Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 15
MIÐVTKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 15 Hvað ungur nemur... í hávegum „Mótmæli eru alvörumál enda kjósa þeir sem vilja láta á sér bera að láta líta svo út að þar sé alvörufólk á ferðinni." Forseti Alþingis, Halldór Blön- dal, tekur við mótmælum vegna Eyjabakka. Andrúmsloftið í samfélaginu einkenn- ist af deilum. Fram- kvæmdir og framfarir eiga undir högg að sækja því yfirleitt þyk- ir sjálfsagt að mót- mæla öllu því sem lagt er til um mannvirkja- gerð. Öllu er mótmælt og undirskriftum er safnað í stórum stíl. Líkast sirkusatriði er þegar þegar mótmæla- listar eru afhentir við- komandi yflrvöldum og stillt upp til mynda- töku með þeim alvöru- svip sem við á hverju sinni. Mótmæli eru al- vörumál enda kjósa þeir sem vilja láta á sér bera að láta líta svo út að þar sé alvörufólk á ferðinni. Börn mótmæla - barnaheimili Og mótmælin og þrætumálin hafa fordæmisgildi. En hví skyldi fullorðna fólkið hafa einkarétt á að mótmæla? - Þrír 11 ára krakk- ar í Kópavogi hafa safnað undir- skriftum til að mótmæla byggingu á leikskóla. Þeir segjast mótmæla fyrir hönd margra reiðra krakka því að undir bygginguna hverfur mjög góð skíðabrekka. Þremenn- ingarnir segjast ætla að halda áfram að safna undirskriftunum næstu daga en siðan ætla þeir að afhenda bæjarstjóranum í Kópa- vogi nafnalistana. En barátta ungmennanna hefur ekki farið hljótt svo að þau hljóta — mótmæli að njóta fulltingis hinna fullorðnu. Þeim hefur þegar verið stillt upp til myndatöku í Morg- unblaðinu. Á fjög- urra dálka mynd eru börnin með krosslagðar hendur og ásakandi alvöru- svip eins og viðeig- andi er í mót- mælaslag. Þau hafa auðsjáanlega lært réttu mótmælatakt- ana af þeim full- orðnu. Það er í rauninni undravert að krakkarnir skuli ekki fara fram á lög- formlegt umhverfis- mat til að bjarga skíðabrekkunni sem hlýtur að vera vistvæn. Næg fordæmi Fordæmin af vettvangi hinna fullorðnu eru næg. Þegar börnun- um var bent á að biðlistar væru eft- ir plássum á leikskólum þá svör- uðu þau því til að það væri leik- skóli rétt hjá og mörg af leikskóla- börnunum mundu senn byrja í skólanum og þá yrði nægilegt af plássum í leikskólanum í vor. Mótmælabörn- in má finna hvar- vetna í þjóðfélaginu. Sem rök fyrir mót- mælunum nefna þau auk þess að efst í götunni þar sem leikskólinn á að koma eigi að koma hringtorg og þar verði brjáluð umferð. Börnin eru ekki í neinum vafa um að þau séu að berjast fyrir réttlætismáli þegar litið er til þess sem eftir þeim er haft: „Allir krakkamir eru reiðir yfir þessu og við höfum talað um að setjast í brekkuna og leyfa þeim ekki að gera neitt.“ Kannski stutt í ofbeldið Þarna er kominn hótunartónn í börnin, enda er slíkt alls ekki óþekkt fyrirbrigði hjá þeim full- orðnu því ekki er svo langt síðan vír var strengdur yfir brú á hálend- inu til að trufla umferð. Þegar slík- ar aðgerðir eru hafðar í frammi þá kann að vera skammt í ofbeldið. En það er ekki rétt að ásaka börnin því að það eru þeir full- orðnu sem hafa kennt þeim leik- reglurnar og kennt þeim tóninn. Það kann því að vera vandfundinn skilsmunur á réttu og röngu fyrir ungar og óþroskaðar sálir. ! þetta sinn á að setjast í brekkuna til að trufla væntanlega að vinnuvélar geti athafnað sig. Það kann að vera að einhverjum finnist þetta bara sniðugt hjá krökkunum. Ásakanir eiga engan veginn við í þessu máli, allra síst gagnvart krökkunum sem standa i undir- skriftasöfnuninni, en hins vegar er ástæða til að þessi mótmæli veki til umhugsunar. Það má ekki ala unga fólkið upp í því andrúmslofti að við búum við andsnúið og neikvætt samfélag. Það er sú fyrirmynd sem of oft blasir við. Jón Kr. Gunnarsson Kjallarinn Jón Kr. Gunnarsson framkvæmdastjóri „Öllu er mótmælt og undirskrift- um er safnaö í stórum stíl. Lík- ast sirkusatriði er þegar mót- mælalistar eru afhentir viökom- andi yfírvöldum og stillt upp til myndatöku meö þeim alvörusvip sem viö á hverju sinni.“ Til forystu Samfylkingar: Hvern skal kjósa? Fyrir rúmri hálfri öld gekk ég í félag ungra jafnaðarmanna og var um tima i stjóm Aþýðuflokksfé- lags Reykjavíkur þótt ég væri ekki sáttur við veginn sem valinn var. Sannleikurinn var sá að lítið var stuðst við ágæta stefnuskrá flokks- ins en farið í kringum hana eíns og köttur um heitan graut. Hið reikula og oftast litla fylgi, nema í tíð brautryðjendanna, helgaðist af eigingirni hinna mörgu gagns- lausu framapotara. Fólkið áttaði sig á að margir baráttumenn í flokknum voru þar aðeins fyrir sig og að almenningur var, líkt og nú fyrir Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki, einungis verk- færi sem kasta mætti er þau tækju að slitna. Bitlingafaraldur varð fylgifiskur krata og hugsjónimar hurfu sem dögg fyrir sólu. Af ein- hverjum ástæðum voru kratar seinir af stað í stríðinu um fisk- veiðilögsöguna og nú vilja þeir fórna ávinningnum fyrir ESB. Jafnaöarmennska er ekki meðalmennska Stefnuskráin er hins vegar góð og vonin um hæfan foringja hefur haldið mér við jafnaðarstefnuna. Ég fylgdi Vilmundi Gylfasyni og seinna Jóhönnu Sigurðardóttur sem eflaust er einn heiðarlegasti stjórnmálamaður landsins. Siðan Jón Baldvin Hannibalsson og fleiri framámenn flokksins fóm að rífa niður það sem Alþýðuflokkur- inn í frum- bemsku byggði upp hef ég ekki kosið flokkinn þótt ég sé enn fé- lagi. Ef menn halda að jafnaðar- mennska sé með- almennska eru þeir á rangri braut. Kapital- ismi og reyndar allur „ismi“ er það aftur á móti og hefur sannað að hann þrífst best af græðgi, til- litsleysi og öfgum og honum er meinilla við jafnrétti. Jafnaðar- mennska gerir aftur á móti kröfur um hæfileika til að skilja og miöla. Kröfur til þeirra sem vilja axla ábyrgð eru að þeir skilji að til er fólk sem er frá upphafi lifs síns ófært um að bjarga sér hjálparlaust og aðrir þannig settir af ýmsum óviðráð- anlegum orsökum. Jafnaðarmennska býður að allir njóti sín og að ríki og sveitarfélög gæti þess að mismuna ekki þegnunum. Sönn jafnaðar- mennska veit að aldraðir halda áfram að vera hluti af þjóðinni en ekki slitin verkfæri eins og kapitalisminn álítur og fer með sem slík. Það er ekki af því að fólk viti ekki að jafnaðarstefnan er mannúðlegust sem það veitir henni lítið gengi heldur skortur á snjöllum en þó fyrst og fremst heiðarlegum for- ingjum sem virða stefnu flokksins. Manneskju með persónuleika Fram á miðja tuttugustu öldina blekkti glæst ytra útlit fjölþjóð- legra stjórmálahreyfinga fólk um víða veröld. Sjálfstæðisflokkurinn er grímuklæddur kapitalismi, ósvífinn og tillitslaus gagnvart þeim sem minna mega sín. Hann hefur glæst útlit, auðmagnið og sérfræðinga í blekkingum. Til að kljást við slíkan flokk þarf mann- eskju með persónu- leika og hjá Alþýðu- flokknum hafa ófáir koðnað undan þungan- um nema Jóhanna Sig- urðardóttir. Þeir hafa gripið fyrsta tækifæri til góðrar stöðu. Kratar eru svo úti á þekju að þeir halda að framsóknarmaðurinn Helgi Pétursson sé jafnaðarmaður. Enn einu sinni sýndi Guð- mundur Árni, sá ann- ars ágæti maður, dóm- greindarleysi í virkj- unardekri sínu og hef- ur örugglega dæmt sig úr leik sem foringja. Rannveig, Margrét og Svanfríður hafa staðið sig sæmilega og Össur, sá málglaðasti og trúlega skemmti- legasti, hefur ööru hvoru vakið hlátur i þingtnu en það nægir ekki til að vit sé í að gera hann að for- ingja Samfylkingarinnar ef hún á ekki að verða gamli litli flokkur- inn með fallega nafnið. Ef klíkumar innan sameining- arflokkanna eiga einar að kjósa flokksformann þá á Jóhanna enga möguleika en hún sigrar ef óbreyttir félagar eru hafðir með. Þjóðin vill Jóhönnu og án hennar verður Samfylkingin litill áhrifa- laus flokkur, dæmdur til útlegðar. Albert Jensen „Össur, sá málglaöasti og trúlega skemmtilegasti, hefur ööru hvoru vakiö hlátur í þinginu en þaö næg- ir ekki til að vit sé í aö gera hann aö foringja Samfylkingarinnar ef hún á ekki aö veröa gamli litli fíokkurinn meö fallega nafniö.u Kjallarinn Albert Jensen trésmiöur Með og á móti Á að leyfa rekstur heilsu- hótels í hlíðum Reykjafjalls í Ölfusi? Mikiö hefur veriö rætt um áætlanir Knúts Bruun um að reisa lúxusheilsu- hótel í Ölfusi. Skoöanir manna eru skiptar um hvort vilyröi fyrrverandi landbúnaöarráöherra um leigurétt sé gilt og hvort reisa eigi heilsuhótel þarna yfirleitt. Vítamínsprauta fyrir bæjarfélagið „Sem aðili í ferðaþjónustu í Hveragerði fagna ég framkominni hugmynd Knúts um heilsuþorp í Ölfusi við Hveragerði. Lengi hefur verið rætt um að gera Hvera- gerði að alþjóð- legum heilsubæ og stefnumark- andi ákvarðanir verið teknar þar um. Nú, þegar stórhuga hug- mynd hefur komið fram, tel ég að þeir aðil- ar, sem málið varðar, eigi að sameinast um að leysa þau ágrein- ingsmál sem hafa komið upp varð- andi þá landspildu sem fyrirhug- að er að nota undir heilsuþorpið. Það má vera hverjum manni ljóst að verði þessi hugmynd að veru- leika er það vítamínsprauta fyrir bæjarfélagið og margfeldisáhrif mikil í verslun og ferðaþjónustu á svæðinu. Hlutir eins og frárennsl- ismál, gatnakerfi og annað sem hefúr veriö fundið þessu til for- áttu eru aðeins óleyst verkefni sem þarf þá að hraða. Ég get ekki skilið að nokkur maður sé á móti þessu, það þarf aðeins að leysa nokkur formsatriði og hefjast síð- an handa.“ Svæðið er dýr- mæt náttúruperla „Ég vil undirstrika að Garð- yrkjuskólinn er ekki á móti hug- myndum um heilsuhótel. Þvert á móti finnst mönnum hugmyndin góð og gott dæmi um vist- væna stóriðju. Það sem Garð- yrkjuskólinn er á móti er stað- arvalið og það af tveimur ástæðum. Skól- inn þarf á öllu sínu landi að halda m.a. fyrir tilraunir og verknám fyrir væntanlega skógræktarbraut skól- ans sem verður sett á laggirnar næsta haust. Hin meginástæðan er að umrætt svæði er dýrmæt útivistar- og náttúruperla fyrir alla Hvergerðinga og ölfusinga og á að byggja upp sem slíkt. Þetta er hluti af lífsgæðum íbúa þessa svæðis sem ekki er hægt að fóma, sérstaklega þar sem landrými er nóg í næsta nágrenni fyrir fyrir- hugað heilsuhótel. Lífsgæði sem þessi verða sífellt verðmætari í framtíðinni. Hér má ekki fórna meiri hagsmunum fyrir minni. Ég hef ekki trú á öðru en að menn komist að ásættanlegri niðurstöðu um þetta mál, sérstaklega þar sem allir aðilar styðja hugmynd Knúts Bruun sem slíka." -eh, Hveragerði Sveinn Aðalsteins- son, skólameistari Garðyrkjuskóla rík- isins. Arngrímur Baldurs- son, framkvæmda- stjóri Ferðaþjón- ustu Suðurlands. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist í stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á Netinu. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni á stafrænu formi og í gagnabönk- um. Netfang ritstjórnar er: dvritst@ff.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.