Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 3
m g ö m æ 1 i
g f n i
Lifi.d eftir vmnu
gfókus
i "t
k ■ *
Forsíöumyndina tók
Teitur af múm.
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
!önkmaster á Ozii
25-30
Ferðaapótek er bráðnauðsynlegt meðan
skæðir flensufaraldrar herja á landann. Ark-
aðu sem allra fyrst út í næsta apótek og
birgðu þig upp af hentugum flensuvopnum því
það er aldrei að vita hvenær ósóminn hringir
bjöllunni. Byrjaðu á því aö kaupa stauk af C-
vítamíni sem er hægt að leysa upp í vatni og
eflir varnir líkamans. Keyptu því næst Vicks-
brjósthitakrem, sterkar hálstöfiur, hóstasaft,
te, sítrónu og hunang. Það er líka gott að
birgja sig upp af malti og kóki. Allur er varinn
góður þvf það verður allt of seint að fara í ap-
ótekið þegar flensan hefur stungið inn kollin-
um.
Linskammdegiö og "maula heitt Hkiatgkkl. AB
vísu kostar það kaldranalega ferð á fastandi
maga út f bakarí og aftur heim en er fyllilega
göngunnar virði og eflaust bráðhollt fyrir sál
og líkama. Ef þú ert í tímahraki á morgnana
þarftu samt ekki að örvænta þvf það er llka
ágætisráð að skjótast f bakaríið á leiðinni f
vinnuna og maula bakkelsið á hlaupunum.
„Jaðaríþróttir eru þær íþróttir
sem hinir hefðbundnu fjölmiðlar
á íslandi, þá aðallega sjónvarps-
stöðvarnar, hafa ekki sýnt áhuga
vegna þess að þeir telja að enginn
nenni að fylgjast með þeim. Við
erum einfaldlega á öndverðum
meiði. Við teljum að það sé stór
hópur fólks á íslandi sem stundar
jaðaríþróttir og erum þess full-
vissir að það eru tíu sinnum fleiri
sem nenna að lesa um þær.
Adrenalín er blað sem fjalfar ein-
ungis um jaðaríþróttir. Þannig
ætlum við að kýla á að gefa það út
og vonum að við fáum góðar við-
tökur,“ segir Sveinn F. Sveinsson
en hann og félagi hans, Rúnar,
standa að útgáfu Adrenalíns.
Sextugir á sleðum
Fyrsta tölublaðið kemur út í dag
og er 32 siður. Þeir félagar segjast
stefna að því að gefa út ca eitt
Adrenalín á mánuði og bæta sig
með hverju blaðinu sem kemur út.
Það kennir ýmissa grasa i blaðinu,
þar má flnna allt frá snjóbrettum á
hæstu tindum landsins til köfunar
í dýpstu gjánum í Þingvallavatni.
„Já, í blaðinu núna eru geðveik-
ustu köfunarmyndir sem sést
hafa,“ segir Sveinn. „Þetta eru
myndir sem nokkrir náungar í Köf-
unarskólanum tóku í Þingvalla-
vatni en þeir eru einmitt á forsíð-
unni. Svo erum við líka með brjál-
aðar klifurmyndir frá Bjössa í
Vektor, meðal annars frá Frakk-
landi. Svo erum við auðvitað með
umfjallanir um snjóbretti og sörf
undir ströndmn Fróns og margt
fleira.“
Nú er þetta allt hálfgert ung-
dómsbrjálœöi sem þið eruð að fjalla
um. Hvaða aldurshóp viljið þið fá
til aö lesa Adrenalín?
„Aldurshópurinn sem við stíl-
um inn á eru einfaldlega allir sem
líður eins og þeir séu 16-35 ára.
Inni í þeim hópi eru til dæmis
þeir sem eru sextugir að þeysast
um hálendið á vélsleðum. Þeir
sem eru hins vegar ekki í þeim
hópi eru þeir sem hanga heima
hjá sér alla daga og hreyfa sig
bara til að fara út í sjoppu eða til
að skipta um stöð á sjónvarpinu,
sama þótt þeir séu 22 ára.“
Innspýting f heilann
Þær íþróttagreinar sem Adrena-
lín mim taka fyrir eru ófáar og
spanna allan skalann. Nokkrir
strákar sem eru í Bandaríkjunum
að sörfa og að renna sér á snjó-
brettum ætla að senda mánaðarleg-
ar greinar sem og krakkar sem eru
að klifra í björgum og renna sér í
Frakklandi. í næsta blaði verður ít-
arlegt viðtal við nokkra náimga
sem fóru fyrir skömmu til Nepal og
sigruðu þar helstu árnar á kajök-
um og klettana á fmgrunum. Ekki
nóg með það, heldur líka snjósleð-
ar, jeppar, fallhlifarstökk, snjómót-
orkross og efni frá öllum sem eru
geðveikir og fíla að fá adrenalín-
innspýtingu beint í heilann. Svo
ætla þeir líka að reyna að safna
öllu þessu geðveika liði saman og
fara í snjóbrettaferðir, heli-riding
(þá er farið með þyrlu upp á risa-
fjöll) og margt fleira.
En veróa Islendingar ekki alveg
bandbrjálaðir og hlaupa fram af
nœsta bjargi þegar þeir fá þennan
adrenalínpakka ykkar í hendurnar?
„Það er einmitt hitt markmiðið
með blaðinu. Við viljum að íslend-
ingar hagi sér eins og læmingjar og
50% þeirra drepi sig við að gera
eitthvað sem þeim þykir skemmti-
legt. Ætli það megi ekki kalla þetta
þjóðhreinsanir nýrrar aldar.“
Svo segist þiö báöir hafa stundað
alls kyns jaðaríþróttir frá blautu
barnsbeini. Hvað er þá það hœttu-
legasta sem þið hafið gert?
„Að gefa út þetta blað, tvímæla-
laust.“ -hvs
Ást og friður
Þegar reggae-tónlist er nefnd
stekkur fólk jafnan upp og nefnir
Bob Marley. Það sem fæstir þekkja
eru hinsvegar allir hinir frábæru
listamennimir sem hafa tileinkað líf
sitt reggae. Þeir koma jafnan frá
Mekka reggaesins, Kingston við
Montego Bay á Jamaica, en verða i
kvöld á rauðvínsbamum við Klapp-
arstíg.
„Það var haldið Ganja-kvöld í síð-
ustu viku og það var svo frábær frið-
arstemning að við ákváðum að halda
það aftur,“ segir plötusnúðurinn
Kári, tónlistarráðgjafi á Sirkusi. Þeir
sem sjá um tónlistina í kvöld eru
Árni Stitch og annað sjálf Kára,
Prins Kaktus.
Engir búningar
„Við spilum reggae, dub, ska, rock
steady og dancehall tónlist. Menn
eins og Lee Skratch Perry, Horace
Andy, Prince Jammy, Liquidators,
King Tubby, Linton Kwesi, Max
Romeo og Bob Marley hljóma í eyr-
um. Síðan mæta auðvitað ailir rótar-
menn og konur bæjarins og stemn-
ingin frá þvi um síðustu helgi verð-
ur toppuð. Það var ást og friður sem
sveif yfir vötnum og þess vegna
ákváðum við að halda Ganja-kvöldin
reglulega. Ætli þau verði ekki u.þ.b.
tvisvar i mánuði. Alltaf þegar ástin,
sálin og friðurinn kalla.“
Klœðið þið ykkur upp í bún-
inga, setjið á ykkur hárkollur
og vafninga í munnvikió?
„Nei, nei. Þetta er ekkert
grín. Við lifum fyrir
þetta, við lifum fyrir ást-
ina, sálina og friðinn. Það er
hin eina sanna þrenning.'
Fleiri mjúka tóna
Það er óhætt að segja
að reggae-tónlist sé
ekki vinsælasta
tónlist Sker-
verja.
Hvernig lió lœtur sjá sig? Eru
blökkumenn í meirihluta?
„Hér eru allir sem þekkja góða
tónlist og fastagestimir, miðbæjar-
rottumar. Það er sálin sem gildir en
ekki útlitið, þú veist það. Það eru all-
ir blökkumenn inn við beinið, ert þú
ekki blökkumaður?"
Auðvitað. En síðan er ástarkvöld á
laugardaginn, hvernig virkar
það?
„Þá spilar Senior Love
Daddy ást fyrir alla, að-
allega stelpumar. Ég er
orðinn leiður á því hvað
það er alltaf spiluð
hörð tónlist út um
borg og bi. Það vantar
mjúku tónana, þeir henta
dömunum miklu betur.
Allir sem elska
eiga að fjöl-
menna á ást-
arkvöldið,
allir sem
alla
vita hvað ást er. Kannski vita það
flestir en það kunna ekki allir að
meta tónlistina sem er tileinkuð
þessari tilfinningu. Fólk vill bæla
hana niður í hraða og harðneskju,
getur ekki tekið þessu með opnu
hugarfari. Við erum öll með þessar
tilfinningar og eigum að sætta okkur
við þær. Ég er bara að reyna að laða
ástina fram í öllum. Á ástarkvöldinu
er líka gott fyrir herrana að vera
með á nótunum því eins og við vit-
um þá myndast alltaf öðruvísi
stemning þegar annað kynið er í
meirihluta."
En hvernig er þaó meó starfsfólk
Sirkuss og eigandann, Stephanie. Eru
þau öll ástar- og friðarelskendur?
„Hvað heldur þú? Manneskja sem
opnar svona stað og vinir hennar.
Hvað er það fyrsta sem þú fmnur
þegar þú gengur inn á staðinn?"
Ást.
„Nákvæmlega." -hvs
Magnús Ármann á Rex, Astró
og Wunderbar:
„Þu verður að þora til
þess að skora.“
Tími til kominn aa
að plana sumarfríið: ZZ
Menningarborgir og
lífshættuleg hátíð
Þessir skemmtilegu ósamstæðu sandalar eru
seldir sem par í Skóversluninni Kron, Lauga-
vegi 48. Sandalar þessir eru frá Spáni og
kosta 3900 krónur. Hvert skópar er meö Ijós-
myndum inni í sólanum en ekki er sama mynd
á hvorum skó. Sandalarnir eru einungis einir
af fjölmörgum skemmtilegum skóm sem versl-
unin selur. Endilega að kfkja f þessa skóbúð.
Það er óhæfa að vera einhleypur útivinnandi
einstaklingur á þessum sfðustu og bestu tfm-
um án kjöreignarinnar
samlokugrills. Sam-
lokugrillin eru ómetanleg
eftir langan og erfiðan
vinnudag og það eina
innkaupin krefjast er
hreinlega brauö
og ostur. Auk
þess er hægt að mat-
reiða samlokur eftir öllum kúnstarinnar regl-
um og sannkölluðum sælkerastæl ef þannig
liggur á manni.
Klám-
mynda-
leikarinn
Roco Sif-
fredi:
Stór og stinnur en
mannlegur
12
Hljómsveitin múm:
„Tveir fílar sem
mynda ú með
rönunum“
Sérkennileg ást:
Og það varð
Lómó
Jaðaríþróttir eru eitthvað sem blasir ekki við manni á hverjum
Þó er fjöldi fólks sem stundar þessar íþróttir og lifir oftar en ekki
fyrir það að ögra sér enn meira nú en í gær. í dag er gefið út fyrsta
tölublað nýs blaðs, Adrenalíns, sem fjallar einungis um jaðaríþróttir
og þá sem stunda þær. En þeir eiga það til að vera léttgeggjaðir.
Ungpóli-
tíkusar
láta
gamminn
geisa
4
Fyndnasti mað-
ur Islands:
8Ég nýt
ekki
kvenhylli.“
sJOi
_r
14. janúar 2000 f Ókus
3