Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Side 8
■éttir
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
Þjóðminjavörður hverfi úr brúnni eftir nær 40 ára starf:
Þjóðminjasafn í þrot
úr tengslum við lifandi menningu í landinu
„Þór Magnússon er skipstjórinn og
þaö er hans að axla ábyrgðina. Öll
ágreiningsmál, sem hér hafa komið upp,
hafa verið sama marki brennd og endað
í þvi að traust starfsmanna á þjóðminja-
verði hefur brostið. Ég hef vissu fyrir
því að allir starfsmenn eru nú sammála
um að Þór Magnússon verði að víkja,“
segir Ragnheiður Traustadóttir, formað-
ur starfsmannafélags Þjóðminjasafns-
ins, um ástandið sem upp er komið í
safninu eftir að þjóðminjavörður rak
ijármálastjóra sinn sem lið í aðgerð
gegn hailarekstri safhsins sem mennta-
málaráðuneytið hafði gert alvarlegar at-
hugasemdir við. Hailinn nemur um 50
miiljónum króna og er að stórum hluta
til kominn vegna flutnings safnsins
vegna gagngerra breytinga sem unnið
er að á sjáifu safnahúsinu. Sé flutnings-
kostnaður dreginn frá er hallinn hins
vegar ekki nema rúmar 12 milljónir að
sögn starfsmanna. „Þetta snýst ailt um
tilveru safnsins en ekki skitnar 12 millj-
ónir króna,“ segir Ragnheiður Trausta-
dóttir.
í fótspor meistarans
Þór Magnússon tók við staríi þjóð-
minjavarðar fyrir tæpum 32 árum þegar
Kristján Eldjám lét af störfum eftir að
hafa verið kjörinn forseti íslands. Þá
hafði Þór starfað á þjóðháttadeild safns-
ins í nokkur ár þannig að starfsaldur
hans í Þjóðminjasafninu er að nálgast 40
ár. Þór Magnússon
tók við safni sem
Kristjáni Eldjám
hafði tekist að gera
að lifandi hluta ís-
lenskrar menning-
ar með vel heppn-
uðum ahnanna-
tengslum. Kristján
Eldjám samdi bæk-
ur um fomleifa-
fræði sem þóttu
sjáifsögð eign á hverju heimili auk þess
að stjóma vinsælum sjónvarpsþáttum
þar sem hann sýndi og skýrði ýmsa
muni í eigu Þjóðminasafhsins með eftir-
minnilegum hætti. Ávann þáverandi
þjóðminjavörður sér þvílíkar vinsældir
fyrir bragðið að þjóðin gerði hann að
forseta sínum í þakklætisskyni. Það var
í fótspor þessa manns sem Þór Magnús-
son þurfti að fara er hann tók við Þjóð-
minjasafninu og árangurinn liggur nú
fyrir: Þjóðminjasafhinu var lokað vegna
breytinga um mitt ár 1998 og verður lik-
lega ekki opnað fyrr en á 140 ára afmæli
sínu árið 2003. Hurðum er læst svo
árum skiptir i húsi sem verið hefur eitt
af sameiningartáknum þjóðarinnar og
landsmönnum virðist vera alveg sama.
Enginn kvartar opinberlega þó Þjóð-
minjafsafhiö loki í fimm ár á meðan
gera mætti ráð fyrir uppþotum ef
Skautahöflinni í Laugardal væri lokað í
viku.
Þjóöminjasafnið holt að innan og bíður þess aö umbreytast í nútímalegt minjasafn meö glæsilegum sýningum úr
menningarsögu þjóðarinnar - eftir 3 ár.
Þór Magnússon
- góöur maður.
Skemmtilegt hjá
fjármálastjóranum
Hrafn Sigurðsson, fiármálstjóri Þjóð-
minjasafnsins, sem fómað var með
brottrekstri til að mæta aðfmnslum
ráðuneytismanna á hallarekstri safns-
ins, hafði aðeins verið við störf i rúmt
ár þegar hann var látinn fara. Sjálfur
segir hann það hreint með ólíkindum ef
honum einum hefði átt að takast að
koma fiármálum
Þjóðminjasafnsins
í núverandi horf á
svo stuttum tíma.
Árið í Þjóðminja-
safhinu hefði hins
vegar verið mjög
gott og skemmtfleg-
asta vinna sem
hann hefði unnið.
Hrafn var á árum
áður meðal annars
ijármálastjóri Slát-
urfélags Suður-
lands, framkvæmdastjóri Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna, svo og Sölufélags
garðyrkjumanna. Hann er bamabam
Hannesar Hafsteins ráðherra í móður-
ætt.
Bróöir Kára
Fjármálastjórinn fyrrverandi átti
sæti í framkvæmdaráði Þjóðminjasaihs-
ins ásamt þeim Hjörleifi Stefánssyni,
forstöðumanni útiminjasviðs, og Guð-
nýju Gerði Gunnarsdóttur, forstöðu-
manni safnasviðs. Hjörleifur er sá eini
af stjómendum Þjóðminjasafnsins sem
hefur lýst sig reiðubúinn til að axla
ábyrgð á fjárhagsstöðunni og reyndar
Hrafn Sigurðs-
son - skemmti-
leg vinna.
Fréttaljós
Eiríkur Jónsson
boðist til að segja af sér ef framkvæmda-
ráðið gerði það allt. Hjörleifur er bróðir
Kára Stefánssonar i íslenskri erfða-
greiningu.
„Ég hef skilning á ákvörðun þjóð-
minjavarðar að víkja fjármálastjóran-
um úr starfi. Þó menn eigi að axla
ábyrgð þá verða þeir að geta tekið
ákvarðanir þegar eitthvað er bersýni-
lega að,“ segir Gunnar Jóhann Birgis-
son, formaður þjóðminjaráðs, sem jafn-
framt er formaður byggingamefndar
Þjóðminjasafnsins.
„Við erum nú að
kanna leiðir tfl að
bjarga fjárhag
safnsins og stönd-
um frammi fyrir
því að fá skýringar
á 50 til 60 mifljón-
um króna sem við
vitum ekki í hvað
hafa farið. í fjár-
hagsáætlun fiár-
málastjórans, sem
hann lagði fram
snemma á síðasta
ári, var gert ráð fyrir rekstrarkostnaði
upp á 142 mifljónir. Um mitt ár kemur
hann með endurskoðaða fiárhagsáætlun
upp á 170 mifljónir sem þremur mánuð-
um síðar vai- orðin að 202 mifljónum.
Þama er eitthvað mikið að,“ segir
Gunnar Jóhann Birgisson sem er fyrr-
um borgarfulltrúi sjálfstæðismanna i
Reykjavík og sonur Birgis ísleifs Gunn-
arssonar seðlabankastjóra.
Öllum líður illa
Þór Magnússon þjóðminjavörður hef-
ur kosið að tjá sig ekki um erjumar á
vinnustað sínum og mætir tfl vinnu
eins og ekkert hafi í skorist; býður
starfsmönnum góðan dag og hverfur til
sinna starfa, þó svo að starfsmenn hafi
svo til einróma hvatt hann til að hverfa
af vettvangi:
„Okkur líður öll-
um óskaplega ifla
út af þessu öllu.
Þór Magnússon er
góður maður og
það er sárt að þmfa
að horfa upp á
þetta. En hann er
með þykkan skráp
og lætur á engu
bera,“ segir Ragn-
heiður Traustadótt-
ir, formaður starfs-
Ragnheiður
Traustadóttir -
okkur líöur öll-
um ilia.
Hjörleifur
Stefánsson -
bauöst til að
fara.
mannafélagsins. Undir orð hennar taka
aðrir starfsmenn og bera þjóðminja-
verði vel söguna, hann vilji aflt fyrir
starfsfólkið gera en sé ekki góður stjóm-
andi. „Hér er uppsöfnuð þreyta í garð
hans og lengri saga en svo að hún verði
sögð í stuttu máli. Ráðaleysi og stefnu-
leysi hefúr einkennt stjóm Þórs á safn-
inu og þó hann vilji aflt fyrir starfsfólk-
ið gera lyppast hann alltaf niður þegar
skipanimar koma ofan úr ráðuneyti.
Hann vantar bein í nefið,“ eins og einn
starfsmanna hans kýs að orða það.
Draumur og martröö
Gunnar Jóhann Birgisson leggur
áherslu á að við endurreisn Þjóðminja-
safnsins verði að gæta þess vel að rugla
ekki saman fiármálum byggingame&d-
arinnar og safnsins sjálfs. Aflt of mikið
hafi verið um það að byggingarnefhdin
hafi verið að greiða reikninga sem Þjóð-
minjasafnið sjálft átti einfaldlega ekki
fyrir. Framtíðarsýnin væri svo nýtt og
glæsilegt safnahús þar sem Þjóðminja-
safnið myndi endurheimta fyrri sess í
hugum landsmanna. Safnahúsið við
Hringbraut stendur nú holt að innan og
bíður þess að umbreytast í nútimalegt
minjasafn með sýningum á því helsta úr
menningarsögu landsins. Opnað verður
nýtt anddyri í átt að Suðurgötu þar sem
verður móttaka og kaffistofa og allt ann-
að rými hússins nýtt undir sýningar-
hald. Engar
geymslur verða í
nýja safninu held-
ur hefur munum
verið komið fyrir i
framtíðargeymsl-
um í Kópavogi.
Stefnt er að því að
skrifstofur safhsins
flytjist í hús jarð-
fræðideildar Há-
skóla íslands á Há-
skólalóðinni þó
starfsmenn telji
það reyndar allt of litið. AUt þetta og
fleira til er reyndar hluti af framtíðar-
sýn Þórs Magnússonar sem hann hefur
alið með sér öfl þau ár sem hann hefur
verið í Þjóðminjasafiiinu. í raun er
draumur hans að rætast og því hryggi-
legra að hans verði ef til vill minnst sem
þjóðminjavarðarsins sem þurfti að
Imökkiast frá stofnun sem siglt hafði
verið í strand. Lífsdraumur hans breyt-
ist þá í martröð óvæntra starfsloka eftir
áratugastarf í þágu þjóðminja.
Ekki á förum
„Allir hætta einhvem tíma. Sumir
vegna aldurs, aðrir vegna einhvers ann-
ars. Sjálfur er ég ekki á fórum,“ segir
Þór Magnússon, staðráðinn að standa í
brúnni þegar nýtt safnahús verður vígt
eftir 2 til 3 ár. Eins og aðrir starfsmenn
á símadaman á Þjóðminjasafhinu sér
draum um opnunardag enda búin að
vera lengi á vaktinni við Hringbraut:
„Ég vil að Þjóðminjasafiiið verði opnað
með glæsilegri sýningu í febrúar 2003 en
þá á safnið einmitt afmæli og verður 140
ára.“
-EIR
Gunnar Jóhann
Birgisson - eitt-
hvað mikiö að.
Heilsudýnur Svefnherbergishúsgögn Járngaflar
Heilsukoddar Hljðardýnur Rúmteppasett Hágæða
bómullarlök Sœngur Sængurver Lampar Speglar
TILB0Ð
Queen 69,900.-
King 89,900.-
Queen 89,900.-
King 119,900.-
Verð miðasl við dýnu án rammt
Ein mest selda
heilsudýna á landinu
Chiropmctic eru einu heilsudýnurnar sem eru þróaðar
og viðurkenndar af amerísku og kanadísku kíró-
praktorasamtökunum. Yfir 32 þúsund kírópraktorar
mæla því með Chiwpmctic þar á meðal þeir íslensku.
^avík- akvjR^^
UsmúsffHí tauciðrftsl. fiSÍ 'úy*, • fösUttfS'ot t. AlfX'rrrýrt, sírm 461 1150 ♦ www <%