Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Blaðsíða 6
Ný útvarpsstöð í loftið: Radíó Hin nýja útvarpsstöð þeirra Tví- höfðabræðra, Radíó, á Fm 103,7, skartar mörgum skemmtilegum nöfnum og á eflaust eftir að laða að sér fjölmarga hlustendur. Dag- skráin er komin á hreint og er hún einhvem veginn á þessa leið: á hverjum virkum morgni mæta þeir félagar Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr í hljóðverið kl. 7 og skemmta hlustendum til kl. 11; þegar þeir hafa lokið öllum skemmtilegheitunum kemur eng- inn annar en Pétur plankastrekkj- ari, fyndnasti maður íslands, í verið og situr til kl.15; síðdegis- þátturinn er I höndum Heimis Más Péturssonar en hann lýkur sér af þegar barði Barði barði Jó- hannesson mætir og heldur á vit kvöldþáttarins. Þessi dagskrá hljómar ofsavel og ekki spilla helgarnar þá fyrir. Á laugardags- morgnum eru það snillingamir og ofurmennin Dr. Gunni og Mikael „Thuglife" Torfason sem blaðra milli 9 og 12 og á sunnudags- morgnum er það spekúlantinn Einar Öm Benediktsson sem er i hljóðverinu á sama tima. Það er svo sannarlega kominn tími á þessa nýju stöð eftir töluverða lægð í útvarpsmálum undanfama mánuði. tvífarar Sindrl skáld. Freysson, blaðamaður Bjarni Jónasson læknir og Hannes Sigurðsson sýningarstjöri virðast haida að hláturinn iengi lífið. Þeir trúa því svo staðfastlega að þeir hafa ákveðið að opna sýningu á læknabröndurum á Landspítalanum í dag sem síðan mun fara um iandið og verður sett upp á heistu sjúkrastofnunum. Ti! að styrkja sjúklingana og bágstadda ættingja þeirra í trúnni á hláturinn hafa þeir fengið til liðs við sig landsfræga teiknara og sótt brandara í háleynilegar sjúkraskýrslur. Vitleysan sem veður uppi í skýrslunum ku vera raunveruiega ástæðan fyrir því að almenningi er ekki leyfður aðgangur að þeim - eins og fram kemur í grein sem Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra ritar í sýningarskrá. Til að fá þetta staðfest leituðum við til Péturs Péturssonar, læknis á Akureyri, og Þorra Hringssonar myndlistarmanns sem veit meira en margir um skopmyndateikningar. a sig Læknar og hjúkrunarkonur hafa í gegnum tíðina legið vel við höggi grínista, hvort sem þeir heita Gísli J. Ástþórsson að skopast að lækna- stéttinni og heilbrigðiskerfinu á síðum DV eða Robert Altman að búa til meinhæðnar bíómyndir - M.A.S.H. - sem síðan stökkbreytast í geysivinsæla sjónvarpsþætti. Hingað til hefur farið minna fyrir því að læknar opinberi óborgan- lega kímnigáfu sína og meðfædda hæfni til að gera grín að sjálfum sér - og starfmu. Við þykjumst vita að þeir hlæi að hjúkkunum og sjúkraliðunum en þeir gætu líka skopast að sjúklingum sínum og óborganlegum aðstæðum sem upp koma í neyðarlegustu tilvikum. Læknar eru hins vegar svo siða- vandir að þeir kjósa oftast að þegja - þangað til sjúklingurinn tekur frumkvæðið að hlátrinum. HilMMtini Pétur Pétursson læknir: „Fólk á misauðvelt með að gera þetta og oft á það alls ekki við.“ Hálfkæringur auðveldari Sannleikurinn er nefnilega sá að spítalamál eru viðkvæm mál og sjaldnast fyndin nema þegar aðrir lenda í þeim. Fáir hlæja að eigin óförum, síst af öllu á sama andar- taki og þær dynja yfir. Góð kimni- gáfa hefur þó bjargað mörgum frá því að vera neyðarlegir á viðkvæm- um stundum, ef marka má orð Pét- urs Péturssonar læknis. Og við höf- um enga haldbæra ástæðu til að rengja hann: „Það getur stundum verið auðveldara að tala í hálfkær- ingi, ekki síst ef menn eru áhyggju- fullir og kvíðnir. Þá leita þeir oft að þvi sem er skoplegt, ekki síst ef þeir eru gæddir frásagnargáfu." Pétur Péturssón hefur velt kími- legum hliðum læknastarfsins nokkuð fyrir sér og þvi þarf ekki að koma á óvart að hann situr i varastjórn norrænna samtaka sem kalla sig Læknaskop. Okkur finnst II lega fyn - Þorri Hringsson fer um víðan völl í spjalli um skopmyndateikningar Þorri Hringsson er einn þeirra myndlistarmanna sem eiga teikn- Svavar Örn, hárgreiðslumaður og tískulögga. Sindri Freysson skáld og Svavar Öm tískulögga eru fönglulegir menn og gerðarlegir til orðs og æðis - báðir algjörlega óhræddir við að tjá sig fyrir almenningi, hvort sem það er í tali eða á prenti. Þessir tveir gætu nánast verið bræður að sjá. Báðir með hvítan drengjakoll og fínlega lát- laust, allt að því kvenlegt andlitsfall. Annar syngur óð til líkamlegrar feg- urðar og hinn yrkir fifleíldur af skáldagyðjuinnspýtingu. Hins vegar eru þeir ekki við eina fjölina felldir. Svavar hefur einnig áhuga á mannlegum vandamálum og er mikill áhugamaður um einelti. Sindri er heldur ekki subbulegur andans maður, hann hugar að ytra útliti og gætir vandlega að prúðmannlegum klæðaburði og snyrtilegri klippingu. ingar á sýningunni Hláturgas. Hin- ir heita Halldór Bragason, Gísli J. Ástþórsson, Hallgrímur Helgason og Brian Pilkington. Þó að Þorri og Halldór hafi ásamt fleiri drátthög- um myndlistarmönnum haldið úti útgáfu teiknimyndablaðsins Gisp í næstum níu ár eru teiknimyndir litt arðbær aukabúgrein hjá Þorra. „Ég hef alls ekki gert mikið að því að teikna skopmyndir," segir hann, „en settist niður þegar Hannes hafði samband við mig og reyndi að upphugsa fyndnar aðstæður með læknum og sjúklingum. Það var satt að segja frekar auðvelt enda tilefnin næg.“ Og hann út- skýrir að „manneskjan eigi auð- veldast með að hlæja að sjálfri sér þegar hún er i mestri lífshættu". Þorrl Hringsson teiknari: „Það hringir enginn í mig og biður um brandara ókeyp- is.“ Mynd-E.ÓI. Engir ókeypis brandarar Þorri játar þó að hann hafi ekki hugmynd um hvemig svona skop- myndabrandarar verða til. „Ég þyki að vísu sæmilega fyndinn dags daglega við mína nánustu. En það er eins og með allt sem við Is- lendingar erum að gera - þegar ekki eru peningar með í spilinu þá er ekkert gert. Markaðurinn fyrir skopmyndateikningar er ekki stór og þess vegna er lítið gert af slíkum teikningum hér. Ég er sannfærður um að til er fullt af fólki sem getur teiknað en það er eflaust eins og með mig, það hringir enginn og biður mig að segja brandara ókeyp- is. Ég er heldur ekkert fyrir að sitja, teikna brandara og bíða siðan eftir því að einhver eins og Hannes komi og kaupi þá. Ég hef nóg ann- að að gera en safna bröndurum ofan í skúffu.“ í framhaldi af því ræðum við um skopmyndir í blöðum. Þau em full af teiknimyndasögum en fæstar em eftir íslenska teiknara ef frá eru taldar Amma Fífi og Grim í Fókusi og þjóðfélagsleg ádeilu- I y a - f Ó k U S 14. janúar 2000 + 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.