Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 21
r Hjónaband og peningar eða piparsveinalíf Laugarásbíó frumsýnir í dag rómantísku gamanmyndina PipEir- sveinninn (The Bachelor) meö Chris O’Donneli og Rene Zellweger í aðalhlutverkum. í minni hlut- verkum eru meðal annars Brooke Piparsveinninn Jimmie (Chris O'Donnell) og Anne (Rene Zellweger). Chris Chris O’Donnell er ekki mikið í fréttum slúðurblaða og ástæðan er einfaldlega sú að hann er nákvæm- lega eins og hann lítur úr fyrir að vera, heilbrigðið uppmálað, ungur maður sem allir myndu vilja hafa Kvikmyndir Chri's O'donnells Men Don’t Leave, 1990 Fried Green Tomatoes, 1991 School Ties, 1992 Scent of a Woman, 1992 The Three Musketeers, 1993 Blue Skye, 1994 Mad Love, 1995 Circle of Friends, 1995 Batman Forever, 1995 In Love and War, 1996 The Chamber, 1996 Batman & Robin, 1997 Cookie’s Fortune, 1999 The Bachelor, 1999 Það versta sem komið getur fyrir mann sem ákveðinn er í að vera piparsveinn al!a ævi er að verða ástfanginn. Shields, Peter Ustinov, Hal Hol- brook og söngkonan Mariah Carey sem er hér að leika í sinni fyrstu kvikmynd. Piparsveinninn er Jimmie Shannon (Chris O’Donnell) sem metur frelsi sitt ofar lífinu. Honum líður vel að öllu leyti nema einu, vinahópurinn minnkar þegar vin- irnir gifta sig. Jimmie lætur það unni til afa Jimmies (Peter Ustinov), forríks manns sem allt í einu tekur upp á því að deyja. í erfðaskránni segir að Jimmie fái 100 milljón dollara gifti hann sig áður en hann veröur þrítugur. Þeg- ar Jimmie fær þessar fréttir er að- eins sólarhringur til stefnu. Það má því segja að hamagangur verði í öskjunni þegar hann fer að leita sér að brúði... Leikstjóri The Bachelor, Gary Sinyor, er breskur, fæddist í Manchester og er með The Bachelor að gera sína fyrstu amer- ísku kvikmynd. Áður hafði hann gert á heimaslóðum, gamanmynd- ina Stiff Upper Lips, sem hann framleiddi og skrifaði, Leon The Pig Farmer og Solitaire for 2. -HK samt ekki á sig fá og heldur áfram að vera með „nokkrar í takinu” eða allt þar til hann hittir Anne (Rene Zellweger), fallega og heil- brigða stúlku, og verður ástfang- inn. í þrjú ár þarf Anne að þola það að vera aðeins kærasta þar til Jimmie ákveður að gefa eftir og biður hana að giftast sér. Hann gerir það svo klaufalega að það er eins og verið sé neyða hann til að giftast. Anne er nóg boðið og neit- ar að giftast honum. Víkur nú sög- O’Donnell fyrir nágranna. O’Donnell fæddist 26. júní 1970. Hann var aðeins tólf ára gamall þegar hann byrjaði að koma fram í auglýsingum og meðal hans fyrstu verka var að leika í McDonalds-auglýsingu á móti Michael Jordan. Hann lék i sinni fyrstu kvikmynd, Men Don¥t Lea- ve, árið 1990. Þar lék hann elsta son Jessicu Lange. Myndin fékk góða dóma og vakti leikur O’Donnell at- hygli. Það má þó segja að útlitið hafi gert það að verkum að hann fékk mörg tilboð í kjölfarið. Hollywood þurfti á ungum leikur- um að halda sem gátu verið venju- legir amerískir táningar. Hann lék aftur á móti Jessicu Lange í Blu Sky en Lange fékk óskarsverðlaun- in fyrir þá mynd. Það var svo í fimmtu kvikmynd sinni, Scent of a Woman, sem O’Donnell sýndi hvað í honum býr. Þar lék hann skóla- strák sem fær það verkefni að að- stoða blindan mann í New York. A1 Pacino fékk óskarinn fyrir leik sinn. Stjömuhimniniun í Hollywood náði svo Chris O’Donnell þegar hann var vEdinn til að leika Robin í Batman Forever og endur- tók hann hlut- verkið í Bat- man Forever. Síðan hefur fer- illinn verið upp og ofan og lítið um að kvikmynd- ir með honum séu að slá í gegn. Hann hefur þó sýnt mikinn styrk í erfiðum hlutverkum á borð við þau sem hann lék í The Chamber, In Love and War og Circle of Friends. bíódómur Sambíóin /Stjörnubíó - The 13th Warrior Arabi á meðal víkinga Antonio Banderas leikur þrettánda stríösmanninn. Víkingakvikmyndir em sjaldséð- ar og vel heppnaðar víkingakvik- myndir enn sjaldséðari. Saga vík- inga í kvikmyndasögunni sýnir okkur að kvikmyndagerðarmenn, þá sérstaklega bandarískir, eiga í hinum mestu erfiðleikum þegar kemur að víkingum fomaldar. Það er helst þegar víkingar koma óbeint við sögu að persónusköpun tekst, annars eru þetta hálfgerð villidýr sem kunna ekki mannasiði og eru vikingarnir í The 13th Warrior engar undantekningar. Þessi makalausa saga sem sögð er í myndinni og er gerð eftir skáld- sögu Michaels Crichtons hefur enga dýpt, persónumar eru allar á yfirborðinu og reynt er að bjarga myndinni fyrir hom með subbuleg- um bardagasenum sem eru vel gerðar en leiðinlegar til lengdar. í byrjum sjáum við að Ahmed Ibn Fahdlan (Antonio Banderas) hefur nánast verið gerður útlægur frá „mestu borg í heimi“, Bagdad, fyrir að líta eiginkonu konungs- holls manns hým auga. Ahmed, sem er maður orösins frekar en vopnsins, lendir í slagtogi með vík- ingum á endalausum ferðum sín- um og er nánast neyddur til að vera þrettándi stríðsmaðurinn í ferð þeirra til Noregs þar sem bjarga á konungsríki úr greipum óvinaflokks sem þarlendir álíta að sé ekki skipaður mennskum mönn- um. Ahmed er eins og fiskur á þurru landi meðal víkinganna enda látið að því liggja að hann komi úr menningarþjóðfélagi á meðan siðir víkinganna gætu verið teknir beint úr dýraríkinu. Michael Cricton byggir skáld- sögu sína (kom út 1974) á ævintýr- um Ahmeds Ibn Fahdlan, sem var ljóðskáld sem ferðaðist um norður- hj£u:a Evrópu, og enska kvæðabálk- invun Beowulf. En það er fátt í myndinni sem minnir á að einhver dýpt búi á bak viö endalaus atriði með síðhærðum víkingum mimd- andi sverð sín gegn óvini sem hef- ur engan bakgrunn, hann bara er þama og býr í hellum. Af hverju vitum við ekki frekar en svo margt annað sem borið er á borð án skýr- inga. Antonio Banderas mundaði sverðið af snilld i The Mask of Zor- ro, hér fær hann lítil tækifæri til slíks og oftast er eins og hann hafi enga hugmynd um hvað hann á að gera. Michael Crichton, sem áður en hann sneri sér eingöngu að skáldsagnagerð var vel liðtækur leikstjóri, og John McTieman, sem meðal annars leikstýrði Die Hard, eiga báðir slæman dag og sjálfsagt vilja þeir þurrka þessa mynd úr minningunni sem fyrst. Leikstjóri John McTiernan. Hand- rit: William Wisher og Warren Lewis. Kvikmyndataka Peter Menzies. Tónlist Jerry Goldsmith. Aðalleikarar: Antonio Banderas, Vladimir Kulich, Dennis Storhoi og Omar Sharif. Hilmar Karlsson Mandolin John Madden, sem leikstýrði óskarsverðlaunamyndinni Shakespeare in Love, hefur ekki verið að flýta sér upp á síðkastið en hefur nú loks ákveðið að hans næsta kvik- mynd verði Mandolin sem er rómantísk saga úr síðari heims- styrjöldinni. Myndin verður gerð eftir metsölubók sem sam- in var af Louis de Bernieres og fjall- ar um ítalskan liðsforingja sem kann að meta klassíska tónlist og fallegar konur. Þegar hann er gerður að yfir- manni á grískri eyju og kynnist fallegri ungri stúlku verður hann að gera upp á milli skyldu sinnar sem hermaður og ástar á ungri stúlku. Áætlað er að kostnaður við myndina verði 30 milljónir dollara. Nicholas Cage er sagður hafa mikinn áhuga á aðalhlutverkinu en ljóst er að ef hann vill fá hlutverkið þá verð- ur hann að slá af launakröfum sínum, en hann er í svokölluð- um 20 milljón dollara flokki, það er að segja hann getur farið fram á þessa upphæð fyrir eina kvikmynd. v 'T' Stuart litli vinsæll Þriðju vikuna í röð var fjöl- skyldumyndin Stuart Little vin- sælasta kvikmyndin í Bandaríkj- unum og er hún nú að nálgast 100 milljón dollara markið. Þessi staða þykir ekki boða gott fyrir þær kvikmyndir sem dreift var fyrir og eftir jól og eiga að vera „heitar” þegar kemur að óskar- stilnefningum. Það er aðeins The Green Mile með Tom Hanks sem fær þá aðsókn sem vonast var eftir. Langvinsælasta kvik- myndin í desember er Toy Story 2 (Tom Hanks kemur einnig ná- lægt henni) en hún hefur halað inn 220 milljón dollara. Þær kvikmyndir sem miklar vonir voru bundnar við og hafa valdið vonbrigðum eru nýjasta kvik- mynd Milos Formans, The Man on the Moon, þar sem Jim Car- rey leikur grínistann Andy Kaufman, Anna and the King, með Jodie Foster, Bicentennial Man með Robin Williams og The Snow Falling on Cedars, allt myndir sem hafa fengið ágæta gagnrýni en aðsóknin ekki verið í samræmi við góða dóma. Brosnan enn f njósn- astörfum Pierce Brosnan er eftirsóttur leikari og sérstaklega vilja fram- leiðendur fá hann í hasarmyndir. Tvær slíkar eru á borðinu hjá kappanum þessa dagana. Önnur er Tailor of Panama, sem byggð er á skáldsögu eftir John Le Carre og John Boorman mun leikstýra. Fjallar myndin um bresk- an njósnai’a í Suð- ur-Ameríku sem lendir í miðri at- burðarás þegar kólnar á milli Bandaríkjanna og Panama. Hin myndin er Bumt Sienna sem byggð verður á skáld- sögu eftir David Morrell sem enn hefur ekki komið út. í þeirri mynd mun Brosnan leika fyrrver- andi bandarískan njósnara sem hættur er störfum og fluttur til Mexíkós, þar sem hann ætlar að hvíla sig og mála, en lendir óvænt í hraðri atburðarás þar sem við sögu koma mexíkóskir eiturlyfja- kóngar. 14. janúar 2000 f Ókus 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.