Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 9
Corey Haim og Corey Feldman Sáust síöast sem teymi í vinsœlum unglingakvikmyndum á borð viö Lost Boys (‘87) og License to Drive C88). Hvað gerðist? Feldman sat inni fyrir að hafa heróín I fórum sínum og kvikmyndir Haims áttu sífellt minni vinsældum að fagna. Nú leika þeir báðir! rusli sem aldrei kemst inn fyrir þröskuld kvikmynda- húsa. Þeir leiddu saman hesta sína á ný og léku saman í nokkrum „klassískum" myndum á tímabilinum '92-’94, m.a. National Lampoons Scuba School. Sú mynd náði þeim einstaka árangri að vera gefin út á myndbandi hér á landi - samt sem áður sá hana ekki nokkur sála. í dag er ávallt öruggt að hulstrin með spólum þeirra eru með því Ijótasta sem gengur og gerist. Nútímaútgáfa: Matt Damon og Ben Affleck. Möguleiki á endurkomu: Haim 1 á móti 1.000.000, Feldman 1 á móti 1000. Ástæöa þess að Feldman á meiri möguleika er einfaldlega sú að hann hefur leikið í betri myndum eins s!ns liðs, myndum á borð við Stand by Me og Gremlins, svo er hann líka betri leikari. Samt myndi ég ekki veðja háum fjárhæðum á hann. Að veðja á hann er svona állka og að veðja á að Bradford verði Englandsmeistari. Það að veðja á endur- komu Haims er eins og að veöja á að Man Utd falli. \h)OH fc. DONOVHM Jason Donovan Sást síðast sem Scott Robinson í Nágrönnum, á toppi breska vin- sældalistans, í kringum ‘90 og auó- vitað um árabil sem kœrasti Kylie Minogue. Hvað gerðist? Eftir að hafa verið goð unglingsstelpna í Evr- ópu og Asíu um árabil sturtaði hann ferlinum niður í klósettið með því að fara! mál við t!ma- ritiö FACE vegna greinar tímaritsins þar sem fullyrt var að hann væri hommi. Þar sem hann var mjög vinsæll meðal samkynhneigðra, sem túlkuöu aðgeröir hans sem svo að hann hefði fordóma gagnvart þeim, minnkuðu vinsældir hans til muna. Einnig er hægt að kenna því um að tónlist hans var ömurleg. Hann eyddi nokkrum árum í að leika sér á brimbrettinu sinu og að soga kókaln í nös og komst svo ! fréttirnar fyrir að hafa tekið inn of stóran skammt i afmælisveislu Kate Moss. Þetta gaf sögusögnum um eiturlyfjaneyslu horrenglunn- ar Moss byr undir báða vængi og fóru bresku slúðurblöðin hamförum í lýsingum sínum á gegndarlausri kókaínneyslu hennar. Þeim var alveg sama þó að Donovan ætti hlut að máli þar sem öllum var skítsama um hann. Eftir þetta lék hann í nokkrum áströlskum kvik- myndum sem aldrei náðu íslandsströndum. Nú er hann aö vinna að nýrri plötu (jibbí). Nútímaútgáfa: Ronan Keating. Möguleiki á endurkomu: 1 á móti 20.000.000. Hann semur lögin á nýju plötunni sinni sjálfur, sem hann gerði einnig á síðustu plötu. Hún náði hæst 103. sæti breska vinsældalistans. Það eru því meiri llkur á að Bítlarnir komi saman aftur, með John Lennon ! broddi fylkingar, heldur en að Jason Donovan nái fyrri vinsæld- um. New Kids on the Block Sáust sióast á svefnherbergisveggj- um unglingsstelpna um gjörvalla veröld fyrir og eftir 1990. Segja má aö þeir hafi hleypt„boy band“-bylt- ingunni af stokkunum (takk, strák- ar). Þegar vinsœldir þeirra náöu sem mestum hœöum voru sýndar um þá teiknimyndir á Stöö 2. Ég man nú ekki betur en aö þœr hafi veriö nokkuð spennandi. Hvað gerðist? Vinsældir þeirra döluðu þegar aðdáendhópur þeirra fór að eldast. Því reyndu þeir að breyta ímynd sinni og urðu harðir hip hopparar. Þetta gekk ekki betur en svo að myndbandið við að- allagið á nýju plötunni þeirra var bannað og hljómsveitin hálfpartinn leystist upp. Tveir þeirra, Joe Mclntyre og Jordan Knight, reyndu að fara sóló, sinn í hvoru horninu, en enginn vildi gefa tónlist þeirra út. Þeir gáfu þá út á eigin kostnað og náðu á endanum einhverri smáathygli. Donnie Wahlberg reyndi fyrir sér sem leikari og fékk ágætlega bitastætt hlut- verk í Mel Gibson-myndinni Ransom. Nú þeys- ist hann um skjáinn á Ðisney-stöðinni banda- rísku ! hlutverki Indiana Jones (Guð minn al- máttugur, hvað er aö verða um heiminn?). Hann lifir auðvitað sem fyrr! skugga eldri bróð- ur síns, Marks Wahlbergs, sem aldrei var meðlimur i NKOTB þrátt fyrir orðróm um slíkt. Hinir tveir, þeir Jonathan Knight og Danny Wood (sá sem leit út eins og froskur og sagði aldrei neitt), hafa stilltframadraumum slnum í hóf. Knight er fasteignasali og Wood vinnur við tónlistarsenuna í Boston. Nútímaútgáfa: Backstreet Boys (hvað annað). Möguleiki á endurkomu: 1 á móti 100.000.000, Enginn áhugi virðist vera fyrir hendi hjá strákunum á slíku og virð- ist áhugi almennings á slíku vera álíka lítill. Gunnar I Krossinum mun sjálfsagt fýrr af- homma Pál Óskar en Nýju krakkarnir ná aftur fýrri hæöum. ? ■ Stelpurnar: O Sandra Sást síöasta sumar en þá rétt glitti í hana þegar hún reyndi að meika það aftur. Hvað gerðist? Hin þýska Sandra sló I gegn með laginu Maria Magdelena um miðjan níunda áratuginn. Þótti hún einstaklega frið ásýndum og halda lagi ansi vel. Þ.a.l. átti hún allnokkrum vinsældum að fagna um nokkurra ára skeið, aðallega þó í heimalandi sínu. Hún giftist árið '90 mannin- um á bak við eins manns hljómsveitina Enigma. Eftir brúðkaupið dró hún sig í hlé og hafði sig lítið í frammi þar til seinasta sumar að hún gaf út nýtt lag. Það náöi hæst i 69.sæti þýska smáskífulistans. Hún sleikir nú sárin í villu sinni í úthverfi Stuttgart. Þess má geta að í næsta húsi við hana býr Ásgeir Sig- urvinsson. Nútímaútgáfa: Britney Spears Möguleiki á endurkomu: 1 á móti 10.000. Henni mistókst seinasta sumar en aldrei á að vanmeta.þýskt gæöa- stál. t Samantha Fox Sást síöast á föstu með Paul, söngv- ara hljómsveitarinnar Kiss, og í Playboy. Hvað gerðist? Snemma á níunda áratugnum fékk Samantha margan ungan peyjaliminn til að standa blý- harðan þegar hún sýndi stinnan barminn á hinni frægu síðu 3 í breska slúðurblaðinu The Sun. Þá 15 sekúndna frægð sem því fylgdi náði Samantha að framlengja um fáein ár með því að gefa út nokkrar plötur. Heldur fór að halla undan fæti þegar hún hætti aö vilja sýna á sér brjóstin og auðvitað spilltu einnig fýrir þau aukakíló sem hún var farin að bæta á sig. Lét Samantha sig þá algerlega hverfa af sjónarsviöinu allt þar til Playboy gróf hana upp árið '96 og tók við hana opnuviðtal. Nú er hún húsmóöir en kemur þó fram öðru hvoru víðs vegar um Bretlandseyjar og tekur lagið. Ekki fer miklum sögum af undirtektunum. Nútímaútgáfa: Geri Halliwell Möguleiki á endurkomu: 1 á móti 1.000.000.000. Stjarnfræöilega litlir þar sem hún hafði litla sem enga hæfileika til að byrja meö, nema hún nái að slá ! gegn á siðum sorpritsins „Over 40". ? ®-> Viðvarandi þu e-pillan er skaðvaldur. Fyrsta taflan rífur þig upp í tryllings- legar hæðir, gerviveröld gleði og stundarbrjálæðis. Þegar áhrifin dvína, nokkrum klukkustundum síðar er fatlið hátt niður í tilgangsleysi og svartsýni. Með tímanum finnur þú fyrir framtaksleysi, vanmáttarkennd, svartsýni ög sektarkennd. Geðsveiflurnar sem e-taflan veldur draga þig sífellt neðar, langt niður fyrir það sem eðlilegt er. Þar bíður þín þunglyndi og örvinglan! e-taflan er hættuleg! Landlæknir, Ríkislögreglustjórinn, Jafningjafræðslan, ísland án eituriyfja, Áfengis- og vímuvamaráð, Félag framhaldsskólanema ■ Vanlidan Vanlídan eykst 3. mars 2000 f ÓkUS 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.