Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 4
éttir
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
Nýr leikhússtjóri gengur óhræddur inn í Borgarleikhúsið:
Enginn fastráðinn
um aldur og ævi
- segir Guðjón Pedersen
„Það á margt eftir að breytast í
Borgarleikhúsinu. Ég ætla að nota
helgina til að hugsa um framtíð-
ina,“ sagði Guðjón Pedersen leik-
stjóri sem í gær var ráðinn leikhús-
stjóri Borgarleikhússins.
Það var í nógu að snúast hjá Guð-
jóni í gær; nýtt starf, frumsýning í
Þjóðleikhúsinu i gærkvöldi og svo
flaug hann til Genúa á Ítalíu í morg-
un til að halda þar fyrirlestur um ís-
lenska leiklist fyrir ítalska stúd-
enta. Aðspurður sagði Guðjón það
Páll Baldvin:
Engin flétta
af minni
hálfu
„Það var engin flétta í gangi af
minni hálfu til að fá þetta starf. Ég
sótti um eins og hver annar um-
sækjandi og auðvitað í von um að fá
starfíð. Leikhúsráð tók sína ákvörð-
un alveg óbundið og stendur við
hana,“ sagði Páll Baldvin Baldvins-
son, formaður leikhúsráðs Leikfé-
lags Reykjavíkur, vegna ráðningar
Guðjóns Peder-
sens í stöðu
leikhússtjóra.
Páll Baldvin
segist fagna því
að Guðjón komi
til starfa í Borg-
arleikhúsinu.
„Ég hef átt gott
samstarf við
hann, bæði sem
leikara og leik-
stjóra. Ég hef
þekkt Guðjón í mörg ár og hann er
afar vænn drengur og fínn leikhús-
maður og ég veit að hann mun
sinna starfi sínu með miklum
sóma.“
- Það var haft eftir þér að þú
hefðir náð takmarki þínu í starfi
hjá íslenskra útvarpsfélaginu. Verð-
ur þú þar áfram eða muntu leita
annað nú þegar leikhússtjóramálið
er að baki?
„Starfsumhverf mitt hefur breyst
á síðustu vikum og mánuðum á
þann hátt aö aðstoðardagskrárstjóri
er kominn til starfa sem þýðir að ég
hef fengið næði til að sinna ýmsum
hlutum sem ekki hefur verið hægt
sökum anna. Það hefúr ekki verið
óskað eftir þvi að ég leiti mér að
vinnu annars staðar svo ég verð hér
áfram.“ -hlh
ljóst að sömu reglur varöandi
mannaráðningar ættu að gilda í
leikhúsum og í samfélaginu: „Það
eru núna 25 fastráðnir leikarar í
Borgarleikhúsinu og þeir geta ekki
gengið að því sem vísu að vera þar
fastráðnir um aldur og ævi,“ sagði
Guðjón.
- Ætlar þú þá að feta í fótspor
Viðars Eggertssonar, fyrrum leik-
hússtjóra, og hreinsa til í starfs-
mannahópnum?
„Það vinna fleiri en leikarar í
Borgarleikhúsinu og ég endurtek
bara að sömu reglur eiga að gilda
um starfsmannahald í leikhúsum og
annars staðar í þjóðfélaginu."
- Þú ert ekki hræddur við að
kasta þér út í þá ormagryfju sem
varð Viðari forvera þínum ofviða?
„Ég hef ekki enn séð neina orma-
gryfju í Borgar-
leikhúsinu og ég
er óhræddur,"
sagði nýi leikhús-
stjórinn.
Sem kunnugt er
hefur borgar-
stjórn fundað sér-
staklega um mál-
efni Borgarleik-
hússins og sett
fram kröfur um
breytt skipulag á
rekstri leikhúss-
ins. Um það segir
Guðjón Pedersen:
„Mér líst bara
vel á afskipti
stjómmálamanna
af leikhúsinu ef
eitthvað er þar að.
Guðjón Pedersen - óhræddur.
DV-mynd Hilmar Þór
Þetta skýrist allt
þegar ég hef þar
störf í næstu
viku.“
Þórhildur Þor-
leifsdóttir, fráfar-
andi leikhús-
stjóri, mun starfa
með arftaka sín-
um samkvæmt
samningi fram í
ágústmánuð en
Þórhildur æfir nú
og leikstýrir af
kappi söngleikn-
um „Kysstu mig
Kata“ sem settir
verður upp í
Borgarleikhúsinu
innan skamms.
-EIR
Páll Baldvin
Baldvinsson,
Búast má við miklum tilþrifum á bikarmótinu um helgina ef marka má þessa léttu æfingu hjá Magnúsi Jónssyni en
myndin var tekin uppi á Tungnahryggsjökli. DV-myndir hiá
Bikarmót í snjókrossi um helgina:
Söfnuðu snjó af götunum í brautina
- en þá tók að snjóa og það svo um munaði
DV, Dalvík:
Mótshaldarar bikarmótsins í snjó-
krossi, sem hefst í dag, laugardag, á
Dalvik, voru orðnir uggandi í vikunni.
Snjóleysið plagaði þá og var gripið til
þess ráðs að safna snjó af götum bæjar-
ins og sturta honum á svæðið við Stór-
hól en þangað var mótið flutt vegna
snjóleysis. Á miðvikudag var hins veg-
ar búið að snjóa og ljóst að of mikill
snjór yrði ef til vill vandamálið en ekki
öfugt.
Að sögn Jóns Emils Gylfasonar er
þetta í fyrsta skipti í langan tíma sem
vélsleðamót er haldið hér en fyrir all-
mörgum árum var haldið vélsleðamót
norðan við Hól. Jón segir að mikil
vinna hafi farið í undirbúning móts-
ins, skipulag og brautarlagningu og
um 30 starfsmenn þurfi á mótið sjálft,
eftirlitsmenn, dómara og tímaverði og
þá verður Björgunarsveitin á Dalvík
með vakt á svæðinu ef eitthvað kemur
upp á. Vélsleðafélag Ólafsfjarðar er
mótshaldari og hefúr undirbúningur
Borgarstjómarflokkur Sjálfstæðisflokksins:
Skoða Grand Rokk
- eigendur svara bréfi svefnvana íbúa
Skemmtistaðir í nágrenni
GRAND ROKK
GRAND ROKK
C 22 .
AriíÖgri
(liBlál barinn
„Ef rétt er að ekki hafi verið rétt að
áminningunni staðið þá verður að at-
huga þaö mál betur,“ sagöi Júlíus Víf-
Ul Ingvarsson, borgarfúlltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, við DV um áminningu þá
sem borgaryfirvöld hafa veitt veitinga-
staðnum Grand Rokk.
Málefni Grand Rokk komu tU um-
ræðu á fundi borgarstjórnarflokks
Sjálfstæðisflokksins í fyrradag. Ekki
var tekin nein ákvörðun í málinu,
enda beðið eftir upplýsingum sem
leitað hefur verið eftir hjá lögreglu og
heilbrigðiseftirliti.
Rekstraraðilar Grand Rokk hafa
gert athugasemdir við skýrslugjöf lög-
reglu og hávaðamælingar heilbrigðis-
eftirlits. „Þeir hafa haldið því fram að
þarna hafi ekki verið rétt að verki
staðið. Það er eðlilegt og sjálfsagt að
hlusta á það ef menn telja að svo hafi
ekki verið gert. Við erum að bíða eft-
ir upplýsingum um hvort það sé
hugsanlega staðreyndin. Ef svo er
verða menn auðvitað að endurskoða
ákvörðun sína.“
Július Vífill sagði einnig hafa komið
fram frekari mótmæli og ábendingar
íbúa Smiðjustigs 4, sem er við hliðina á
Grand Rokk. DV birti útdrátt úr því
bréfi fyrr í vikunni en þar kvað svefn-
vana fbúi m.a. hægt að mæla bassann
frá Grand Rokk á Richter í rúminu hjá
sér. Sigurður Hjaltested, einn eigenda
Grand Rokk, sagði við DV að hann
mundi senda svör við þeim atriðum sem
koma fram í bréfmu til borgarstjómar.
Málið verður tekið fýrir í borgarr-
ráði þegar umbeðnar upplýsingar
liggja fýrir. -JSS
?# fg
fɮS ff
Meöfylgjandi graf
sýnir skemmtistaöi
í næsta nágrenni viö
Grand Rokk. Þeir eru ýmist
opnir til kl. 3 eftir miðnætti eöa
lengur. Eins og sjá má ber þessi
borgarhluti meiri svip skemmti-
staöahverfis heldur en íbúöa-
hverfis.
riklö
(JjRauö vín
lon íslandus
Sþotllght
Byrjar vel
mótsins að mestu verið í höndum
heimamanna.
Keppt verður í tveimur flokkum,
vanir og óvanir, og hefst mótið kl. 13.
Einnig verður keppt í GPS-ratleik og ef
áhugi verður fyrir hendi verður létt
Tröllaskagaferð í boði. Keppendur
munu mæta við ESSO kl. 11 þar sem
sleðamir verða skoðaðir og kannað
hvort þeir séu löglegir, sem og hvort
ökumenn hafi tilskilin réttindi. -hiá
|;(JjTres locos
m
0Vegam6t TO
A meðal sjálfstæðismanna er um
það talað að Valgerður Sverrisdótt-
; ir byrji vel sem ráðherra þótt ekki
| hafi þótt sérlega gáfuleg kommentin í
Deiglunni um að olíu-
birgðir heimsins væru
á þrotum innan tíðar.
Því er haldið fram að
hún sýni með fram-
göngu sinni að hún
sé frambærilegri en
bæði Ingibjörg
Pálmadóttir og Siv
Friðleifsdóttir þótt
báðar hafi verið
framar í goggunarröðinni þegar kom
að ráðherradómi.
Óvænt uppákoma
Og meira af uppákomum í stríðinu
milli Islenska sjónvarpsfélagsins og
íslenska útvarpsfélagsins, Norður-
; ljósa og Suðurljósa. Á dögunum bauð
ÍÚ forsvarsmönnum
allra helstu auglýs-
ingastofanna til
j Englands. Tilgang-
|| ur ferðarinnar var
j að fylgjast með
j heimaleik l.iver-
jpool gbgn l.eeds
jog, eins og geng-
ur, að krækja í
fleiri auglýsing-
ar. Var búið að fá inni fyrir hóp-
inn í heiðursstúku Carlsberg, sem er
aðalstyrktaraöili Liverpool. Hins veg-
ar vildi ekki betur tU en svo að í
stúkunni voru staddir Ámi Þór Vig-
fússon og Kristján Ra Kristjánsson,
framkvæmdastjóri og fjármálastjóri
íslenska sjónvarpsfélagsins/Skjás
I eins. Munu þeir ekki hafa látið þetta
:tækifæri sér úr greipum ganga og
spjölluðu við auglýsingaforkólfana.
j Mun árangur þeirra ekki hafa verið
| miklu lakari en hinna. Kórónuðu þeir
síðan þessa óvæntu uppákomu með
| því að gefa hópnum Liverpooi-treyjur,
j rækilega merktar Skjá einum...
Ekki með þessum manni
Hrafn Gunnlaugsson er umdeild-
ur maður enda læðist hann sjaldan
með veggjum, hvorki í orði né æði. I
ákveðnum kreðsum er viðhorfið
gagnvart Hrafni hins
, vegar svo eitrað að
‘ 1 þar virðist þegjandi
samkomulag um að
Hrafn megi ekki ná
árangri á sínu
sviöi og blessun
lögð yfir öll ráð
sem notuð eru til
að gera á hlut
hans. Þetta kom upp í hug-
ann þegar fréttir bárust á öldum Ijós-
vakans um að fólk hefði gengið út af
Myrkrahöfðingjanum í Berlín vegna
ofbeldis og hrottaskapar í myndinni.
Sandkorn selur það ekki dýrar en það
keypti en þegar Ingimundur Sigfiis-
son sendiherra efndi til fjölmennrar
móttöku í tilefni af frumsýningu
Hrafns ytra mætti heimildamaður
■ljósvakans ekki og viðhafði þau orð
að samvisku sinnar vegna gæti hann
ekki mætt í boð sem haldið væri til
heiðurs þessum manni. Spyrja menn
eðlilega hvort þetta viðhorf hafi haft
einhver áhrif á fréttaflutninginn...
Hrekkjalómur
Gagnagrunnshrekkirinn Valdimar
Jóhannesson er mjög til umræðu nú
um stundir. Einhver lét þau orð falla
! aö hann vantaði nægilega lýðhylli til
að styðja sig við í
átaksmálum eins og
| þessu. Gárungar taka
| svo djúpt í árinni að
: segja að það gæti
I orðið forseta vorum
skeinuhætt ef
Valdimar byðist til
aö vinna fyrir
1 hann að endur-
kjöri, þ.e. ef einhver leggur í
i Ólaf. Þá varð til þessi vísa:
Jafnvel þótt hann sé fyllturfiöri
ogflestir vilji svo traustan mann,
Ólafur missir af endurkjöri
ef aö Valdimar styöur hann.
n
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is
wmmmmmmmm