Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2000, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2000, Síða 10
10 MIÐVTKUDAGUR 23. FEBRÚAR 2000 Spurningin Áttu gæludýr? Kristín Harðardóttir nemi: Nei, ég hef aldrei átt gæludýr. Steinar Svan, nemi í MK: Ég á 9 ára kött sem heitir Kát. Þetta er mjög óþekkur köttur, algert villidýr. Álfrún Tryggvadóttir nemi: Já, köttinn Zorba. Hann er 15 ára gamall. Susan Emadeo: Nei, ekkert dýr. Ragnar Birgisson matreiðslu- maður: Dóttirin er nýbúin að fá páfagauk og það er mikil lukka á heimilinu. Guðlaugur Víðir Guðlaugsson: Ég á kött sem hefur ekki enn fengið nafn. Þetta er bara köttur. Lesendur Samþjöppun í smásöluverslun - hærra verð hér en í nágrannalöndunum Eignaraðild á matvörumarkaði hefur færst á færri hendur. - Hér rfkir óskapnaður i verslunarháttum með nauðsynjavörur, segir bréfritari m.a. Karl Sigurðsson skrifar: Umræðan um verðlags- hækkanir hér á landi beinist nú æ meir að sam- þjöppun í smásöluverslun- inni. Og staðreynd er að þrátt fyrir miklar svipt- ingar á matvörumarkaðin- um og með þvi að eignar- aðild færist sífellt á færri hendur hefur matvara hér hækkað í verði á meðan sama vara lækkar eða stendur í stað í öllum ná- grannalöndunum. Margir halda því fram, að sam- þjöppunin í smásöluversl- uninni leiði beinlínis til hækkunar á vöruverði? Því er haldið á lofti að aðstandendur stórmarkað- anna séu orðnir svo frakk- ir að þeir leyfi sér að bjóða neytendum upp á nánast hvað sem er og gefi þær skýringar sem þeim hentar. Eins og t.d. þá að varan hafi hækk- að hjá erlendum birgjum. Eru þá kannski vörur seldar til íslands á öðru og hærra verði en þær sem birgjar selja til verslana í þeirra landi? Hærra verð hér á landi á ekki einungis við innfluttar vörur - innlendar vörur og íslensk merki eru ekki siður mun dýrari hér en sambærilegar vörur í útlöndum. Það er óþarfi að nefna það hér, að í skjóli fákeppni og einokunar er afar auðvelt að níðast á neytendum og það hefur svo sem verið gert ára- tugum saman eins og kom fram í ágætum pistli Eiðs Guðnasonar, fyrrv. alþm., í rabbdálki í Lesbók Mbl. fyrir stuttu. Það er bara núna sem umræðan er í sviðsijósinu vegna þess að kjarasamningar eru i gangi og það er auðvelt að benda á dæmi um hve kaupmáttur launa hér á landi er slakur ekki síst vegna hins háa vöruverðs á nauðsynjavörum úr stórmörkuðunum. Tímabundin tilboð og ílenniaug- lýsingar á komflexi, lærissneiðum, tannkremi, frönskum kartöflum og kannski 10 öðrum völd- um vörutegundum í einni verslun vega ekki þungt til lækkunar smá- söluverðs hér, þegar allt annað í viðkomandi verslun er selt á þetta 8 til 10% hærra verði en í samskonar stórmarkaði í nágrannalöndunum. - Dæmið um gosdrykkina er sígilt: hér kostar tveggja lítra kókflaska um eða yfir 200 kr. á meðan hún kostar um 100 kr. eða minna í er- lendum stórmarkaði. Eru íslenskir stórmark- aðir í senn heildsala og smásala? Blekkja stór- markaðir hér neytendur með útskýringum sín- um um erlendu birgj- ana? Þjóðin hugsaði með hlýhug til stórhuga mannsins í Bón- usi þegar hann bauð henni lægra verð en aðrir gerðu. Sameining var túlkuð sem einfóldun í innkaupum og að lægra vöruverð fylgdi í kjöl- farið. Staðreyndin hefur orðið önn- ur. Eignaraðildin á matvörumark- aðinum hefur færst á fáar hendur, og hér ríkir óskapnaður í verslunar- háttum með nauðsynjavörur þar sem engin mið eru tekin af því sem gerist meðal siðaðra nágranna- þjóða. - Fákeppnin heldur velli og samstaðan um hana virðist dafna sem aldrei fyrr. Hlægileg upphlaup læknastéttar Guðjón Sigurðsson skrifar: Er ekki með ólíkindum að ein há- menntastétt landsins skuli gera sig að flflum með því að ólmast yfir gagnagrunninum hans Kára og krefjast þess að þeir sjálfir hafi hönd í bagga með því að spyrja sjúklinga sína hvort þeir veiti sam- þykki sitt til þess. Auðvitað sjá læknar þama búbót veiti sjúklingar samþykki sitt til að skrá nöfn sín gagnagrunninn. En þetta upphlaup margra lækna er með ólíkindum. Og skammt er stórra högga á milli. Nú þykjast hjón ein vilja lækna sjúka gegnum framliðna og þekkta lækna, jafnvel látna lista- menn, ef mér skjátlast ekki. Og það er ekki að sökum að spyrja; læknar vOja láta landlæknisembættið kanna málið, segja þetta skottu- lækningar og gera kröfu um að stöðva „aðgerðirnar". Er þetta ekki hlægilegt? Hvað ætli margir hér á landi hafi oröið uppvísir að svipuð- um handayfirlagningum eða sam- bandi við látna menn? Þeir eru margir. Finnst íslenskum læknum þaö sæmandi að æsa sig yfir þess- um fáránlegheitum? Reykjavíkurflugvöllur til trafala - borgarstjóri snýr viö blaðinu Reykvíkingur sendi þennan pistil: Nokkurs kvíöa hefur gætt hjá mörgum borgarbúum eftir að ljóst varð að stjórnvöld ásamt borgar- stjórn ætluöu ekki að verða viö þeirri sjálfsögðu beiðni að leggja Reykjavíkurflugvöll niður heldur eyða í hann milljörðum króna vegna endurbóta. Flugvöll sem nú þegar er ónýtur og mætir ekki kröf- um sem gerðar eru til alþjóðaflug- vallar þótt þar lendi margar erlend- ar flugvélar, oft með háttsetta er- lenda gesti. Siðustu samgönguráðherrar sem hafa verið þingmenn landsbyggðar- kjördæma hafa ýtt undir að nota Reykjavíkurflugvöll áfram fyrir innanlandsflugið og kært sig koll- ótta þótt gífurleg slysahætta sé af þessu flugi öllu yfir miðri höfuð- borginni. Samhliða lokun flugvallarins í Reykjavík yrði að gera viðunandi [LH©HÖ\Q@Æ\ þjónusta allan sólarhringinn ■: mynd af im sinum sem blrt verða á lesendasíðu „Þaö er auövitaö ekki þolandi aö einn ráöherra, sem auk þess er þingmaöur dreifbýliskjördæmis, geti ákveöiö framtíðarskipulag fyrir íbúa Reykjavíkur. Þannig á ekki aö vinna.“ - Frá Reykjavíkurflugvelli. samgöngubætur til Suðurnesja og til þess eru fjármunir fyrir hendi þar sem er féð fyrir endurbætur á Reykjavíkurflugvelli. Reykjanes- brautina á að framlengja til norðurs eins og bent hefur verið á. Þá næði Reykjanesbraut allt til Hvalfjarðar- ganga, og auðveldaði fólki ferð frá Vestur- og Norðurlandi til höfuð- borgarinnar eða Keflavíkúr, er það fer utan með flugvél. Nú hefur borgarstjóri tekið nýjan pól í hæðina varðandi Reykjavikur- flugvöll og vill skipa nefnd sem kanni gaumgæfilega allar breyting- ar með tilliti til nýs skipulags Reykjavíkur, svo og flutning Reykja- víkurflugvallar og hugsanlega leyfa borgarbúum að kjósa um málið í heild. Þetta er góð stefnubreyting borgarstjóra. Það er auðvitað ekki þolandi, að einn ráðherra, sem auk þess er þingmaður dreifbýliskjör- dæmis, geti ákveðið framtíðarskipu- lag fyrir íbúa Reykjavíkur. Þannig á ekki að vinna. Opið og ókeypis sjónvarp 'Gunnhildur Óskarsdóttir hringdi: Ég las ágæta blaðagrein nýlega eftir Hólmgeir Baldursson, sem bráðlega ætlar að opna nýja sjón- varpsstöð. Hann lofar áhorfendum nýjungum í sjónvarpi, góðri dagskrá sem höfðar til flestra. Ég fagna þessu. Eftir að Skjár einn fór í gang, áhorfendum að kostnaðarlausu, horfl ég og mitt heimilisfólk á ftest sem til okkar höfðar þar. Og það er æðimargt. Ég sé líka að auglýsingar hafa aukist hjá þessari nýju stöð. í Sjónvarpinu er bókstaflega fátt eitt eftir sem eftirsóknarvert er. Kannski þátturinn Þetta helst... og bíómynd og bíómynd á stangli. Fréttirnar eru fátæklegar og hlut- drægar og höfða helst til embættis- manna. Opið og ókeypis sjónvarp er framtíðin héðan af, stutt af kostun og auglýsingum. Skylduáskrift er úr- elt og líklega ólögleg ef tekið er mið af stjórnarskránni. Þjóðminjavörður heilög kýr? Sigurður Einarsson skrifar: Þjóðminjasafnið er að þrotum komið, ef svo má að orði komast. Þar á bæ er fjárskortur og stoöiunin sjálf á faraldsfæti. Starfsmenn eru að gefast upp á ofríki, skilst manni, eftir að ijármálastjóra var sagt upp störfum. En þjóðminjavörður er ekki margorður, ýmist næst ekki í hann til að halda uppi vömum eða hann þykist lítið vita, bíður vemdar og varðveislu menntamálaráðherra og er þar með úr sögunni í fjölmiðla- umræðunni. Satt að segja hélt ég að framkvæmdastjóri á opinbera stig- inu ætti að vera í forsvari fyrir sinni stofnun, m.a. með því að koma fram í fjölmiðlum þegar stofnun hans sæt- ir ámæli og er í fjármálaógöngum. Þjóðminjavörður minnir einna helst á heilaga kú sem bíður átekta og ráðalaus og því er stofnunin sem höfulaus þegar kemur að umræðu á opinberum vettvangi. Þetta er ótækt. Sjómenn eiga ekki að kvarta Sigurjón Ólafsson skrifar: Manni er ekki rótt þegar maður heyrir i sjómönnum á loðnuskipun- um nú á síðustu dögum. Þeir koma að landi með fullfermi dag eftir dag og varla pláss fyrir aflann í landi. En sjómenn eru ekki ánægðir, þeir kvarta sáran í viðtölum yfir því að verðið hefur dottið niður frá því í fyrra. Ekki er þó um tiltakanlega lækkun að ræða og mega sjómenn una vel við sinn hlut, að viðbættum sjómannaafslætti og öðrum hlunn- indum. Sjómenn ættu að minnast þéss að þeir eru enn ein tekjuhæsta stéttin og þeir eiga enga kröfu á því að vaða i peningum. Margar aðrar stéttir í landi eru að vænta ein- hverrar hungurlúsar til kjarabóta þessa dagana. Kvartanir sjómanna eru marklausar og falla í grýttan jarðveg. Lennon sami lubbinn? Amór skrifar: Hingað til hefur hver tónlistar- gúrúinn eftir annan verið tilbeðinn af milljónum manna, og eftir að Bitl- arnir komu fyrst fram hefur sérhver þeirra notið hylli löngu eftir að þeir hættu að leika saman sem hljóm- sveit. Einn þeirra sem mestrar hylli naut fyrir leik og tónsmíðar var John heitinn Lennon. Hann var frið- arsinni að sögn og fór fyrir hópum sem börðust gegn vopnaskaki víða um heim. Nú virðist sem hann hafi veitt ríflegan fjárstuðning til að við- halda vopnaviðskiptum hinna írsku hryðjuverkasamtaka IRA, sem drápu fjöldann allan af saklausum borgurum bæði í heimalandinu og í föðurlandi Lennons, Englandi. Mað- ur getur því ekki varist þeirri hugs- un að Bítillinn Lennon hafi verið sami lubbinn og aðrir þeir sem styrkja vopnakaup og hryðjuverk. Þaö er sama hvaðan vont kemur á sama hátt og hið góða. Gefum þessu nánar gaum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.