Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Side 27
JO’V LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 27 Ljósmynda- sýning í Gerðarsafni Hin árlega samsýning Blaða- ljósmyndarafélags íslands og Ljós- myndarafélags íslands verður opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi i dag. Þar gefur að líta 128 myndir eftir 29 ljósmyndara. Ljósmynd- arafélagið sýnir stórar ljósmyndir bæði af fólki og landslagi en Blaðaljósmyndarafélagið sýnir myndir sem er skipt í marga flokka s.s. fréttir, íþróttir, fólk, tíska, myndröð og fleira. Að þessu sinni er haldin sér- stök sýning á ljósmyndum eftir Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndara til að minnast aldarafmæli hans. Ljósmyndir Vigfúsar eru skemmtilegur aldarspegill og varðveita horfinn tima. Það er því ekki að efa að þessi ljósmyndasýn- ing á eftir að vekja mikla athygli eins og sýningar þessara lista- manna hversdagslífsins jafnan gera. _________________________________________________Qstir Þetta var ást við fyrstu sýn - Þóra Kristín Johansen þenur sembaiinn með Kammersveitinni Þóra Kristín Johansen leikur einleik á sembal meö Kammersveit Reykjavíkur á sunnudag. Hún hefur búið í Hollandi síðan 1971. DV-mynd Pjetur Nk, sunnudag, þ. 20. febrúar kl. 20.30 heldur Kammersveit Reykjavíkur tón- leika í Langholtskirkju, þar sem ein- göngu verða leikin verk eftir Henryk Mikolaj Górecki Á efhisskránni verða fjögur verk: Þijú lög í gömlum stfl fyrir strengja- sveit (1963), Konsert op. 40 fyrir semb- al og strengjasveit (1980), Góða nótt op. 63 fyrir altflautu, píanó, sópran og tam- tam (1990) og Lítil sálumessa op. 66 fyr- ir pianó og 13 hljóðfæri (1993). Einleikari í sembalkonsertnum verður Þóra Kristín Johansen sem bú- sett er í Hoflandi og er komin tfl lands- ins til að taka þátt í tónleikunum. Ein- söngvari í Góða nótt er Marta Guðrún Halldórsdóttir, en textinn er tekinn úr Hamlet Shakespeares. Stjómandi á tónleikunum er Bem- harður Wilkinson Með þessum tónleik- um sem helgaðir era verkum eftir H. Górecki (f. 1933) vifl Kammersveit Reykjavíkur gefa áheyrendum tæki- færi til að kynnast verkum þessa merka pólska tónskálds. H. Górecki hefur um ævina haldið sig frá sviðsljósinu, bæði vegna heilsufars og mikillar þarfar fyrir einvem. Verk hans vom því lítt þekkt nema í þröngum hópi þar til 1993, þegar sin- fónía hans nr. 3, Sorgarsinfónían, skaust upp í efstu sæti vinsældarlista í Bretlandi og seldist í hundmðum þús- unda eintaka. Tónskáldið hafði þegið boð Kammersveitarinnar um að vera viðstaddur tónleikana en kemst því miður ekki vegna veikinda. „Þegar ég fór til Hollands fyrir um 30 áram til náms hafðiéglærtápíanó en aldrei séð semb- al. Ég féll fyrir hon- um strax þegar ég snerti hann og það má segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn,“ segir Þóra Kristín Johan- sen sembafleikari, sem býr og starfar sem sembafleikari í Hollandi, mest með dúói eða tríói sem kaflar sig Semb- aliplus og flytur nútímatónlist. Hún er einnig kennari við tónlistarskóla í Ut- recht. Þóra kemur að þessu sinni til Is- lands til að sinna tveim verkefnum. Annað er einleikur með Kammersveit Reykjavíkur en hitt er sérstæð listsýn- ing sem verður opnuð í Nýlistasafninu 26. febrúar. Þar sýnir Þóra myndverk níu listamanna við níu tónverk sem hún hefur fengið listamennina til að semja, Þetta em listamenn frá Hollandi, Ítalíu og Frakklandi og sem- ur hver tvö tónverk eitt stutt og annað lengra. í hefld taka verkin um 70 min- útur og mun ganga stöðugt meðan sýn- ingin er opin. „Ég hef alltaf hrifist mjög af nútíma- list í hvaða formi sem hún birtist og þetta samstarf við hina íjölmörgu lista- menn sem komu að gerð disksins var sérlega skemmtilegt og gefandi." Þóra segir að hún hafi haft mjög gaman af því að vinna að undirbún- ingi tónleikanna með Kammersveit- inni en tónskáldið var henni ekki kunnt áður en hún tók þetta verkefni að sér. Þetta er í fyrsta sinn sem Þóra spilar með hljómsveitarstjóra þrátt fyr- ir langan feril. „Ég hef alltaf verið að starfa með svo litlum hópum að við höfum ekki haft stjórnanda," segir Þóra sem segist koma heim til Islands með reglulegu mfllibili og finnst íslenskt þjóðfélag alltaf eins en loftið er alltaf jafh hreint. PÁÁ GRAND VITARA TEGUND: VERÐ: 1,6 GLX 4x4 4d 1.595.000 KR. 1,6 GLX WAGON 4x4 1.695.000 KR. TEGUND: GR.VITARA3 dvra BALENO.. ÍBALENOi Vissir þú að 80% þeirra Suzukibíla sem keyptir eru í dag eru fjórhjóladrifnir? WAGONR+ TEGUND: VERÐ: WAGONR+4X4 1.299.000 KR. TEGUND: VERÐ: Beinskiptur 1.459.000 KR. Sjálfskipting 130.000 KR. GUND: VERÐ: :SE5d 1.840.000 KR Sjálfskipting 150.000 KR. SUZUKIBILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, sími 431 28 00. Akureyri: BSA hf„ Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, sími 555 15 50. Hvammstangi: Bíla- og búvélasalan, Melavegi 17, sími 451 26 17. Isafjörður: Bílagarður ehf.,Grænagarði, sími 456 30 95. Keflavík: BG bílakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Brlasala Suðurlands, Hrlsmýri 5, simi 482 37 00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.