Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 3
Hljómsveitin Botnleðja, öðru nafni Silt á engilsaxneskri tungu, hefur haft
nóg að gera í vetur. Sveitín fór í eíns og hálfs mánaðar hljómleikaferð um
Bretland í haust og var nýverið að spila á tónlistarhátíð í Hollandi.
Snæfríður Ingadóttir hringdi í söngvara sveitarinnar, Heiðar Kristinsson, til
þess að forvitnast um það hvað væri fram undan hjá Botnleðjumönnum,
e f n i
Konur með klámi:
„Við erum
hlynntar strippi“
h|á Botnleðju
Heiöar er hamingjusamur meö þaö aö vera kominn aftur á kaldan klakann eft-
ir dvöl í Bretlandi. Hann er að vinna að nýju efni í hinu íslenska skammdegi
með hinum strákunum í Botnleðju.
„Við erum að vinna að nýju efni hér
á íslandi og stefnum að því að koma út
með disk síðar á árinu,“ segir Heiðar
Kristinsson, söngvari og gítarleikari
hljómsveitarinnar Botnleðju, og bætir
við að honum finnist langbest að
vinna hér heima. Það er ekki hægt að
segja annað en það hafi verið mikill
flækingur á sveitinni að undanförnu
og ekki er hann að minnka. Sveitin er
að endurútgefa plötuna Magnyl sem
kom út fyrir næstsíðustu jól í Bret-
landi og í Skandinavíu og ætlar að
fylgja útgáfunni eftir með tónleika-
ferð.
Vantar fjórða mann
„Okkur var mjög vel tekiö í Bret-
landi. Það er enn þá mjög gott að vera
frá íslandi og hjálpar til upp á plögg-
ið,“ segir Heiðar um tónleikaferðina
um Bretland síðastliðið haust en sveit-
in er þekkt erlendis undir nafninu
Silt. „Það var alveg ómögulegt að fá út-
lendinga til að bera fram orðið Botn-
leðja svo við flettum upp í orðabók og
þýddum orðið bara beint,“ segir Heið-
ar og er ánægður með útkomuna.
Nú voruö þið að spila í Hollandi um
daginn og Biggi i Maus var með ykkur,
er hann að ganga til liðs við bandið?
„Nei, hann er að gera það gott með
sinni eigin hljómsveit. Aftur á móti
hætti Kristinn Gunnar, sem hefur
spilað á hljómborð hjá okkur, rétt fyr-
ir jólin þannig að Biggi hljóp í skarð-
ið á þessum tónleikum."
Þið eruð sem sagt að leita ykkur að
fjóróa manni?
„Við erum með augun opin en upp-
haflega vorum við bara þrír í bandinu
og um leið og einhver af þeim kjama
hættir þá er hljómsveitin dauð,“ segir
Heiðar og er greinilega alveg rólegur í
mannaráðningunum. Sveitin þarf þó
að redda sér fjórða manni fyrir lok
mars en þá á hún að spila í Bretlandi.
Hættur með Elísu
Það að Heiðar hefur eytt miklum
tíma í Bretlandi að undanfornu hefur
ekki bara haft með Botnleðju að gera
heldur einnig Elísu í Bellatrix en Bell-
atrix hefur verið að gera það gott þar
i landi. „Það er orðið mikið að gera
hjá báðum sveitunum þannig að stað-
an er orðin þannig að við Elísa hitt-
umst aldrei,“ segir Heiðar og staðfest-
ir að parið sé hætt saman en þess má
geta að sveitirnar nota sama umboðs-
mann.
í síðustu viku var Hivernales-danshátíðin haldin í Avignon í Frakklandi. Þar var
dansstuttmyndin Örsögur úr Reykjavík sýnd við góðar undirtektir og kepptust frönsk
dagblöð við að hlaða myndina hrósi, hægri og vinstri. Danshöfundar í myndinni
eru þær Ragna Sara Jónsdóttir, Sveinbjörg
Þórhallsdóttir og Margrét Sara Guðjóns-
dóttir. Auk þess sýndi íslenski dans-
flokkurinn verk eftir Ólöfu Ingólfsdóttur.
H©itui* dans
frá köldu landi
„Örsögur úr Reykjavík var
frumsýnd 29. janúar í samvinnu
við M2000. í gangi er skiptipró-
gramm sem kallast Transdance og
gengur út á það að menningarborg-
irnar skiptast á dansatriðum.
Þannig stóð á því að við fórum
utan til Avignon," segir Sveinbjörg
þegar hún og Ragna eru spurðar
um tildrög strandhöggs þeirra í út-
löndum. Viðbrögð við stuttmynd-
inni voru framar öllum vonum og
voru stór lýsingarorð látin falla
um þetta framlag íslendinga.
„Þetta var rosalega skemmtilegur
tími þarna úti. Við fengum mjög
mikla umfjöllun og alla góða,“ bæt-
ir Sveinbjörg við.
Hér eru sum þeirra ummæla
sem komu í frönsku blöðunum: Le
Marseillaise sagði að „ísland kom
mest á óvart“ og Le Dauphiné
Libere segir að dansarnir í mynd-
inni séu „litlir dýrgripir úr kuld-
anum“. Einnig fékk Bergur Bern-
burg mikið lof fyrir myndræna út-
færslu á verkinu.
Lentu í landkynningu
Það sem kom þeim stöllum dálít-
ið á óvart var hvað fólk vissi í
rauninni lítið um ísland. „Fólk var
alveg rosalega undrandi þegar það
komst að þvi að hér væru ekki
bara hverir, jöklar og Björk. Yfir-
leitt kemur bara eitt verk frá
hverri þjóð á þessa sýningu og fólk
var svolítið hissa þegar allt í einu
voru mættir fjórir danshöfundar
frá litlu þjóðinni i norðri," segir
Ragna Sara.
Þær segjast þar af leiðandi hafa
eytt miklum tíma í það að útskýra
fyrir fólki hvernig ísland væri
svona nokkrun veginn og lentu þar
af leiðandi í hálfgerðu landkynn-
ingarstarfi.
Nýjar íslenskar stjörnur?
Sveinbjörg segh að þær stöllur
hafi staðið I viðræðum við ýmsa
aðila á meðan dvöl þeirra stóð og
séu nú samningar í gangi um sölu
á sýningarrétti í sjónvarpi í Frakk-
landi. „Okkur voru látin í té nokk-
ur stór nöfn i þessum bransa og
við hittum þá. Síðan er bara að sjá
til hvemig það gengur. Við höldum
bara áfram að semja nýtt efni og
reynum að nýta okkur meðbyrinn
sem við höfum núna,“ segir Svein-
björg.
Einnig er búið að biðja þær að
sýna myndina í Prag, Bologna,
Cain, Bergen og fleiri borgum
þannig að útlitið er bjart um þess-
ar mundir. Nú er það bara spurn-
ing hvort við íslendingar séum að
bæta í sarpinn með frægt fólk í út-
lóndum.
Evróputyppið:
Passa
strákarnir
okkarí
smokkinn?
Ekki fara til Svíþjóðar:
jl\ t En á Bretlandi
eru til ber- j
eru til ber-
brjósta hár-
greiðsiudömur
Hvert fóru:
Sandra og
Corey
Ham?
8 og 9
Leitin að költinu:
Er það dautt
eða sprelllif-
andi? 10-11
Döbbið og hinn
ótrúlegi:
Lee Perry
Stelpurnar í Kittie:
Erum við sjálf-
ar og spilum
þungarokk ^
Ragnar Bragason
leikstjóri:
Braut haus-
kúpu með., a
jöxlunum
Hvernig fólk fer
í ferðir á vegum
útvarpsstöðva
Ásta a q
Hafþórsdóttir: IX
Fór til Afríku
að læra afró
Lífíd eftir vinnu
Svertinginn fger
uskarifin
Hausar fjuka
Sónus-Sjeiksi
Ást í Buttercup
fýja stefnan
Blaðauki meðf ókus
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndlna tók Teitur af Ragnari
Bragasyni.
3. mars 2000 f Ókus