. janúar, frá
kl. 13-16, og mánudaginn 17. janúar. frá kl. 19-20.
ATH. að hægt er að greiða með greiðslukortum.
18 ára aldurstakmark.
Miöapantanir hjá
Björk i síma 554-6501, Önnu Maríu í sima 554-3013 og lngu Baddi i síma 555-2903.
Örn Sn. Sveinsson, skipstjóri á
Tálknafirði. Hann hefur verið að gera
bát sinn kláran á línuna en þeir hafa
verið á dragnót að undanfomu.
„Við ætlum að minnsta kosti að
róa. Við bíðum ekki eftir hæstaréttar-
dómi, enda getur það tekið marga
mánuði hjá þeim að velta þessu fyrir
sér. Ég tel að við séum í fullum rétti
til að róa. Það er óhjákvæmilegt að
það verður að gera breytingu á lögun-
um. Niðurstaðan hlýtur að koma okk-
ur, þessum kvótalausu, til góða því
við vomm algjörlega réttlausir í þessu
kerfi. Þetta er ekkert annað en mann-
réttindabrot.
- Er samstaðan viðtæk um að róa?
„Ég veit það ekki nákvæmlega. Ég
myndi skjóta á aö það séu um 30 til 40
bátar í sömu stöðu og við og með það
litlar aflaheimildir að þær skipta
engu máli. Mér finnst mjög líklegt að
þeir muni flestir róa. Ég tel ólíklegt að
við verðum stoppaðir af. Fiskistofa
mun þó örugglega senda okkur ein-
hver bréf með hótunum sem við sting-
um bara undir stól.
Ef Hæstiréttur staðfestir héraðs-
dóminn mun það ekki þýða aö þjóðfé-
lagið fari á annan endann. Það þýðir
bara að stjórnvöld verða að vanda sig
betur við það sem þau eru að gera.
Það er ekkert annað en léleg vinnu-
brögð hvernig kvótakerfið hefur verið
útfært. Forsætisráöherra getur því al-
veg sleppt því að flytja til Kanarf þó
ég ætli ekkert að halda aftur af hon-
mn eða hvetja haim til að vera áfram
hér heima.“ -HKr.
Til hamingju með afmælið 10. janúar
90 ára
Sigrún Áskelsdóttir, Dvalarheimilinu Höfða, Akra- nesi.
80 ára
Þórhallur Þorláksson, Efstaleiti 10, Reykjavík.
75 ára
Benedikt Ólafsson, Langagerði 114, Reykjavík. Þórunn S. Jónsdóttir, Snorrabraut 32, Reykjavík.
70 ára
Gunnar Bjamason, Eiðistorgi 7, Seltjamarnesi. Sigríður Inga Jónasdóttir, Skriðustekk 21, Reykjavík.
60 ára
Geröur Guðvarðardóttir, Hamragerði 20, Akureyri. Guðmundur R. Jónsson, Digranesvegi 38, Kópavogi. Haraldur Eiríksson, Fýlshólum 4, Reykjavík. Kolbeinn Kristjánsson, Selvogsgötu 12, Hafnarfirði. Kolbrún Guðmundsdóttir, Gullengi 29, Reykjavík. Linda A. Wendel, Keilufelli 16, Reykjavík.
50 ára
Alda Pétursdóttir, Vesturbraut 10, Grindavík. Arnbjörn Óskarsson, Heiðargarði 8, Keflavík. Ástríður Björk Steingrímsdóttir, Stuðlaseli 29, Reykjavík. Bára Pétursdóttir, Njálsgötu 35, Reykjavík. Guðmundur Eiríksson, Lækjarbergi 58, Hafnarfirði. Haukur Ágústsson, Kleifarseli 31, Reykjavík. Sigrún Pétiu-sdóttir, Veghúsum 11, Reykjavík. Sigurbjörg Benediktsdóttir, Skálatúni, Mosfellsbæ.
40 ára
Brynhildur Brynjólfsdóttir, Heiðarvegi 20, Vestmannaeyjum. Hafdis Jóhannsdóttir, Hraunbæ 59, Reykjavík. Hjalti Amþórsson, Grenibergi 5, Hafnarfirði. Lilja Guðjónsdóttir, Hæðarseli 14, Reykjavík. Stefán Ómar Stefánsson, Laufskógum 32, Hveragerði. Unnur Guðrún Knútsdóttir, Valbraut 1, Garði.
Inn í stofu á
óskráðum sleða
Talsverðar skemmdir urðu þegar
ungur piltur ók vélsleða inn um
stofuglugga húss við Reykjabyggð í
Mosfellsbæ á laugardagsmorgun.
Sleðinn var á mikilli ferð og slapp
pilturinn ótrúlega vel. Hann slasað-
ist þó eitthvað og var fluttur á slysa-
deild.
Að sögn lögreglunnar missti pilt-
Hann
niður
urinn stjóm á sleðanum.
hafði bundið bensíngjöfina
með plastbandi. Skyndilega fór sleö-
inn í gang og rauk cif stað án þess að
piltur fengi við neitt ráðið með ofan-
greindum afleiðingum. Sleöinn sem
pilturinn var á reyndist óskráður,
auk þess sem vélsleöaakstur er
bannaður í þéttbýli. -JSS
Kattakennari óskast
DV, Hveragerði:
Á baksíðu nýjasta tölublaðs Ingólfs,
blaðs Bæjarmálafélags Hveragerðis,
er auglýsing sem greinilega vísar í
reglugerð þá sem hefur verið til um-
ræðu í bæjarstjóm.
Auglýsingin hljóðar svo: „Kennari
óskast" og í framhaldi segir: „til að
kenna tveimur köttum aö lesa og
skrifa ásamt talkennslu til að uppfylla
nýsettar reglur Hveragerðisbæjar um
kattahald."
Hér mun auglýsandi m.a. vera að
vitna í það ákvæöi reglugerðarinnar
að kettir megi ekki gera þarfir sínar í
aðra sandkassa en eigenda sinna og
ekki vera úti að næturlagi. -eh