Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Page 8
3 h a f
Fred Dryer
Sást síöast berjandi á óþokkum Los
Angeles-borgar ásamt vinkonu
sinni, DeeDee McCall, sem tilfinn-
ingalega kaldi harðjaxlinn og
rannsóknarlöggan Rick Hunter í
spennuþáttunum Hunter (‘84-’91).
Hvað gerðist?
Þættirnir náðu sér aldrei á strik eftir að
DeeDee McCall yfirgaf Hunter árið ‘89. Dryer
hætti svo framleiöslu þáttanna við upphaf
seinasta áratugar. Það fyrsta sem hann gerði
eftir það var að kaupa sér planó sem hann
kunni ekki á og hafði engan áhuga á að læra
á (Mikael, þetta er satt, ég setti þetta bara inn
af því þetta er steikt). Lítið merkilegt gerðist
hjá Dryer næstu árin. Árið '95 gerði hann til-
raun til endurkomu í nýjum sjónvarpsþáttum
sem sýndir voru á hinni sálugu Stöð 3, sællar
minningar. Þeir entust í jafnvel skemmri tíma
en Stöð 3, aðallega vegna þess að áhorfend-
ur höfðu álíka mikinn áhuga á þeim og Fred á
píanóleik. Fred hefur nú sætt sig við að frægð-
arsól hans mun aldrei risa jafn hátt og hún
gerði um árið og er hann nú, þrátt fyrir að eiga
hvorki konu né börn, heimavinnandi húsmóð-
ir. Hann ku þó eiga nokkra doberman-hunda.
Nútímaútgáfa:
David Caruso.
Möguleiki á
endurkomu:
1 á móti 10.000. Aldrei má
vanmeta gamla harðjaxla. Munlö að James
Coburn vann óskarinn á seinasta ári eftir að
hafa verið týndur og tröllum gefinn áratugum
saman. Þó er óskarsverðlaunatilnefning
handa Fred Dryer álíka líkieg og að Ástþór
Magnússon komi á heimsfriði.
Skuggabar
nr. 2?
Frægðin er fallvölt. Eina stundina lag á toppi bandaríska vinsældalistans,
þá næstu gætu menn allt eins verið að afgreiða á McDonald’s. Það er að
sjálfsögðu misjafnt hvað verður um fólk sem fellur af stjörnuhimninum. Sumir
sætta sig við þetta sem hluta af lífinu en aðrir reyna í örvæntingu sinni að
endurheimta fyrri frægð. Heiðar Sumarliðason skellti sér í rannsóknarleiðangur
og reyndi að komast að því hvað varð um nokkrar af stjörnum síðustu
tveggja áratuga sem hurfu að því virðist sporlaust af sjónarsviðinu.
Horn fýrir
hæfileika
Sjónvarpsþátturinn
Með hausverk um
helgar á Sýn ætlar að
bjóða upp á nýjan dag-
skrárlið í þætti sínum
frá og með kvöldinu í
kvöld. Þessi dagskrár-
liður ber nafnið Hæfi-
leikahomið og þar get-
ur fólk af götunni kom-
ið og sýnt hæfileika
sína. Hugmyndina að
horninu fengu þátta-
stjórnendur þegar þeir
fengu hæftleikalausa
sálfræðinemann Hann-
es Ingvar í heimsókn
um síðustu helgi.
Hannes benti á það að
tækifærin fyrir meðal-
menn til að öðlast
frægð og frama væru
ekki mörg þannig að
þátturinn hefur ákveð-
ið að koma til móts við
þennan hóp fólks. Menn geta sitráð sig
til þátttöku í Hæfileikahorninu eða bent
á aðra með því að fara inn á heimasíð-
una. www.hausverk.is. Það skiptir ekki
máli hvaða hæfileika fólk hefur, allt get-
ur gengið í þáttinn, en menn verða þó að
hafa einhverja hæfileika til að bera.
Nýjustu fréttir úr skemmtanabransan-
um eru þær að Örn Garðarsson á Brass-
eri Borg hefur tekið yfir Kaffi Reykjavík.
Sögusagnir segja að Össi ætli að hressa
upp á Kaffi Reykjavík svo um munar og
ætli hreinlega að breyta staðnum í
Skuggabarinn nr. 2,
enda væri það ör-
ugglega ekki vitlaus
hugmynd þar sem
Skugginn hefur
gjörsamlega verið
yfirfullur síðustu
mánuði. Þessum
breytingum neitar
reyndar rekstrar-
stjóri staðarins, Sig-
þór Samúelsson, og
þvi tipsum við á
það að Öm sé með
þessum kaupum að
tryggja það að
Skuggabarsgengið
geti djammað fram í
rauðan dauðann.
Þegar aldurinn fær-
ist yflr verður liðið einfaldlega flutt yfir
á Kaffi Reykjavík þar sem höslið heldur
áfram og yngra lið tekið inn á Skugg-
ann. Þetta kallar maður bisnessvit f
lagi.
Gunnar Hansen sem Leatherface.
Eitt helsta meik þjóðarinnar fyrr og síðar var þegar Islend-
ingurinn Gunnar Hansen lék brjálæðinginn Leatherface í The
Texas Chainsaw Massacre. Annað helsta meik þjóðarinnar var
þegar Davíð Oddsson forsætisráðherra stóð rétt hjá Bill Clint-
on á fundi helstu leiðtoga heims hér um árið. Þeir eiga því
margt sameiginlegt, þessir tveir menn, fyrir utan að vera báðir
hlynntir niðurskurði. Hárgreiðslan þeirra er líka keimlík og
þó að Leatherface sé með grímu er engu að síður svipur með
þeim. Svo eru þeir báðir með mjög sérstakt andlitslag og stórt
og stæðilegt höfuð. Davíð Oddsson og Gunnar Hansen sem Le-
atherface eru tvífaramir þessa vikuna.
Mark Hamili
Sást síóast þegar hann, sem Logi geimgengill, fleygöi
fööur sínum, blámanninum Svarthöföa, á báliö í Re-
turn of the Jedi (‘83).
Hvað gerðist?
Hann hvarf af sjónarsviðinu og heyrðist ekkert frá honum fyrr en árið
‘89. Lék hann þá í kvikmyndinni Slipstream sem ekki þótti merkileg-
ur pappír. Þurftu svo aðdáendur hans að bfða í 4 ár þar til hann iét
aftur á sér kræla. Þá rak á strendur okkar japanska hryllingsmynd
sem gekk undir hinum ýmsu nöfnum en hér á landi var hún gefin út
undir nafninu Mutronics. Aðdáendur hans þustu auðvitað út á leigu
en urðu fljótlega fyrir vonþrigðum þvf ekki þurfti að horfa nema I kort-
er áður en menn föttuðu að þetta var hreinræktað rusl. Seinast sást
tii hans í ríkiskassanum f sænsku framhaldsþáttunum Hamilton, þar
sem hann svæfði jafnvel ofvirkustu menn.
Nútímaútgáfa:
Leonardo DiCaþrio.
Möguleiki á endurkomu:
1 á móti 1000. Aðdáendur hans ættu ekki að biða i
með öndina f hálsinum. Fyrst hann hefur ekki enn
náð sér á strik eru líkurnar á endurkomu hans hverfandi.
Mr. T
Sást síöast þegar hann baröi Sly
Stallone í klessu í Rocky 3 (‘82).
Hvað gerðist?
Herra T náði að halda vinsældum sínum um skeið með
A Team-þáttunum (‘83) og Mister T teiknimyndunum
(‘83) sem sýndár voru I barnatfmanum á Stöð 2 um
árið en Mr T var ekki lengi f paradís, fremur en forfaðir
hans, Adam. Fljótlega varð hann brandari í skemmtana-
bransanum og fór huldu höfði um árabil - reyndi svo 1yr-
ir sér í fjölbragðaglímu án mikillar velgengni. I dag reyn-
ir hann að skrimta á fornri frægð en hann ætti ekki að
láta slfkt á sig fá þar sem hann var alinn upp f sárri fá-
tækt og sagan segir aö einstæð móðir hans hafi þurft
að framfleyta honum og 11 systkinum hans með að-
eins 87 dollara á mánuöi sem hún fékk f styrk frá fé-
lagsmálastofnun. Hann hefur nýlega komið fram sem
hann sjálfur í nokkrum bíómyndum og sjónvarpsþátt-
um, seinast í kvikmyndinni Insþector Gadget (‘99).
Nútímaútgáfa:
Það er aðeins einn Mr T en Mike
Tyson er góður kandfdat.
Möguleiki á
endurkomu:
1 á móti 1000. Það er aldrei að vita. John Travolta
tókst það auðvitað og Mr T er goðsögn f lifanda lífi.
Andrew Ridgeley
Sást síöast hoppandi um á
sviöi meö George Michael
sem verri helmingur dúetts-
ins Wham. Þar þóttist hann
spila á kassagítar sem
hann kunni ekkert á.
Hvað gerðist?
George Michael leysti Wham upp þar
sem hann var ekki ánægður með
framlag Ridgeleys. Ridgeley haföi
meiri áhuga á kappakstursbílum og
kvenfólki en tónlistarsköpun ogvegna
iftils áhuga George Michaels á kven-
þjóöinni er þetta nú allt saman skilj-
anlegt. Ridgeley tók sig seinna sam-
an í andlitinu og gaf út plötu sem eng-
inn keypti og er nú öðrum vfti til varn-
aðar f tónlistarheiminum. Hann er f
dag giftur einni af gellunum sem voru
í Bananarama, vinnur við góðgerðar-
starfsemi og þeysist um á brimbrett-
um.
Nútíma-
útgáfa:
Mark Owen, litli gaur-
inn I Take That sem
gat ekki sungið.
Möguleiki á
endurkomu:
1 á móti 500.000.000. Hann hefur
sjálfur jafn lítinn áhuga á að láta í sér
heyra og við að heyra f honum.
Paul Hogan
Sást síöast þrammandi um óbyggðir
Ástralíu og mannmergö New York-
borgar í hlutverki hins óviðjafana-
lega Crocodile Dundee (‘86).
Hvað gerðist?
Hogan segist sjálfur hafa verið svo latur að
hann hafi ekki nennt að leika f neinum mynd-
um eftir Crocodile Dundee II (‘88). Hann pfndi
sig þó til að fara með aðalhlutverkin í hinum
óminnisstæöu Almost an Angel ('90), Lightn-
ing Jack (‘94) og Flipper ('96). Hann gerði
einnig garðinn frægan fyrir aö giftast mót-
leikkonu sinni úr Dundee-myndunum, Lindu
Kozlowski, og skilja við hana nokkrum árum
sfðar.
Nútímaútgáfa:
Steve Irwin, brjálæðingurinn
úr Crocodile Hunter-þáttun-
um á Animal Planet.
Möguleiki á
endurkomu:
1 á móti 100. Hann á nokkuð góðan séns á
að ná fyrri frama. Á næsta ári kemur út þriðja
myndin um Crocodile Dundee sem heitir þvf
skemmtilega nafni Crocodile Dundee Goes to
Hollywood.
?
■
Richard Grieco
Sást síöast í þáttunum 21 Jump
Street (88-89), í kvikmyndinni Teen
Agent (‘91) og á herbergisveggjum
milljóna unglingsstelpna.
Hvað gerðist?
Grieco náði einfaldlega ekki að fylgja eftir vin-
sældum sfnum í sjónvarpi, Ifkt og mótleikari
hans úr 21 Jump Street, Johnny Depp. Árið
‘95 fékk hann annað tækifæri í sjónvarpi þeg-
ar hann lék aðalhlutverkið f þáttunum Marker.
Þeir þættir áttu stutt æviskeið og var kippt af
dagskrá eftir að hafa hvað eftir annað verið
þeir þættir sem höfðu minnst áhorf af öllum
þáttum á dagskrá f Bandaríkjunum. Nú leikur
hann í ódýrri þriðja flokks vídeóframleiðslu
sem vonandi nær aldrei þessum ströndum.
Nútímaútgáfa:
Ricky Martin.
Möguleiki
á endurkomu:
1 á móti 300.000.000. Á
álfka mikinn möguleika á
þvf að ná fyrri vinsældum og Halim Al á að
vinna árlega kosningu Rásar 2 á manni árs-
ins.
8
f Ó k U S 3. mars 2000