Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Side 48
> 60
matgæðingur vikunnar
LAUGARDAGUR 19. FEBRUAR 2000
Fyrir 6
Botn
50 g möndlur
50 g marsipan
50 g nougat
50 g súkkulaði
50 g makkarónukökur
Allt maukað saman
í matvinnsluvél
Sósa
6 stk. eggjarauður
50 g sykur
50 g púðursykur
1 tsk. nescafé
4 di rjómi
1/2 dl viski
Klæðið botn á springformi
með plasti. Smellið gjörðinni
utan um botninn og dreifið
maukinu jafnt á botn formsins.
Þeytið saman eggjarauður, syk-
ur og púðursykur. Þeytið
rjómann og bætið i með sleikju.
Leysið kaffiduftið upp í
viskíinu. Gott er að hita viskíið
örlitið til að kaffið leysist betur
upp. Bætið út í rjómann, setjið i
formiö og frystið. Berið fram
með þeyttum rjóma og rifnu
súkkulaði.
Bántí
Fljótleg og einfold, og ein-
staklega bragðgóð
9 stk. eggjahvítur
400 g sykur
400 g kókosmjöl
Krem
300 g suðusúkkulaði
100 g smjör
6 stk. eggjarauður
100 g flórsykur
Þeytið eggjahvíturnar og
blandið svo sykri saman
við.Þeytið þar til sykurinn er al-
veg uppleystur.Blandið kókos-
mjöli saman við með sleikju.
Bakið við 180" í tveimur form-
um í ca 18-20 mín. í 26 cm formi.
Krem
Bræðið súkkulaði og smjör
saman, þeytið eggjarauður og
flórsykur vel saman þar til stíf-
ur massi myndast. Blandið þá
súkkulaðinu saman við með
sleikju og setjið kremið strax á
kalda botnana. Kælið tertuna og
berið fram með þeyttum rjóma
eða einhverjum góðum ís.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þær fæst.
„Ég er ekkert sérstaklega duglegur aö elda en þegar ég tek mig til er ég alveg ágætis kokkur,“ sagöi matgæöingur
vikunnar, Hannes Ingvi Jónsson.
Matgæðingurinn Hannes Ingvi:
Fylltar paprikur og
kjúklingur
- svo er það Unda Punda í eftirrétt
„Ég er ekkert sérstaklega dugleg-
ur að elda en þegar ég tek mig til er
ég alveg ágætis kokkur og er þá
alltaf til í að prófa eitthvað nýtt.
Gilli æskufélagi minn hefur alltaf
eldað paprikuréttinn fyrir mig, það
er einn af mínum uppáhaldsréttum
og ég skora á alla að prófa hann,“
sagöi Hannes Ingvi Jónsson, mat-
gæðingur vikunnar. „Kjúklingar
eru með því betra sem ég fæ og með
þessari einföldu uppskrift verður
hann sérstaklega góður. Fyrir þá
sem hræðast flókna matargerð get
ég sagt að þessar uppskriftir eru
hrein og bein snilld því þær eru ein-
faldar og alveg sérstaklega góðar,“
sagði Hannes að lokum.
Foiréttun
Fyllt paprika
Involtini di peperoni
250 g túnfiskur í ólífuolíu, úr dós
2 msk. piparrótarmauk
4 stórar rauðar paprikur
Aðferð: Búið til mauk úr túnfisk-
inum og piparrótarmaukinu.
Hreinsið paprikuna að innan og
glóðið í ofni þar til bólur myndast á
hýðinu. Smyrjið þar næst maukinu
inn í parikuna og velgið í ofni.
Aðalréttur
Frú Nixon
Kjúklingaréttur
1 kjúklingur, steiktur eða soðinn
2 msk. sítrónusafl
3 msk. majones
1 bolli brytjað sellerí
1 bolli rauð paprika
(sultuð í krukku)
1 msk. smátt saxaður laukur
1 dós cream of chicken súpa
1 tsk. salt
1 bolli rifinn ostur
11/2 bolli kartöfluflögur
með paprikubragði
2/3 bolli möndluflögur
Aðferð: Rjúklingurinn er skor-
inn í bita og settur neðst í eldfast
mót. Öllu hinu blandað saman og
sett yflr kjötið. Ostinum stráð yfir.
Síðast koma svo kartöfluflögurnar
og möndlurnar.
Bakað í 20-30 mín. við 200” C. Frá-
bært með hrísgrjónum, brauði og
hvitvíni.
Eftirréttur
Unda Punda
1 lítri Skafis, vanillu
1/2 lítri nýmjólk
Aðferð: Vanilluísinn er settur í
matvinnsluvél og hellt út á hann ný-
mjólk. Svo er þetta allt hrært vel
saman svo úr verði ágætlega þykk-
ur mjólkurhristingur.
Ég skora á Bjöm Jörund Frið-
bjömsson. Ég hef alltaf kunnað
að meta það sem hann hefur gert
og er viss um að hann er ekki
síðri í eldhúsinu.
Nýkaup
Þarsern ferskh'i kinn hýr
Lambageirar
með engifer og rósmarín
Fyrir 6
1200 g lambageirar
2 msk. fint saxaður nýr engifer
(eða engifermauk)
2 búnt ferskt rósmarín
Kryddjurtasósa
7 dl lambasoð (eða volgt vatn
og 3-4 teningar)
2 msk. blandaðar ferskar
kryddjurtir, t.d. rósmarín,
estragon, timian og mynta
sósujafnari, kjötkraftur, salt og
pipar
Meðlæti
24-28 stk. kartöflur, soðnar
200 g belgbaunir, skomar í
bita.
Snyrtið mestu fituna af slögun-
um og smyrjið þau að innan með
engifer. Vefjið slaginu utan um
vöðvann. Stingið í gegnum kjötið
með stórri nál eða prjóni og sting-
ið ferskum rósmarínkvistum í
gegn. Brúnið á pönnu og steikið
síðan við 180“ C í ofni í 10 mínút-
ur eða eftir þykkt geiranna.
Sósan
Þykkið soðið með sósujafnara
og bragðbætið með kjötkrafti,
salti og pipar. Saxið jurtimar og
bætið í sósuna, þó ekki meira en
2 msk.
Meðlæti
Sjóðið belgbaunimar í léttsöltu
vatni í 3-5 mínútur.
Hollráð
Séu ferskar kryddjurnir af
skomum skammti má einnig not-
ast við þurrkaðar kryddjurta-
blöndur.
Fennikkulegnir
lambastrimlar
Fyrir 6
300 g snyrt lambafilet, fitulaust
1 msk. olía til steikingar
fennikkulögur
2 stk. litlir sellerístilkar
1 msk. sinnepskom
1/2 dl ólífuolía
1 msk. Dijon-sinnep
1 tsk. þurrkað estragon
1/2 dl hvítvínsedik
1 tsk. fennikkuduft
salt og pipar
Meðlæti
Fallegt salat til skreytingar, t.d.
Lollo Rosso eða lambhagasalat.
Steikið kjötið á pönnu í olí-
unni, tvær mínútur á hvorri hlið.
Kælið. Saxið selleríið og setjið
ásamt kryddi og olíu í mat-
vinnsluvél og maukið vel. Leggið
nú kjötið í skál og hjúpið með
maukinu. Látið síðan standa í
kæli yfir nótt. Skeriö að lokum
kjötið í þunnar sneiðar og leggið
á fallegt salat. Setjið eina mat-
skeið af maukinu ofan á.
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.