Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Blaðsíða 4
Fatahönnuðirnir Linda Björg Árnadóttir,
Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir og Bára
Hólmgeirsdóttir eru þeirrar skoðunar að
það sé ekkert athugavert við strippdans.
Hins vegar þykir þeim umræðan um
strippara vera fáránleg. Tísku-
spekúlantarnir útskýrðu sjónarmið sín
og féllust á að lýsa skoðun sinni á tíu
atriðum sem viðkoma kynlífi, nokkru
sem mörg pempían veigrar sér við
að tala um en ætti ekkí að vera
feimnismál fyrir neina nútímakonu.
Daginn
eftir pilla
Linda: „Þessi
pilla er mjög
heppileg í tilfell-
um eins og
nauðgunum.
Það er ekkert að
henni.“
Hrafnhildur: „Ég hef alveg
misst af umræðunni en samanber
útskýringar ykkar þá finnst mér
daginn eftir pillan hið besta mál.“
Bára: „Já, þessi pilla er hið best
mál ef hún kemur í veg fyrir að
stúlkur þurfl að ganga i gegnum
eitthvað eins hræðilegt og fóstur-
eyðing hlýtur að vera.“
Strippari
Linda: „Mér finnst nakið fólk
fallegt og það ætti að vera óhrætt
við að sýna líkama sinn.“
Hrafnhildur: „Sjá komment í
viðtali."
Bára: „Eg ber jafn mikla virð-
ingu fyrir strippurum og öðrum
starfsstéttum."
„Víð erum hlynntar
strippdansi"
Klámmyndir
Linda: „Mér finnst ekkert að því að
það séu til myndir með fólki að stunda
kynlíf meðan allir eru því samþykkir
og ekki verið að misbjóða neinum.
Enda er kynlíf eðlilegt.“
Hrafnhildur: „Ég er sammála
Lindu. Klámmyndir eiga rétt á sér
svo lengi sem ekki er verið að mis-
bjóða neinum.“
Bára: „Lífið á bara aö vera gam-
an og það er fint ef fólk getur
skemmt sér yfir klámmyndum.“
Samkynhneigð
Linda: „Mér finnst bæði sam-
kynhneigð og gagnkynhneigð vera
eðlilegar hneigðir."
Hrafnhildur: „Af hverju spyrðu
ekki um gagnkynhneigð?"
Bára: „Mér finnst þetta allt frá-
bært.“
Trúboðastellingin
Linda: „Ég er á móti henni og
finnst að það eigi að banna hana.“
Hrafnhildur: „Mér ftnnst að allt
megi.“
Bára: „Mér finnst trúboðastell-
ingin góð og gild ásamt öllum öðr-
um stellingum.
Vændi
Linda: „Ég held að vændi sé
bara eðlilegur hluti af mannlíftnu
og við losnum aldrei við það. Mér
finnst að það ætti að lögleiða vændi
svo vændiskonur geti stofnað stétt-
arfélög og fengið viðeigandi læknis-
þjónustu. Þá er líka hægt að fylgj-
ast með þessu og koma í veg fyrir
alls konar misnotkun á fólki í
þeirri starfsgrein."
Hrafnhildur: „Ég vildi að eng-
inn þyrfti ósjálfviljugur að selja lík-
ama sinn.“
Bára: „Ég virði það ef fólk er al-
gjörlega sjálfviljugt í þess-
ari starfsgrein en öll
misnotkim og þving-
un í þessu finnst
mér ógeðsleg."
„Já, við erum hlynntar stripp-
dansi,“ segir Bára og lítur á hinar
tvær. Linda kinkar kolli og útskýr-
ir skoðun þeirra frekar: „Okkur
finnst ekkert að því að vera nakin
uppi á sviði. Þetta er bara vinna og
fólk fær ágætlega borgað fyrir
þetta.“
Hrafnhildur: „Umræðan um
þetta hefur líka verið svo skrýtin.
Einhverjar kerlingar úti í bæ halda
því fram að við eigum að skamm-
ast okkar ef einhverjar konur séu
að dansa naktar. Eða þá að við eig-
um að vorkenna þeim. Þessar kerl-
ingar reyna að ákveða álit allra
hinna.“
Vændi hefur alltaf
verið til í Reykjavík
Linda: „Karlmenn myndu aldrei
segja að eitthvað væri niðurlægj-
andi fyrir aðra karlmenn. Konur
hugsa meira um sig sem hóp en
karlar hugsa meira um sig sem ein-
staklinga,“ fullyrðir Linda.
Bára og Hrafnhilur hlæja og sú
síðarnefnda tekur næst til máls:
„Þegar umræðan stóð sem hæst
var voða mikið talað um „okkur“
konur. Við viljum ekkert vera
„við“ eða „okkur“ konur.“
Linda: „Nektardans misbýður að
sjálfsögðu siðferðiskennd ein-
hverra. En ber ökkli þykir til dæm-
is vera hneyksli í sumum
arabalöndum og ef dansinn mis-
býður siðferðiskennd fólks þá á það
hreinlega ekki að horfa á hann og
svo er alltaf veriö að tengja umræð-
una við vændi - en vændi hefur
alltaf verið til í Reykjavík!“
Genasamsetning
líkamans
Bára er ekki alveg sammála síð-
asta ræðumanni og segir: „Auðvit-
að getur vændi fylgt þessari at-
vinnugrein. Mér finnst ekki hægt
að útiloka að vændi fyrirfinnist
þar. Fólk er alltaf að selja sig á ein-
hvem hátt til að komast áfram og
í hávegum haft.“
Hrafnhildur: „Ég er mjög sam-
mála Lindu.“
Bára: „Mér finnast víbratorar
æðislegir."
Fóstureyðing
Linda: „Ég er
fylgjandi fóstur-
eyðingu en mér
finnst að hún eigi
að vera neyðarúr-
ræði.“
Hrafnhildur: „Fóstureyðing er í
lagi svo lengi sem hún er notuð
sem neyðarúrræði en ekki getnað-
arvöm.“
Bára: „Ég hef engu við þetta að
bæta.“
Playboy
Linda: „Ég styð
frelsi einstaklings-
ins til að tjá sig á
prenti.“
Hrafnhildur:
„Sammála."
Bára: „Já, ég
er sammála
Lindu.“
eflaust í þessu starfi sem öðrum.“
Mynduö þiö sjálfar dansa til aö
redda ykkur pening?
Linda svarar fyrir þær vinkon-
umar: „Ég er í annarri vinnu og
auk þess hefur þetta ekkert að gera
með okkur. Hins vegar er þetta
bara starf og ég á til dæmis vin-
konu sem hefur unnið við þetta.
Staðreyndin er bara sú að það er
alltaf til fólk sem vill banna eitt-
hvað, eins og Bríetstelpumar sem
vilja banna fegurðarsamkeppni.
Hvers vegna að banna fegurðar-
samkeppni frekar en stærðfræði-
keppni? í báöum tilfellum ræður
genasamsetning líkamans hver sig-
urvegari keppninnar er. Ég vil ekki
banna fóstureyðingar þótt ég færi
ekki í slíka aðgerð sjálf.“
Klám
Linda: „Mér finnst þátturinn
Bold and Beautiful vera klám því
hann misbýður mér. Kynfæri eru
bara eðlilegur hlutur og kynlíf er
ekki klám. Til dæmis má nefna
Rómverja, þeim var kynlíf ekkert
feimnismál. Kynlífsdýrkunin var
svo mikil að þegar Pompei var graf-
in upp voru kynlífsmyndir á veggj-
unum og Falusartákn á hverju
götuhomi."
Hrafnhildur: „Hvað er klám?“
Bára: „Ég veit ekki alveg hvað
klám er!“
atiíií
Víbrator
Linda: „Mér finnst að fólk eigi
að gera það sem þvi finnst gott og
skemmtilegt. Frelsi einstaklingsins
r.jr ' “ r
Hrafnhildur: „Ég vildi aö jW1
engínn þyrfti ósjálfviljug-
ur að selja líkama sinn.“
,
jfr-
Bara: „Eg ber jafn
mikla virðingu fyrir
strippurum og öðrum
starfsstéttum.“
v Lindr „Mér finnst -w
þátturinn Bold and
Beautiful vera klám því'
hann misbýöur mér.“
-
• • •
H^TTU AO REYkOA.! HALTTU AO REYIOA!
7/
/
HAÍ.TTU AÐ REYIOA ! H/“LTTU AO REYKJA!
*TIA AO SKIUA fESSUM REYKS KY N3A6A,
MÉR FINNST HANN PUU FANAT íSRUR...
5IUX Y-3F1
T2I J
4
f Ó k U S 3. mars 2000