Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 Viðskipti i>v Þetta helst: Viðskipti á VÞÍ 1.526,4 m.kr. Mest með húsbréf, 778 m.kr. ... Hlutabréf, 342 m.kr. ... Mest með bréf Granda, 59 m.kr., og hækkuðu bréfin um 9,5% ... Skýrr hækkaði um 7,93% ... SH hækkaði um 6,2% ... Samherji hækk- aði um 4% ... Marel lækkaði um 2,3% ... Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,48% og er nú 1.701,6 stig ... Þorsteinn Vilhelmsson selur hlut sinn í Samherja - samtals 21,6% hlutur á þrjá milljarða Þorsteinn Vilhelmsson og fjöl- skylda hans og einkahlutafélagið Ránarborg hafa selt Kaupþingi hlut sinn í Samherja á Akureyri, samtals 21,6% hlut. Miðað við gengi Sam- herja í gær er markaðsvirði félags- ins 13.912,5 milljónir króna. Af því má álykta að Þorsteinn hafl fengið rúmlega þrjá milljarða fyrir sinn hlut i félaginu. Þorsteinn sendi í gær frá sér yflr- Tæknival selur í Axi hugbúnað- arhúsi Tæknival hefur selt allan hlut fyrirtækisins í Axi, hug- búnaðarhúsi, hf. Um er að ræða 25% hlut í fyrirtækinu á geng- inu 1,9 en nafnverð bréfanna er 75 milljónir og söluverðið því rúmar 140 milljónir króna en forkaupsréttur hluthafa í Ax er á bréfunum. „Þessi ákvörðun er í sam- ræmi við stefnu Tækni- vals um meg- ináherslu á sölu tækni- búnaðar, staðlaðra hug- búnaðar- lausna í sam- starfi við við- urkennda að- ila eins og Microsoft, Cisco, Novell o.fl. og sérþekkingu i flutningi stafrænna gagna um net (IP), sem tekur til hljóðs, myndar og texta. Tæknival hf. er í dag eina íslenska tölvufyrirtækið með viöurkenningu sem „Senior Partner“ hjá Microsoft og hlýt- ur á næstu vikum stöðu „Silver Partners" hjá Cisco. Þá hefur Tæknival tekið að sér rekstur símaþjónustuvers fyrir Microsoft á íslandi. Sérstaða fyrirtækisins í IP-umhverfl, sölu vandaðra hátæknilausna og búnaðar til fyrirtækja og stofnana, auk öflugs sölukerfis á heimilismarkaði, boðar áhugaverða framtíð fyrir Tæknival," segir tilkynningu frá félaginu. Arni Sigfússon, framkvæmda- stjóri Tæknivals. Duisenberg með áhyggjur af evrunni Wim Duisen- berg, bankastjóri Seðlabanka Evr- ópu, lýsti í gær áhyggjum af geng- isþróun evrunnar gagnvart dollar þar sem þróunin gæti aukið verð- bólguþrýsting á evrusvæðinu. fjár- málaráðherrar evru-rikjanna hafa undanfarið keppst við að tala gengi evrunnar upp með því að benda á batnandi stöðu efnahagsmála og góð hagvaxtarskilyrði. lýsingur þar sem segir: „þar sem ég hef látið af störfum hjá Samherja og önnur verkefni í sjávarút- vegi verða tímafrek á næstunni tókum ég og fjölskylda mín þá ákvörð- un í gær að selja Kaup- þingi 21,6% eignarhluta okkar í Samherja hf.“ Mun fjárfesta í sjáv- arútvegi „Að baki þessari, ákvörðun liggja fyrst og fremst hag- Þorsteinn Vilhelmsson. kvæmnis- sjónarmið en einnig markast þau af því viðhorfl að góður sam- starfsandi þurfi að rikja inn- an hlutafé- laga. Það er öllum aðilum fyr- ir bestu að hluthöfum og starfsfólki Samherja velgengni á komandi árum. Ákvörð- un okkar um að selja hlutinn í Sam- herja er á engan hátt vísbending um að ég sé hættur afskiptum af rekstri sjávarútvegsfyrirtækja. Að undan- fömu hef ég, fjölskylda mín og fyrir- tæki okkar, Ránarborg ehf., fjárfest í nokkrum sjávarútvegsfyrirtækj- um, m.a. í Hraðfrystihúsinu-Gunn- vöru, Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna, Fiskeldi Eyjafjarðar og verð- ur eftir atvikum framhald á því næstu misseri," segir Þorstein Vil- helmsson. hafa hreinar línur og ég óska stjóm, Arsvelta Thermo Plus 500 milljónir - opnar söluskrifstofur í 12 löndum Frysti- og kælibúnaðarfyrirtækið Thermo Plus í Reykjanesbæ, sem hóf framleiðslu á siðasta ári, hefur opnað skrifstofu í Bretlandi og stefnir að því að vera með söluskrifstofur í tólf lönd- um utan íslands fyrir árslok. Fram kemur í frétt frá fyrirtækinu að sölumál þess hafa gengið vel og hafa nú þegar tekist samningar um sölu á frysti- og kælitækjum til stórra breskra verslunarkeðja á borð við Sainsbury’s, Tesco, Iceland og fleiri. Þetta góða gengi Thermo Plus gerir það að verkum að starfsmönnum verður fjölgað úr 20 í 50 á næstunni. Ársvelta fyrirtækisins árið 2000 er áætluð ríflega hálfur milljarður. Kristinn Jóhannesson er nýráðinn framkvæmdastjóri framleiðslusviðs, en hann mun starfa að uppbyggingu Thermo Plus í nánu samstarfl við framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Tom Roseingrave. Bjartsýni Thermo Plus á öran vöxt í framtíðinni er byggð á fyrrgreindum sölusamningum og umfangsmiklum markaðsrannsóknum. Búist er við í það minnsta 10% árlegum vexti heimsviðskipta með kælitæki næsta áratuginn. Sérstaklega er talið að þessi aukning muni spretta af við- skiptum við þróunarríkin. Einnig munu strangari kröfur um meðhöndl- un á matvælum og auknar kröfur um umhverfisvæn kælitæki ýta undir endurnýjun á næstu árum. Vörur Thermo Plus uppfylla ströngustu staðla um vemdun umhverflsins og fyrirtækið hefur einsett sér að vera leiðandi á þvi sviði. Ástæða þess að eigendur Thermo Plus völdu verk- smiðjunni stað á íslandi eru nokkrar, m.a. staðsetning íslands, aðild þess að evrópska efhahagsvæðinu og að útlit fyrir að EFTA-samningur við Kanada verði undirritaður á næsta ári. Thermo Plus Europe á íslandi hóf framleiðslu á síðasta ári. Undirbún ingur og uppbygging verksmiðjusvæð is fyrirtækisins í Reykjanesbæ hafði þó staðið yfir lengur eða allt frá 1998. Viðskiptavinir fyrirtækisins á Evr ópumarkaði eru til dæmis landflutn ingafyrirtæki, stórmarkaðir, heildsöl ur með matvörur, fiskiðnaður, veit ingahúsakeðjur og fjármögnunarleig ur. Nýbreytni í miðlun fjárhagslegra upplýsinga Verðbréfaþing íslands hf. og Verkfræðihúsið hf. hafa gert meö sér samkomulag þess efnis að Verk- fræðihúsið taki að sér að þróa og út- færa kerfi fyrir Verðbréfaþing til að halda utan um og dreifa tilkynning- um frá útgefendum skráðra verð- bréfa til áskrifenda slíkrar þjón- ustu. Sérstök áhersla verður lögð á upplýsingar úr ársreikningum og árshlutauppgjörum. Ljóst er að töluverð vinna fer í það hjá einstökum aðilum á mark- aðinum að halda utan um ársreikn- inga, milliuppgjör o.fl. upplýsingar frá skráðum félögum. Reikna má með að margir þessara aðila muni vilja gerast áskrifendur að þjónust- unni og fá aðgang að gagnagrunni í þeim tilgangi að nýta upplýsingarn- ar til rannsókna og greiningar- starfa. Stefnt er að þvi að kerflð geti einnig nýst Verðbréfaþingi við ut- anumhald á tilkynningum frá útgef- endum þegar tekið verður upp nýtt viðskipta- og upplýsingakerfi. í þeim viðskiptakerfum sem Verð- bréfaþing hefur einkum haft til skoðunar eru tilkynningar frá útgef- endum yflrleitt ekki birtar með þeim hætti sem gert í kerfi Verð- bréfaþing íslands hf. Upplýsingun- um er því miðlað til markaðarins með öðrum hætti, t.d. í gegnum upp- lýsingaveitur sem gert hafa samn- ing við kauphöllina. Stefnt er að því að hefja vinnu við þróun kerfisins á næstu dögum og verður óskað eftir samráði við aðila á markaði varðandi uppbyggingu kerfisins. Tækniheimur opnaöur I gær opnaði Frosti Bergsson, stjómarformaður Opinna kerfa hf., nýjan vef á Vísiis tileinkaðan tækni- og upplýsingamálum. Tækniheimur er nafn vefsins og á honum gefur að líta fréttir, umræður um tölvu- og upplýsingamál, þjónustuborð þar sem gestir geta skipst á upplýsingum, pistil Nördsins og þá verður gestum Tækniheims boðið upp á persónulega aðstoð færustu sérfræðinga á hverju sviði tölvutækninnar. Fréttimar i Tækniheimi er hægt að fá flokkaðar eftir því hvaða svið þær snerta. Þannig verður hægt að kalla fram á skjáinn hjá sér viðskiptafréttir úr heimi tölvunnar og annarra tæknitóla, fréttir sem sérstaklega taka til hugbúnaðar og vélbúnaðar, svo dæmi séu tekin. Þá blasa stöðugt við á þessum nýjasta vef Vísis.is upplýs- ingar um gengi skráðra hlutabréfa í tölvufyrirtækjum. Stærsta auglýsingaherferö ísíensks fyrirtækis Stærsta auglýsingaherferð íslensks fyrirtækis í alþjóðlegum fiölmiðlum hófst í gær á fréttasjónvarpsstöðinni CNN þegar imyndarauglýsing Flug- leiða birtist í fyrsta sinn á bandarísku útsendingarsvæði CNN. Auglýsinga- herferðin er hluti af viðtækri ímynd- arherferð Flugleiða á alþjóðamarkaði sem einkum er ætlað að fjölga ferða- mönnum á viðskiptafarrými og ferða- mönnum á leið til íslands. Auglýs- ingaherferðin á CNN er ein fjöl- margra herferða sem Flugleiðir hafa hleypt af stokkunum á markaðssvæð- um sínum síðan ný ímyndarstefna og nýtt útlit Flugleiða var kynnt á haust- mánuðum síðasta árs. „Við viljum að þessi auglýsingaherferð, sem og aðrar auglýsingaherferðir, endurspegli þá ímynd að Flugleiðir séu framsækið, norrænt flugfélag sem býður upp á fljótustu leiðina yflr Atlantshafið," sagði Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða. Ókeypis viðskipti á Wali Street Landsbréf hafa ákveðið að bjóða ókeypis viðskipti á Wall Street í gegn- um Kauphöll Landsbréfa dagana 1. febrúar til 10. febrúar. Það þýðir að það kostar ekkert að selja eða kaupa hlutabréf í einhveiju þeim þúsunda fyrirtækja sem skráð eru á Nasdaq- kauphöllina á Wall Street með verð yfir 2 dollara á hlut Hlutafé í Bláa lóninu seldust upp Sölu á nýju hlutafé í Bláa lóninu hf. er lokið. Boðnar voru 100 milljónir króna, að nafiivirði á genginu 2,1. Nýttu allir stærri hluthafar félagsins sér forkaupsrétt sinn og var rúmlega 40% umfram eftirspum eftir hlutafé hjá forkaupsréttarhöfum, auk þess sem fleiri innlendir og erlendir aðilar sýndu áhuga á kaupum. Mbl.is greindi frá. Islensk erfðagreining fær viðurkenningu í Davos íslensk erfðagreining fær sér- staka viðurkenningu World Economic Forum og Deloitte Touche Tohmatsu (DTT) fyrir frumkvöðlastarf á þrítugasta árs- fundi alþjóðasamtakanna Efna- hagsráðstefnunnar í Davos í Sviss sem stendur dagana 27.-31. janúar. Fyrirtækið er meðal fimmtíu fram- sækinna fyrirtækja víðs vegar úr heiminum sem fá viðurkenningu fyrir að vera i fremstu röð í þekk- ingarsköpun. I frétt frá íslenskri erfðagrein- ingu segir að fyrirtækið hafi orðið fyrir valinu vegna mikilvægs brautryðjendastarfs og framlags fyrirtækisins tfi efnahagslegra framfara á grundvelli nýrrar tækni. Kári Stefánsson, forstjóri ís- lenskrar erfðagreiningar, tekur við viðurkenningunni fyrir hönd fyrir- tækisins. Kári situr einnig tvær málstofur forráðamanna leiðandi og ört vax- andi fyrirtækja þar sem hlutur vís- inda og nýrrar tækni í alþjóða hag- vexti á 21. öld verður til umræðu. Þar verða saman komnir fulltrúar alþjóðlegra fyrirtækja á upplýs- ingasviði eins og Yahoo!, Sim Microsystems, Novell og Red Hat Software. Ársfundur World Economic For- um er alþjóðlegur viðburður þar sem stefnt er saman þjóðarleiðtog- um, leiðandi mönnum í viðskipt- um, vísindum og á sviði menning- ar og mannúðar. Að þessu sinni er ársfundurinn helgaður umræðum um afleiðingar vaxandi alþjóða- væðingar, en þrátt fyrir aukna markaðsvæðingu og hagvöxt hefur auði aldrei verið jafn misskipt í veröldinni. Meðal þeirra sem sitja ársfundinn að þessu sinni má nefna Bill Gates, eiganda Microsoft, Madeleine Albright, ut- anrikisráðherra Bandaríkjanna, Mbeki, forseta Suður-Afriku, og Yasser Arafat, forseta Palestínu- manna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.