Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 17
+
Hópur íslendinga stendur í ástarsambandi við litla
myndavél. Sú heitir LOMO, ættuð frá St. Pétursborg og
er engin venjuleg myndavél, segir ástfangna fólkið. Fókus
fékk sendiherra LOMO á íslandi til að segja frá ævintýrinu 1
og ræddi við nokkra aðila sem halda reglulega fram I
hjá fínu, dýru græjunum sínum með dyntóttari druslum.
kemur til meö að líta út. Stundum veröa homin
skyggð, sjálf myndin bjöguð, of ljós, eða dökk,
eða allir litir brenglaðir. En stundum er ekkert
athugavert við myndimar. LOMO er skemmti-
lega uppátækjasöm myndavél, með karakter, ef
ekki eigið lif. Og hefur einmitt þess vegna sigr-
að heiminn, eins og sagt er.
Víða um veröld hafa verið stofnuð LOMO-
sendiráð. Félagar bera saman myndir sínar,
skiptast á ráðum, halda sýningar og fara saman
í ljósmyndaferðir. Á Netinu má finna þúsundir
heimasíðna með fróðleik um LOMO og myndum
teknum með LOMO. Allt kemur þetta svo saman
í LOMO-heimsklúbbnum sem kallast „The
Lomographic society" og hefur höfuðstöðvar í
Vín. Hann stendur fyrir ljósmyndasamkeppnum,
gefur út LOMO-ljósmyndabækur og -tímarit og
rekur ferðaskrifstofuna LOMO-ferðir.
LOMO-myndavélin var upphaflega hönnuð af
rússneskum prófessor sem hét Radionov. Hann
ætlaði sér að búa til handhæga, ódýra imbavél
fyrir rússneska alþýðu. Fljótlega kom í ljós að
vélin skilaði af sér stórskrýtnum myndum og
seldist þvi illa. Eða þangað til ljósmyndaáhuga-
menn á Vesturlöndum uppgötvuðu hana og
LOMO-æðiö fór af stað. Pantanir tóku að
streyma til verksmiðjunnar í St. Pétursborg sem
til stóð að leggja niður. í dag starfa þar 150
manns og hafa varla undan að klambra saman
vélum fyrir þá sem gert hafa LOMO að sínum
trúarbrögðum.
-HB
LOMO stendur fyrir „Leningrádskoje Optiko
Mechanitschéskoje Objedinénie“ (Samband sjón-
og aílfræðinga í St. Pétursborg) og er nafn á lít-
illi rússneskri myndavél. Þrátt fyrir hávisinda-
legt heitið er hún óútreiknanleg og ómögulegt að
vita hvemig mynd sem er tekin á LOMO LC-A
Agúst Ævar Gunnarsson, nemi í Listaháskólanum
Agúst Ævar hefur verið LOMO-isti í eitt ár og
fer reglulega inn á heimaslðu alheimsklúbbs-
ins. Nýverið eignaðist hann líka Action-
Sampler-myndavél en hún er jafnvel enn verri
að gæðum en LOMO.
.Action-Sampler er mjög slöpp vél sem lekur
Ijósi þannig að myndirnar geta orðið mjög sér-
stakar. Ég hef séð fiottar myndir úr svona vél
en sjálfur á ég enn eftir að ná almennilegum
myndum. Það má vera að ég eigi bara slæmt
eintak en það er örugglega engin þeirra eins.“
En hvaO er sérstakt viö hana?
,Það eru á henni fjórar linsur sem skipta
filmunni niður í jafnmörg hólf. Hún tekur þess-
ar fjórar myndir hverja á eftir annarri þannig aö
ef maður til dæmis tekur mynd af manni að
dripla bolta sérðu hreyfinguna í römmunum. Þó
er skemmtilegast við hana hvað hún er hlægi-
leg og ódýr. Kostar ekki nema 4500 krðnur
með tveimur filmum og sendingarkostnaði til
landsins. Þvf er manni alveg sama um vélina.
Maöur fer bara út á lífið og sér hvað gerist."
Hvernig notarOu véiarnar þínar?
.Ég stunda hálfgerða kaos-ljósmyndun. Ég er
yfirleitt með LOMO-vélina við hendina og hef
svakalega gaman af henni. Hún er hluti af
minni dagbók og sumar vikur get ég rakið í
LOMO-myndum. Ég er meövitaðri þegar ég að
skjóta á Action-Sampler og stunda meiri rann-
sóknir með henni. En maður veit aldrei hver út-
koman verður. Um daginn var haldið Action-
Sampler-maraþon í New York á vegum LOMO-
heimsklúbbsins sem hefði verið gaman að fara
á. Það gerist kannski seinna.“
FyigirOu LOMOröunum tíu?
„Ég tek fimmta boðorðið alvarlegast, ekki
hugsa. Boðorðin eru frábær því þau minna
mann á leikinn."
LOMO/+-IJ ájli
..Alina 2
1. Vertu ávallt i.
2. Notaðu hana
3. LOMO er
4. Reyndus
5. Ekki hugsa
6. Vertu snöi
7. Pú þarft c
8. Ekki l.-‘
9. Myndaðu
10. Endilega
með vélina á þer.
- hvenser og hvai
■ ekki truflun á lífinu,
að komast sem næs
Agúst Ævar er hæstánægður með Action-Sampler draslið sitt.
ekk'í'aA vrta fyrírfram hvað |
heldur eftir á.
f gleymdu'i-OMOrðunorn
Gunnar Svanberg Ijósmyndari
Hluti af LOMO-myndum
sem Guðmundur Oddur
sýndi í Stöðlakoti í fyrra.
Gunnar lærði Ijósmyndun í Barcelona og
eignaðist þá Lomo Lubitel 166 sem er ná-
frænka LOMO LC-A og framleidd af sama
aðila. Það var hins vegar enginn hægðar-
leikur að finna vélina og í dag varðveitir
eigandinn hana í næstum þvf skotheldum
kassa.
•„Ég hafði séð Ijósmyndasýningu úti sem
var öll tekin á Lubitel og heillaðist mjög af
myndunum. Þegar kom að mér að vinna
lokaverkefni f skólanum var ég ákveðinn f
að gera það á þessa vél en hún fékkst
hvergi. Égvar búinn að leita að henni á öll-
um flóamörkuðum og Ijósmyndabúðum
borgarinnar þegar ég loksins fann hana.
Ég náði að prútta verðið úr sex þúsund
krónum í fimm þúsund og gekk mjög glað-
ur út úr búðinni."
HvaO gerir Lubitel aO svona sérstakri vél?
„Hún er öll úr plasti, formatiö 6x6 og
stærsta Ijósop er 4,5 sem þykir voða fint.
Linsan er Ifka úr lélegu plasti en engu aö
síður nokkuð skörp. Hins vegar er eiginlega
hægt að ábyrgiast að hornin verða dökk á
myndunum og stundum koma filmuupplýs-
ingarnar inn á þær, það eru bónusmyndir.
Það er ómögulegt að fókúsera f gegnum
hana og maður verður að vita hversu marg-
ir metrar eru f fórnarlambið."
Hvernig notaröu hana?
„Ég nota hana þegar ég er aö gera eitt-
hvað fyrir sjálfan mig. Þetta er alger spari-
græja. Þegar ég kom úr náminu úti var ég
viss um að þessi vél yrði mitt vörumerki.
En varð auðvitaö fljótt samdauna samfé-
laginu og keypti mér japönsk tækniundur
sem ég vinn á f dag.“
Er þetta ekki háifgert framhjáhald frá fínu
dýru græjunum?
„Nei, ég myndi frekar segja að það væri öf-
ugt. Þessi á hjarta mitt, ekki hinar vélarn-
ar mfnar."
Gunnar Svan-
berg
leitaði
Lubitel-vélar-
innar sinnar
um alla
Barcelona.
Islenski LOM
klúbburinn
Guðmundur Oddur Magnússon
og Katrín Pétursdóttir eru LOMO-
sendiherrarnir á íslandi.
Katrín var kynnt fyrir LOMO-
kúltúrnum af LOMO-sendiherran-
um í London og kolféll strax fyrir
vélinni. Þegar hún fluttist heim aft-
ur fékk hún Guðmundi Odd í lið
með sér til að stofna íslenskan
LOMO-klúbb. Þau segja starfsem-
ina hafa þróast hægt en örugglega.
Þótt enn beri lítið á hreyfingunni
sé hún stærri en fólki óri fyrir.
Hvció er gert í íslenska LOMO-
klúbbnum?
„Það hafa verið haldnir nokkrir
lokaðir fundir á Gráa kettinum og
starfsemin er að breiða út anga
sína. Hingað til hefur félagsskapur-
inn samanstaöið af ákveðnum hópi
fólks sem fann hvort annað. Við
erum enn að velta fyrir okkur
hvemig við ætlum að reka starf-
semina," segir Katrín.
Guðmundur Oddur hélt LOMO-
myndasýningu í Stöðlakoti í fyrra
og hefur kynnt vélina í Listahá-
skólanum: „Við höfum líka farið í
tvær LOMO-ferðir. Þegar hönnuö-
urinn David Carson kom hingað
ætluðum við að fá hann í Þórs-
merkurferð en morguninn sem
leggja átti af stað tókst ekki að
vekja hann. Þeirri ferð var þá um-
svifalaust breytt í LOMO-ferð. Svo
fómm við í aðra ferð á víkingaskip-
inu íslendingi.“
Katrín segir erfitt að giska á
fjölda LOMO-ista á íslandi. Sumir
nálgist vélamar erlendis frá og
margir láti lítið fyrir sér fara. „En
þegar maður hefur eignast svona
vél er auðvelt að finna fólk til að
spjalla við á heimasíðu LOMO-
heimsklúbbsins á Netinu. Þar
spjallar fólk saman, skiptist á
myndum og upplýsingum. Heims-
klúbburinn er mjög virkur og hef-
ur staðið fyrir stórum sýningum í
New York og Berlín. Eins stendur
hann fyrir samkundum þangað
sem fólk mætir og LOMO-æðist.“
Hvers vegna fellur fólk svona
kylliflatt fyrir LOMO?
Guðmundur Oddur: „Há-
tæknifrik elska vélina því hún
stendur fyrir allt það sem hátækni
er ekki. Þegar fólk er mikið að
vinna með finar græjur, hvort sem
er í myndlist, músík eða öðru, á
það til að gleyma því sem skiptir
máli. Galdurinn liggur ekki í græj-
um, efni eða áferðum. Ef þú ert
skapandi vera hefurðu anda og get-
ur gert eins og gullgerðarmeistarar
miöalda, sett andann í efnið svo
það verði að gulli. Þannig notar
maður LOMO sem er því hin nýja
alkemía."
Katrin: „Fólk sem hefur áhuga á
að skrásetja eigið líf fellur líka fyr-
ir þessari vél. Hún er svo lítil og
þægileg I meðförum. Ljómyndarar
nota LOMO eins og leikfang og
listaskólanemar sækja mikið í
þessa vél. Það má nota LOMO sem
málningapensill og láta happ ráða
hendi hver útkoman verður.
Sjarmi vélarinnar kemur líka til af
þvi aö hún er rússnesk og mjög
frumstæð. Dæmigerð LOMO-mynd
er með dökkum hornum og litirnir
verða oft óvenjusterkir. Myndimar
verða annað hvort móðukenndar
eða þá ótrúlega skýrar ef veðurað-
stæður eru góðar. Útkoman kemur
alltaf á óvart."
Guðmundur Oddur: „LOMO er
líka af sama meiöi og endur-
vinnslutrendin þar sem ekki er
hægt að kenna græjunum um ef
hlutimir heppnast. LOMO-kúltúr-
inn helst í hendur við Dogma-kvik-
myndimar, Droog-design þar sem
ljósakrónur eru búnar til úr peru-
stæðum og arte-povera eða fátæk
list sem var listhreyfmg sem kom
upp á Ítalíu á sjöunda áratugnum.
LOMO-hugsunin minnir jafnvel á
dagbækur Þorbergs Þórðarsonar þar
sem veruleikinn var sýndur eins og
hann er, án nokkurra stæla.“
Gríðarleg aðlögunarhæfni Dóru hjálpaði henni að ná tökum á LOMO vélinni,
Dóra ísleifsdóttir, félagi í LOMO-klúbbnum
Sendiherrar LOMO á Islandi, Katrín Pétursdóttir og Guðmundur Oddur Magnússon.
hljómsveitina DIP og eins nota ég
hana við grafiska hönnun og
plakatagerð."
Að lokum vilja sendiherramir
Katrín og Guðmundur Oddur taka
Guðmundur Oddur segir LOMO
samsetta úr 417 pörtum en stór
hluti þeirra losni fljótlega og því sé
engin þeirra sami karakterinn.
Vélin sé hönnuð til að vera með
ljósopið lengur opið en aðrar
myndavélar vegna slæmra birtu- 1
skilyrða i Rússlandi. Af óútskýr- I
anlegum ástæðum virki hún bet- 1
ur þvi verri sem skilyrðin séu
til myndataka.“ m
En hvernig nota Katrín og fé
Guömundur Oddur vélarnar I ;
sínar?
Katrín: „Ég tek aðallega ein- f
hvers konar óhefðbundnar fjöl- |
skyldualbúmamyndir. Ég er |
gjaman með hana á lofti í | !
nokkra daga en legg hana síð- I I
an alveg frá mér á miUi. Enn I i
sem komið er nota ég hana I
ekki í beina sköpun, hins veg- I *“
ar gæti alveg komið að því.“ h
Guðmundur Oddur: „Ég I o
nota hana mikið við mynd- f
list. Tek myndir í plötu-
umslög, til dæmis fyrir
fram að árið 2000 sé sérstakt
LOMO-ár. Ýmislegt sé í bígerð hjá
klúbbnum og fólk eigi eftir að
verða hressilega vart við hann í
nánustu framtíð.
Dóra hafði séð umfjallanir um LOMO í er-
lendum blöðum og langaði mikið í
þannig vél. Síðan þegar hún komst að
því að hægt væri aö ná í þær I gegnum
Guðmund Odd, gamla kennarann hennar
I MHl, ákvað hún að láta slag standa.
Það var skemmtilegur slagur.
„Þegar hönnuöurinn David Carson kom
hingaö var skipulögö Þórsmerkurferð
með honum og ýmsu fólki tengdu auglýs-
ingabransanum. Morguninn sem átti aö
fara hittumst við á undan á Gráa kettin-
. um en Carson
lét ekki sjá sig. Fljótlega kom f Ijós að
hann var blindfullur uppi á hótelherbergi
á Borginni og vildi ekki koma með.
Þannig að við ákváöum að fara og sækja
hann. En á meðan við biðum eftir aö það
rynni af hönnuðinum stofnuðum við
LOMO-klúbbinn á kaffihúsinu, keyptum
síðan öll LOMO-vélar af Guömundi Oddi
og breyttum fyrirhugaðri Þórsmerkurferö
í LOMO-ferðalag."
Druslaöist Carson meö?
„Þegar við komum niður á Borg að
sækja hann var hann oröinn verulega
þunnur og neitaði að koma með okkur.
Þá klæddum viö Guðmundur Oddur okk-
ur í búninga, þóttumst vera hótelstjórinn
og hótelþerna og færðum honum tvær
LOMO-vélar á bakka upp á herbergi. En
allt kom fyrir ekki, Carson neitaði að tala
við nokkurn mann og varð mjög pirraður.
Þannig að viö gáfumst upp á honum og
ákváðum aö heilsa bara upp á Valda
koppasala í staðinn. Valdi og kopparnir
voru myndaöir í bak og fyrir. Síðan stopp-
uðum við í öllum sjoppum á leiöinni til
Þórsmerkur og tókum myndir af af-
greiðslukonum. Einhverjum vikum síöar
héldum við svo LOMO-partí, þar sem af-
raksturinn úr feröinni var skoðaöur. Þaö
var fýrsti formlegi fundur LOMO-félagsins
á íslandi og búin til stofnfundargerð sem
allir skrifuöu undir."
HvaO er svona sjarmerandi viö LOMO?
„Þetta er svo einföld vél og fátt hægt að
gera annað en smella bara af. Um leið
fær maöur ágætis frí frá tölvunum og
öllu tækjadraslinu. Mín myndavél hefur
veriö að detta í sundur frá fyrsta degi og
hennar helsta karaktereinkenni líklega
hvað hún er opin týpa. Reyndar er líklegt
að hún hafi skemmst eitthvað í meöför-
um kærastans rníns sem hefur tekið
mikið af flugvallamyndum á hana."
Fyigiröu LOMOröunum?
„Ég man þau ekki alveg þótt ég hafi
lært þau í upphafi. Mér finnast reglur
frekar leiðinlegar og því hef ég tileinkað
mér þessa tíundu sem segir að maður
eigi að gleyma reglunum."
j.eðabGuðmundnSdðdhVOrt
ŒakS1St!-0M0-mynd»«
Ný LOmSc °ntUnar"'Ste 1
n smifýrr^ L-’ ,nnPökkuð í
fýlg/a tvÍr'ínmuTbókog °°
^sins,TheLomog9p9™nr
f Ó k U S 14. janúar 2000
14. janúar 2000 f Ókus
16
+
17