Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 26
,34
Afmæli____________________
Gunnar V. Andrésson
i Gunnar V. Andrésson, fréttaljós-
myndari við DV, Háagerði 49,
| Reykjavík, varð fimmtugur í gær.
Starfsferill
Gunnar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp hjá Þorbjörgu móður-
ömmu sinni og seinni manni henn-
ar, Guðmundi Jónssyni.
Gunnar hóf störf hjá dagblaðinu
Tímanum, fyrst við myndamótagerð
■ og síðan blaðaljósmyndun. Hann
var þar fréttaljósmyndari 1967-78,
við Vísi 1978-82 og við DV frá 1982.
Hann hefur verið deildarstjóri ljós-
myndadeildar DV frá sameiningu
DB og Vísis.
, Gunnar sat í stjórn Blaðamanna-
félags Islands 1983-84 og hefur setið
i stjóm Félags blaðaljósmyndara frá
stofnun félagsins. Hann er einn af
i stofnendum Skíðadeildar Fram, sat
í stjóm deildarinnar fyrstu fimm ár-
| in og aftur frá 1985 en Gunnar var
formaður deildarinnar 1988-91. Þá
var hann formaður hádegisboltafé-
lagsins Lunch United um árabil.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 23.11.1974 Önnu
Ágústsdóttur, f. 13.1. 1951 en hún er
dóttir Ágústs Guðjónssonar múrara
og Svanhvítar Gissurardóttur hús-
móður.
Böm Gunnars eru Hrefna, f. 16.6.
1969, kerfisfræðingur, búsett i
Reykjavík, en sonur hennar er
Hilmir Hrafn, f. 26.5. 1996; Alda, f.
14.8. 1970, húsmóðir og nemi á Sel-
tjarnamesi, en eiginmaður hennar
er Karl Pálsson flugvirki og eru syn-
ir þeirra Brynjar Karl, f. 7.7. 1990,
Birkir, f. 21.10. 1994, og Gunnbjöm
Páll, f. 18.10. 1999; Ágúst
Ævar, f. 22.9. 1976, prent-
smiður og myndlistar-
nemi, búsettur í Reykja-
vik, en unnusta háns er
Ilmur Dögg Gísladóttir
nemi; Þorbjörg Svana, f.
26.10. 1979, hárgreiðslu-
nemi í Reykjavík, en
unnusti hennar er Lárus
ívarsson blikksmíða-
nemi.
Hálfsystkini Gunnars,
sammæðra, eru Þorbjörn
Jóhann Sveinsson,
slökkviliðsstjóri á ísafirði; Guðrún
Sveinsdóttir, verkakona í Vest-
mannaeyjum; Særún Sveinsdóttir,
húsmóðir í Bandaríkjunum; Borg-
þór Sveinsson, stoðtækjasmiður.
Hálfsystkini Gunnars, samfeðra,
eru Guðný, húsmóðir á Þorvalds-
eyri; Gústaf, verslunarmaður í
Reykjavík; Hallgrímur, rafvirki í
Reykjavík.
Foreldrar Gunnars era Andrés H.
Valberg, f. 15.10. 1919, forstjóri og
hagyrðingur í Reykjavík, og Vilborg
Jóhannsdóttir, f. 15.9. 1931, verka-
kona.
Ætt
Andrés er sonur Hallgríms Val-
berg, b. á Mælifellsá, Andréssonar,
b. á Reykjavöllum, Björnssonar, b. á
Starrastöðum, Björnssonar, b. á
yalabjörgum, bróður Andrésar á
Álfgeirsvöllum, afa Konráðs, afa
Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþm.
Andrés var einnig afl séra Jóns í
Hvammi, fóður Magnúsar, dósents
og ráðherra, og Þóris Bergssonar
rithöfundar. Bjöm var sonur Ólafs,
ættföður Valadalsættar
eldri, Andréssonar, og
Bjargar, systur Guð-
mundar í Stóradal,
langafa Sigríðar, ömmu
Matthíasar Bjamasonar,
fyrrv. alþm. Björg var
dóttir Jóns, ættföður
Skeggsstaðaættar, Jóns-
sonar. Móðir Andrésar
var Halldóra Jónsdóttir
yngra, b. á Leifsstöðum,
bróður Björns Blöndals,
ættföður Blöndalsættar-
innar. Móðir Hallgríms
var Guðrún, systir Jóhannesar
Reykdals, afa Jóhannesar Reykdals
hjá Heklu. Annar bróðir Guðrúnar
var Ólafur Reykdal, afi Ólafs Ragn-
arssonar í Vöku-Helgafelli. Guðrún
var dóttir Jóhannesar, b. á Litlu-
Laugum, Magnússonar.
Móðir Andrésar var Indíana
Sveinsdóttir, hagyrðings á Mæli-
fellsá, Gunnarssonar, oddvita að
Syðra-Vallholti, Gunnarssonar,
hreppstjóra á Skíðastöðum, bróður
Þorvalds, afa Ragnheiðar, lang-
ömmu Magnúsar ráðherra frá Mel.
Þorvaldur var einnig afi Ingibjarg-
ar, móður Jóns, alþm. frá Akri,
föður Pálma, fyrrv. ráðherra.
Gunnar var sonur Gunnars, ætt-
föður Skíðastaðaættar Guðmunds-
sonar. Móðir Indíönu var Margrét
Þórunn, hálfsystir Margrétar,
ömmu Elínborgar Lárusdóttur rit-
höfundar. Hálfbróðir Margrétar
Þórunnar var Sæmundur, langafí
Jóhönnu, móður Sighvats Björg-
vinssonar alþm. Margrét Þórunn
var dóttir Áma, silfursmiðs f
Stokkhólma, Sigurðssonar, út-
vegsb. í Keflavík, bróður Magnús-
ar, langafa Guðrúnar, móður
Bjarna forsætisráðherra, föður
Björns menntamálaráðherra. Móð-
ir Áma var Sólveig Snorradóttir.
Vilborg er dóttir Jóhanns, verka-
manns í Reykjavík, Þorkelssonar, b.
á Dæli í Fljótum, Ásgrímssonar, b. á
Minni-Brekku, Þorkelssonar. Móðir
Jóhanns var Anna Jóhannsdóttir, b.
í Engidal, Þorvaldssonar „ríka“, b. í
Dalabæ, Sigfússonar. Móðir Önnu
var Sæunn Þorsteinsdóttir frá
Bakkavöllum á Ólafsflrði.
Móðir Vilborgar var Þorbjörg
Magnúsdóttir, verkamanns í
Reykjavík, Árnasonar, b. í Dysjum
á Álftanesi, Pálssonar, hugvits-
manns á Syðstu-Mörk undir Eyja-
fjöllum, Ámasonar, skálds i Duf-
þekju, Egilssonar, pr. á Útskálum,
bróður Hallgríms, langafa Jónasar
HaUgrímssonar. Egill var sonur
Eldjáms, pr. í Möðruvallaklaustri,
Jónssonar. Móðir Eldjárns var Snjó-
laug Þorsteinsdóttir, b. á Frostastöð-
um, Jónssonar og Guðríðar Péturs-
dóttur, systur Hallgríms sálma-
skálds. Móðir Magnúsar var Oddný
Magnúsdóttir, dbrm. á Dysjum
Brynjólfssonar, b. á Ytra-Hólmi á
Akranesi, bróður Amdísar, móður
Jakobs, pr. í Steinnesi, langafa Vig-
disar Finnbogadóttur. Bróðir Jak-
obs var Ásgeir, dbrm á Lambastöð-
um, langafí Önnu, móður Matthías-
ar Johannessens ritstjóra.
Móöir Þorbjargar var Vagn-
björg, dóttir Magnúsar, b. á Sval-
höföa í Laxárdal, Sigurðssonar og
Steinunnar Böðvarsdóttur, b. á
Sámsstöðum, Guðmundssonar.
Gunnar V.
Andrésson.
Guðmiindur A. Arason
Guðmundur A. Arason, skrif-
stofustjóri hjá Vegagerðinni í Borg-
arnesi, Þórunnargötu 3, Borgamesi,
er sextugur í dag.
Starfsferill
Guðmundur er fæddur í Borgar-
nesi og þar ólst hann upp. Hann
hóf störf hjá Vegagerð rikisins í
Borgamesi 1959 og hefur starfað
þar sfðan, nú síðast sem fulltrúi á
, umdæmisskrifstofu Vegagerðar
ríkisins á Vesturlandi með aðsetri
í Borgarnesi. Guðmundur hefur
stundað ökukennslu sem aukastarf
frá 1967. Hann hefur einnig stund-
að hestamennsku sem tóm-
stundagaman og unnið að málefn-
um hestamanna f Borgarnesi.
Hann hefur verið meðlimur í
Bridgefélagi Borgarness um árabil.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist þann 16.6.
1963 Lilju Ó. Ólafsdóttur, f. 18.9.
1944, starfsmanni hjá Verkfræði-
stofu Sigurðar Thoroddsen í Borg-
arnesi. Hún er dóttir Ólafs Bjarna-
sonar, f. 1915, d. 1960, skrifstofu-
stjóra hjá Loftleiðum hf., og k.h.,
Ragnheiðar Bjarnadóttur, f. 1918,
fyrrv. skrifstofumanns hjá Loft-
leiðum og síðar Flugleiðum í
Reykjavík.
Börn Guðmundar og Lilju eru
Ragnheiður, f. 23.4.1963, dómritari
hjá Héraðsdómi Vesturlands, bú-
sett í Borgarnesi, gift Ámunda Sig-
urðssyni, húsasmið og lögreglu-
manni, og eru börn þeirra, Sigurð-
ur Ingvar, f. 2.3. 1981, nemi við
Fjölbrautaskólann í Ármúla, Guð-
rún Ósk, f. 7.5. 1987, nemi, og Sig-
rún Sjöfn, f. 23.11.1988, nemi; Ólöf,
f. 27.4. 1967, viðskiptafræðingur,
búsett í Reykjavík, en maður
hennar er Alexander Hrafnkelsson
tamningamaður en börn þeirra
eru Lilja Ósk, f. 8.12. 1991, og Auð-
unn Hrafn, f. 24.3. 1996; Ari, f. 15.7.
1973, byggingaverkfræðingur, bú-
settur í Reykjavík, en kona hans
er Helga Jóhannesdóttir húsamál-
ari og er dóttir þeirra Kolbrún
Eva, f. 27.11. 1998.
Systkini Guðmundar eru Guð-
björg, f. 3.8. 1936, búsett í Reykja-
vík, gift Sigurði K. Eyjólfssyni og
eiga þau þrjú böm; Sig-
valdi, f. 18.12. 1937, bú-
settur í Borgarnesi,
kvæntur Halldísi Gunn-
arsdóttur, og eiga þau
þrjú börn; Unnsteinn, f.
21.5. 1941, búsettur í
Borgamesi og á hann
fjögur börn; Hólmsteinn,
f. 21.5. 1941, búsettur í
Kópavogi og á hann eitt
bam; Hreinn Ómar, f.
30.4. 1944, búsettur í
Reykjavík, kvæntur
Önnu Kristófersdótttur,
og eiga þau þrjú börn; Jón Ár-
mann, f. 8.7. 1946, búsettur í
Reykjavík og á hann tvö böm.
Foreldrar Guðmundar: Ari Guð-
mundsson, f. 18.11. 1895, d. 21.5.
1959, vegaverkstjóri í Borgarnesi,
og k.h., Ólöf Sigvaldadóttir, f. 11.9.
1906, húsmóðir, nú á Hrafnistu i
Hafnarfirði.
Ætt
Ari var sonur Guðmundar, b. á
Skálpastöðum, Auðunssonar, b. á
Oddsstöðum í Lundarreykjardal,
Vigfússonar, b. á Grund
í Skorradal, Gunnars-
sonar.
Móðir Auðuns var Vig-
dís Auðunsdóttir. Móðir
Guðmundar á Skálpa-
stöðum var Vilborg
Jónsdóttir, b. á Gullbera-
stöðum í Lundarreykjar-
dal, Þórðarsonar og Guð-
ríðar Sveinsdóttur.
Móðir Ara var Guðbjörg
Aradóttir ljósmóðir, b. á
Syðstufossum I Andakíl,
Jónssonar, b. á Syðstu-
fossum, Gíslasonar.
Móðir Ara á Syðstufossum var
Guðbjörg Jónsdóttir. Móðir Guð-
bjargar ljósmóður var Kristín Run-
ólfsdóttir, b. á Innri-Skeljabrekku,
Jónssonar og Ástríðar Jónsdóttur.
Foreldrar Ólafar, móður Guð-
mundar A., voru Sigvaldi, skip-
stjóri í Stykkishólmi, Valentínus-
son, Oddssonar og Guðlaug Hall-
dóra Jóhannsdóttir.
Guðmundur og Lilja eru i
Taílandi um þessar mundir.
Guömundur A.
Arason.
Fréttir____________
Samkomulag
GSM-stöðvar
og WAP-þjón-
ustu
Fulltrúi sænska fjarskiptarisans Er-
icsson, Ole Kaalund Rasmussen,
viðskiptastjóri hjá Ericsson, og full-
trúar Símans, Þórarinn V. Þórarins-
son, forstjóri Landssímans, og Ólaf-
ur Stephensen, forstööumaöur upp-
lýsinga- og kynningarmála, á blaöa-
mannafundi í gærdag. Gengið var
frá samkomulagi um 60 nýjar GSM-
stöövar og umfangsmikla WAP-
þjónustu í gærdag. DV-mynd Pjetur
-f
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
Tll hamingju
með afmælið
2. febrúar
85 ára
Fanney Þorsteinsdóttir,
Rauðarárstíg 34, Reykjavík.
75 ára
Anna Stefánsdóttir,
Bleiksárhlíð 38, Eskifirði.
Helgi Björnsson,
Kvískerjum, A-Skaftafellssýslu.
70 ára
Gunnar Pétursson,
Háaleitisbraut 115, Reykjavík.
Sigurður Gísli Bjarnason,
Gyðufelli 6, Reykjavík.
60 ára
Halldór Jónasson,
Miðstræti 4, Bolungarvík.
Inga Svandís Magnúsdóttir,
Sunnuhvoli, Akureyri.
Sigfríður Hallgrimsdóttir,
Hreggnasa, Bolungarvik.
50 ára
Gísli Vilhjálnlm• Jónsson,
Setbergi 31, Þorlákshöfn.
Guðmundur Valdimarsson,
Breiðvangi 64b, Hafnarflrði.
Hallvarður Ólafur
Böðvarsson,
Björk, Akranesi.
40 ára
Erla Margrét Margeirsdóttir,
Ásbúð 41, Garðabæ.
Guðjón Sigurðsson,
Grænukinn 4, Hafnarfirði.
Jakob Narfi Hjaltason,
Lyngbrekku, Selfossi.
Nanna Guðrún Yngvadóttir,
Hamarsstíg 25, Akureyri.
Sara D Carmen Medina
De Mcleod,
Álagranda 10, Reykjavík.
Tryggvi Pálmason,
Tröllagili 23, Akureyri.
s
Urval
góður ferðafélagi
- til fróðleiks og
skemmtunar á ferðalagi
eða bara heima í sófa