Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
13
Fréttir
Hinar félagslyndu Bessastaöabeljur:
í sátt og
samlyndi í
hjarðfjósi
Kýmar á Bessastöðum lifa í sátt
og samlyndi í nýja hjarðfjósinu. Á
Þorláksmessudag urðu talsverð um-
skipti í lífi kúnna á Bessastöðum á
Heggstaðanesi í Húnaþingi vestra.
Þá fengu þær að flytja í nýja fjósið
sem byrjað var að byggja á liðnu
vori.
Þetta er hjarðfjós og nú hafa þær
Iðunn, Pikkólína og hinar kusurnar
félagsskap hver af annarri, en marg-
ir sérfræðingar vilja meina að fé-
lagslyndi sé kúnum eðlislægt eins
og fleiri dýrategundum. Það eru ein
20 ár síðan hjarðíjós fóru að ryðja
Borgnesingar og
Skagamenn bít-
ast um Kára
DV, Borgarbyggð:
Nýlega var íslenskri erfðagrein-
ingu veitt starfsleyfi fyrir gagna-
grunn á heilbrigðissviði og sam-
kvæmt heimildum DV verður fyrir-
tækið með nokkur útibú á lands-
byggðinni.
Bæjarráð Borgarbyggðar fjallaði
um þetta mál á fundi sínum í síð-
ustu viku og var svohljóðandi bók-
un samþykkt samhljóða: „í fram-
haldi af útgáfu starfsleyfís fyrir
gagnagrunn á heilbrigðissviði og þá
stefnumörkun sem þar kemur fram
lýsir bæjarráð Borgarbyggðar yfir
ánægju sinni með áhuga íslenskrar
erfðagreiningar á atvinnuuppbygg-
ingu á landsbyggðinni. Fullur vilji
bæjarráðs er til að vinna að því að
hluti þessarar uppbyggingar verði í
Borgarbyggð.11
DV hefur áreiðanlegar heimildir
fyrir þvi að íslenskri erfðagreingu
hafi verið boðið húsnæði Lands-
banka íslands á Akranesi í heima-
bæ heilbrigðisráðherra. Nágranna-
bæimir eru því famir að bítast um
þetta stóra fyrirtæki. -DVÓ
sér til rúms víða í Evrópu og eru
orðin allsráðandi þar að sögn Jó-
hanns Magnússonar, bónda á Bessa-
stöðum, en það er reyndar húsfreyj-
an þar á bæ sem ekkert síður telst
fyrir búinu, Guðný Björnsdóttir, en
bæði eru þau hjón með kandídats-
próf í búfræði frá Hvanneyri. Á bás-
um kúnna eru mottur, 10 sentí-
metra þykkar og eru þær með
gúmmíspóna-fyllingu sem líkir eftir
mjúkleika hagans, þannig að það fer
vel um þær á básunum. Flórarnir
eru tveggja og þriggja metra breiðir
og um þá fara fjórum sinnum á sól-
arhring sköfur sem hreinsa allan
skít út i enda hússins þar sem hann
fer niður í þró og þar er annað
sköfukerfi sem færir húsdýraáburð-
inn í haughúsið undir fjárhúsunum
sem eru rétt við hliðina. Kýrnar
hafa aðlagast tækninni furðu fljótt.
Hvað tekur fjósið margar kýr og
hvenær verðið þið búin að fylla
það?
„Það tekur um 35 kýr og ég spái
þvi að við verðum búin að fylla það
Þær löunn og Pikkólína og hinar kýrnar kunna vel viö sig og hafa aðlagast nútíma fjósatækni á undrastuttum tíma.
DV-myndir Þórhallur
eftir þrjú ár. Við fáum það mikið af
kvígukálfum í uppeldi að það á al-
veg að ganga.“
- En þú þarft væntanlega að bæta
við mjólkurkvótann og er það ekki
kostnaðarsamt ofan á fjósbygging-
una?
„Við höfum svo sem sloppið
sæmilega varðandi bygginguna. Út-
lagður kostnaður er um 12 milljónir
króna, en eigin vinnu ásamt vinnu-
framlagi nágranna og vina og
vandamanna er hægt að meta á um
þrjár milljónir króna. Já, við reikn-
um með að þurfa að þrefalda mjólk-
urkvótann frá því sem hann er
núna,“ sagði Jóhann á Bessastöð-
um. -ÞÁ
Þrenna hjá FISK
Á aðalfundi Fiskiðjunnar Skagfirð-
ings nýlega vék fundarstjórinn og
stjórnarmaðurinn Stefán Gestsson á
Arnarstöðum að því að um þessar
mundir væru þrenns konar tímamót
hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi. Þau eru
að um þessar mundir eru 10 ár frá þvi
fyrirtækið var stofnað og rétt rúm
þrjátíu ár frá þvi forveri þess, Útgerð-
arfélag Skagfirðinga, var stofnað. Þar
stóðu m.a. að málum sveitarfélögin
með Sauðárkróksbæ í broddi fylking-
ar en nú þessa dagana er sveitarfélag-
ið Skagafjörður einmitt að selja hluta-
bréf sin í FISK þannig að þátttöku
sveitarfélaganna í félaginu er lokið í
bili að minnsta kosti.
Við þetta tækifæri sagði Herdís
Sæmundardóttir, formaður byggða-
ráðs, það mjög ánægjulegt hve rekst-
ur FISK gengi vel um þessar mundir
og það væri orðið öflugt fyrirtæki.
Bæjarstjórn Sauðárkróks hefði á sín-
um tíma þótt full ástæða til að styðja
við fyrirtækið þegar ekki áraöi eins
vel í sterfsemi þess og nú, en núna
væri rétt að sveitarfélagið drægi sig
út og þeir peningar sem í það hefðu
verið lagðir ávöxtuðu sig vel og
kæmu sér nú vel fyrir sveitarsjóðinn.
Við þessar breytingar á eignaraðild
urðu einnig breytingar á stjórn Fisk-
iðjunnar Skagfirðings. Hún er nú
þannig skipuð: Þórólfur Gíslason,
Stefán Guðmundsson, Stefán Gests-
son, Sigurjón Rafnsson og Pétur Pét-
ursson.
-ÞÁ
Jóhann Magnússon í mjaltabásnum þar sem átta kýr eru mjólkaöar t einu í
þægilegri vinnuhæö.
Kvennadeild SVFÍ á Akranesi 60 ára 21. janúar
Ótrúlega slungnar að afla fjár
DV, Akranesi:
Slysavamadeild kvenna á Akra-
nesi varð 60 ára þann 21. janúar
síðastliðinn. Á stofnfundinn mættu
118 konur og fyrsti formaður deild-
arinnar var kjörinn Lovísa Lúð-
víksdóttir. Deildin hefur frá upp-
hafl starfað að hinum ýmsu slysa-
vamamálum. Einnig hafa fjárafl-
anir verið stór hluti af starfsemi
deildarinnar og þar hafa konumar
sýnt ótrúlega getu í að drífa upp
fjármuni. „Við höfum einnig reynt
að styðja vel við bakið á björgunar-
sveitinni hér á Akranesi í gegnum
árin,“ segir Anna Kristjánsdóttir,
formaður deildarinnar.
„Deildin hefur undanfarin ár
verið að byggja upp húsnæði
ásamt Björgunarsveitinni Hjálp-
Anna Kristjánsdóttir, formaöur
Kvennadeildar SVFÍ á Akranesi.
Mynd Daníel
inni að Akursbraut 13 hér í bæ.
Aðstaöan þar er orðin mjög góð og
er það mikil lyftistöng fyrir félags-
starfið. Regluleg starfsemi deildar-
innar, fundir, fjáraflanir, félags-
vistir og fleira er frá því í septem-
ber ár hvert og fram í byrjun júní
eða á sjómannadaginn. Þá erum
við með kaffisölu sem er stærsta
fjáröflunin okkar. Nú síðustu ár
hefur deildin tekið þátt í þeim
verkefnum sem Slysavamafélag ís-
lands hefur staðið fyrir, svo sem
umferðarkönnunum og könnun á
notkun á öryggisbúnaði bama í
bílum og fleira. Það er von mín að
slysavarnastarf eigi eftir að eflast
enn frekar hér á Akranesi og í því
sambandi langar mig að hvetja
konur til að koma og kynna sér
starfsemi deildarinnar. Að lokum
langar mig að þakka öllum þeim
sem hafa stutt við bakið á okkur i
gegnum árin,“ sagði Anna Krist-
jánsdóttir.
-DVÓ
Félagsmenn í Bifreiðastjórafélaginu Sleipni
Almennur félagsfundur verður haldinn í sal
Ferðafélagsins, Mörkinni 6,
mánudaginn 14. febrúar, kl. 19.30.
Fundarefni: Kröfugerð fyrir komandi
kjaraviðræður.
Önnur mál.
Stjórnin