Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Side 19
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
19
- lærði að synda í rólu og köldum sjó
Það má með sanni segja um Ólaf
Gunnarsson að hann sé ekki af baki
dottinn þrátt fyrir háan aldur. Ólafur
býr í húsnæði á vegum Hrafnistu við
Jökulgrunn en á degi hveijum gengur
hann til laugar í sundlauginni á
Hrafnistu og syndir vasklega.
„Það er afbragðsgóð sundlaug hér,
17 metra löng og mjög góð aðstaða. Ég
fer i laugina alla virka daga yfir vet-
urinn en á sumrin rölti ég oft héma
niður í Laugardalinn svo ég geti tekið
mér sólbað auk þess að synda,“ segir
Ólafur.
Ólafur er vel hraustur þrátt fyrir
háan aldur og synti nýlega 800 metra
í lauginni á Hrafnistu til þess að
minnast síns gamla sundkennara
Viggós Nathanaelssonar sem kenndi
honum sundtökin fyrir næstum 70
árum. Viggó lést 1. febrúar 1998, tæp-
lega 95 ára gamall, vantaði reyndar
aðeins einn dag upp á það.
„Viggó var minn fyrsti sundkenn-
ari og ég hafði alla ævi miklar mætur
á honum,“ segir Ólafur sem lærði
sundtökin við heldur erfiðari aðstæð-
ur en nútímabörn eiga að venjast.
Hann lærði aö synda 12 ára gamall í
isköldum sjónum vestur í
Dýrafirði.
Fyrst í rólunni
en síðan í sjónum
„Hann byrjaði á því að
koma sér upp aðstöðu í kjall-
ara skólans á Þingeyri. Þar
festi hann upp rólur sem hann
saumaði úr digru boldangi.
Ein rólan var undir brjóst-
kassann en tvær voru settar
upp á lærin.“
Þannig rólaði nemandi í
lausu lofti og gat æft rétt sund-
tök undir leiðsögn kennarans.
Þegar allir höfðu náð lág-
marksfæmi í sundtökum í
lausu lofti var haldið út í svo-
kallaða Skjólvík, rétt við þorp-
ið.
„Þetta var nú ekki merkileg
búningsaðstaða því það var
sett upp tjald á fjörukambin-
um og þar höfðum við fata-
skipti. Þetta voru aðeins strák-
ar sem tóku þátt i þessu. Það
þótti ekki stúlkum bjóðandi að
synda í köldum sjó. Síðan stóð
Viggó í litlum pramma sem
hann hafði fest skammt undan
landi og hélt á rólu i langri stöng og
einn nemandi í einu var látinn taka
sundtökin í sjónurn."
Tók sundtökin
á hundaþúfu
Ólafur ólst upp hjá afa sínum og
ömmu í Hvammi í Dýrafirði, um
fimm kílómetra innan við þorpið á
Þingeyri. Hann sýndi sundnáminu
mikinn áhuga en það gáfust ekki
mörg tækifæri til æfinga.
„Ég hafði nú það embætti að reka
kýrnar í haga eftir mjaltir. Ég man
eftir því að skömmu eftir að sundnám-
ið hófst var ég að reka kýrnar og varð
starsýnt á mjög vöxtulega hundaþúfu
rétt við slóðina. Ég notaði tækifærið
og skellti mér á magann á þúfuna og
tók sundtökin. Þá gelti tikin Tóta og
Búkolla baulaði því aðrar eins aðfarir
höfðu þær ekki séð.“
Ólafur varð flugsyndur og synti
alltaf í sjónum meðan hann bjó á
Þingeyri því engin sundlaug var þar
þá. Hann lærði málmsteypu í hinni
sögufrægu vélsmiðju Guðmundar J.
Sigurðssonar á Þingeyri sem nú hefur
verið friðlýst en þar voru forn vinnu-
brögð við málmsteypu varðveitt leng-
ur en annars staðar.
Um þveran fjörð
Þegar Ólafur var 19 ára málm-
smíðanemi á Þingeyri vann hann það
afrek að synda yfir Dýrafjörð og hefur
það ekki verið leikið eftir síðan.
„Viggó var að kenna á Núpi og ég
mælti mér mót við hann við ósa
Gemlufallsár sem fellur til sjávar
beint á móti Þingeyri. Félagar mínir
úr smiðjunni reru með mig yfir fjörð-
inn og þar tók hann á móti mér. Viggó
hafði verið svo hugulsamur að panta
sérstaklega svínafeiti frá Reykjavík til
þess að smyrja á mig fyrir sundið.
Hann smurði mig samt ekki allan
heldur aðeins liðamótin á hnjám og
öxlum og ég er viss um að það kom í
veg fyrir að mér yrði eins kalt og ann-
ars hefði orðið.“
Sundið heldur mér
liðugum
Þetta var i júnl árið 1939 og
sundið tók rúmar 60 mínútur i
8 gráða köldum sjónum. Vega-
lengdin mun vera kringum
kílómetri og Ólafur minntist
þessa athurðar réttum sextiu
árum síðar, þá næstum átt-
ræður, með því að synda
sömu vegalengd í Sundlaug
Seltjarnarness. Það var löng-
um hans uppáhaldssundlaug
en sundiðkun hefur fylgt hon-
um alla ævi í mismiklum
mæli en Ólafur stundaði sjó í
20 ár og vann í málmsteypu
önnur 20 ár.
Ólafur segist þakka reglu-
legu sundi og æfingum heilsu-
hreysti sína. Orðum sínum til
áréttingar stekkur hann fram
á gólf og snertir gólfið með
fingrunum án þess að beygja
hnén. Svona heldur sundið
honum mjúkum. En hefur
hann ástundað reglusemi að
öðru leyti?
„Ég smakka stöku sinnum
vín í góðra vina hópi en þetta
er ekkert sem ég þoli orðið,
þetta er varla nema nafnið,"
segir Ólafur sundkappi að lok-
um. -PÁÁ
T.v. Viggó Nathanaelsson, sundkennari Ólafs, og Ólaf-
ur stendur til hægri á myndinni sem var tekin fyrir 10
árum.
JB
b | ' i
V -I V
Læknaregla
heilagrar Margrétar Maríu Alacoque
Kynningar- og fræðslukvöld
með framliðnum sem ræða af reynslu.
23. febr. Meistari meistaranna á öldinni
Umdeildur en svarar fyrir sig. Hefúr sína skoðun á
myndlist, litum, penslum, áritun málverka sinna og
fölsunum. Reyndu að kenna honum. Fólk má koma
með hluti og fá álit meistarans, liti, pensla, pappír.
24. febr. Umdeildur í pistlum og stjómmálum.
Fjallar um og svarar fyrirspumum varðandi fjölmiðla
og stjómmál, óupplýst mál, en samt búið að dæma.
29. febr. Umdeildur alla tíð á sínu sviði.
Svarar fyrir um leiklist, eigin verk og skrif á leikritum
og hvemig.
1. mars. Virtur af þjóðinni í stjómmálum,
Ræðir og svarar um stjómmál og stjómkerfið og
dregur ekkert af.
2. mars. 5 læknar draga ekkert undan.
Svara um lækningar að handan, smitsjúk- dóma,
lyf, veirasýkningar, alnæmi, sykursýki, krabbamein
og uppskurði án þess að sjúklingur sé meðvitaður
um það og fleira.
7. mars. Heilög Margrét Maria Alacoque.
Svarar fyrir „Hvað er að trúa á Jesú Krist“ og líf
eftir þetta líf. Á að óttast dauðann? Hvers vegna?
8. mars. Guðmunda Alfreð og bömin svara.
Ræða um umferðar- og slysagildrur á tveim mest
eknu vegum landsins. Þau hafa reynslu og hafa
horft á mörg dauðsföll og fólk limlest á þessum
stöðum. Hvað þarf mörg dauðsföll áður en eyra og
augu þeirra sem ráða opnast? Bömin vilja líka svör
vegna barnanna sem en lifa.
9. mars. 16 aðilar og heilög Margrét María.
“ Að taka sitt eigið líf eða annarra.“
Svara fyrir um hvemig „heilagur faðir, Jesú Kristur",
tekur á þeim málum ásamt öðrum málum sem verða
fólki ljósar í umræðunni.
14. mars. Gegnumdrvkkja og eiturlvf.
Hver ert þú og hvað er sjálfsagt? 25 aðilar svara
fullum hálsi um stöðuna í þessum málaflokki á
íslandi í dag og framtíðarhorfur. Sá sem var dáðasti
iþróttamaður Islands ræðir um heilsurækt og
átaksíþróttir og afleiðingar þess af eigin reynslu.
15. mars. Virtor af þióðinni fvrir sérsvið sitt.
Hvað era gersemar, hvað á að varðveita og kalla
þjóðminjar? Era þjóðgarðar og landið okkar og
minjar þess virði sem af er látið. Má ekki sökkva
því sem sökkva þarf?
“Heilög Margrét María Alacooque er postuli alhelga hjarta
Jesú Krists og hans hægri hönd.“ Hún var tekin í tölu
heilagra 1920. Ásamt henni koma á umræðukvöldum yfir
65 sem látist hafa af ýmsum ástæðum. Það kemur ffam öll
kvöldin. Hvað er tímabær og ótímabær dauði?
Takmarkaður fjöldi fólks kemst að á hvert umræðukvöld
sem haldið er. Því er nauðsynlegt að panta miða og
sækja degi fyrir auglýsta dagskrá.
Öll kvöldin hefst dagskrá kl. 20 að Skúlagötu 61,
aðsetri reglunnar.
Miðaverð er 1.200 kr. fyrir hvert kvöld.
Reglumiðill: Haukur Dalmar
Reglumiðill: Auður Þorkelsdóttir
Læknaregla
heilagrar Margrétar Maríu Alacoque,
Skúlagötu 61.
Sími 561 9191. Fax 551 2595.