Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000 1>V Fréttir Sjómenn óánægöir meö verðið fyrir loönuna: Hrodalega lágt verð í gangi - segir formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins DV Akureyri: „Þaö er alveg hroðalega lágt verð í gangi, og lægsta verð sem ég hef séð er ekki um 4 þúsund krónur fyr- ir tonnið heldur 3600 krónur, þetta nær engri átt,“ segir Grétar Mar Jónsson, formaður Farmanna- og fiskimannasam- bandsins, en mik- il óánægja er meðal sjómanna vegna þess verðs sem þeir fá fyrir loðnuna um þess- ar mundir. Grétar Mar segir að „leið- beinandi verð“ sem Farmanna- og flskimanna- sambandið hefur gefið út og er reiknað út frá upplýsingum frá Þjóðhagsstofnun, sé á bilinu 4060 til 4200 krónur sé um að ræða „stand- ard“mjöl, en 5130 til 5320 krónur fyr- ir hágæðamjöl. Grétar bendir á að samkvæmt þessu sé verið að greiða verulegra lægra verð því það sé mikill munur fyrir sjómenn á skipi sem kemur með 1000 tonna afla að landi hvort þeir fá 3,6 milljónir króna fyrir aflann eða 5.320 milljón- ir. Loðnan: Sama mokið áfram DV, Akureyri: Undanfarið hefur verið landað um 20 þúsund tonnum af loðnu á degi hverjum og samkvæmt upp- lýsingum frá Samtökum fiski- mjölsframleiðenda í gær var búið að landa aUs 592 þúsund tonnum á vertíðinni. Af þessum afla hafa 509 þúsund tonn veiðst eftir áramót, sem er geysilega gott, og í gær voru eftir rétt innan við 300 þúsund tonn af heildarkvótanum. Mestu hafði verið landað á Eskifiröi, eða 60.653 tonnum, í Vestmannaeyjum 57.908 tonnum, á Seyðisfirði 54.905 tonnum og í Neskaupsstað 52.166 tonnum. -gk Sjómenn eru margir einnig mjög óánægðir með að þeim sé skammtað hvað þeir megi taka mikinn afla í hverri veiðiferð, en sumar útgerð- imar hafa brugðið á það ráð til að tryggja að ekki berist meiri afli á land en svo að hægt sé að vinna Gísli Jónsson, bóndi á Ytri-Húsa- bakka í Skagafirði, segist hafa greinilega orðið var við drunur um það leyti sem gos hófst í Heklu. Hann getur á engan hátt annað en rakið það til gossins, en hélt fyrst að um jarðskjálfta væri að ræða eða flugvél í erfíðleikum. „Þetta voru þungir dynkir, mis- stórir en greinilegir og ég heyrði þá hann í hágæðamjöl. Bæði þetta, og að ekki er greitt sérstakt verð fyrir hráefnið sem fer í hágæðamjöl, fer mjög illa í sjómenn. Þá er bent á að olíuverðshækkun- in sem skall á nú í vikunni bitni mjög illa á sjómönnum. „Þetta verð- best þegar ég kom inn í bogaskemm- una en ég var við gegningar úti við húsin. Hundurinn heyrði þetta greinilega líka og varð hálfhrædd- ur. Ég hraðaði mér heim áður en ég var búinn í húsunum og sá þá í sjónvarpsfréttunum hvernig í þessu lá og tíminn passaði alveg og það var eins og þetta kæmi úr suðaustri. Ég hef nú verið að reyna að hlera ur til þess að lækka skiptaprósent- una og það er broslegt að sjá og heyra útgerðarmenn vera að barma sér opinberlega vegna olíuhækkun- arinnar því það eru sjómenn sem taka þessa hækkun á sig að lang- mestu leyti,“ segir Grétar Mar. -gk hvort aðrir hafa heyrt gosdrunur og veigrað mér við að segja frá þessu, því það er hætt við að manni verði ekki trúað“, sagði Gísli. Veður var hið besta í Skagafirði um það leyti er gosið hófst, en ekki hefur heyrst af fleirum sem heyrðu goshljóðin, enda hafa trúlega fáir verið úti við á þeim tíma. ÞÁ Gosdrunurnar heyrðust norður í Skagafjörð 6. bekkur Mýrarhúsaskóla fLytji í Valhúsaskóla: Mýrarhúsaskóli í gjörgæslu - segir foreldri. Viljum fullt samráð við foreldra, segir bæjarstjóri „Ég er bara að hugsa um barnið mitt. Ég hef lengi haft þá reynslu að best sé að þegja en nú er mælirinn fullur og ekki eingöngu hjá mér sjálfri. Það var svo mikil reiði á fundi sem haldinn var um daginn um að flytja ætti 6. bekk frá Mýrar- húsaskóla yfir i Valhúsaskóla að ég varð hálfhrædd en Mýrarhúsaskóli er í algerri gjörgæslu vegna titrings- ins sem var nú síðastliðið vor,“ seg- ir óánægt og áhyggjufullt foreldri á Seltjamarnesi. Til stendur aö flytja 6. bekk Mýr- arhúsaskóla yfir í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi til að sporna við plássleysi í Mýrarhúsaskóla. Sam- kvæmt upplýsingum DV var mikil ólga meðal foreldra á fundi sem haldinn var í síðustu viku þar sem rætt var um að til stæði að af flutn- ingnum yrði nú í haust en þá yrði 6. og 7. bekkir að flytjast yfir. Unglingamenning “Þetta á að vera tilraun en hvorki ég né aðrir kærum okkur um aö bömiii okkar séu notuð í tilrauna- skyni. Það er ekkert leikpláss við Valhúsaskóla fyrir 11-12 ára gömul böm og við viljum að bömin fái að vera böm. Við höfum ekki góða reynslu af eldra bami okkar sem var í Valhúsaskóla vegna mikils eineltis en viö ætluðum að þrauka þar til yngra barnið kláraði Mýrar- húsaskólann en nú stendur til að það fari næsta haust í Valhúsa- skóla,“ sagði foreldrið en fram kom á fundinum að einelti í Valhúsa- skóla væri með því mesta sem þekk- ist í sveitafélögum. Á umræddum fundi sagði skóla- stjóri Mýrarhúsaskóla, Regína Höskuldsdóttir, að elstu nemendur Mýrarhúsaskóla væru ávallt vel undirbúnir fyrir skólaskiptin en ef þessi breyting gengur í gegn nú í haust verður tæpast um slíkt að ræða. „Ég óttast mjög unglinga- menningu Valhúsaskóla og áhrif hennar á litla bamið mitt ef af þess- ari breytingu verður og óttinn nær til allra foreldra eins og greinilega kom fram á fundinum," sagði for- eldrið. Engin ákvörðun tekin “Það er ekki búið að ákveða neitt. Bæjarstjórn hefur ekki viljað taka af skarið fyrr en skýrsla liggur fyr- ir frá skólastjórn Valhúsaskóla en hún á að vera tilbúin öðru hvorum megin helgarinnar. Við reiknum fastlega með þvf að af þessu verði en hvort það verður í haust eða næsta haust er ekki ákveðið," sagði Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnamesi. Sigurgeir sagði foreldra hafa haft áhyggjur af naumum tíma og að fyr- irhugaðar breytingar við Valhúsa- skóla yrðu ekki tilbúnar ef af þessu yrði nú í haust. „Ákvörðunin verð- ur ekki unnin nema í fullu samráði við foreldra og við viljum endilega að allir verði sammála þegar af þessu verður," sagði Sigurgeir. -hól Sandkorn _______ m Umsjðn: Haukur L. Hauksson netfang: sandkom@ff.ls Leikaratölt Lögbirtinga- blaðið er eilíf uppspretta sagna um ná- ungann, enda lesið í tætlur af fjölmörgum. í tilkynningum til hlutafélaga- skrár mátti ný- lega lesa rnn stofnun fyrirtækis sem heitir Tölt ehf. Eins og nafnið gefur til kynna er tilgangur þess rekstur hesthúss, kaup og sala á hestum og fleira tengt hestastússi. Tveir stofnendur þess eru hins vegar þekktari af öðrum vettvangi en hesta- mennsku. Það eru leikaramir Hilmir Snær Guðnason og Jó- hann Sigurðarson sem einnig er formaður stjórnar... Gjörningur Bjarna Bjami Þórar- insson, mynd- listarmaður með meiru, er þekkt- ur fyrir ýmsa listgjöminga. Hann hefur nú boðað mikla uppákomu á skemmtistaðn- um Grandrokk viö Smiðjustíg. Tilefnið er auðvit- að að Reykjavík er menningar- borg Evrópu 2000. Eftir því sem Sandkom kemst næst ætlar Bjarni að framkvæma gjöming hinum megin við barborðið á Grandrokk. En tímasetningin er óljós og Bjami mun enn fremur vera tregur til að láta uppi hvað hann hyggst nákvæmlega gera. Biða grandrokkarar spenntir eftir því sem verða vill og er starsýnt á barinn... Hárið undir Sandkorn selur það ekki dýrar en það keypti en sú saga gengur að Valsstúlkur í handbolta hafi lagt hárið undir fyrir úrslita- ! leikinn gegn Gróttu/KR á dögunum. Ynnu þær fyki hárið. Til að gera langa sögu stutta þá unnu Vals- stúlkur bikarinn og þóttu afskap- lega vel að þeim sigri komnar. Þeir sem heyrðu söguna um heit hinna fræknu stúlkna hafa verið að gjóa á þær augum undanfarið. Þeir hinir sömu hafa hins vegar ekki séð neina umtalsverða útlits- breytingu. Hefur það leitt til vangaveltna um hvort heitið hafi verið rofið eða þá að það hafi ver- ið haldið en árangurinn ekki sýni- legur... Leitið og þér... Og loks einn um vopnfirsku hjónin sem brugðu sér á ball. karlinn var orð- inn heldur fram- lágur þegar leið I á skemmtunina | og útlit fyrir að I hann mundi sofna við borðið. Eiginkonan sá að tími væri kom- inn til að hypja sig heim með karl- inn og dröslaði honum út. Á leið heim varð karli mál eins og geng- ur, gekk út af stígnum og kastaði af sér vatni. Konan sneri sér und- an, svona rétt á meðan en heyrir þá hvar karl dettur framyfir sig. Hún lítur við, sér karl skríða um á fjórum fótum og spyr í hæðnistón hvort hann hafi týnt einhveiju. Karlinn umlar eitthvað en segir svo: Það hlýtur aö vera því ég var með eitthvað í höndunum þegar ég datt...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.