Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 32
Troopor isuzu 159 hestöfl Sjálfskiptur Bflhelmar ehf. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 t Karl Karlsson. Fórst í flugslysinu: Sá hann síðast í níræðisaf- mælinu mínu 'ym - segir amma hans „Ég sá hann síðast þegar hann kom hingað heim í níræðisafmælið mitt fyrir þremur árum,“ sagði Hansína Jónsdóttir í morgun um barnabarn sitt, Karl Karlsson, sem var meðal þeirra sem fórust þegar farþegaþota Alaska Airlines hrapaði í Kaliforn- íuflóa í fyrrinótt. 88 farþegar voru um borð í vélinni þegar hún fórst og með Karli var Carol eiginkona hans en þau voru að koma úr fríi í Mexíkó þar sem þau héldu upp á afmæli sín. 75» „Karl flutti til Bandaríkjanna 10 ára gamall með foreldrum sínum og bjó þar síðan. Hann starfaði sem lög- regluþjónn í San Francisco en var kominn á eftirlaun 51 árs gamall. Hann átti þrjú börn, tvær dætur og einn son. Þau bjuggu öll í Petaluma sem er skammt norðan við San Francisco," sagði Hansina Jónsdóttir, amma Karls, í morgun. Þota Alaska Airlines var af gerð- inni MD-83 og var á leiðinni frá Puerta Vallarta i Mexíkó til San Francisco þegar hún hrapaði í sjóinn rétt norðan við alþjóðaflugvöllinn í Los Angeles. Vitni bera að nef vélar- innar hafi snúið beint niður þegar hún steyptist í sjóinn. Strætisvagnstjóri missti stjórn á vagni sínum í Tryggvagötu upp úr hádegi gær. Ók hann yfir stööumæli og steyptan kant og lenti loks á kyrrstæöri mannlausri bifreiö nokkra metra frá Bæjarins bestu þar sem menn hámuöu í sig pylsur. Enginn slasaöist en fáir voru í vagn- **vinum. DV-mynd S Mikil ólga og óvissa meðal starfsmanna Landssímans: Suðurnes: Pilts leitaö Formleg leit hófst á miðnætti að 18 ára pilti úr Garöinum. Hann heitir Davíð Þór Kristinsson og síðast sást til ferða hans á mánudagskvöld. Hjálparsveitir hófu leit á miðnætti sem fyrr sagði, og er aðaileitarsvæðið til að byrja með í nágrenni Garðsins. Davíð Þór er 185 cm á hæð, ljóshærð- ur og stuttklipptur með skegg. Hann var klæddur í svarta úlpu með drapp- lituðum röndum, í hvítum bol, bláum eða gráum gallabuxum og svörtum skóm. Hjá lögreglunni í Keflavík feng- ust þær upplýsingar í morgun að um fjölmenna leit væri að ræða og leitar- mönnum fjölgaði stöðugt. Þeir sem hafa orðið varir við ferðir Davíðs Þórs eftir kl. 21.30 á mánudag eru beðnir um að hafa samband við lögreglu. -gk Þrír volgir Margir hafa sýnt áhuga á að kaupa af hlut þeim sem Þorsteinn Vilhelms- son hefur selt í Samherja. Samkvæmt heimildum DV eru einkum þrír aðilar sem eru að vinna að því að kaupa bréf. Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings, vildi í morgun ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að nokkrir hefðu sýnt áhuga á kaupun- um en ekkert væri frágengið. -JSS Kona um fertugt lést í hörðum árekstri tveggja bifreiða við Kúageröi á Reykjanesbraut í gærmorgun. Konan var flutt meö þyrlu á Sjúkrahús Reykjavíkur en var úrskuröuö látin þegar þangaö var komiö. Ökumaður hinnar bifreiöarinn- ar slasaöist ekki alvarlega. Reykjanesbraut var lokuö í um tvær klukkustundir vegna þessa. DV-mynd S Uppsagnir og tilfærslur Ólga og óvissa ríkir nú meðal starfsmanna Landssímans vegna tíðra uppsagna og tilfærslna milli starfa á síðustu mánuðum. Við- mælendur DV úr röðum starfs- manna gagnrýna aðferðir við upp- sagnimar, sem þeir segja í sumum tilvikum harkalegar. Þess séu dæmi að starfsfólki í veikindaleyfi hafi verið sagt upp. Einnig fólki með margra ára starfsaldur að baki. Þegar það hafi leitað skýr- inga, hafi svarið einfaldlega verið „skipulagsbreytingar". Þá séu þess dæmi að fólk hafi verið flutt til í störfum. Það hafi jafnvel verið gert þannig að viðkomandi hafi verið gefinn kostur á tvennu, að fara í annað starf eða hætta. Tilfærslan hafi valdið því að menn hafi lækk- að i launum, tapað réttindum, auk þess sem einhverjir þeirra hafa verið fluttir milli stéttarfélaga. Upppsagnir starfsfólks hjá Lands- símanum hafa verið tíðar að mid- anfömu og t.d. var a.imk. tíu manns sagt upp störfum í síðustu viku. Sumir starfsmanna sem DV ræddi við vildu ekki koma fram undir nafni, því þeir sögðust óttast að vera „frystir" eða hreinlega látnir „fjúka“. „Ég hef ákveðið að snúa mér að Veðrið á morgun: Rigning sunnan og vestan til Á morgun verður sunnan- og suðvestanátt, 8-13 m/s með slyddu og síðan rigningu sunnan og vestan til en hægari um landið norðanvert og lengst af þurrt norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 0 til 5 stig. Veðrið í dag er á bls. 37. Landssíminn á Sölvhólsgötu. öðru,“ sagði Sigurður Pétursson, sem unnið hefur hjá stofnuninni á áttunda ár. Honum var sagt upp um áramót en hann vinnur á lager. Sig- urður var veikur þegar honum var sagt upp og því þurfti hann að sækja uppsagnarbréfið á pósthúsið. Uppsögnin kom honum algjörlega í opna skjöldu. Hann hyggst söðla um og hefja nám. „Ég var fluttur milli stéttarfé- laga,“ sagði Ingvar Már Pálsson, nú- verandi vaktmaður. Hann var áður birgðavörður, en var færður til og er ekki ánægður með það: „Ég tap- aði réttindum og lækkaði í launum við þetta,“ sagði Ingvar Már sem hefur unnið hjá Landssimanum í 22 ár. „Okkur fmnst fúlt hvemig stað- ið var aö þessu,“ sagði Ingibjörg Grétarsdóttir, ein ræstitækna Landssímans á Sölvhólsgötu sem fengu uppsagnarbréf í gær. „Þegar við mættum til vinnu sl. föstudag „Við erum alltaf að segja upp fólki og ráða fólk eins og gengur,“ sagði Ólafur Stephensen, forstöðu- maður upplýsinga- og kynningar- mála Landssímans, við DV. Ólafur sagði að flestar uppsagn- irnar tengdust því að Landssiminn væri að flytja starfsemi sína úr hús- næði á Sölvhólsgötu 11. Hún færi að mestu leyti inn í Múlastöð þar sem fyrir væri húsvarsla, mötuneyti o.fl. Vegna flutningsins hefði orðið að segja upp húsvörðum, starfsfólki í mötuneyti og á lager, um það bil 10 manns. „Landssíminn er 1300 manna fyr- irtæki og þar eru miklar breytingar í gangi. Þróunin hefur verið sú að við höfum fremur verið að bæta við okkur starfsfólki heldur en hitt. Hins vegar hafa orðið það miklar fengtun við boð um að mæta á fund nk. mánudag. Þá fengum við að vita að uppsagnarbréf væri á leið- inni og að það ætti að bjóða ræst- ingamar út.“ -JSS breytingar á starfseminni að ekki er lengur þörf fyrir sum störf,“ sagði Ólafur, sem kvaðst hafna því að notaðar væru harkalegar aðferð- ir við uppsagnir. Hann sagði að í tveimur tilvikum hefði fólk færst úr Rafiðnaðarsambandinu yfir í Eflingu. í báðum tilvikum hefði fremur verið reynt að finna störf handa viðkomandi innan fyrirtæk- isins en að segja þeim upp. „Það er alitaf erfltt að segja fólki upp og það skapar yfirleitt sárindi. En rekstur fyrirtækja breytist og það getur haft uppsagnir í för með sér. Hér hafa ekki verið neinar fjöldauppsagnir og ekkert nema eðlileg þróun á rekstrinum." Jóhannes Rúnarsson, starfs- mannastjóri Landssímans, kaus að tjá sig ekki um málið. Alltaf að segja upp SYLVANIA Heitur matur í hádegjnu á góðu verdi. Bæjarlind 18 - 200 Kópavogi sími 564 2100 Netfang: midjan@mmedia.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.