Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 20
Kemur Cate í stað-
inn fyrír Foster
Eftir að Jodie Foster gaf
óvænt út tilkynningu um að
hún ætlaði ekki að leika í fram-
haldinu af Silence of the Lambs
Hannibal, þrátt fyrir að hand-
ritinu hefði verið breytt sam-
kvæmt vilja
hennar, er nú
hafin mikil leit
að leikkonu í
staðinn og eru
margar nefndar
og sjálfsagt flest-
ar þeirra meira
en fúsar til að
leika þetta bita-
stæða hlutverk. Sú sem
heitust þykir þessa stundina er
hin ástralska Cate Blanchett
(Elizabeth). Spurningin er
hvort hún hefur tíma. Þessa
dagana er hún að leika í
tríólógíunnni Lord of the
Rings. Hún hefur að vísu ekki
stórt hlutverk þar og er á leið-
inni að leika á móti Keanu
Reeves í The Gift sem Sam
Raimi leikstýrir. Þá hefur ver-
ið talað um að hún muni leika
á þessu ári í kvikmynd Stevens
Spielbergs, Minority Report,
en óljóst er hvort Spielberg ger-
ir hana næst. Fleiri eru nefnd-
ar og þar eru heitastar Gillian
Anderson, Angelina Jolie og
Helen Hunt.
Tvær jafnar
Gagnrýnendasamtökin
National Society of Film Crit-
ics hafa birt niðurstöður ársins
og í fyrsta skipti var ekki hægt
að gera upp á miili tveggja
kvikmynda, Being John
Malcovich og Topsy-Turvy,
og voru þær báðar
valdar besta kvik-
myndin. Mikið
> hefur verið fjaliað
, um Being John
. Malcovich, sem
þykir snjöll og
vel gerð, en Top-
sy-Turvy er
nýjasta kvik-
mynd breska leik-
stjórans Mikes Leigh og var
hann valinn besti leikstjórinn.
Myndin fjallar um óperettu-
dúettinn Gilbert og Sullivan.
Besti leikarinn var valinn
Russell Crowe fyrir leik sinn í
The Insider og Reese Wither-
spoon besta leikkonan fyrir
leik sinn í Election. Besta er-
lenda kvikmyndin var valin
Autumn Tale sem Erich
Rohmer leikstýrir. Besta kvik-
myndin sem ekki er byggð á
skáldskap var valin Buena
Vista Social Club sem Wim
Wenders leikstýrir.
Clooney í fótspor
Stnatra
George Clooney er einn fárra
leikara sem eiga mjög auðvelt
með að vera sjarmerandi þegar
þeir eru að brjóta lögin og eru
Three Kings og Out of Sight
dæmi um slíkt. Það þarf því
engan að undra
að framleiðendur
endurgerðar
Ocean’s 11, sem
Steven Soeder-
berg (Out of
Sight) ætlar að
leikstýra, vilji
fá George Cloo-
ney til að leika
foringja hóps ellefu
manna sem ætla sér að ræna
spilavítin í Las Vegas á einni
nóttu. Ocean’s 11 var gerð
snemma á sjötta áratugnum og
þá lék Frank Sinatra foringj-
ann og hafði með sér í mynd-
ina leikfélaga sína í „rottu-
genginu", Dean Martin, Peter
Lawford, Sammy Davis og
fleiri. Ekki er búið að velja í
önnur hlutverk en framleið-
endur hafa hug á því að fá
fræga leikara í minni hlutverk-
in.
alt hús í Tennessee sem hún ætlar
að gera að heimili sinu og móta eft-
ir eigin smekk sem hún segir gam-
aldags.
AshIJudd
Leikkonan Ashley Judd er á
mikilli uppleið í Hollywood um
þessar mundir og getur valið úr
hlutverkum. Ástæðan er fyrst og
fremst vinsældir Double Jeopardy
og frammistaða hennar þar. Judd
tekur þó frægðinni með mikilli ró
og þykir gáfuð og óvenju jarðbund-
in að leikkonu að vera. Ashley
Judd er vön því að hafa frægt fólk
í kringum sig því móðir hennar,
Naomi Judd, og systir, Wynonna
Judd, eru frægar kántrísöngkonur
og mynda dúettinn Judds.
Ashley Judd fæddist i fátækt 19.
apríl 1968 og bjó fjölskyldan víðs
vegar um Kentucky, i kofum og
þaðan af verri hreysum. Móðir
hennar, Naomi, var alltaf að reyna
fyrir sér í söngnum og það gekk
frekar illa. Systir hennar,
Wynonna, fetaði í fótspor móður
sinnar á meðan Ashley stundaði
nám og var mikill lestrarhestur. Á
þrettán ára tímabili, áður en móðir
hennar og systir slógu í gegn, gekk
Ashley í tólf mismunandi skóla í
Kentucky og Kaliforníu.
Hagur fjölskyldunnar fór vax-
andi og Ashley var send í háskóla i
Kentucky þar sem hún útskrifaðist
sem verðlaunanemandi. Að námi
lokni var það ætlun Ashley að
ganga til liðs við friðarsveitir í Afr-
íku, en systir hennar lagði til að
hún reyndi frekar fyrir sér í kvik-
myndum. Þegar sú ákvörðun hafði
verið tekin sýndi Judd mikinn
viljastyrk þegar hún labbaði sig
Kvikmyndir
Ashley Judd:
Kuffs, 1992
Ruby in Paradise, 1993
Natural Born Killers, 1994
Smoke, 1995
Heat, 1995
The Passion of Darkly Noon,
1995
A Time to Kill, 1996
Normal Life, 1996
The Locust, 1996
Kiss the Girls, 1997
Simon Birch, 1998
Double Jeopardy, 1999
inn á umboðsskrifstofu
og kom út með samn-
ing; sjálfsagt hefur nafn
hennar eitthvað hjálpað
til. Viljastyrkur hennar
kom best i ljós þegar
hún fékk sitt fyrsta
hlutverk í Kuffs. Þar
átti hún að koma fram
nakin á móti Christian
Slater og þvi neitaði
hún alfarið og aldrei
þessu vant var hún ekki
látin fara heldur fékk
að ráða. Á næstu árum
var hún aðallega í sjón-
varpsþáttum, lék í
Sisters og Star Trek:
The Next Generation,
auk þess sem hún lék
aukahlutverk í kvik-
myndum. Eftir leiðin-
legt tímabil í sjónvarpi
að hennar sögn fékk
hún loks stórt hlutverk
i kvikmyndinni Ruby
in Paradise, sem var
verðlaunuð á kvik-
myndahátíðinni í Sund-
ance og hefur ferill
hennar verið á uppleið
síðan.
Ashley Judd segist
vera dæmigerð sveita-
stelpa sem hafi áhuga á
mat, bókum og guði.
Hún hefur alveg aðskil-
ið sinn eigin feril frá
ferli móður sinnar og
systur og neitaði meira
að segja að koma fram í
sjónvarpsmynd um ævi
þeirra, auk þess sem
hún vildi ekki leika í
kvikmynd í upphafi fer-
ils síns vegna þess að
móðir hennar lék
einnig í henni.
Ashley Judd hefur
verið orðuð við þekkta
leikara, meðal annars
Robert De Niro, Matt-
hew McConaughey og
söngvarann Michael Bolton, en hennar fylgdarsveinn kappaksturs-
samböndin hafa verið stutt enda maðurinn Dario Franchitti.
Ashley Judd kannski einum pf Hollywood heillar hana ekki og
sjálfstæð fyrir þessa, enn. í dag er hefur hún keypt hundarð ára gam-
Háskóiabíó og Sam-bíóin frumsýna Double Jeopardy í dag, sakamáíamynd um
konu sem bíður þess að verða iátín iaus úr fangelsi svo hún getí framið giæp sem
hún hefur veríð dæmd fyrir.
Double Jeopardy sem frumsýnd
er í dag er spennumynd sem hefur
verið mjög vel sótt í Bandaríkjun-
um og sat í þrjár vikur í efsta sæti
vinsældalistans. í henni segir frá
Libby Parsons (Ashley Judd) sem
verður fyrir þeirri reynslu að
missa eiginmann sinn á hroðaleg-
an hátt í siglingaferð. Ósköpin
enda ekki þar því hún er ákærð og
sakfelld fyrir morð á maka sínum,
alsaklaus. 1 fangelsinu kemst hún
að því að maðurinn er enn á lífi og
er i sambandi við bestu vinkonu
hennar og jafnframt að ekki er
hægt að kæra neinn tvisvar fyrir
sama glæpinn. Þetta þýðir að hún
getur drepið hinn ósvífna eigin-
mann án þess að nokkur geti amast
við því. Skilorðseftirlitsmaðurinn
Travis Leeman (Tommy Lee Jones)
eltir hana þegar hún lætur sig
hverfa úr borginni til þess að hafa
uppi á syni sínum og kemst að því
að ekki er allt með felldu.
Auk þeirra Tommy Lee Jones og
Ashley Judd leika í myndinni
Bruce Greenwood, Annabeth Gish,
Roma Maffia og Davenia McFa-
dden. Leikstjóri er Bruve Beres-
ford, einn þeirra áströlsku leik-
stjóra sem komu Ástralíu á blað i
kvikmyndaheiminum. Beresford
varð heimsfrægur þegar hann leik-
stýrði, framleiddi og skrifaði hand-
ritiö að Breaker Morant sem hlaut
ellefu ástralska „óskara". Einnig
fékk Beresford tilnefningu til ósk-
arsverðlauna fyrir handrit sitt að
þeirri mynd. I kjölfarið flutti hann
til Bandaríkjanna og sló þar strax i
gegn með Tender Mercies.
Bruce Beresford hefur allar göt-
ur síðan starfað i Bandaríkjunum
og gert nokkrar eftirtektarverðar
kvikmyndir en einnig nokkrar sem
lítið hefur farið fyrir. Hans
þekktasta kvikmynd er Driving
Miss Daisy sem fékk fem ósk-
arsverðlaun, meðal annars var hún
valin bésta kvikmyndin og Jessica
Tandu fékk óskarinn sem besta
leikkonan í aðalhlutverki. Þá er
einnig vert að nefna Crimes of He-
art sem tilnefnd var til þrennra
óskarsverðlauna. Árið 1990 leik-
stýrði Beresford Mister Johnson
með Pierce Brosnan í aðalhlut-
verki og var það fyrsta bandaríska
kvikmyndin sem eingöngu var
gerð í Nígeríu. Þaðan hélt hann til
Kanada og gerði Black Robe sem
fékk sex verðlaun kanadísku aka-
demíunnar. Aðrar kvikmyndir
Beresford eru meðal annars Puber-
ty Blues, Rich in Love, Silent Fall,
Last Dance og Paradise Road.
Bruce Beresford þykir einnig
mjög góður óperustjórnandi og hef-
ur leikstýrt óperum í Ástralíu,
Bandaríkjunum og á Ítalíu.
-HK
20
f Ó k U S 14. janúar 2000