Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 11 DV BSRB: Gagnrýna drátt á við- ræðum Trúnaðarmannaráðstefna BSRB var haldin í fyrradag á Grand Hótel í Reykjavík og sátu hana um 400 trúnaðarmenn að- ildarfélaga BSRB víða af land- inu. I ályktun ráðstefnunnar er lögð áhersla á að gengið verði frá samningum við ríki og sveit- arfélög um réttindamál starfs- manna í almannaþjónustu. Ráð- stefnan gagnrýnir þann drátt sem orðið hefur á viðræðum um kröfur samtakanna og hvetur til að þær verði til lykta leiddar. Kröfur samtakanna eru þríþætt- ar. Þær snúa að veikindarétti og tryggingum, réttindum trúnað- armanna og fæðingarorlofi. Að- alkröfurnar um veikindaréttinn eru að reglugerð um veikinda- rétt verði færð í kjarasamninga, að stofnaður verði sjúkrasjóður og að réttindi aðstandenda veikra barna og langveikra verði aukin. Kröfumar vegna réttinda trúnaðarmanna snúa að því að styrkja stöðu þeirra og bæta starfsaöstöðu sem sé mikilvægt því hlutverk trúnaðarmanna á vinnustöðum verði stöðugt mik- ilvægara. Hvað varðar fæðingar- orlof er lagt til að stofnaður verði sérstakur fæðingarorlofs- sjóður sem atvinnurekendur greiði ákveðið hlutfall af launum í og fæðingarorlof verði lengt í 12 mánuði, fjóra hjá móður, fjóra hjá fóður og fjóra til frjálsrar ráðstöfunar. -hdm Háskólinn á Akureyri: Opið hús um helgina DV, Akureyri: Háskólinn á Akureyri heldur Opið hús nk. laugardag á Sólborg kl. 11-17. Þar munu deildir Háskólans, heil- brigðis-, kennara-, rekstrar- og sjávar- útvegsdeild kynna námsframboð sitt og nemendur kynna félagsstarf sitt. Einnig munu samstarfsstofnanir skól- ans, Rala, Orkustofnun, RF, Hafrann- sóknastofnun og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar kynna starfsemi sína þennan dag, auk þess sem bókasafn Háskólans, alþjóðastarf skólans, rann- sóknarstofnun og félagsstofnun verða kynnt. Þá fer fram kynning á bygg- ingaframkvæmdum Háskólans á nú- verandi stigi og áætlunum um ný- byggingar Háskólans á Sólborg. Að þessu sinni verður lögð sérstök áhersla á að kynna nám í sjávarút- vegsdeild skólans, en annað sem fram fer á Opnu húsi verður að hljómsveit- in Land og synir leikur, bókasafn skólans býður upp á kennslu og leið- sögn um Netið og kennslu í leit að ýmsum íslenskum og erlendum gagnasöfnun sem háskólanemar nota. Auk þess verður gestum boðið að kynna sér margmiðlunarefni sem not- að er til kennslu í sérstaklega öílugum margmiðlunartölvum. Um kvöldið verður háskólaball í Sjallanum. -gk Slökkviliðið eflt DV, Akranesi: Til umræðu hefur verið að efla slökkviliðið á Akranesi og endurnýja samning við nágrannasveitarfélögin, meðal annars með tiliiti til stórra fyr- irtækja og mannvirkja á svæðinu svo sem Hvalfjarðarganga, Járnblendi- verksmiðju og Norðuráls. Samkvæmt heimildum DV er gert ráð fyrir því að efla slökkviliðið á Akranesi með því að kaupa nýjan slökkvibíl, tankbíl og körfubíl og munu nágrannasveitarfélögin vænt- anlega taka þátt í þeim kostnaði. Verður þá slökkvilið fært um að eiga við stórbruna á svæðinu. DV innti Gísla Gíslason bæjarstjóra eftir samn- ingum við sveitarfélögin. „Viðræður sveitarfélagaiina eru vonandi á loka- stigi,“ sagði hann. -dvó Fréttir Samningur um samvinnu i skógræktarrannsóknum: Selta í trjágróðri verði rannsökuð - reynt að finna heppileg tré við umferðaræðar þar sem saltaustur á sér stað DV, Hveragerði: Vandamál vegna seltu eru víða vandamál við trjágróður við sjávar- síðuna, einkum þar sem vindstyrk- ur er verulegur, eins og til dæmis viö suðurströndina. Þetta sagði dr. Sveinn Aðalsteinsson, skólameist- ari Garðyrkjuskóla ríkisins, í spjalli við DV. Niðurstöður rannsókna á seltu- vandamálum munu meðal annars nýtast við að finna heppileg tré við umferðaræðar þar sem fram fer saltaustur á götur í þéttbýli. Með sameiginlegu átaki munu Garðyrkjuskóli ríkisins, Náttúru- fræðistofnun Islands og Rannsókn- arstöð Skógræktar ríkisins, Mó- gilsá, taka á þessu vandamáli. Þau hafa ákveðið að efna til samstarfs á sviði skógræktar- og skógarvist- fræðirannsókna með þvi að kosta sameiginlega eina doktorsnema- stöðu á þessu sviði. Samningurinn var undirritaður við athöfn þann 14. janúar í svokölluðu „Bananahúsi" garðyrkjuskólans, að viðstöddum landbúnaðarráðherra, ráðuneytis- stjóra landbúnaðarráðuneytis og fleira fyrirfólki. Undir samninginn skrifuðu Sveinn Aðalsteinsson af háifu Garðyrkjuskólans, Jón Gunn- ar Ottósson fyrir Náttúrufræðistofn- im íslands og Aðalsteinn Sigurgeirs- son fyrir hönd Rannsóknarstöðvar Skógræktar ríkisins á Mógilsá. Almenn markmið samningsins eru að styðja rannsóknir i íslenskri skógrækt og skógarvistfræði, auk þess að efla samstarf stofnananna á sviði rannsókna. í samningnum seg- ir að sértæk markmið hans séu aö að efla rannsóknir um þolmörk, vamir og ferli efna við seltuákomu í íslenskum trjágróðri og kortleggja heppileg klón til ræktunar í þéttbýli og á skógarsvæðum sem búa við seltuákomu. Rannsóknarverkefnið er skil- greint og verður auglýst eftir um- sóknum innan skamms. Gert er ráð fyrir að umsækjendur hafi a.m.k. lokið B.Sc-prófi í náttúruvísindum eða sambærilegu prófi. -eh Björn Sigurbjörnsson, ráöuneytisstjóri í landbúnaðarráöuneytinu, Magnús Jóhannesson, ráöuneytisstjóri umhverf- isráöuneytis og Þorsteinn Sigfússon prófessor voru mættir til leiks. Aö samningum loknum áttu menn saman rólega stund í Bananahúsi skólans. Fremstur á myndinni er Jón Gunnar Ottósson. DV-myndir Eva Hreinsdóttir Flugleiöir hefja stærstu auglýsingaherferð íslensks fyrirtækis erlendis: Fólk treysti þeim sem fundu Ameríku - markhópurinn starfsfólk fyrirtækja sem munu leiða okkur inn í 21. öldina tækin o.s.frv. Þarna er að- allega verið aö ræða um viðskiptaferðir og ástæðan fyrir þvi er að þama er um að ræða fólk sem er tilbúið að borga meira fyrir betri þjónustu. Það sem skil- greinir í fyrsta lagi betri þjónustu hjá svona fólki er hversu fljótt það kemst á milli staða og staðreyndin er sú að 80% af þeim sem ferðast í svona erindum velja þann kost sem er fljót- astur á milli staða frekar en þann sem er ódýrastur. Það er það sem við erum að reyna að hefja okkur upp í,“ segir Steinn Logi. -hdm „Markmiðið er að koma á fram- færi við þennan ákveðna markhóp, sem við höfum skilgreint, þeim gild- um og gæðum sem við teljum okkur hafa að bjóða og af hverju við eigum að höfða til þeirra," segir Steinn Logi Bjömsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Flugleiða. Flugleiðir kynntu í gær nýja auglýs- ingaherferð sína sem er sú stærsta sem íslenskt fyrirtæki hefur ráðist í í alþjóðlegum fjölmiðlum. Herferðin hófst í gær á bandarísku útsending- arsvæði CNN og stendur fram í miðjan mars en fyrirtækið hefur staðið fyrir íjölmörgum herferðum á markaðssvæðum sínum frá því ný ímyndarstefna og nýtt útlit fyrir- tækisins var kynnt i haust. Auglýs- ingin verður birt ríflega 430 sinnum en í henni er skir- skotað til norræns uppruna með erindi úr Hávamálum og eru áhorfendur hvattir til þess aö treysta þeim sem fundu Ameríku til að flytja þá yfir Atlantshafið. Áætlað- ur kostnaður Flugleiða við markaðssetningu erlendis í ár er nærri þrír milljarðar króna. „Þessi markhópur er starfsfólk fyrirtækja sem eru i þessum greinum sem munu leiða okkur inn i 21. öldina, Intemet-fyrirtækin, fjármálafyrirtækin að ein- hverju leyti, fjölmiðlafyrir- Flugleiöir kynntu i gær nýja auglýsingaherferö sína sem er sú stærsta sem íslenskt fyrirtæki hefur ráöist í í erlendum fjölmiölum. DV-mynd Teitur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.