Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Síða 13
svart og hvítt. Við ætlum bara að halda áfram að vera við sjálfar og spila þungarokk!" Kittie hefur verið að hita upp fyrir grímu- klædda öfgaband- ið Slipknot síð- ustu vikurnar í Evrópu og vakið mikla athygli enda í ferskri mótsögn við ann- að smástelpu- popp. Þá er Kittie fyrsta bandið sem hefur verið bókað á Ozzfestivalið í sumar. Þetta er því allt á uppleið hjá Kittie og kannski verður smápíuþung- arokkið „normið" I sumar? Vonum það allavega... Vilja allar smástelpui heimsins vera eins og Britney Spears; vera sætar, kunna a< dansa og dingla brjóstunum? Nei. Kittie klára er kanadísk smápíu- hljómsveit sem rokkar eins og rifjasteik! Það hefur varla farið fram hjá mögum að sætar smástelpur með sílíkonbrjóst hafa tröllriðið vin- sældalistunum síðustu misserin. Sem betur fer er til önnur hlið á smástelpupoppinu og þar koma kanadísku smápíurnar í Kittie sterkar inn. Bandið er skipaö fjór- um 15 til 17 ára stelpum og fer söngkonan Morgan fremst. „Ég stend ekki á sviði og syng: „Hit Me Baby, One More Time!“. Við erum miklu þroskaðri en svo,“ segir hún. „Fólk þarf að venja sig við atburði sem gerast á hverjum degi. Ef það gerir það fremur það ekki sjálfsmorð eða myrðir aðra út af atburðum eins og þeim að kærastinn segir þér upp.“ Stjörnukerfi Ifókus ★ ★ ★ ★ ★ Gargandi snilld! ★ Notist í neyö. ★ ★ ★ ★ Ekki missa af þessu. o Tímasóun. * * * Góð afþreying. jjíSkaðlegt. ir ir Nothæft gegn leiðindum.^ p1ötudómar IVppin skreppa saman Morgan er elst, 17 ára, en systir hennar, trommarinn Mercedes, yngst, 15 ára. Bassaleikarinn Talena og gítarleikarinn Fallon eru báðar 16 ára. Bandið var stofnað í leikflmitíma og áður en þær fóru að semja lög æfðu þær sig á lögum Nirvana og Sil- verchair. Tónlistin er eins langt frá poppfroðu Britneyar og hugsast getur og líkist meira þungarokki Kom, nema hvað stelpurnar eru mun skemmtilegri. Fyrsta platan heitir Spit og kom út í fyrra og af henni hef- ur hið mergjaða lag, Brackish, verið að geraða gott. „Miðað við það hvemig fólk hugsar mun það halda að lög eins Spit, Suck og Choke séu um kynlíf, en það er ekki rétt,“ segir Morgan. „Til dæmis lagið Do You Think I’m a Whore? - það er um það hvernig ég lít á sjálfa mig og hvernig aðrir hugsa um mig. Stundum held ég bara að fólk átti sig ekki á því út á hvað við göngum. Við erum stelpur að taka þátt í strákabis- ness. Flestir búast við þvl að við get- um ekkert en svo komum við á svið og feykjum þakinu af kofanum. Allir standa bara gap- andi og typpin á strákunum skreppa saman.“ Dissa ekki Britney Þó tónlist Kittie sé af allt öðru sauðahúsi en tónlist ann- arra ungra kvenna og áhersl- urnar aðrar em þær ekki tilbúnar til að dissa Britn- ey greyið. „Nei, við tölum ekki illa um hana og við virðum hana, við viljum bara ekki vera eins og hún! Að bera hana saman við okkur er eins og bera saman Robbie send- ir Noel krans Robbie Williams hlýtur að hafa liðið illa eftir að hann las viðtal við Noel Gallagher þar sem hann sagði: ,Ég hef enga ástæðu til að vera vinur Robbie Williams. Hann er bara feitur dansari sem var I Take That." Robbie þurfti auðvitað að koma með mótleik og mætti á skrifstofu dag- blaðsins The Sun með stór- an krans sem á stóð: „Til Noels Gallagher. Hvíl í friði. Heyrði nýju Oasis plötuna - ég sam- hryggist. Robbie Williams." Robbie bætti við að nýja Oasis-platan væri drasl „Noel er búinn með allar hugmyndir annarra," sagði hann. The Sun kom kransinum auðvitað til Noels og nú er að sjá hvaö gerist næst í þessari popp- arasápuóperu. Ætli Noel hugsi „sá vægir sem vitið hefur meira?" Varla... Britney þroskast Britney Spears ætlar að syngia Rolling Sto- nes-lagið (I Can’t Get No) Satisfaction á næstu plötu. Platan á að koma út í mai og heitir Oopsl.J Did It again. Upp- tökum á henni stjórna Rodney Jerkins, Max Martin og Robert „Mutt“ Lang, allt menn sem frægir eru fyrir sinn of- urslípaöa R&B stíl. Stónsklassikin verður því verulega poppuð upp hjá Britney. Hún segist sjálf vera að þroskast í tónlistinni: „Röddin mín hefur þroskast meira og ég held að það verði meira hipp-hopp í gangi á nýju plötunni." ) Vinsælasti hljóðkarl samtímans Hljóökarlinum William Orbit skaut upp á stjörnuhimininn eftir að hann vann með Madonnu við síðustu plötu söngkonunnar. Þessar vikurnar er plata Williams, Pieces in Modern Style, ofarlega á vinsældalistunum en á plötunni tekur hann fyrir nokkur klassísk tón- verk. Þá er William heilinn á bak viö nýjasta smell All Saints sem trónir á tindi enska listans. William er þessa dagana að klára upptökur á nýrri Madonnu-plötu og hefur verið boðið að vinna næstu Limp Bizkit-plötu. Þetta finnst honum spennandi verk- efni: „Ég er hljóðlátur Breti en þeir eru hávær- ir, Kanarnir. Ég held að eitthvað frábært komi út úr samstarfinu." William hefur líka verið boðið að vinna við næstu Blur-plötu, en hann tók einmitt upp síðustu plötu Blur, 13. Því miö- ur hefur hann ekki tíma: „Mér líður eins og ég sé að klofna í tvennt," sagði William alveg í rusli yfir að geta ekki að hangið með Damon í stúdíóinu mánuðum saman. hvaöf fyrir hvernf ★★★ Hljómsveltin: OaSÍS piatan: Standing on the Shoulder of Giants Útgefandi: Helter Skelter/Skífan Lengd: 47:57 mín. Oasis er þekktasta hljómsveit Breta síðustu ár. Standing on the Should- er of Giants er fjórða platan þeirra og sú fyrsta eftir hina frekar mislukkuðu Be here now sem kom út árið 1997. Hennar hefur veriö beðið með töluverðri eftirvæntingu. Tónlist Oasis er frekar einfalt og melódískt rokk undir miklum áhrif- um frá Bítlunum. Þetta er útvarps- væn gítartónlist sem, ef mið er tek- ið af sölutölum, höfðar til ansi margra. Nýja platan er svolítið þyngri en hinar þrjár fýrri en annars er þetta að mestu leyti sama upp- skriftin. ★★ Hljómsveitin: The Cure Platan: BloodflOWerS Útgefandi: Rction/Skffan Lengd: 58:07 mfn Hljómsveitin hans Roberts Smiths með 13. stúdíóplötuna og e.t.v. þá síðustu. Bandið hefur átt marga létta smelli (Love Cats, Friday l'm in Love) en inn á milli komið meö þungar skffur (Faith frá '81 er meistaraverk). Hér er Cure f þung- lamalegum fTlingi með naflaskoðunartexturn. Augljóslega fyrir uppkomna goth-ara og höröustu Cure-aðdáendur. Þetta er heldur ekki slæm plata fyrir þá sem þykir fátt eins gaman og að liggja voteygir f bælinu dögum sam- an pælandi í sjálfum sér, stöðu sinni f alheiminum og af hverju sfð- asta ástarsamband gekk ekki upp. ★ ★★ . Hljómsveitin: YmSÍr Platan: MUSÍC for Dancefloðrs Útgefandi: Strut/Hljómalind Lengd: 56:03 mín. Safnplata meö upptökum úr safni KPM-stúdfósins í Bretlandi en KPM er alhliða framleiðslutyrirtæki á tón- list. KPM er þekktast fyrir að hljóð- rita alls konar stef fyrir sjónvarps- þætti. Þessi plata hefur að geyma upptökur sem fundust þegar gagna- safn fyrirtækisins var kannað fýrir stuttu. Platan inniheldur 20 lög frá sjöunda og áttunda áratugnum. Þetta er mest instrúmental tónlist; rafiazz, latin grúv og fönkí kvikmyndatónlist. Þetta er ffnt fyrir unnendur 70's grúvs og tilvalin plata fyrir djolli gestamóttökur og kokkteilpartf. ★ ★★ Hijómsveitin: Smashing Pumpkins Piatan: MACHINA/The Machines of God Útgefandi: Virgin/Skffan Lengd: 73:21 mfn. Rmmta stúdíóplata sköllótta vælu- kjóans Billys Corgans og félaga hans. Fyrsta platan, Gish, er mikil snilld en það var með 2. og 3. plöt- unni sem bandið varð að rokkveldi. Síðasta platan, Adore, frá '98, þótti fullskrýtin og gekk ekki vel en með þessari má búast við aö rétt verði úr kútnum. Músfk fyrir þá sem leggja eyrun við „commercial alternative"-tónlist en bandið er kóngur I þeirri deild. Sem sagt þétt og kraftmikil gftarrokktón- list sem sækir f hefðirnar og minnir stundum á gamalt efni með U2 og Cure. Tónlist sem fer rakleitt á play- lista X-ins og Radfó. skemmtileqar staöreyn ai r Noel Gallagher hefur sagt að dóp- neysla hafi skemmt þriöju Oasis- plötuna, Be here now. Hljómsveitin þurrkaði sig þess vegna upp fyrir gerð nýju plötunnar og var öll án eit- urlyja í stúdíóinu. Tónlistin á plöt- unni eru samt mun sýrukenndari og dóplegri heldur en á fyrri plötunum. Þó Robert hljðmi hér eins og heim- urinn hvíli á heröum hans hefur hann stundum húmorinn í lagi. Til dæmis var ekki mikið gráthljóö i honum þegar hann bjargaði heimin- um frá hinni illu Mecha Streisand í South Park-þætti árið 1998. KPM-stúdíóiö hafði á sínum snær- um suma af frægustu session-hljóð- færaleikurum Bretlands. Þessir karl- ar tóku t.d. upp steflð fyrir „News at Ten". Sumt af þessari tónlist er það sem þeir voru að bauka þegar þeir gátu djammað óáreittir á milli verk- efna. Ætli RÚV lumi á fönki í fórum sínum? Trommarinn Jimmy Chamberlin er genginn aftur í bandið eftir eiturlyfja- meðferð. Billy gerir mikið úr hlut- verki hans og segir lögin oft breyt- ast heilmikiö þegar trommuleikur hans bætist við þau. Þá er Ijós- hærða bassabeibið hætt og gömul vinkona Billys, Melissa úr Hole, komin í staðinn. niöurstaöa Þokkaleg plata sem byrjar vel. Fyrstu fjögur lögin eru góð. Það sem á eftir kemur er misjafnt. Maður átti von á meiri breytingum á tónlistinni. Þeir félag- ar þurfa að taka sig töluvert á fyrir næstu plötu ef þeir ætla að halda áfram að vera í fremstu röö. Þessi plata er lít- ið skref í áttina að einhverju nýju og spennandi. trausti júlíusson. Löng og frekar leiöinleg plata þar sem einfaidar og hugmyndir eru teygðar langt yfir þolanleg mörk. Samt er þetta skásta Cure-platan síðan Disintegration kom út 1989 því nokkur lög eiga góða, kraftmikla spretti og skera sig úr ægidapurri flatneskjunni. dr. gunni Music for Dancefloors er ágæt plata. Þetta er svolítið misgott efni en f bestu lögunum sýður hressi- lega á hljóðfæraleikurunum. Platan jafnast ekki á við „Pulp Fusion“-serí- una en þetta er gott engu að síður. Maður fær seint nóg af svona tón- list. trausti júlíusson Grófasta plata bandsins og sjaldan hafa föss-boxin verið jafnmikið not- uð. Inniheldur mörg dúndurlög sem jafnast á við fyrri toppa á ferlinum en í heild nær platan varla að halda manni spenntum, enda of löng. Sýn- ir hvorki nýjar hliðar á bandinu né bætir einhverju róttæku viö ört staðnandi rokkið. dr. Gunni 3. mars 2000 f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.