Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2000, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2000, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 7 I>V Fréttir Horft fram á veginn og litið til baka: Listahátíö 2000 Listahátíð 2000 sem hefst 20. maí í vor hefur yfirskriftina Stefnumót við tímann. Óvenjumikið verður um ís- lenska frumsköpun - þetta verður ís- lenskari listahátíð en oft áður - enda aldamótin góð ástæða til að líta til baka og horfa fram á veg og íhuga á hvaða leið menningin er. Sveinn Einarsson, formaður stjóm- ar Listahátíðar í Reykjavík, kynnti dagskrána fyrir fréttamönnum í gær og var sérstaklega hreykinn af því hvað hún höfðar til breiðs hóps. Mikið efhi verður fyrir yngstu listimnend- uma, unnið upp úr sagnaarfinum; ís- lenski dansflokkurinn frumsýnir dans- verk Nönnu Ólafsdóttur eftir íslend- ingaþættinum um Auðun og isbjöm- inn, Leikbrúðuland frumsýnir Prinsessuna í hörpunni eftir Böðvar Guðmundsson og Möguleikhúsið frum- sýnir Völuspá eftir Þórarin Eldjám. Auk þess verða ýmis atriði fyrir alla fjölskylduna eins og sýning látbragðs- leikarans Paolo Nani og brúðuleiksýn- ingin Don Giovanni frá Prag. Forsala á Svanavatnið Langmestur áhugi er nú þegar á sýningu San Francisco-ballettsins á Svanavatninu, útfærslu Helga Tómas- sonar, dansara og listræns stjómanda flokksins, á þessum sígilda ballett. Svo margar fyrirspumir hafa borist um miða á sýningamar fimm að ákveðið hefur verið að hafa sérstaka forsölu að- göngumiða á ballettinn vikuna 1.-7. mars í Upplýsingamiðstöð ferðamála í Bankastræti. Sveinn sagðist sjálfur hafa séð nokkrar uppfærslur á þessu fræga verki, en enga jafngóða og þessa. Þetta er viðamesta erlenda atriðið sem boðið hefur verið á Listahátíð frá upp- hafi; afls koma 60 dansarar fram í sýn- ingunni og hópurinn allur telur upp undir hundrað manns. Atriðið er þar af leiðandi afar kostnaðarsamt en miðaverði verður samt stillt í hóf svo sjálfsagt verður löngu uppselt á sýn- ingamar áður en forsöluvikunni lýk- ur. Almenn miðasala hefst svo strax eftir páska eða 25. apríl. Gjörbreytt viöhorf Bubbi Morthens verður í fyrsta skipti með sjálfstætt atriði á Listahátíð þegar hann leikur sér að sígildum lög- um Bellmans í íslensku óperanni 22. maí. Leikhústónlist verður á opnunar- hátíðinni og era þeir tónleikar liður í öðram hluta tónlistarhátiðar Tón- skáldafélags íslands á árinu sem verð- ur einmitt á Listahátíð. Þar verða líka einsöngstónleikar með yngstu kynslóð söngvara ásamt Jónasi Ingimundar- syni, CAPUT-tónleikar og tónleikar Kammersveitar Reykjavíkur. Spenn- andi verður að hlusta á „tónlistar- Trúðurinn og látbragðsleikarinn heimsfrægi Paolo Nani skemmtir allri fjölskyldunni. menn 21. aldarinnar" í Safnum í Kópa- vogi þegar þrir afburðanemendur halda þar tónleika. Af erlendum gestum er fyrsta fræga að telja Cesariu Evora, berfættu syngj- andi ömmuna frá Grænhöfðaeyjum, sem reynt hefur verið að lokka til ís- lands í mörg ár. Nú kemur hún! Líka sönghópurinn Ladysmith Black Mambazo frá Suður-Afríku, Olli Must- onen pianóleikari og Judith Ingólfs- son. Erlendu atriðin era of dýr til að miðaverð geti staðið undir kostnaði af þeim og styrkur opinberra aðila, menntamálaráðuneytis og Reykjavík- urborgar er heldur ekki hár. Því er Listahátíð nauðsyn á kostrmaraðilum, og sagði Sveinn að viðhorf hefðu ger- breyst til kostunar á skömmum tíma. Nú kæmi iðulega fyrir að fjársterkir aðilar byðust til að styrkja athyglisverð atriði á hátíðinni. Menn vildu vera með. Stafrænar sýnir Enn er fátt talið af atriðum hátíðar- innar. Meðal myndlistarsýninga má nefna Nýjan heim - stafrænar sýnir í Listasafni íslands þar sem Steina Va- sulka verður meðal þátttakenda; nor- rænir samtímalistamenn verða í Nor- ræna húsinu og breskir í Nýlistasafn- inu og gallerí i8. Bókmenntir verða í hávegum hafðar á sýningunni íslands þúsund ljóð í Þjóðmenningarhúsinu Svanavatniö hans Helga Tómassonar. Um það veröur slegist. LÍÚ ræðst á hugmyndir um auðlindagjald og byggðakvóta: Upptaka úr starf- andi fyrirtækjum - á landsbyggðinni, segir Bjarni Hafþór Helgason „Þetta yrði upptaka úr starfandi fyrirtækjum á landsbyggðinni sem eru með 90% af aflaheimildunum. Þar yrði skorið niður til að mæta þessu, fjármunimir fluttir suður og þeir notaðir þar. Menn geta auðvitað sett fram draum- kenndar hug- myndir um eitt- hvað annað en veruleikinn er bara ekki þannig,“ segir Bjarni Hafþór Helgason, rit- stjóri Útvegsins, fréttabréfs LÍÚ, sem kom út á dögunum. I blaðinu er nokkuð rætt um hugmyndir um veiðileyfagjald og hvemig það muni leggjast á landsbyggðina þar sem um 90% aflaheimilda séu utan höf- uðborgarsvæðisins. „Þessar afla- heimildir yrðu gjaldstofn auðlinda- skatts. Veiðigjaldssinnar tjá sig lítið um hvemig ráðstafa eigi þessum fiármunum, enda vandséð hvernig það yrði gert, svo öllum líkaði," seg- ir í blaðinu. „Þeir stjómmálamenn sem vilja taka upp byggðakvóta hljóta því að horfa til þeirra rúm- lega 10% aflaheimilda sem úthlutað er á höfuðborgarsvæðinu. Nema markmiðið sé að styrkja bara sum- ar byggðir úti á landi, á kostnað annarra byggða þar,“ segir í enn- fremur. Bjarni Hafþór telur hug- myndir um byggðakvóta frekar und- arlegar: „Það sem þessir þingmenn eru að tala um er að komast með puttana í þetta sjálfir, að fara í fom- eskjuútdeilingar fyrir sig og sína.“ Kallar á niðurskurö í sjávar- útvegsfyrirtækjum Bjarni Hafþór telur að ef auð- lindagjald yrði lagt á myndi það um- svifalaust kalla á aðhaldsaðgerðir og niðurskurð í fyrirtækjum í sjáv- arútvegi sem kæmi niður á starfs- fólki og byggðum landsins. Hann tekur Útgerðarfélag Akureyringa sem dæmi. „Það má raunar segja að þetta gjald sé að nokkru leyti til í dag í formi veiðieftirlitsgjalds og þróunarsjóðsgjalds sem er yfir 700 milljónir á ári og er lagt á kvóta eins og veiðigjaldssinnar hafa verið að tala um. Ef lagður yrði 50 millj- óna auðlindaskattur á ÚA yrði fyr- irtækið að bregðast við því. Það get- ur ekki breytt afurðaverði sínu þvi það selur vörur sinar á erlendum mörkuðum í hefðbundinni sam- keppni. Fyrirtækið er hins vegar á verðbréfamarkaði og það er ætlast til þess að það skili arði til hluthafa. Yfirmenn verða því að skera niður til að mæta þessu og það er gert þar sem ÚA starfar, hér á Akureyri. Mönnum tekst það kannski og standa eftir með svipaðan rekstur en 50 mifljónimar eru farnar suður í rikissjóð. Síðast þegar ég vissi urðu 8 af hverjum 10 nýjum störfum hjá ríkinu til á höfuðborgarsvæðinu og leyfi ég mér að fullyrða að stærstum hluta þessara fiármuna yrði varið í þenslu hins opinbera á höfuðborgarsvæðinu. Þannig að maður spyr sig: með hvaða rökum ætla menn að verja svona aðgerð yf- irleitt?" segir Bjarni Hafþór Helga- son. -hdm Bjarni Hafþór Helgason. Cesaria Evora. Aðdáendur hennar hafa lengi beðið eftir tækifæri til að sjá hana berfætta á sviöi syngjandi sinn töfrafulla seiö. Pað kemur í lok maí. við Hverfisgötu þar sem ljóðin koma í trúlegustu og ótrúlegustu formum til gesta. Byggingarlistin fær sinn skerf á sýningunni „Öndvegishús og merkileg mannvirki" þar sem bæði fagmenn og almenningur velja mannvirki eftir sín- um smekk. Alþjóðlega arkitektasýn- ingin Garðhúsabærinn verður á Kjar- valsstöðum og málþing verður haldið um arkitektúr. Meira að segja tískan verður með - frönsk hátíska verður sýnd á Hótel Sögu 31. mai. Danskir Englar alheimsins verða í boði og há- tíðinni lýkur á stórsöngvaraveislu með Kristjáni, Kristni, Rannveigu Fríðu og Diddú. Verður það tignarlegur endir á þessari miklu þrítugsafmælisveislu Listahátíðar í Reykjavík. -SA www.brimborg.is brimborgar Nissan Micra, Verð 650.000. 1,3 Rauður, ek. 58 þús. km, framdr., f. skrd. 10/97. Huyndai Accent, Verð 570.000. 1,3 Grænn, ek. 63 þús. km, framdr., f. skrd. 06/96.. Ford Mondeo, Verð 1.250.000. 2,0 Hvítur, ek. 94 þús. km, framdr., f. skrd. 12/97. Daewo Nubira, Verð 1.130.000. 1,6 Grænn, ek. 10 þús. km, framdr., f. skrd. 03/99. Volvo 460, Verð 690.000. 2,0 Grænn, ek. 105 þús. km, framdr., f. skrd. 10/95. Renault Leguna, Verð 950.000. 2,0 sjálfsk., Blár, ek. 58 þús. km, framdr., f. skrd. 02/96. Isuzu crew cab, Verð 850.000. 2,3 Brúnn, ek. 91 þús. km, 4x4, f. skrd. 10/92 Nissan Pathfinder, V. 830.000. 3,0, sjálfsk., Hvítur, ek. 144 þús. km, 4x4, f. skrd. 02/92. Opið laugardaga 11-16 <Sr brímborg Reykjavlk • Akureyrl Brimborg Reykjavík, Bíldshöföa 6, sími: 51 5 7000 Brimborg Akureyri, Tryggvabraut 5, sími. 462 2700

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.